Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1993, Page 28
44
MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1993
Læt ekki hafa áhrif á mig.
Blekktur og
spottaður
„Ég hef ætíð verið stuðnings-
maður og aðdáandi Steingríms
Hermannssonar. Nú hef ég hins
vegar verið blekktur, spottaður
og auðmýktur af honum og fleiri.
Ég kann ekki við að sé verið að
ljúga upp á okkur,“ segir Jón Sig-
urðsson, stjórnarmaður í Mót-
vægi, við DV í gær 'en miklar
deilur eru innan Mótvægis um
framtíð Tímans.
Ummæli dagsins
Út með’ann
„Framkoma Steingríms Her-
mannssonar í þessu máli bendir
til þess að hann eigi ekki að taka
þátt í stjómun landsins og þaðan
af síður í stjómun bankanna.
Honum ber að segja af sér for-
mennsku í Framsóknarflokkn-
um,“ segir í leiðara Tímans í gær
um sama mál.
Læt ekki hafa áhrif á mig
„Ég læt ekki svona lagað hafa
áhrif á mig en ég skal ekki segja
hvort þetta hafi áhrif á einhverja
aðra flokksmenn," svarar Stein-
grímur í DV í gær aðspurður um
leiðaraskrif Tímans. Hann segir
þau mótast af hefndarhug rit-
. > stjórans, Þórs Jónssonar.
Mannanafnalögin
íslenska málfræöifélagið held-
ur opinn fund um mannanafna-
Iögin í stofu 101 í Lögbergi HÍ í
dag kl. 17. Formaður manna-
nafnanefndar, Halldór Ármann
Sigurðsson, flytur erindi um lög-
in og túlkun þeirra.
Cranio Sacral
Opinn kynningarfúndur á
Cranio Sacral, höfuðkúpu- og
spjaidhryggsmeðferð, verður i
Skeifunni 7,2. hæð, kl. 20. Fyrir-
lesari ér Heike Pfaff.
Fundir
ITC-deildin Melkorka
heldur fund í Menningarmið-
stöðinni Gerðubergi kl. 20 í kvöld.
Uppl. gefa Edda f s. 686689 og Sól-
veig i s. 674561.
Stefnumótun í
menntakerfinu
Ráðstefna um stefnumótun og
gæðastjómun í menntakerfinu
verður haldin í sal 2 í Háskólabíó
frá kl. 13 tíl 17.30 í dag.
Hótel mamma
Æskulýðssamband íslands
gengst fyrir ráðstefnu um hús-
næðismái ungs fólks á íslandi í
dag undir yfirskriftinni „Hótel
mammma". Ráöstefnan hefst kl.
17 i Risinu, Hverfisgötu 105.
Mynd kvenna í fjölmiðlum
KRFÍ heldur opinn kvöldverð-
arftmd um Mynd kvenna i fjöl-
miðlum í kvöld kl. 18 til 21. Fund-
urinn er haldinn í Komhiöðunni,
Bankastræti 2.
íslenskt bókmenntakvöld
Höfundar og leikarar lesa úr
nýjum, íslenskum skáldverkum
sem koma út hjá Máli og menn-
ingu og Forlaginu í Þjóðleikhús-
inu í kvöld kl. 20.30. Aðgangur er
ókeypis og öUum heimill.
Rigning austast
Stormviðvörun í morgun kl. 7. Búist
er við stormi á suðvesturmiðum,
Faxaflóamiðum, Breiðaijarðarmið-
Veðriðídag
um, suðausturmiðum, vesturdjúpi,
suðausturdjúpi og suðurdjúpi.
Það verður suðlæg átt, víðast gola
eða kaldi og rigning austast á landinu
í dag en annars víða þurrt. Vaxandi
suðaustanátt í kvöld, allhvasst eða
hvasst og rgining sunnanlands og
vestan í nótt. Hiti breytist lítið í dag
en í nótt hlýnar.
