Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1994, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1994, Page 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 1994 Fréttir_______________________________________________________________________________dv Deila Samherja hf. og Aflamiðlunar: Munum skoða reglurnar sem unnið er eftir - en tökum ekki ráðin af Aflamiðlun - segir Þröstur Ólafsson 1 utanríkisráðuneytinu Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Við munum eflaust skoða þær reglur sem unnið er eftir en við gríp- um ekki beint inn í og tökum ekki ráðin af Aflamiðlun, það gengi aldr- ei,“ segir Þröstur Ólafsson, aðstoöar- maöur utanríkisráðherra, vegna deilu Samherja hf. á Akureyri og Aflamiðlunar sem upp er komin vegna vilja Samherjamanna að flytja ísaðan fisk í gámum á markaði í Evrópu. Deilan er fyrst og fremst til- komin vegna þess að togarar Sam- herja hafa fryst um borð, en að und- anfórnu hefur Víðir, sem er einn tog- ara fyrirtækisins, verið á ísfiskveið- um með það í huga að afiinn verði fluttur út í gámum. Þröstur segir að Aflamiðlun hafi verið komið á fót fyrir tæplega íjór- um árum í þeim tilgangi að stýring væri á útflutningi á ferskum fiski og hráefni til fiskvinnslustöðva innan- lands. „Það hefur ríkt sæmilegur friður um starfsemi Aflamiðlunar, og við höfum ekki nema um tvennt að velja, að miðlunin starfi áfram eins og hingað til eða að hún verði lögö af og þetta fari í fyrra horf sem ég efa að menn vilji. En kerfi sem ekki er friður um stenst ekki,“ segir Þröstur. Frystiskipin mæta afgangi „Það er reglan að frystiskipin mæti afgangi varðandi útflutning á fiski í gámum eða með siglingar, en þau fá leyfi ef framboð er minna en eftir- spum,“ segir Eiríkur Tómasson, formaður Aflamiðlunar. Eiríkur seg- ir að reglurnar sem unnið sé eftir séu þannig að stuðst sé við það hvemig menn hafi sinnt þessum markaði, það sé reynslan í þeim efnum sem ráði. „Þeir sem hafa sinnt þessu fá leyfi á undan öðrum, það hafa frysti- skipin ekki gert og því ekki rétt að þau komi þama inn á undan öðrum. Við metum það vikulega hvað mark- aöirnir þoh og vinnum eftir því,“ segir Eiríkur. Hann segir að ef menn greini á hvort Aflamiðlun hafi rétt til að stjóma þessum útflutningi snúi það mál að utanríkisráðuneytinu. „Mér sýnist deilan hafa verið meira í þá veruna að undanfömu," segir Eirík- ur. Allar tilraunir til að bjarga Bergvík VE af standstað hafa mistekist til þessa. Þessi mynd er frá siðustu björgunar- tilrauninni. DV-mynd ÞH „Það er ætlunin að dráttarbátur- inn Goðinn fari austur í dag eða á morgun. Líklega verður reynt aftur um næstu helgi, þá er vaxandi straumur. Líklega verður varðskip fengiö líka og bæði skipin kippa í,“ segir Einar Ásgeirsson, útgerðar- maður Bergvíkur VE sem enn liggur föst á strandstaö í Vaðlavík. Hann segir skipið í engri hættu þar sem það er. Sjórinn nái htið að því, þó hafi það færst aðeins suður eftir víkinni. Stórvirk vinnutæki verði fengin til aö aðstoða skipin við næstu tilraun til að ná Bergvíkinni á flot. Yfir 300 metra er að fara áður en skipið kemst á flot þannig að und- irbúaþarfalltvel. -pp Aflamiölun neitar Samherja um útflutning í gámum: Égheldaðþað sé helst öf und sem ræður þessu - segir Þorsteinn Vilhelmsson Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Æth það vaki ekki helst fyrir þess- um mönmun að við leggjum upp laupana og gefumst upp en það er bara ekki okkar stíll,“ segir Þor- steinn Vilhelmsson, skipstjóri og einn af eigendum útgerðarfélagsins Samherja hf. á Akureyri, sem Afla- miðlun hefur ítrekað að undanfómu sjnfiað um leyfi til að flytja út ísfisk í gámum, m.a. til Belgíu, þar sem Samherji hefur komið sér upp sam- böndum sem nú em í hættu. Samherji flutti út eina gámasend- ingu athugasemdalaust en þegar næsta sending fór út kraföist Afla- miðlun þess að þeirri sendingu yrði snúið við í Þýskalandi og send heim. Utanríkisráðuneytið greip þá í taum- ana og krafðist þess að Samherji færi að samþykktum Aflamiðlunar varð- andi frekari útflutning. „Það þýðir ekkert fyrir okkur að vera að sækja um þennan útflutning. Menn virðast sjá einhvetjum ofsjón- um yfir því að við höfum sett einn frystitogara okkar á úthafsveiðar. Það