Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1993, Side 16
16
MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1993
MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1993
33
T
Iþróttir
Svíarnir ræða við
Hlyn í Eyjum í dag
- verði tilboð Örebro spennandi aukast líkur á að ég spiii í Svíþjóð, segir Hlynur
Tveir af forráöamönnum sænska
úrvalsdeildarliðsins Örebro koma til
landsins i dag og halda strax út til
Vestmannaeyja til viðræðna við
Hlyn Stefánsson. Eins og kunnugt er
hefur Hlynur leikið meö Örebro síð-
ustu tvö árin og er búinn með samn-
inginn en forráðamenri félagsins
hafa lagt hart að honum að end-
umýja hann, enda Hlynur lykilmað-
ur í hðinu og var til að mynda kosinn
leikmaður ársins. Þá er hann með
gott tilboð upp á vasann hjá sínu
gamla félagi, IBV.
„Það liggur við að ég taki upp krón-
una og kasti henni upp. Eins og stað-
an er í dag eru helmingslíkur á að
ég verði áfram með Örebro en ef forr-
áðamenn félagsins koma með eitt-
hvað nýtt og spennandi tilboð þá eru
meiri líkur á aö ég spili áfram með
Uðinu,“ sagði Hlynur í samtaU við
DV í gærkvöldi.
Eyjamenn hafa einnig sett mikla
pressu á Hlyn og hafa boðið honum
mjög góðan langtímasamning.
„Mér Ust mjög vel á þetta hjá EBV.
Þjálfarinn er góður og þegar maður
er kominn heim til Eyja er maður
frekar hUðhoUur ÍBV og svo öfugt
þegar maður er kominn út til Svi-
þjóðar. Svíarnir hafa nánast hringt í
mig á hveijum degi enda vilja þeir
fá þetta á hreint sem aUra fyrst svo
þeir geti þá leitað að leikmanni í stað-
inn. Góður leikmaður innan Svíþjóð-
ar er hins vegar mjög dýr og því
ætti Örebro að geta gert gott fyrir
mig, “ sagði Hlynur. -GH
Knattspymuúrslit í gær:
Blackburn í annað sætið
Graham Talyor
átti ekki velgengni aö
fagna í starfi sínu sem
landsliðseinvaldur Eng-
lendinga i knattspyrnu.
Snæfelláfram
Snæfell sigraði KFÍ, 108-62, í
16-Uða úrsUtum í bikarkeppni
KKI í Stykkishólmi í gær. Bárð-
ur Eyþórsson skoraði 35 stig
fyrir SnæfeU og Entwistle 22 en
fyrir ísfirðinga Róbert Jónsson
20 og Unnar Hermannsson 11.
-KS/Stykkishólmi
vildu fá hann í burtu og varð hann við
óskum þeirra.
Nokkrir hafa verið nefndir til sögunnar
sem Uklegir eftirmenn Taylors og má þar
nefna Howard Wilkinson, framkvæmda-
stjóri Leeds, Steve Coppel, fyrrum stjóri
Crystal Palace, Ron Atkinson, fram-
kvæmdastjóri Aston ViUa, Gerry Francic
hjá QPR og Ray Wilkins sem leikur með
QPR og Glen Hoddle, framkvæmdastjóri
Chelsea. -GH
Blackbum komst í gærkvöldi í
annað sætið í ensku úrvalsdeildinni
í knattspymu. Blackbum sigraði
Coventry, 2-1, á heimaveUi og skor-
aði Alan Shearer bæði mörk Uðsins.
Peter Ndlovu gerði eina mark Co-
ventry.
Everton og Leeds skildu jöfn, 1-1,
á Goodison Park. Rodney WaUace
kom Leeds yfir á 53. mínútu en Tony
Cottee jafnaði fyrir heimamenn á 67.
mínútu.
Manchester United er langefst með
40 stig, Blackbum og Aston VUla
hafa 29 stig. í kvöld verða átta leikir
í úrvalsdeUdinni.