A höfuðborgarsvæðinu verður
suðaustan kaldi og skýjað með köfl-
um en þurrt að mestu í dag en all-
hvöss eöa hvöss suðaustanátt og
rigning í nótt. Hiti 2 til 6 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 16.04
Sólarupprás á morgun: 10.28
Síðdegisflóð í Reykjavík: 15.23
Árdegisflóð á morgun: 3.50
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri léttskýjað 1
Egilsstaðir rigning 6
Galtarviti léttskýjað 5
Keflavíkurflugvöllur skýjað 4
Kirkjubæjarklaustur léttskýjað 0
Raufarhöfn léttskýjað 0
Reykjavík skúr 2
Vestmannaeyjar skýjað 4
Bergen snjókoma 0
Helsinki snjókoma -2
Ósló snjókoma -2
Stokkhólmur komsnjór 2
Þórshöfn léttskýjað 2
Amsterdam þokumóða -1
Barcelona þokumóða 7
Berlín þokumóða -9
Chicago alskýjað 8
Feneyjar heiðskirt 2
Frankfurt þokumóða -5
Glasgow mistur -3
Hamborg þokumóða -6
London mistur 0
Madrid hálfskýjað 2
Malaga hálfskýjaö 10
Mallorca léttskýjað 9
Montreal rigning -3
New York alskýjað 9
Nuuk snjókoma -8
Orlando alskýjað 18
París léttskýjað -5
Vín skafr. -3
Winnipeg heiðskírt -21
„Það kemur fyrir að maður tekur
með sér skissubókina og vinnur
eitthvað á leiðinni milli Keflayíkur
og Reykjavíkur," segir Jón Ágúst
Pálmason, grafískur hönnuður
sem bar sígur úr býtum í sam-
keppni um merki fimmtíu ára lýð-
veldisafmælis. Jón Ágúst býr í
Keflavík en vinnur i Reykjavík og
merkið var að mestu hannað í rút-
Maðiu dagsins
unni á milli. Jón Ágúst er fæddur
og uppalinn 1 Keflavík og segist
helst ekki vilja fara þaðan.
„Hins vegar er litið að gera á
mínu sviöi í Keflavík og því hef ég
þetta svona.“
Jón Ágúst hefur mest verið í
myndskreytingum og hefiir al-
menningur haft verk hans fyrir
augum áður og má nefna dagatal
íslandsbanka þar sem tekin voru
fyrir orðtök.
Jón Ágúst er lærður auglýsinga-
Jón Agúst Pálmason.
DV-mynd BG
teiknari og lauk námi úr MHÍ1991.
Hann fór upphaflega i nám í MHI
aðeins sautján ára gamall árið 1972
og var í tvo vetur en hætti. í niu
ár kenndi hann myndmennt og fór
þá í skólann aftur og lauk honum.
Meöan hann fékkst við kennslu
lærði hann málun og teikningu hjá
Eiríkí Smith.
„Teikningin er mitt uppáhald og
geri svohtið aö þvi i fristundum.
Sem stendur eru þessar teikningar
fyrir sjálfan mig en ætli ég haldi
ekki sýningu sehma, eins og aðrir.“
Aðspurður segist Jón Ágúst ekki
hafa tekið þátt í svona samkeppni
áöur en nú hafi gefist góður tími.
Fyrir utan vinnu sína hjá Auglýs-
ingastofunni Yddu kennir Jón Ág-
úst téikningu og málun tvö kvöld
í viku. Hann er kvæntur Hildi
Nönnu Jónsdóttur sem starfar sem
bókari hjá Hitaveitu Suðurnesja.
Þau eiga tvær dætur, Júlíu, 14 ára,
og Katrínu Lillý, 4 ára.
Verðlaunaupphæöin sem Jón
Ágúst fær nemur 400 þúsundum.
