Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1993, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1993, Blaðsíða 15
w MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1993 Fjölskyldustefna framtíðar Þegar horft er með gagnrýnum augum á skipulag okkar ástkæru höfuðborgar, umferðarbrýmar, bílastæðin, undirgöngin, umferð- arljósin, þá verður manni á að hugsa, hvort umferð vélknúinna ökutækja eigi að hafa forgang en ekki fólkið. Þegar snjóar þarf að opna götumar strax fyrir akandi umferð en á milli akreinanna eru háir skaflar sem varla eru færir nema fuglinum flj úgandi. Yfir þetta þarf þó fólk að ganga, stundum fatl- að eða aldrað eða með börn í vagni. Ég efast ekki um að starfsmenn borgarinnar eru alhr af vilja gerðir til að opna gangbrautir en það er hugsunin sem legið hefur að baki þegar borgin var skipulögð, sem skiptir máh. KjaUarLnn Jóna Valgerður Kristjánsdóttir þingkona Kvennalistans á Vestfjörðum „ Væri það ekki verðugt verkefni á ári fjölskyldunnar, 1994, að líta á málin frá öðrum sjónarhóli en úr sæti bílstjór- ans?“ Hvar eiga börnin að vera? Hægt er að finna íbúðahverfi þar sem búa 1000 manns eða meira, fullt er af bílastæðum fyrir framan húsin en bak við þau er einn leik- völlur illa búinn leiktækjum fyrir helminginn af íbúunum, bömin. Það þarf ekki að leita lengra en til frænda vorra í Noregi til aö kom- ast aö raun um að þeir hugsa öðru vísi þegar skipulögð eru íbúðar- hverfi. í Kristianssand eru heilu íbúðarhverfin þar sem götumar era ekki ætlaðar fyrir bíla, heldur fyrir fólkið sem býr við þær götur. Þú getur að vísu ekið inn í göturn- ar ef þú ert aö flytja þangað fullan bíl af fólki eða farangri. En þú skalt gjöra svo vel og koma þér sem fyrst í burtu með bhinn. Og þó að þú eigir heima við tiltekna götu þá er ekki ætlast til að bíhinn standi við tröppurnar. Hann skal geymast á bílastæði eða í bílageymslu ca 300-500 metram í burtu frá húsinu. Fjölskyldan í fyrirrúmi í Noregi þar sem ég þekki til er fjölskyldan í fyrirrúmi, og öryggi bamanna tekið fram yfir öryggi bílsins. Þar þykir það heldur ekki tíðindum sæta að íjölskyldufólk vilji hafa fastan vinnutíma og neiti yfirvinnu til þess að nota frítimann með fjölskyldunni. Hér á íslandi mundi vera litið á þann sem teldist I fjölmennum ibúðarhverfum má sjá næg bilastæði fyrir framan húsin en einn leikvöll baka til, oft illa búinn leiktækjum fyrir börnin. fyrirvinna fjölskyldu meö fyrirlitn- ingu ef sú hin sama fyrirvinna segði nei við aukavinnu um kvöld og helgar. Hér eiga menn að taka alla vinnu sem býðst, því „aha vantar jú pen- ing“. Geri menn það ekki era þeir letingjar, eða þaðan af verra. í raun skipta þessar tekjur ekki svo miklu til eða frá. Það sem skipt- ir máli er hvemig þeir fjármunir nýtast sem úr er spilað. Það má þó ekki gleymast að dag- vinnulaun eru til muna lægri á ís- landi en á hinum Norðurlöndun- um. Og við þurfum að sjá kröfuna um að dagvinnulaun dugi fyrir fram- færslu verða að veruleika á íslandi. Breytt viðhorf þarf til Hér hefur aðeins verið tæpt á tveimur atriðum þar sem breyta þarf viðhorfi okkar í málefnum fjölskyldunnar. Fólk