Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1993, Qupperneq 26
42
MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1993
Afmæli
Leifur Einarsson
Leifur Einarsson, bóndi í Nýjabæ
undir Vestur-Eyjaíjölllum, varð sex-
tugur á sunnudaginn var. Kona
hans, Kolbrún Valdimarsdóttir, er
sextugídag.
Starfsferill
Leifur fæddist í Nýjabæ og ólst þar
upp. Hann var þrjá vetur í barna-
skóla sem var farkennsla að hluta
til. Leifur starfaði á búi fóður síns
á unglingsárunum en frá sextán ára
aldri fór hann fimm vetrarvertíðir
til Vestmannaeyja en vann viö búið
ásumrin.
Leifur tók svo við búinu 1956 og
hefur stundað búskap í Nýjabæ síð-
an. Hann sat í hreppsnefnd tvö kjör-
tímabil, var varaformaður Búnað-
arfélags Vestur-Eyfellinga, situr í
sóknamefnd, starfar í kirkjukóm-
um og situr í fidltrúaráði Mjólkur-
búsFlóamanna.
Fjölskylda
Leifur kvæntist 7.7.1956 Kolbrúnu
Valdimarsdóttur, f. 24.11.1933, hús-
freyju. Hún er dóttir Valdimars Stef-
ánssonar og Sigrúnar Sigurjóns-
dóttur er bjuggu á nokkrum stöðum
í Flóanum en Kolbrún ólst upp hjá
Gísla Högnasyni og Katrínu Skúla-
dóttur á Læk í Hraungerðishreppi
frá tveggja ára aldri.
Böm Leifs og Kolbrúnar em Katr-
ín Leifsdóttir, f. 14.2.1956, kennari
og húsmóðir á Akranesi, gift Jóni
P. Pálssyni bæjarritara og eiga þau
þrjú börn; Valdís Leifsdóttir, f. 27.4.
1958, bankamaður og húsmóðir á
Hvolsvelli, gift Oddi Helga Jónssyni
rekstrarstjóra og eiga þau þrjú börn;
Grétar Steinn Leifsson, f. 23.5.1959,
pípulagningamaður í New York,
kvæntur Guðfinnu Guðmundsdótt-
ur húsmóður og eiga þau þijú böm -
auk þess sem hann á son frá því
áður; Kristín Erna Leifsdóttir, 14.2.
1962, starfsmaður við Sláturfélag
Suðurlands á Hvolsvelli, gift Baldri
Ólafssyni, starfsmanni hjá Sláturfé-
laginu, og eiga þau tvö börn; Sigrún
Björk Leifsdóttir, f. 29.12.1963, hús-
freyja í Oddsparti í Þykkvabæ, gift
Óskari Kristinssyni, b. þar, og eign-
uðust þau fjögur böm en tvö þeirra
em á lifi auk þess sem Sigrún á son
frá því áður; Sigurlaug Hanna Leifs-
dóttir, f. 24.5.1972, nemi við Bænda-
skólann á Hvanneyri, búsett í for-
eldrahúsum.
Leifur er næstyngstur sjö systk-
ina. Systkin hans em Valgerður
Einarsdóttir, f. 15.3.1922, húsfreyja
á Núpi undir Eyjafjöllum og ekkja
eftir Ragnar Guðmundsson sem lést
1986 og em börn þeirra funm; Krist-
ín Einarsdóttir, f. 4.5.1923, húsmóð-
ir í Vestmannaeyjum, gift Marteini
Guðjónssyni, lengst af netagerðar-
manni, og eiga þau einn son; Ing-
veldur Einarsdóttir, f. 8.7.1925, hús-
móðir í Reykjavík, gift Róbert F.
Gestssyni málarameistara og eiga
þau þrjú böm; Auður Einarsdóttir,
f. 18.3.1928, húsmóðir á Hellu, gift
Lámsi Jónassyni, umsjónarmanni í
Akurhóli, og eignuðust þau átta
börn en sjö þeirra eru á lífi; Einar
Einarsson, f. 11.2.1932, starfsmaður
við Nesbú á Vatnsleysuströnd,
kvæntur Klöra Guöbrandsdóttur
verslunarmanni og eiga þau sex
böm; Pálheiður Einarsdóttir, f. 20.3.
1936, húsmóðir í Reykjavík, gift
Kristjáni Jóhanni Þórarinssyni,
lengi eftirlitsmanni við frystihús, og
eigaþauþijúböm.
Foreldrar Leifs vom Einar Ein-
arsson, f. 6.9.1897, d. 3.7.1970, b. í
Nýjabæ, og Katrín Vigfúsdóttir frá
Brúnum, f. 29.8.1891, d. 15.8.1967,
ljósmóðir og húsfreyja.
Ætt
Einar var sonur Einars, b. í
Nýjabæ, bróður Arnlaugar, móður
Sighvats Bjamasonar útgerðar-
manns í Vestmannaeyju, og
langömmu Magnúsar Jóhannesson-
ar siglingamálastjóra. Einar var
sonur Sveins, b. í Nýjabæ, bróður
Sighvats, langafa Björgvins, fóður
Sighvats viðskipta- og iðnaðarráð-
Leifur Einarsson.
herra. Móðir Einars Sveinssonar
var Þorbjörg Ólfafsdóttir frá
Nýjabæ.