Þegar hann var spurður hvað hann
hygðist gera við peningana svaraði
hann að bragði: „Það fer í bankann
aðborga,borga.“ -JJ
Sex leikir
í 1. deild
Sex leikir verða í 1. deild karla
i handbolta. í Garðabæ keppa
Stjarnan og KA, í Höllinní KR og
ÍBV, FH og Valur í Kaplakrika,
Afturelding og ÍR keppa í íþrótta-
íþróttir
húsinu að Varmá og leikur Vík-
ings og Selfoss veröur í Víkinni.
Allir þessir leikir hefiast kl. 20.00
en kl. 20.30 hefst leikur Þórs og
Hauka á Akureyri.
í 1. deild kvenna verða 2 leikir.
Ármann og Fram keppa í Höll-
inni en Valur og KR i Valsheimili
20.00.
Skák
Norski stórmeistarinn og knattspyrnu-
hetjan Simen Agdestein vann fyrstu
skákina af Vassily Ivantsjúk á Inter-
polis-mótinu sem nú stendur yfir í TU-
birng. En Ivantsjúk jafnaöi og í bráðabana
með 20 mínútna umhugsunartíma reynd-
ist hann sterkari og sló Norðmanninn út.
í fyrstu skák þeirra hatði Agdestein
hvítt og átti leik í þessari stöðu:
29. Re3! He4?? Ivantsjúk átti nægan tima
á klukkunni en leikur þó gróflega af sér.
Hrókurinn á ekki marga reiti en hann
varð að reyna 29. - Hd4 30. Rf5 + Kg6 31.
Rxd4 exd4, þrátt fyrir að vinningsmögu-
leikar hvíts séu góðir eftir 32. Hf6 + Kxg5
33. Hxb6. 30. R£5+ Kg6 31. Rd6 Nú fer
heill hrókur í hafið. Ivantsjúk gafst upp.
Jón L. Árnason
Bridge
Það er að sjálfsögðu ekki leyfilegt aö
svindla í bridge, en til er nokkuð sem
mætti kalla heiðarlegt svindl. Hér er eitt
dæmi sem mætti krýna þeirri nafngift
og lýsir hugmyndaauðgi hjá sagnhafa.
Sagnir ganga þannig, norður gjafari og
n-s á hættu:
* DG6
V KD863
♦ K1072
+ 3
* 9843
V 10
4 Q84
+ G10952
* 1052
V G954
♦ ÁD65
+ K6
* ÁK7
V Á72
* G3
+ ÁD874
Norður Austur Suður Vestur
pass pass 1+ dobl
5+ dobl p/h
Kerfi n-s var eðlilegt (standard) og
laufopnunin lofaði þrílit minnst í litnum.
Norður var ansi djarfur þegar hann
ákvað að hindrunarsegja á fimmta sagn-
stigi gegn úttektardobli vesturs með að-
eins einn punkt. Hann fær ekki hrós fyr-
ir þá sögn, enda stendur ekkert geim á
hendur a-v. En suður fær hins vegar
hrósið fyrir „svmdlið" í úrspilinu. Útspil
vesturs var hjartakóngur sem suður drap
á ás og síðan trompaði hann hjarta í
blindum. Næst var laufi svínað, laufás
tekinn og híarta enn trompað. Suður bað
síðan um tígul úr blindum og vestur drap
gosa sagnhafa á kóng. Veshor vildi eðli-
lega ekki spila hjarta í tvöfalda eyðu og
ekki leist honum vel á að spila tigli. Þess
vegna var spaðadrottning lögð á borðið.
Sagnhafi var tljótur að gefa þann slag.
Eitthvað virðast köllin í litunum hjá a-v
hafa brugðist þvi vestur hélt grunlaus
áfram spaðasókninni. Þar með gat sagn-
hafi hent tígultapslag niður í fjóröa spað-
ann. Kallast þetta ekki heiðarlegt svindl?!
ísak Örn Sigurðsson