Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1994, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1994, Page 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 1994 Gestaíbúðin Villa Bergshyddan í Stokkhólmi ibúðin (3 herbergi og eldhús í endurbyggðu 18. ald- ar húsi), er léð án endurgjalds, þeim sem fást við listir og önnur menningarstörf í Helsingfors, Kaup- mannahöfn, Ósló eða Reykjavík, til dvalar á tímabil- inu 15. apríl til 1. nóvember. Umsóknir um dvöl í Villa Bergshyddan, þar sem fram komi tilgangur dvalarinnar og hvaða tíma sé óskað, svo og upplýsingar um umsækjanda, skal senda til Hásselby Slott, Box 520, S-162 15 Vállingby, fyrir 28. febrúar nk. Ekki eru notuð sérstök umsóknareyðublöð. Nánari upplýsingar fást hjá skrifstofu borgarstjóra, sími 632000. Staða forstöðumanns Rannsóknastofnunar uppeld- is- og menntamála er laus til umsóknar. Forstöðu- maður er ráðinn til fimm ára í senn. Hann skal upp- fylla þær hæfniskröfur sem gerðar eru til prófessora við Háskóla íslands, sbr. 5. gr. laga nr. 76/1991, um Rannsóknastofnun uppeldis- og menntamála. Hann skal hafa staðgóða þekkingu á rannsóknaraðferðum félagsvísinda og hafa sannað hæfni sína m.a. með rannsóknum á sviði uppeldis- og menntamála. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsækjendur um stöðu forstöðumanns skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um vísindastörf þau sem þeir hafa unnið, ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil sinn og störf. Umsóknarfrestur er til 15. febrúar 1994. Umsóknir skulu sendar til menntamálaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Menntamálaráðuneytið, 3. janúar 1994. Greiðslur til foreldra vegna barna á aldrinum tveggja og hálfs árs til fjögurra og hálfs árs sem ekki nýta leikskólaþjónustu á vegum Reykjavíkur- borgar eða aðra dagvistarþjónustu styrkta af Reykjavíkurborg. Á fundi borgarstjórnar hinn 16. des. sl. voru sam- þykktar eftirfarandi reglur: 1. Greiðsluár skiptist í fjögur þriggja mánaða tíma- bil. Útborganir fara fram mánuði síðar en hverju tímabili lýkur, í fyrsta sinn 1. maí 1994. 2. Samkvæmt reglum þessum hafa þeir foreldrar rétt á greiðslum sem eiga þörn sem verða tveggja og hálfs árs á viðkomandi tímabili og skulu greiðsl- urnar standa að óbreyttum forsendum þar til börn- in ná fjögurra og hálfs árs aldri. 3. Greiðslur með hverju barni skulu nema þeirri upp- hæð sem ákveðin er í fjárhagsáætlun hverju sinni sem rekstrarstyrkur fyrir hvert barn á einkaleik- skóla og nemur nú kr. 6.000 á mánuði. 4. Sækja þarf sérstaklega um greiðslur fyrir hvert tímabil á þar til gerðum eyðublöðum. Umsókn verður að berast eigi síðar en viku eftir að greiðslu- tímabili lýkur. Til þess að auðvelda væntanlegum umsækjendum að staðfesta vilja sinn til þess að gerast aðilar að þessu nýja fyrirkomulagi hefur verið ákveðið að taka við pöntunum á upplýsingum og umsóknareyðu- blöðum í síma Dagvistar barna 27277. Eyðublöð verða síðan send út en þeim ber að skila eigi síðar en viku eftir að greiðslutímabíli lýkur, þ.e. fyrir 7. apríl 1994 fyrir fyrsta tímabilið. Hringið í síma 27277 og óskið eftir að fá frekari upp- lýsingar og/eða umsóknareyðublað. Vinsamlegast gefið upp nafn og heimilisfang ásamt kennitölu um- sækjanda og barns eða barna sem