Móðir Einars Einarssonar var
Kristín Pálsdóttir, b. á Fit Magnús-
sonar, b. í Dalskoti Magnússonar,
b. á Fitjamýri Þorleifssonar. Móðir
Kristínar var Margrét Andrésdóttir.
Katrín var dóttir Vigfúsar, b. á
Brúnum Bergsteinssonar, bróður
Kristólínu, móður Sveins Scheving,
hreppstjóra í Vestmannaeyjum,
langafa Hreins Loftssonar. Móðir
Katrínar var Valgerður Sigurðar-
dóttirfráBrúnum.
Kolbrún Valdimarsdóttir
Kolbrún Valdimarsdóttir, hús-
freyja að Nýjabæ undir Vestur-
Eyjafjöllum, er sextug í dag.
Starfsferill
Kolbrún fæddist að Glóm í Hraun-
gerðishreppi og ólst upp að Læk hjá
Gísla Högnasyni og Katrínu Skúla-
dóttur. Hún var einn vetur í bama-
skóla og stundaði auk þess nám við
Húsmæðraskóla Suöurlands á
Laugarvatni.
Kolbrún stundaði ýmis störf á
unglingsárunum og fram að gift-
ingu. Hún starfaði að Ljósafossi, á
Laugarvatni, við Héraðsskólann að
Skógum og í Vestmannaeyjum.
Fjölskylda
Kolbrún giftist 7.7.1956 Leifi Ein-
arssyni, f. 21.11.1933, b. í Nýjabæ.
Hann er sonur Einars Einarssonar,
b. í Nýjabæ, og konu hans, Katrínar
Vigfúsdóttur ljósmóður.
Börn Kolbrúnar og Leifs eru tahn
upp í grein um Leif hér á síðunni í
dag.
Kolbrún erfjórða í aldursröð sex
systkina. Systkini Kolbrúnar: Stef-
án Valdimarsson, f. 11.4.1928, bú-
settur í Þorlákshöfn, kvæntur Elsu
Auðbjörgu Unnarsdóttur og eiga
þau tvær dætur; Siguijón Steinþór
Valdimarsson, f. 6.6.1929, d. 19.2.
1930; Þorbjörg Gyða Valdimarsdótt-
ir, f. 9.8.1931, húsmóðir á Siglufirði,
gift Ólaíi Þór Haraldssyni og eiga
þau þrjú börn; Guðjón Baldur Valdi-
marsson, f. 9.1.1936, búsettur á Sel-
fossi, kvæntur Vilborgu Magnús-
dóttur og eiga þau fimm böm; Hörð-
ur Hansson, f. 2.6.1942, búsettur á
Selfossi, kvæntur Svanlaugu Eiríks-
dóttur og eiga þau þijú börn.
Foreldrar Kolbrúnar vom Valdi-
mar Stefánsson, frá Arnarbæli í
Grímsnesi, f. 10.7.1893, d. 19.4.1990,
bóndi og síðar starfsmaður í Laug-
ardælum, og Sigrún Sigurjónsdótt-
ir, f. 17.9.1901, d. 18.5.1973, frá Króki
í Hraungerðishreppi, húsfreyja.
Kolbrún og Leifur verða að heim-
anídag.
Jón Kr. Elíasson
Kolbrún Valdimarsdóttir.
Jón Kr. Elíasson, Hlíðarvegi 15, Bol-
ungarvík, er níræður í dag.
Starfsferill
Jón fæddist í Bolungarvík og ólst
þar upp. Hann hlaut hefðbundið
barnaskólanám þess tíma.
Jón byrjaði 10 ára gamall að róa
með föður sínum. Hann var sjómað-
ur hjá hinum kunna sjósóknara,
Elíasi Magnússyni, og var síðar
formaður hjá Bjama Eiríkssyni,
kaupmanni í Bolungarvík, fyrst á
vélbátnum Þóri (Hænsna-Þóri) en
seinna á vélbátnum Dröfn sem þeir
keyptu saman og gerðu út. Er sam-
vinnu þeirra Bjama lauk keypti Jón
vélbátinn Kristján af Krisijáni Er-
lendssyni. Jón gerði bátinn út þar
til í byijun seinni heimsstyijaldar-
innar er hann fékk Kvíabræður,
Sigmund og Jakob, til að smíða fyr-
ir sig annan Kristján. Þann bát var
Jón með fram til 1967 er konan hans
lést en þá lét hann af formennsku.
Jón stundaði þó sjó áfram með öðr-
um og þá aðallega Bemódusi Hall-
dórssyni.
Jón, sem stundaði sjómennsku
fram yfir áttrætt, hefur hlotiö heið-
ursmerki Sjómannadagsins.
Fjölskylda
Jón kvæntist26.12.1927 Benediktu
Gabríellu Guðmundsdóttur, f. 21.6.