er ekki um að ræða að of mikið framboð hafi verið á mörkuðunum erlendis, heldur ræður þama senni- lega öfund einhverra útgerðarmanna sem hafa kippt í spottann hjá Afla- miðlun með þessum árangri," segir Þorsteinn Vilhelmsson. I dag rnælir Dagfari______________ Bjargvættur íslands í bringu að það þykir ekki vogandi að skilja htla ísland eftir vamar- Umheiminn rak í rogastans þegar maður að nafni Zhírínovskí kom, sá og sigraði í kosningunum í Rúss- landi á dögumnn. Zhírínovskí þessi var sagður öfgamaður af verstu sort, hættulegur lýðræðinu og gott ef ekki bijálæðingur aö fyrirmynd Adolfs Hitler. Fréttaskýrendur vora yfirleitt sammála um að kosn- ingamar í Rússlandi hefðu farið afar illa og það væri andstætt hags- munum Vesturlanda ef Zhírínovskí kæmist til einhverra valda. En sá hlær best sem síðast hlær. Það getur vel verið að Zhírínovskí hafi verið rekinn frá Búlgaríu með skömm og það getur vel verið að þeir í Moskvu hafi af því áhyggjur hversu atkvæðamikih og vinsæh þessi uppskafningur er í sínu hei- malandi. En hér uppi á íslandi er þetta maður að okkar skapi. Hann hlýtur að fá fálkaorðuna á næstu áramótum og ríkisstjómin ætti að láta það veröa sitt fyrsta verk að bjóða honum í opinbera heimsókn. Zhírínovskí lengi lifi. Máhð er nefiúlega það að þessi óvænti sigurvegari í kosningunum í Rússlandi hefur bjargað vömum íslendinga. Hann hefur forðað Suð- umesjamönnum frá hrikalegu at- vinnuleysi og hann hefur styrkt stöðu okkar gagnvart Bandaríkj- unum. Bandaríkjamenn vora komnir á þá skoðun að nú mætti leggja her- stöðina á Miðnesheiði niður. Þeir héldu að engin hætta stafaði lengur af rússneska biminum. Þeir héldu sem sagt aö nú væri skoUinn á frið- ur um aldur og ævi og óþarfi að kosta orrustuflugvélar og vamarl- ið uppi á því htla krammaskuði sem heitir Island. En Davíð Oddsson vissi betur og varaði Bandaríkjamenn við. Hann hafði margsagt þeim að Rússland væri óvinur í felum og aldrei að vita nema öryggi Vesturlanda yrði ógnað. Davíð sá það sem Kaninn sá ekki og það er einmitt fyrir til- stilh Zhírinovskís og hans mikla kosningasigurs að Bandaríkja- mönnum hefur snúist hugur og þeir era að ákveða að halda orr- ustuflugvélunum hér á landi, öU- um íslendingum tfl ósegjanlegrar ánægju. Jafnvel herstöðvarandstæðingar vora orðnir logandi hræddir um aö Kaninn gerði alvöra úr þeirri hótun að leggja vamarstöðina nið- ur. Eitt er að vera á móti vamar- stöð, annað er að meina það og taka afleiðingunum. Alhr stjórnmála- flokkar sameinuðust í áhyggjum sem því fylgja að varnarhðið fari og það kemur sér auövitað afar Ula fyrir núverandi ríkisstjóm sem hefur ekki lengur þorsk og ekki peninga og ekki kjósendur tfl að styðja sig nema hún bjargi vamar- Uðinu frá því aö fara. Og nú er sá draumur loks að rætast að varnarhðið verði hér áfram. Þökk sé Zhírínovskí sem hefur skotið mönnum shkan skelk laust og eiga það á hættu að Zhir- ínovskí vaði hér yfir til að ógna Ameríku. Davíö sagði Könunum þetta og Kanarnir hafa tekið mark á Davíð. Zhírínovskí kom færandi hendi og þess vegna eiga íslending- ar ekki að harma það þótt þeir í Rússlandi hafi ekki vit á því að styðja lýðræðið. Þvert á móti er þaö íslendingum gleðiefni að Rússar séu stuðningsmenn öfgamanna á borð við Zhírínovskí því þaö eru svoleiðis menn sem kippa málun- um í lag í löndum þar sem menn hafa ekkert upp á að hlaupa nema atvinnu og ávinning af áframhald- andi herstöövum Bandaríkja- manna. Við skulum gera aUt sem í okkar valdi stendur tíl að styðja við bakið á Zhírínovskí og hans mönnum, enda er atvinnan í Keflavík undir honum komin og hermangið er búið spU ef Zhírínovskí er kveðinn í kútinn. Það er þessi maður sem hefur komið því til leiðar, með ein- um kosningasigri og nokkram skeleggum yfirlýsingum, að banda- ríska hermálaráðuneytið, utanrík- isþjónustan og embættismenn í Pentagon hafa skihð hvað Davíð Oddsson átti við þegar hann varaði við ógninni úr austri. Það er ekki ónýtt að eiga svona bandamenn og rússnesk alþýða hefur enn einu sinni reynst íslend- ingum sannur óvinur sem hægt er að treysta á. Án stuönings við Zhír- ínovsid væri vamarhðið á föram og tómlegt um að htast á köldu ísa- landi. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.