sækja á um greiðslu fyrir. Dagvist barna Mexíkóskir stjórnarhermenn hlaöa líkum á vörubil á þjóðveginum nærri San Cristobal de las Casas í gær. Fjórtán lík fundust eftir skotbardaga hermanna við uppreisnarmenn bænda. Simamynd Reuter Tæplega níutíu fallnlr í átökum bænda og hermanna í Mexlkó: Mér líst ekkert á hermennina - segir breskur ferðamaður í uppreisniimi miðri Vopnaðir bændur í ChiapasfylM í suðurhluta Mexíkó yfirgáfu í gær tvo bæi sem þeir náðu á vald sitt á gaml- ársdag en harðir bardagar geisuðu áfram í fylkinu. Tala látinna fór hækkandi og sögðu yfirvöld að 86 manns að minnsta kosti hefðu fallið í átökum bænda og hermanna. Einn embættismaður í fylkishöfuðborg- inni Tuxtla Gutierrez sagði að allt að 150 hermenn kynnu að hafa falliö. Uppreisnarmenn eru ílestir afkom- endur maya-indíána, einhverrar mestu menningarþjóðar á vestur- hveli jarðar þar til Spánveijar hófu landvinninga á sextándu öld, og eru þeir að berjast fyrir réttindum frum- byggja landsins. Talið er að milh sex hundruð og tvö þúsund bændur taki þátt í uppreisninni. Tengsl við byltingarsinna Háttsettur embættismaður í Mex- íkóborg sagði að ýmislegt benti til að uppreisnarmenn hefðu tengsl við vinstrisinnaða byltingarhópa í Gvatemala, sem Uggur að landamær- um Chiapasfylkis, og öðrum löndum Mið-Ameríku. „Þjálfunin sem þessir náungar hafa hlctið, aginn hjá þeim og búnaður þeirra benda til þess,“ sagði embætt- ismaðurinn. Þessu neita bændur, sem kenna sig við byltingarhetjuna EmiUano Zap- ata, og sömuleiöis byltingarsamtök í Gvatemala. í yfirlýsingu bændanna um helgina eftir að þeir höfðu náð sex bæjum í Chiapasfylki á sitt vald sagði að þeir hefðu lýst stríði á hendur stjórnvöld- um sem þeir saka um um þjóðarmorð og hvöttu til þess að jarðnæði yrði skilað aftur til bænda. Þá setja þeir sig einnig upp á móti fríverslunar- samningi Norður-Ameríku, NAFTA, sem þeir segja að muni skaða þá. Fátækt í fylkinu Mikil fátækt ríkir í Chiapasfylki og á undanfornum árum hefur oft- sinnis komið til átaka þar miUi frum- byggja stórbænda. Mikill fjöldi ferðamanna var stadd- ur í hinni fornu borg San Cristobal de las Casas þegar uppreisnarmenn tóku hana á gamlárskvöld og flúðu þeir í tugatali. Bændur hurfu úr bænum aö morgni sunnudags og hermenn komu í þeirra stað. „Ég ætla að koma mér héðan. Uppreisn- armennirnir voru fínir en mér Ust ekkert á hermennina," sagði Bretinn Peter Morris í gær á leið sinni á mnferðarmiðstöðina. Reuter Zhírínovskí á sálufélaga í Stór-Finnlandi Rússneski þjóðernisöfgamaðurinn umdeUdi, Vladimír Zhírínovskí, hef- ur eignast að minnsta kosti einn sálufélaga. Sá heitir Seppo Lehto, formaður í samtökunum Stór-Finn- landi, og sendi hann Zhírínovskí bréf í gær og bauð honum í heimsókn til Finnlands. Helsta stefnumál samtakanna Stór-Finnlands er að landamærin milU Finnlands og Rússlands verði aftur hin sömu og voru árið 1939 en Finnar misstu land í hendur Rússum eftir vetrarstríðið. Lehto er stofnandi samtakanna sem hafa 47 félagsmenn. Lehto segir að hann vUji einnig ræða sjálfstæði KareUuhéraðs við Zhírínovski. Heimboöið þýðir að finnska utan- ríkisráðuneytið verður að taka af- stöðu til þess hvort Zhírínovskí verði veitt vegabréfsáritun til Finnlands eður ei. FNB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.