þarf að geta aðlagað vinnutíma sinn að þörfum fjölskyldunnar. Og umferðin þarf ekki síður að taka mið af fólki en fjórhjóladrifnum tækjum. Væri það ekki verðugt verkefni á ári fjölskyldunnar, 1994, að hta á máhn frá öðram sjónarhóh en úr sæti bílstjórans? Skipuleggja byggð í þéttbýh með það fyrir augum að fólki líði þar vel að börnin séu ör- ugg á sínu leiksvæði nálægt heimil- inu. Að byggja dagheimih frekar en bhastæðahús. Að móta fjöl- skyldustefnu th framtíðar. Jóna Valgerður Kristjánsdóttir \ Út úr kreppunni Hagræðing, sparnaður, niður- skurður, endurskipulagning, sam- eining. Þetta eru þær dyggðir hag- fræðinnar sem aht snýst um í dag. Á öhum sviðum þjóðlífsins eru menn að bregðast við kreppu og samdrætti og aðlaga sig því ástandi. Stigvaxandi kreppa? Fyrir nokkram árum var aðal- vandamáhð þensla. Þá klifuðu þá- verandi seðlabankastjóri og aörir spekingar á þvi að það yrði að stöðva þessa sífehdu þenslu á öh- um sviðum þjóðlífsins. Það tókst. Afleiðingin varð kreppa, atvinnu- leysi og fjöldagjaldþrot einstakl- inga og fyrirtækja. Við læknum ekki kreppu í hag- kerfinu með hagræðingu, sparnaði, „Við læknum ekki kreppu 1 hagkerfinu með hagræðingu, sparnaði, niður- skurði, endurskipulagningu og sam- einingu. Með slíkum ráðstöfunum er- um við að aðlaga okkur kreppunni.“ niðurskurði, endurskipulagningu stöfunum erum við að aðlaga okk- og sameiningu. Með slíkum ráð- ur kreppunni. Ég vh ekki trúa því KjaUarinn Brynjólfur Jónsson hagfræðingur að nokkur Islendingur vhji að þjóð- félag okkar búi við stigvaxandi kreppu um ófyrirsjáanlega fram- tíð. Eina ráðið th að lækna kreppuna er að auka verðmætasköpun í þjóð- félaginu og sú verðmætasköpun verður að koma frá samkeppnis- greinum og eiga sér stað með hag- kvæmum rekstri. Nýsköpun, upp- bygging, bjartsýni, áræði og dugn- aður verða þær dyggðir sem aht snýst um þegar markviss stefna verður tekin út úr kreppunni. Athafnamenn Það era menn sem hafa af dugn- aði og bjartsýni unnið að nýsköpun og uppbyggingu á öhum sviðum atvinnulífsins undanfarin misseri. Þeim hefur of mörgum vegnað iha og þeir hafa verið hafðir að háði og spotti. í dag er það smán að vera titlaður athafnamaður. Þessu verð- ur að breyta. Það sem veldur þessu er að stjómvöld hafa bragöist þeirri framskyldu sinni að búa at- vinnulífl landsmanna heilbrigt rekstraramhverfi. Th að koma íslensku þjóðfélagi út úr kreppunni verður ríkisstjóm- in að búa samkeppnisgreinum heh- brigt rekstrarumhverfi. Þegar það hefur verið gert kemur aht hitt af sjálfu sér. í heilbrigðu rekstrarumhverfi munu samkeppnisgreinarnar blómstra, og þjónustugreinarnar og ríkiö munu njóta góðs af. Raun- tekjur ríkisins munu vaxa með aukinni veltu í þjóðfélaginu og nið- urskurður opinberrar þjónustu verða óþarfur. Þetta heitir víst á stofnanamáli þensla. Það veröa íslenskir athafnamenn og þensla sem að lokum munu leiða þjóðfélagið út úr kreppunni. Önnur leið er möguleg. Það er happdrætt- isvinningur úr hafinu. Munurinn á þessum tveim leiðum er sá aö hin fyrri leiðir th varanlegrar og raun- hæfrar velmegunar, en sú síðari er háð duttlungum