Graham Taylor sagði í
gær af sér sem landsliðsein-
valdur Englendinga í knatt-
spymu. Þessi ákvörðun
hans kom ekki mörgum á
óvart en eins og kunnugt er
mistókst enska landsUðinu að tryggja sér
sæti í úrsUtakeppni HM sem fram fer í
Bandaríkjunum á næsta ári.
Taylor átti eftir sex mánuði af samningi
sínum við enska knattspyrnusambandið
en hann tók við Uðinu af Bobby Robson
eftir heimsmeistarakeppnina á ítahu áriö
1990. Eftir aö ljóst varð að Englendingar
ættu ekki Uð í úrsUtakeppni HM, í fyrsta
skipti í mörg ár, var gerð mikU árás á
Taylor í breskum fjölmiðlum þar sem þeir
OFI skellt heima
í UEFA-keppninni
Þrír leUcir fóm fram í 8 Uða úrsUtum
Evrópukeppni félagsUða í gærkvöldi.
Gríska Uðið OFI frá Krít fékk skeU á
heimaveUi gegn Boavista frá Portúg-
al, 1-4. Segja má því að leið Boavista
í undanúrslit sé nokkuð greið.
Eintracht Frankurt átti í mesta
basU með Deportivo La Coruna frá
Spáni á heimavelU sínum í Þýska-
landi. Þýska Uðið náði ekki að knýja
fram sigur fyrr en á lokamínútu
leiksins þegar Mirko Dickhaut skor-
aði.
Bordeaux sigraði Karlsruhe, 1-0,
og skoraði Zinedine Zidane eina
markið á 78. mínútu. -JKS
Inga Fríða Tryggvadóttir fiskar hér vitakast fyrir Stjörnuna og það er Svava Sigurðardóttir sem brýtur á henni.
DV-mynd GS
Meistararnir steinlágu
- og Stjaman trónir á toppi 1. deildar kvenna í handbolta
Stjarnan vann ömggan sigur á Is-
landsmeistumm Víkings, 17-14, í topp-
leik 1. deUdar kvenna í handbolta í
Garðabæ í gær. Sigur GarðabæjarUðs-
ins, sem nú trónir eitt í efsta sæti deild-
arinnar, var mjög sanngjarn og aldrei
í hættu. Handknattleikurinn, sem í boöi
var, var þó ekki í háum gæðaflokki.
Stjarnan lék kröftuga 6:0 vöm sem
virtist koma Víkingi algjörlega í opna
skjöldu. Meistaramir fundu sig aldrei,
lykilmenn bmgðust alveg og leikmenn
Uðsins vom sem böm á velUnum.
„Þetta var erfitt en sigur okkar kom
mér ekki óvart. Vöm og markvarsla
vom góð en þannig höfum við lagt
grunninn að mörgum sigrinum í gegn-
um tíðina," sagði Magnús Teitsson,
þjálfari Stjörnunnar, eftir leikinn.
Staðan í hálfleik var 9-7 og það tók
Víkinga 11 mínútur að skora fyrsta
markið í síðari háUleik. Stjaman komst
í 16-10 en meisturunum tókst aöeins að
laga stöðuna í lokin.
Nina Getsko átti góðan leik í marki
Stjömunnar og varði 13 skot en vömin
fyrir framan hana var mjög góð. Hjá
Víkingi stóð enginn upp úr í arfaslöku
Uði.
„Ég kann enga skýringu á þessu en
sjálfstraust leikmanna er alls ekki í lagi.
Þetta eru mikil vonbrigði en þegar
toppUð mætast er ekki óeðlilegt að
heimaUðið sigri," sagði Theodór Guð-
finnsson, þjálfari Víkinga.
Mörk Stjömunnar: Ragnheiður 7,
Una 4, Guöný 3, Hrund 2 og Herdís 1.
