Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1993, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1993, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1993 Fréttir Slippstöðin Oddi hf. á Akureyri á heljarþröminni: Sameiningin mistókst og enn þarf að auka hlutafé Mjög mikil óvissa er varðandi framtíð Slippstöðvarinnar Odda hf. á Akureyri. Það er að vísu ekkert nýtt, en málið er alvarlegra en oft áður, ekki síst sé litíð til þess að sameining Slippstöðvarinnar hf. og Vélsmiðjunnar Odda hf. um síð- ustu áramót virðist hafa mistekist gjörsamlega. Auk þess hefur 100 milljóna króna hlutafjáraukning, sem'þá áttí sér stað, ekki skilað því sem að var stefnt. Verkefnastaðan er óviðunandi, tap hefur verið á verkefnum, starfsmönnum fyrir- tækisins hefur fækkað, í dag eru fjölmargir þeirra á atvinnuleysis- bótum, og um 20 manns eru með uppsagnarbréf í vasanum. Eiga uppsagnir þeirra að taka gildi nú um mánaðamótin. Slippstöðin Oddi hefur verið í greiðslustöðvun að undanfomu og hún var framlengd um 3 mánuði hjá embætti sýslumanns á Akur- eyri nú í byijun vikunnar. Á sama tíma og reynt er að vinna að lausn á geysilegum fjárhagsvanda fyrir- tækisins, m.a. með samningum við lánardrottna, er fuUyrt að greiðslu- stöðvun hafi einnig þau áhrif að stöðin fái færri verkefni en ella ög á þetta sérstaklega við um stærri verkefni. Nánast sömu tillögur Bæjarráð Akureyrar mim ætla að ræða málefni stöðvarinnar nú í vikunni og kalla þá á sinn fund forsvarsmenn stöðvarinnar. Eig- endur að nær öUu hlutafé fyrirtæk- isins era ríkið, Akureyrarbær og Kaupfélag Eyfirðinga og í skýrslu um stöðuna og tillögur, sem eig- endur fengu á dögunum, eru nán- ast sömu atriði og voru í svipaðri skýrslu áður en til sameiningar- innar við Odda kom, samkvæmt heimildum DV. M.a. er lögð áhersla Starfsmaður Slippstöðvarinnar Odda á Akureyri að vinna við hlið skrúfu- blaðanna á togaranum Hrímbak. Mikil óvissa er nú um framtíð stöðvar- innar vegna fjárhagserf iðleika, starfsmönnum hefur fækkað jafnt og þétt. DV-símamynd gk á að fyrirtækið verði að fá nýtt hlutafé, en hvaðan það á aö koma liggur ekki fyrir. Akureyrarbær og ríkið lögðu fram 50 milljónir króna hvor aðili við sameininguna og KEA kom með hlutafé í formi eigna Vélsmiðjunnar Odda. Peningarnir farnir „Ég ætla ekki að dæma um það hvort fyrirtækið er verr statt nú en það var við sameininguna við Odda. Því er hins vegar ekki að neita að fyrirtækið stendur ekki eins og að var stefnt og því miður virðast þessir peningar bara vera farnir. Það gekk ekki upp sem aö var stefnt viö sameiningu Slipp- stöðvarinnar og Odda,“ segir Sig- Fréttaljós Gylfi Kristjánsson ríður Stefánsdóttir, formaður bæj- arráðs Akureyrar. Sigriður segir að mikil óvissa sé varðandi framtíð fyrirtækisins og þær aðstæður sem þessari starfs- grein séu búnar séu óviðunandi. Um það hvort Akureyrarbær er til- búinn að leggja enn fram hlutafé í fyrirtækið segir Sigríður að þáð verði að skoðast mjög vel áður en ákvörðun verður tekin. „Þetta er hins vegar geysilega mikilvægt fyr- irtæki fyrir okkur og það yrði hræðilegt að horfa á eftír því,“ seg- ir Sigríður. Yfirstjórnin gagnrýnd Yfirstjóm fyrirtækisins hefur legið undir mikilli gagnrýni fyrir ýmsar ákvarðanir, s.s. við tilboðs- gerð og uppsagnir. Sem dæmi er nefnt tap á lengingu og smíði stýr- ishúss á Eyjafjarðarbátinn Sæþór, en tap á því verkefni fæst ekki gef- ið upp. „Eg hef það ekki, við getum ekki birt þessa tölu þótt þetta sé opinbert fyrirtæki. Ég hef ekki töluna um þetta verkefni, ég er ekki með töluna," segir Knútur Karlsson, stjórnarformaður fyrir- tækisins. Formaðurinn á launum Knútur hefur verið á launum hjá fyrirtækinu í langan tíma og það hefur verið harðlega gagnrýnt að svo sé á erfiðleikatímum í fyrirtæk- inu að hann taki þar margföld laun þeirra manna sem hefur verið sagt upp störfum. Einnig hefur verið gagnrýnt að niðurskurður í fyrir- tækinu síðustu misserin sé nánast allur í því formi aö iðnaðar- og verkamönnum sé sagt upp en yfir- stjórnin minnki ekki. „Það hefur verið fækkað í yfir- stjórninni líka, t.d. miðað við það sem var fyrir 10 árum,“ segir Knút- ur. En hverju svarar hann gagn- rýni um veru sína í fyrirtækinu á margföldum launum þeirra manna sem verið er að segja upp? „Ég kom fyrst þama inn þegar verið var að sameina Slippstöðina og Odda. Svo fór ég í sérstakt sölu- verkefni og nú er ég að vinna í kringum greiðslustöðvun