Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1993, Blaðsíða 6
6
MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1993
Viðstópti
Þorskur á fiskm
Kr/kg Þr Mi Fi Fö Má Þr
Hlutabr. Flugleiða
Bensín 92 okt.
$ ^
Mi Fi*t FÖ Má
Gengi irska pundsins
Kauph. í Hong Kong
Hruní
Hong Kong
Slægð ýsa á fiskmörkuðum hef-
ur verið að lækka í verði ífá því
um helgina þegar kílóið fór í 106
krónur á laugardag.
Hlutabréf Flugleiða hækkuðu
nokkuð í verði í síðustu viku.
Gengið fór í 1,21 á fóstudag en
hefur verið 1,20 í þessari viku.
Verð á 92 okt. bensíni í Rotter-
dam hefur haldist óbreytt í þess-
ari viku. Óvíst er hvað gerist eftir
fund OPEC-ríkjanna sem nú fer
fram í Austurríki.
Gengi írska pundsins gagnvart
íslensku krónunni fór í 101 krónu
á mánudag og var skráð svipað í
gærmorgun.
IDutabréfavísitalan í kauphöll-
inni í Hong Kong hefur verið á
hraðri niðurleið eftir að hafa náð
sögulegu hámarki í byijun síð-
ustuviku. -bjb
Þörungaverksmiðjan á Reykhólum að rétta úr kútnum:
Veltan aukist
um 70 prósent
- sala þangmjöls aukist um 80 prósent
Rekstur Þörungaverksmiðjunnar á
Reykhólum í Barðastrandarsýslu
hefur tekiö stakkaskiptum á árinu
eftir mjög erfitt síðasta ár. Velta síð-
asta árs var upp á 65 milljónir króna
en að sögn Páls Ágústs Ásgeirssonar
framkvæmdastjóra er búist við að
velta þessa árs verði í kringum 115
milljónir. Það ér veltuaukning um
70%. Verksmiðjan hefur selt á þessu
ári miklu meira af þang- og þara-
mjöli en á öllu síðasta ári. í sölu
þangmjöls nemur aukningin 80%.
„Vandamáhð hjá okkur eins og
flestum öðrum íslenskum fyrirtækj-
um er að rekstrarafangur er ekki
nógu mikill. Við áttum töluverðar
birgðir frá fyrra ári og höfum verið
að ganga á þær. Um næstu áramót
ætti birgðastaðan að verða eðlileg,"
sagði Páll Ágúst í samtali við DV en
töluvert rekstrartap varð á síðasta
ári. Að sögn Páls er reiknað með ein-
hverjum hagnaði þegar þetta ár
verður gert upp.
Á öllu síðasta ári voru seld 1771
tonn af þangnfiöh og 295 tonn afþara--
mjöh en þetta eru þær afuröir sem
verksmiðjan framleiðir úr mismun-
andi hráefnum. Það sem af er þessu
ári hafa rúm 3200 tonn verið seld af
þangmjöli og 320 tonn af þaramjöh.
Stærsta einstaka sala þessa árs er
1800 tonn af þangmjöh sem seld voru
th Skotlands. Þar á að nota mjöliö í
þykkingar- og bindiefni sem síðan er
notað í fataiðnaði, matvælaiönaði og
efnaiðnaöi. Efnið er m.a. notað th að
halda froðu uppi í bjór. Þang- og
þaramjöl er hka notað sem fóður og
áburöur.
Einnig er mikið flutt út af mjöh frá
Reykhólum th Finnlands en sökum
bágs atvinnuástands í Finnlandi hef-
ur salan þangað verið minni en von-
ast var th. Meðal annarra viðskipta-
landa verksmiðjunnar eru Bandarík-
in, Japan, Frakkland, Þýskaland,
Hohand, Svíþjóð, Danmörk og Taívan.
Þá eru um 7% framleiðslunnar seld á
innanlandsmarkaði th ýmissa aðha,
einkum í landbúnaði. Þar er einnig um
aukningu að ræða mihi ára.
Hörð samkeppni
„Við eigum í harðri samkeppni við
erlend fyrirtæki, einkum í Noregi og
írlandi, sem bjóða sömu vöru. Síðan
eru fyrirtæki í Afríku að bjóða vöru
sem gerir þykkingar- og bindiefnun-
um sama gagn,“ sagði Páh.
Starfsmenn Þörungaverksmiðj-
unnar eru 16 í dag. Á sama tíma í
fyrra voru 5 starfsmenn. Háanna-
tíminn er aö sumri th. „Á meðan
framleiöslan hggur niðri í desember
og janúar reikna ég með fækkun
starfsmanna. Framleiðslan mun síð-
an hefjast að fuhu í aprh á næsta
ári. Það er ekki útséð með sölu næsta
árs en vonandi mun ekki ganga verr
en í ár. Þetta er hörð barátta," sagði
Páll Ágúst.