Mörk Víkings: Inga Lára 7, HaUa
María5,Heiðal,SvanaSl. -BL
Tíundi sigur
Houston í röð
Meistarar Chicago urðu í nótt tíunda
fórnarlamb Houston Rockets í vetur í
NBA-deildinni í körfuknattleik. Hous-
ton sigraði, 100-93, og er með tíu sigra
í jafnmörgum leikjum, hefur enn ekki
fengið á sig 100 stig í leik á tímabilinu.
Chicago tapaði þama hins vegar sínum
sjötta leik af tíu í vetur.
Hakeem Olajuwon var að vanda í aðal-
hlutverki hjá Houston og skoraði 28 stig,
tók 11 fráköst og varði 8 skot. Otis
Thorpe gerði 23 stig. Þeir BUl Wenning-
ton og B.J. Armstrong skomðu 19 stig
hvor fyrir Chicago sem hefur ekki unn-
ið leik í Houston í sex ár þrátt fyrir alla
titlana.
ÚrsUtin í nótt:
Houston - Chicago............100-93
Washington - Charlotte.......118-98
Atlanta - LA Lakers..........103-94
Orlando - Golden State.......120-107
DaUas-LACUppers.............98-105
Portland - Denver...........109-94
ShaquiUe O’Neal var áfram í stuði með
Orlando og geröi 28 stig gegn Golden
State, Nick Anderson skoraði 24 og nýl-
iðinn Anfemee Hardaway skoraði 23
stig, tók 8 fráköst og átti 5 stoðsending-
ar. Chris Webber skoraði 13 stig fyrir
Golden State og tók 10 fráköst.
Atlanta komst að hUð Charlotte á toppi
miðriðUsins með sigri á Lakers. Dom-
inique Wilkins skoraði 28 stig fyrir Atl-
anta en Nick Van Exel 22 fyrir Lakers.
Washington vann óvæntan stórsigur á
Charlotte. Kevin Duckworth skoraði 14
stig fyrir Washington.
Ron Harper skoraði 32 stig fyrir CUp-
pers en Jamal Mashburn 20 fyrir DaUas.
Clyde Drexler skoraði 27 stig fyrir
Portland en Mahmoud Abdul-Rauf gerði
24fyrirDenver. -VS
í kvöld
1. deild karla í handknattleik:
Stjaman - KA.........20.00
KR-ÍBV...............20.00
FH-Valur.............20.00
UMFA-ÍR..............20.00
Víkingur - Selfoss...20.00
Þór-Haukar...........20.30
1. deild kvenna í handknattleik:
Ármann - Fram........18.15
Valur-KR.............20.00
Axelmunverfa
Axel Comez mun vetja mark 2.
deUdar Uðs VUdnga í knatt-
spymu á næsta keppnistímabiU i
staö Guömundar S. Hreiöarsson-
ar sem er hættur. Axel lék með
Þrótti í sumar en hann lék með
Víkingum fyrir nokkrum árum,
-GH
íþróttir
Körfuknattleikssniningar til íslands í tengslum við lýðveldishátíðina:
Koma Jordan og
Magic til íslands?
- vinnum að því af fullum krafti, segir Kolbeinn Pálsson, formaður KKÍ
Körfuknattleikssamaband Islands
vinnur að því að fá körfuknatt-
leiksmenn í fremsta gæðaflokki
hingað tíl lands á næsta ári. Koma
þeirra yrði í tengslum við hátíðar-
höld vegna 50 ára afmæUs lýðveld-
isins.
KKÍ hefur verið í sambandi við
umboðsskrifstofur í Bandaríkjun-
um sem undirbúa keppnisferðalag
stjörnuliða undir stjórn körfu-
knattleikssnUUnganna Michaels
Jordan og Magics Johnson.
StjörnuUð þeirra verður á ferðalagi
í Eyrópu á næsta ári og er ætlun
KKI að fá Uðin hingað til lands í
þeim pakka. Málið er á frumstigi
en að sögn Kolbeins Pálssonar,
formanns KKI, ætla menn að leggja
sig í Uma við að fá góða körfubolta-
menn sem yrði Uður í hátíöinni.