fyrirtæk- isins. Þetta eru bara tímabundin verkefni og þegar þeim lýkur þá er ég hættur sem starfandi stjóm- arformaður." Hvaða söluverkefni voru það sem þú varst að starfa að? „Það var kynning og sala á haus- ara. Þótt það gengi ekki eftir vegna aöstæðna í sjávarútvegi þá þurfti að fara um allt land vegna þess,“ sagði Knútur. í dag mælir Dagfari Nú fýkur í flest skjól Dagblaðið Tíminn hefur háð hetju- lega baráttu fyrir lífi sínu. Fram- sóknarflokkurinn hefur gert sitt til að blaðið lifi. Flokkurinn hefur af- salaö sér áhrifum og eignarhaldi á blaðinu, vegna þess að Framsókn- arflokkurinn gerir sér grein fyrir að það kemur óorði á Tímann að tengjast flokknum. Þetta var drengfiega gert af Framsóknarflokknum því þótt óorð fari af Framsóknarflokknum vfil flokkurinn ekki setja blett á nafn Tímans. Blaðið verður að lifa hvaö sem verður um flokkinn. Þegar fyrir lá að Framsóknar- flokkurinn hætti afskiptum af blað- inu til að blaðið gæti haldið áfram útkomu var safnað nýju hlutafé og ráðinn nýr ritstjóri. Meöal hlutafl- áreigenda voru ýmsir mætir fram- sóknarmenn sem höföu taugar til blaðsins og þar á meðal formaður flokksins, Steingrímur Hermanns- son. Steingrímur gekk meira að segja úr stjóm til að blaðið fengi frið fyr: ir sér og það var sem sagt gert allt af hans hálfu til að þessu gamla góða blaðið í höndum nýrra og óháðra aðila yrði ekki bendlað við nafn hans að neinu leyti. Þetta var drengilega gert og bar vott um það að tengslin væru endanlega rofin milli flokks og blaðs. Flokkurinn kom blaðinu ekki við og blaðið kom flokknum ekki við. Svo kom nýi Tíminn út og lesend- ur áttuðu sig ekki á breytingunni, nema þá að blessað blaðið reyndist fomara í útliti heldur en Fram- sóknarflokkurinn og fyrirrennari nýja Tímans og nýja ritstjórans. Framsóknarflokkurinn skipti sér ekki af því frekar en landsmenn yfirleitt og má segja að blaðið hafi komið út í kyrrþey eins og að var stefnt. Það er út af fyrir sig góðra gjalda vert að koma út í kyrrþey og vera frjáls og óháður en það er auðvitað lakara ef enginn tekur eftír því og enginn vfll lesa blaðið, enda var þaö aldrei meiningin hjá Framsókn að hætta afskiptum af Tímanum sínum tfl þess eins að þeir fáu sem áður lásu Tímann bættust í hóp þeirra sem ekki lásu hann. Skýringamar á fomeskjulegu út- lití blaðsins vora sagðar þær að nýja stjómin heföi ákveðið að nota hlutaféð tfl að greiða skuldir gamla Tímans. Nýi ritstjórinn og aðstand- endur hins óháða blaðs bragðust ókvæöa við. Þeir könnuðust ekki við að til stæði að borga skuldim- ar. Þeir héldu að þeir fengju pen- ingana og væra lausir við skuldim- ar. Steingrímur lét hafa það eftir sér að nýtt hlutafé heföi farið í að borga þessar skuldir tfl að nýr og óháður Tími gætí plummað sig á markaðn- um án sín og án Framóknarflokks- ins. Þetta var greinflega ekki vitur- lega mælt af Steingrími og ritstjór- inn lét Steingrím hafa það óþvegiö í leiðara Tímans í gær. Ritstjórinn upplýsir að Steingrímur sé óhæfur til að sitja í stjóm banka og í stjóm stjómmálaflokks og hann eigi ekki að taka þátt í stjóm landsins. Rit- stjórinn segir að Steingrímur eigi að segja af sér sem formaður Fram- sóknarflokksins. Þetta er köld kveðja og er nú fok- ið í flest skjól fyrir Framsókn og Steingrím. Héma er Framsóknar- flokkurinn búinn að gefa nýjum eigendum gamla góða Tímann, hér er búið að safna peningum til að borga gömlu skuldimar og greið- inn er laimaður með því að sparka í veslings Steingrím og það svo rækflega að það tekur öðrum skömmum fram um formann Framsóknarflokksins. Allt bendir nú tfl þess að nýi Tíminn veröi í dauðateygjunum notaður tfl að reiða til höggs gegn maddömu Framsókn og Steingrími formanni og var þá til einhvers að stofna til frjáls og óháðs blaðs, ef það notar síðustu mínútumar af lífi sínu tfl að knésetja foreldri sitt. Af þessu sést hversu varasamt frelsið getur verið og hversu mikfll misskilningur það var hjá Fram- sókn að halda að með þvi aö hætta útgáfu Tímans yxi nýtt og stórt blað sem stuðlaði að vextí og viö- gangi félagshyggjuaflanna í land- inu. Framsókn er slæm afspumar en verra er frelsið sem notað er til að ráðast á sjálfan guðföðurinn. Þá var betra að sitja uppi með skuld- imar og halda mannorðinu. Nú er ekkert eftír fyrir Steingrím en að snúa sér tfl íhaldspressunnar til að svara Tímanum. Það er af sem áður var. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.