náttúrannar. Ríkisstjórnin á leik Þaö er ríkisstjómin sem á leik. Það er hægt að halda áfram aö hagræða, spara, skera niður, end- urskipuleggja og sameina á meðan við bíðum eftir happdrættisvinn- ingi úr hafinu alveg þangað th við náum „Albaníustandard" í opin- berri þjónustu og einhverju gríðar- legu atvinnuleysi. Vhjum við það? Eða ætlum við að koma eðlilegum rekstrargrundvehi undir sam- keppnisgreinamar? Þessu ræður ríkisstjómin. Brynjólfur Jónsson 15 Einkavæöing tóbakssölu taparekki „Ég er sam- þykk þvi að einkasala rík- isins á tóbaki verði afnum- in. Ég fæ ekki séð að ríkis- sjóður tapi neinum Qár- munum þótt Lára Margrét Ragn- salan verði ar*dóttlr alþlngls- einkavædd. maöur. Hann fær áfram sín gjöld hver sem flytur inn og selur vöruna. Égvh taka það fram að ég er afar mikh áhugamanneskja um tó- baksvamir og hlynnt þvi að þær séu sem öflugastar. Eg fæ með engu móti séö að það muni hafa áhrif á tóbaksvamir í landinu þótt einkasala ríkisins á tóbaki sé afnumire Þær hljóta að geta haldið áfram jafn öflugar og hing- að th. Ég hef heyrt því haldiö fram að einkavæöing tóbakssölu muni auka sölu þess. Ég er þessu ósammála. Ég tel það ahs ekki líklegt að einkavæðing tóbakssöl- unnar valdi söluaukningu. Ég hef einnig heyrt þau rök gegn einka- væðingunni aö verð á tóbaki muni hækka. Það má vel vera að svo fari og ég græt það ekki, vegna þess sem ég sagöi áðan að ég vh auka tóbaksvarnir í land- inu sem mest. Hærra verð getur stuðlað að því að fólk hætti að reykja. Þess vegna hljóta allir sem vhja veg tóbaksvama sem mestan að fagna því ef svo fer. Ýmsir hafa líka sagt að hagnaður verslana af sölu tóbaks muni aúkast við afnám einkasölunnar. Ég fæ alls ekki séð aö svo muni verða og hef raunar ekki séð nein haldbær rök fyrir því.“ Mörgrök ámöti „Það eni svo mörg rök gegn því að ; einkavæða sölu á tóbaki að ég veit varla hvar ég á að byrja. Ég ; lít svo á að meö bví að kristfn Eínarsdóttir einkavæða alþinglskona. sölu á tóbaki verði mun erfiðara að hafa hemh á útbreiðslu þessa hættulega vímugjafa. Ég þarf ekkert að tí- unda þaö hve tóbak er heilsuspih- andi enda er reynt að berjast gegn notkun þess um ahan heim, þar sem stjómvöld geta haft einhvern hemh á. Hins vegar sækir tóbaks- iðnaðurinn á hvar sem hann kemur þvi viö á lævísan hátt Það er höfðað th unglinga með því að gefa boh og fleira með auglýsing- um á. Þótt þetta eigi ekki við hér er þetta áberandi í þróunarlönd- unum. Eins er áberandi hvemig tóbaksfVamleiðendur egna fyrir konur í A-Evrópu, sem ekki hafa reykt eins mikið og karlar. Ég óttast að sfjómvöld missi stýri- tækin. Það verði erfiðara aö standa í vegi fyrir auglýsingum og takmarka útbreiðsluna og að höfðaö veröi th bama og ungl- inga. Ég þekki dæmi erlendis frá um að þegar hömlurnar minnka þá koma auglýsingar, beinar sem óbeinar, upp í ríkari mæh. Ýmsir segja að þar sem tóbak sé skað- iegt efhi sé ósiðlegt að ríkið sé að sejja það. Ég tel óraunhæft að ætla að tóbak verði bannað, aha vega að svo komnu máh. Meðan svo er tel ég að einkasala ríkisins sévænlegrikostur. -S.dór

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.