Höfum sent bréf
til Jordans sjálfs
„Við erum að vinna að því að fá
Michael Jordan, bæði sem ein-
stakling og með lið hingað tíl lands
og einnig Magic Johnson. Við höf-
um frétt að báðir þessir einstakl-
ingar verði með Uð í Evrópu á
næsta ári þannig aö við erum á
fuUu að fá þá báða hingað til að
spUa. Það eru um þijár vikur síðan
þessi áhugi kviknaði og okkur
barst til eyma að umboðsskrifstof-
ur í Bandaríkjunum væru að
skipuleggja ferð þessara beggja Uða
um Evrópu. Við óskuðum eftir því
að þeir myndu feUa ísland inn í
myndina. Við höfum jafnframt líka
sent bréf beint til Jordans sjálfs og
erum þannig að leita allra leiða til
að fá þá hingað tíl lands,“ sagði
Kolbeinn Pálsson við DV í gær.
Kolbeinn sagöi að KKÍ hefði verið
beðið um að vera með innlegg í
hátíðarhöldin vegna 50 ára afmæUs
lýðveldisins og þetta væri einn Uð-
urinn í þvi. Annaðhvort að fá NBA
Uð, Uð þeirra Jordans og Johnsons,
eða að fá hingað Evrópuúrval en
þá hugmynd viðraði Kolbeinn jafn-
framt á fundi í Munchen fyrir
skömmu. Kolbeinn nefndi einnig
Alþjóða körfuknattleikssambandið
(FIBA) sem væri aUt af vUja gert
að hjálpa KKÍ í þessu máU.
Viljum fá lið Magics og
Jordans til að spila saman
„Við vUjum allra helst fá Uð þeirra
Jordans og Magics Johnson tíl að
leika hvort gegn ööru. Ég þori ekk-
ert að segja hvenær af þessu gæti
orðið á næsta ári. Við erum að
heyra að hinir og þessir séu að
reyna þennan möguleika líka og í
því sambandi sendum við skeyti í
gær og vUdum fá staðfestingu á því
hvort ekki væri verið að vinna af
fuUum krafti að því að þessi Uö
kæmu hingað. Við myndum fagna
hveiju því fyrirtæki og öörum aðU-
um sem vUdu koma inn í þessa
mynd og aðstoða okkur.
„Við leggjum áherslu á það að
körfuknattleiksUð og körfubolta-
snillingar sem hingað koma, komi
hingað í samráði við KKÍ og um
leið körfuknattleiksfélög í landinu.
Eg Ut svo á, miðað við áhuga á
körfuboltanum hér á landi sem og
annars staðar, að KKÍ eigi sem fuU-
trúi félaganna að sjá um leiki og
sýningar hvað varðar körfubolt-
ann. -JKS
Þessir kappar hafa glatt marga með snilli sinni í gegnum árin. Þeir
hafa báðir lagt keppnisskóna í NBA á hilluna en þess í stað ráðgera
þeir sýníngarferð um Evrópu og nú er bara að vona að þeir sjái sér
fært að koma til íslands. Myndin er úr leik Los Angeles Lakers og
Chicago Bulls þar sem Magic Johnson sækir að Michael Jordan.
Njáll hættur með KA-liðið
Urslítaieikurínn
ekkiáAkureyri
Ekkert verður af því
að úrsUtaleikurinn í
bUíarkeppni karla í
handknattleik verði
leikinn á Akureyri eins og hug-
myndir voru uppi um. HSÍ hélt
fund með félögunum um þetta
mál og kom þar fram mikil and-
staða gegn hugmyndinni svo að
nú hefur veriö horfið frá henni
að sinni.
Dómararfá
verkefní erlendis
Tveimur íslenskum dómara-
pörum heíúr verið úthlutaö verk-
: efni í 8-liða úrslitum Evrópu-
keppni kvenna í handknattleik.