1897, d. 5.12.1967. Foreldrar hennar
vora Guðmundur Ömólfsson, bóndi
á Geirastöðum í Bolungarvík, og
Sigríður Halldórsdóttir húsmóðir.
Böm Jóns og Benediktu Gabríellu:
Bergfinnur Kristján, f. 12.8.1927, d.
29.7.1928; Elías Jón, f. 19.12.1929,
aðalvarðstjón hjá lögreglunni á
Keflavíkurflugvelli, kvæntur Odd-
björgu Ögmundsdóttur; Sigríður
Elísabet, f. 20.8.1932, kennari, gift
Steingrími Þórissyni, fyrrv. kaup-
manni. Fóstursynir Jóns: Bergur
Kristjánsson, f. 14.9.1922, d. 22.2.
1986, vélstjóri í Bolungarvík; Guð-
mundur Kristjánsson, f. 21.11.1923,
d. 23.9.1987, bæjarstjóri í Bolungar-
vík.
Systkini Jóns: Ámi, látinn, bakari
í Bolungarvík, hann var kvæntur
Petrínu Guðmundsdóttur; Magnús,
látinn, sjómaður og verkamaður í
Bolungarvík og síðar í Reykjavík,
sambýhskona hans var Petra Guð-
mundsdóttir; og Þórey, látin, henn-
ar maður var Kristján Guðbjarts-
son.
Foreldrar Jóns voru Elías Jón
Ámason frá Hóli í Bolungarvík, sjó-
mmm^m^mmmm-
Jón Kr. Elíasson.
maður og smiður, og kona hans,
Elisabet Rósa Halldórsdóttir, hús-
móðir.
Ætt
Elías var sonur Árna, b. á Hóli í
Bolungarvík, Jónssonar, b. á Hóli í
Bolungarvík, Guðmundssonar, b. í
Minni-Hlíð, Ásgrímssonar, b. í Am-
ardal fremri, Bárðarsonar, b. í Am-
ardal, Illugasonar, ættfoöur Amar-
dalsættarinnar.
Jón tekur á móti gestum frá kl. 16
á afmælisdaginn að Heijólfsgötu 24
íHafnarfiröi.
Jóhanna Stefánsdóttir,
Vafiarbraut 2, Njarðvík.
Ásta L. Björnsdóttir,
Espigerði4, Reykjavík.
80 ára
Guttormur Ármann Gunnarsson
bóndi,
Marteinstungu, Holtahreppi.
Hanncraðheiman.
Dagbjartur Kristinn Gunnarsson,
Hringbraut 50, Reykjavik.
: Hanneraðheiman. '
Svava Ólafsdóttir,
Hrafhistu, Reykjavík.
ÓskarBjörnsson,
Freyjugötu lOb, Sauöárkróki.
Unnur Benediktsdóttir,
Laufskógum 27, Hveragerði.
Hólmfriður Mekkinósdóttir,
Skaftahlið 15, Reykjavík.
Aðalheiður Þórðardóttir,
Blómvangi 13, Hafnarfiröi.
60ára
Málfríður Þórðardóttir,
Kveldúlfsgötu 20, Borgamesi.
Þetta getur verið BILID milli lífs og dauða!
30 metrar
Dökkklæddur vegfarandi sést
ekki fyrr en í 20-30 m. fjarlægð
frá lágljósum bifreiðar
en með endurskinsmerki,
borin á réttan hátt sést hann
I 120-130 m. fjarlægð.
130 metrar
yUMFERÐAR
RÁÐ
Gunnar Svanur Hafdal,
Hrafnsstöðum, Ljósavatnshreppi.
Þóra Júlíusdóttir,
Brekkubyggð 33, Garðabæ.
Bragi Skarphéðinsson,
Miðgarði 3, Neskaupstað.
Kristjana Jónsdóttir,
Áshliðl7,Akureyri.
Ingibjörg Pétursdóttir,
Hiarðartúni l, Ólafsvík.
Gunnar Sveinbjörnsson,
Hlíðarbyggð 33, Garðabæ.
Einar Jóhannsson,
Kárastig9, Hofshreppi.
Vaidemar Jónsson,
Breiðvangi 58, Hafnarfirði.
Gcrður Hólm Halldórsdót tir,
Hlíðarvegi44, Njarðvík.
Björn Halldórsson,
Snæfellsási 13, Hellissandi.
Ámi Stefán Georgsson,
Engihjalla 9, Kópavogi.
Birna Guðjónsdóttír,
I,iósamyn5.Garðabae
Oddur Jósep Halldórsson,
Bollagötu 6, Reykjavík.
Einar Ágústsson,
Brekkubæ 28, Reykjavík.
Guðfinna M. Sigurðardóttir,
Ormsvöllum 12, Hvolsvelli.
JónGeir Jónatansson,
Hjallalundi 3e, Akureyri.
Sigurður Ingi Geirsson,
Asparlundi 11, Garðabæ.
Ingveldur Haraldsdóttir,
Eyjabakka 26, Reykjavik.