Verksmiðjan á Reykhólum er aðal-
lega í eigu norska fyrirtækisins
Pronova, sem á 40% hlut, en hlutur
Byggðastofnunar er 38% af hluta-
fénu. Síðan á Reykhólahreppur 16%
og 70 einstakhngar og fyrirtæki eiga
loks afganginn. -bjb
Hlutabréf í Flugleiðum
hækka í verði á ný
Eftir fréttir um batnandi afkomu
Flugleiða fóru fiárfestar af staö og
gengi hlutabréfa í Flugleiðum snar-
hækkaði í síðustu viku. í byijun vik-
unnar var gengið 1,05 en fór í 1,21 á
föstudag. Svipaöa sögu má segja um
hlutabréf Eimskips.
Hlutabréf í íslandsbanka og Ohs
hafa sömuleiðis verið að hækka í
verði. Á mánudag var gengi bréfa
íslandsbanka 0,94 og í Olís 1,98. í
báðum tilfellum hefur gengið ekki
verið hærra síðustu fimm mánuði.
Hlutabréfagengi Granda hefur hald-
ist svipað, eða 1,97.
Vísitölur VÍB hafa stigið hratt upp
á við, einkum hlutabréfavísitalan og
húsbréfavísitalan. Frá mánaðamót-
um hefur húsbréfavísitalan hækkað
um ein 16 stig og hlutabréfavísitalan
um nær 40 stig. Spariskírteinavísital-
an hefur hækkað minna, eða um 9
stig.
Kaupgengi sjóðsbréfs 10 hjá VÍB
hefur hækkað töluvert undanfama
viku og sömuleiðis landsvísitala
hlutabréfa hjá Landsbréfum hf.
Landsvísitalan fór yfir 100 stig sl.
fóstudag og hefur það ekki gerst síð-
aníbyijunfebrúarsl. -bjb
Verðbréf og vísitftlur
iSMB
„Kaupmenn
ordnirsam-
keppnishæfari"
í tílefhi fréttar DV í gær um
verslunarferðir íslendinga til út-
landa var ekki úr vegi að heyra
hfióðið í formanni Kaupmanna-
samtakanna, Bjarna Finnssyni.
Bjarni sagði að vöruverð á íslandi
heföi lækkað síðustu misseri og
íslenskir kaupmenn væru orðnir
samkeppnishæfari.
„Við eigum orðið i ákveöinni
samkeppni við erlenda kaup-
menn. En stöðugleikinn í þjóðfé-
laginu er orðinn meiri en áöur.
Ég spái því að eför nokkur ár
muni íslendingar almennt versla
með venjulegum hætti erlendis
og þessar sérstöku verslunar-
ferðir detti upp íyrir,“ sagði
Bjarni viö DV.
Nýrfram-
kvæmdastjóri
Gunnar Örn
Kristjánsson
endurskoðandi
hefur verið ráð-
inn frarn-
kvæmdastjóri
SÍF hf. í stað 1
Magnúsar
Gunnarssonar. * *
Gunnar tekur við stöðunni um
næstu áramót en hann hefur ver-
iö endurskoðandi SÍF frá árinu
1988.
Gunnar er viðskiptafræðingur
að mennt og varð löggiltur endur-
skoðandi áriö 1984. Undanfarin
ár hefur hann rekið endurskoð-
unarskrifstofuna Hagskil hf. Eig-
inkona Gunnars er Bima Hrafn-
fiörð Rafnsdóttir og eiga þau þrjá
syni.
Grandifærnýj-
antogara
Grandi fékk í gær afhentan ný-
legan togara í Krisfiánssundi í
Noregi. Að sögn Brynjólfs
Bjarnasonar hjá Granda er togar-
inn væntanlegur til landsins í
næstu viku. Grandi keypti togar-
ann af Den norske bank fyrir um
560 milljónir króna.
Togarinn mun að öllum líkind-
um koma í stað togarans Snorra
Sturlusonar RE. Brynjólfúr sagði
við DV að ekki væri búið að
ákveða hvort Snorri yrði seldur
eða sendur á úthafsveiðar.
Hugmyndumum
breyttletur
hafnað
Við undirbúning næstu síma-
skrár fengu forráðamenn Pósts
og síma bréf frá Gunnlaugi Bri-
em, einhveijum þekktasta letur-
gerðarmanni heims, þar sem
hann kynnti nýja leturgerð í
simaskrána. Letrið er um 30%
minna en núverandi letur en er
feitletrað og taliö jafn læsilegt.
Gunnlaugur er íslendingur bú-
settur í San Francisco og London
og hefur m.a. hannað letrið á
stórblaðinu Financial Times og
getið sér gott orð sem leturgerð-
armaður.
Gústaf Amar hjá Póstí og síma
sagði við DV að erindi Gunnlaugs
heföi verið tekið til umfiöllunar
en niðurstaðan heföi verið að
minnka ekki letriö i þetta sinn.
„Við gerðum könnun meðal sím-
notenda þar sem m.a. var spurt
hvaö þeir heföu við símaskrána
að athuga. Flestir kvörtuðu yfir
því aö letrið væri smátt. Hins
vegar leist okkur vel á hugmynd
Gunnlaugs um að feitletra nöfhin
og má vel vera að viö útfærum
hana,“ sagði Gústaf en sem kunn-
ugt er hefur Póstur og aími
ákveðið aö hafa næstu símaskrá
ítveimurbindum. -bjb