Þeir Stefán Arnaldsson og Rögn-.
vald Erlingsson raunu dæma leik
norska Uðsins Gjerpen og austur-
ríska Uðsins Wat Funíhaus í Evr-
ópukeppni meistaraUða í Noregi
29. janúar og þeir Guöjón L. Sig-
urðsson og Hákon Sigurjónsson
fara til Danmerkur 22. janúar og
dæma leik danska Uðsins Viborg
og Lokomotiva Zagreb frá Króa-
tíu í EHF keppninni.
Gunnar eftiHítsmaðir
tleikBarcelona
Þá hefur Gunnar Gunnarsson
verið skipaður eftírlitsmaöur á
leik Barcelona og svissneskaUös-
ins Winterthur í Evrópukeppni
bikarhafa en leikurinn fer fram á
Spáni 19. janúar.
Njáll Eiðsson mun ekki þjálfa 2.
deUdar Uð KA í knattspymu á næsta
keppnistímabiU. Honum stóð til boða
að halda áfram með Uðið en hann
hefur ákveðið að hafna því.
„Menn voru ekki tilbúnir að halda
áfram þar sem frá var horfið í haust.
AUar aðstæður eru gjörbreyttar. KA
hefur verið að missa menn og ekki
hefur verið nýttur sá meðbyr sem
við höfðum seinni partinn á síðasta
keppnistímabiU," sagði NjáU Eiðsson
viö DV í gær.
„AUt er óklárt og ég hreinlega
nenni ekki að standa í þessu því ég
hef aðeins meiri metnað fyrir hönd
KA. Því tel ég einfaldara fyrir félagið
að fá annan mann í starfið,“ sagöi
NjáU ennfremur. <
Forráðamenn KA sögðu við DV í
gær að ekki væri ljóst hver yrði eftír-
maður Njáls.
-GH
Golden State
Nafh: Golden State Warriors.
Stofnað: 1947.
Kyrrahafsriðill, vesturdeild.
Meistarar: 1947 og 1956 sem Phila-
delphia Warriors. 1975 sem Gold-
en State Warriors.
Árangur í fyrra: 34-48, ekki i úrslit.
Þjálfari: Don Nelson.
Meiðsl settu stórt strik í reikning-
inn hjá Golden State í fyrra þegar
þrír lykilmenn, Tim Hardaway,
Sarunas MarciuUonis og Chris
MulUn, voru frá lungann af tíma-
bilinu. í ár byrjar Uðið án þeirra
allra. MulUn er þó væntanlegur í
slaginn bráðlega en óvíst er hvort
þeir MarciuUonis og Hardaway getí
nokkuð leikið í vetur.
Þær breytingar hafa orðið á Uð-
inu frá því í fyrra að í nýUðavalinu
fékk Warriors Chris Webber, fram-
herja/miðherja frá Michigan há-
skóla, eftír skiptí við Orlando á
Anfernee Hardaway. Þá er fram-
heijinn Josh Grant kominn ffá
Utah.
ByrjunarUðið framan af verður
því líklega skipað þeim Victor
Alexander sem miðheija, Webber
sem stóra framherjanum, BUly
Owens sem skotframheija, Latrell
SpreweU sem skotbakverði og
Keith Jennings sem leikstjórn-
anda. Á bekknum eru meðal ann-
arra framheijamir Chris Gatling
og Byron Houston.
Liðinu er spáð fjórða sætinu í
riðUnum en meiðsl lykUmanna
raska þeirri spá verulega. Liðið
varð í sjötta og næstneðsta sæti
riðUsins í fyrra og sú gætí raunin
einnig orðið í ár. Webber á þó að
hjálpa Uðinu verulega og menn
bíða enn eftír því að BUly Owens
springi út. Golden State á senrúlega
eftir að taka upp pyngjuna í vetur
og kaupa leikmenn í staö þeirra
sem eru meiddir.
Tim Hardaway er skærasta stjama
Golden State.
f
t