Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1994, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1994, Blaðsíða 19
ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 1994 19 íþróttir NBAínótt: Stórsigur Utah gegn Dallas Utah Jazz átti ekki í neinum erfið- leikum með Dallas Mavericks í eina leik næturinnar í bandaríska körfu- boltanum í Salt Lake City. Utah sigr- aði í leiknum með 115 stigum gegn 85. Tom Chambers var stigahæstur hjá Utah með 20 stig og Karl Malone gerði 19 stig. Þetta var níundi sigur liðsins í síðustu tíu leikjum. Jim Jackson skoraði 23 stig fyrir Dallas og Jamal Mashburn kom næstur með 20 stig. Dallas hefur verstu stöðu allra hða í NBA, tveir sigrar í 26 leikjum segja allt um frammistöðu liðsins. Þess má geta að Utah hefur ekki tapað fyrir Dallas síðan 23. nóvember 1991. -JKS Stuttar fréttir Zobel þjálfar Niirnberg Rainer Zobel er tekinn við þjálf- un þýska úrvalsdeildarliðsins Núrnberg. Hann er þar með þriðji þjálfarinn sem stýrir skútunni hjá Núrnberg á þessu keppnis- tímabili en hinir tveir voru Dieter Renner og Willy Entenmann sem rekinn varfrá liðinu í nóvember. Úrslitin í leik Napoli og Foggia í ítölsku 1. deildinni í knatt- spyrnu féllu niöur í blaðinuí gær en hann endaði 1-1. '-"újú Herrakvöld FH Herrakvöld FH verður haldið á Kænunni á fóstudagskvöldið og hefst klukkan tuttugu en forsala er í Kaplakrika. Ástralía 03 Austumki Astralía vann Frakkland, 3-0, og Austurriki vann Spán, 2-1, í átta liða úrslitum í Hopman- bikarkeppninni í tennis í Ástralíu í gær. Cash aftur meiddur Pat Cash, tennisleikárinn kunni frá Ástralíu, meiddist í baki á móti í heimalandi sínu í gær en hann var þar að keppa i fyrsta skipti í fimmtán mánuði eftir meiðsli í hné. Rene Higuita, lúnn frægi landsliðsmarkvörður Kólumbíu í knattspymu, var í gær látinn laus úr fangelsi gegn tryggingu eftir sjö mánaða innilokun. Hann hafði milligöngu í greiðslu lausn- argjalds í barnsráni en segist að- eins hafa verið að aðstoða Qöl- skyldu fómarlambsins. -GH/VS Landsliðið næstneðst á æf ingamótinu Stjarnan sígraðí á jólamóti kvennalandsiiðsnefndarinnar í handknattleik sem lauk í gær- kvöldi. Víkingur varð í öðru sæti en landsliðið í því þriðja. Landslið- ið tapaði bæði fyrir Stjörnunni og Víkingi, sem verða að teljast nokk- ur tíðindi. Þessi franunistaða landsliðsíns kemur noklruö á óvart og lofar þvi miður ekki góðu fyrir komandi verkefni, sem eru leikir gegn ítah'u og Portúgal í Evrópukeppninni. Liðið heldur til Italíu á fóstudag og verður val þess tilkynnt á morgun. Leikur liðanna verður á sunnudag- inn en leikurinn gegn Portúgal verður hér heima 15. janúar. Þó landsliðsmennirnir lékju með félagsliði sínu gegn landsliðínu er það engin afsökun fyrir slakri frammistöðu. Alla leikgleði, vilja og baráttu vantaði í leik liðsins, en því verður að kippa í liðinn fýrir leikina gegn Ítalíu og Portúgal. I gærkvöldiö tapaði liðið, 22 19, fvrir Stjömunni þrátt fyrii* að landsliös- menn Stjörnunnar sætu á vara- mannabekknum lengst af. „Þetta var ails ekki nógu gott, en kora þó á góðum tíma. Vandamálin eru til þess aö taka á þeim, og nú er að þjappa sér saman ogná hag- stæðum úrslitum gegn Ítalíu á sunnudaginn. fslandsmótið hefur veriö leikið mjög stíft og það er þreyta I slelpunum,'- sagði Erla Rafnsdóttír, landsliðsþjálfari, við DV i gærkvöld. Urslit leikjanna uröu þessi: Landsliðið-KR.............20-15 Stjarnan-Víkingur.........21-16 Víkingur-KR............. 24-14 Víkmgur-landsliðið........17-15 Stjarnan-KR............ .21-20 Stjaman-landsliðið ............... ..22:19 Stjarnan hlaut 6 stig, Víkingur 4, landsliöíð 2 en KR ekkert. ÍBV tók þátt í mótinu sem gestalið en spilaði ekki við öll liðin. -I!l. — Sterkt lið gegn Hvít-Rússum - í Evrópuleikjunum um næstu helgi Tennishöllin þýtur upp Tennishöllin, sem er að rísa í Kópavogsdal, þýtur upp þessa dagana og verið er að klæða grind fyrra hússins af tveimur, eins og sést á myndinni. Einnig er tengibygging miili húsanna vel á veg komin. Áætlað er að þetta hús verði tekið í notkun í byrjun mars, og hitt nokkrum vikum síðar. Allt bendir til þess að Island geti teflt fram sínu sterkasta hði í Evr- ópuleikjunum tveimur gegn Hvít- Rússum hér á landi um næstu helgi. Liðin mætast þá í Laugardalshöll á föstudagskvöldið og sunnudags- kvöldiö. Héðinn Gilsson og Gústaf Bjama- son hafa átt við meiðsli að stríða en að sögn Þorbergs Aðalsteinssonar landsliðsþjálfara eru báðir búnir að ná sér og aðrir eru heilir. íslenska liðið hefur æft tvisvar á dag frá 27. desember, en þó fengu leikmennirnir frí á nýársdag. Tútsjkin kemur ekki Hvít-Rússar verða án síns frægasta leikmanns því Alexandr Tútsjkin er meiddur, hann er ekki orðinn heill eftir meiðslin sem hann varð fyrir í Evrópuleiknum með Essen gegn FH í Kaplakrika í lok október. Þeir hafa samt sem áður öflugu liði á að skipa og fremstur í flokki er stórskyttan Jakimovitsj, sem var lykilmaður í sovéska landsliðinu á síðustu æviár- um þess. -VS Samkomulag um félagaskipti Braga í gær náðist samkomulag milli körfuknattleiksdeilda Vals og Hauka um félagaskipti Braga Magnússonar, sem ákvað fyrir skömmu að ganga til liðs við Valsmenn frá Hafnarfjarðarliðinu. Bragi missir af fyrsta leik Valsmanna á árinu, gegn Snæfelli um næstu helgi, en verður löglegur í fallslagnum þýðingarmikla gegn ÍA á Akranesi þann 20. janúar. Bragi er fjórði stigahæsti leikmaður Hauka það sem af er keppnistímabilinu, hefur skorað 12 stig að meðaltali í leik, og verður því Valsmönnum án efa mikill styrkur í baráttu þeirra fyrir sæti sínu í deildinni. -VS Deildakeppnin 1 badminton: Fyrsti leikurinn fer fram í kvöld - keppt eftir nýju fyrirkomulagi Keppni í 1. deildinni í badminton hefst í kvöld en hún verður með breyttu sniði í vetur. Til þessa hefur hún verið leikin á einni helgi en nú verður leikin tvöfold umferð, hðin leika einu sinni hvert við annað á tímabilinu frá 4. janúar til 30. mars, og síðan mætast þau öll aftur í Laug- ardalshölhnni 22.-24. apríl. Leikirnir í fyrri umferðinni fara alhr fram í húsum TBR, enda á TBR fimm af sex liðum 1. deildar, en sjötta hðið er Víkingur. í kvöld klukkan 21.20 mætast TBR-A og TBR-D en síð- an verða tveir leikir á fimmtudags- kvöldið. -VS Itölsku systkinin Alessandro og Roberta Serra, sem keppa í alpagreinum skíöaiþrótta, hafa ákveöið að bera merki Barnahjálpar Sameinuðu þjóð- anna í stað auglýsingar á keppnishjálmi sínum. Með þessu afsala þau sér um 200 þúsund króna tekjura hvort á árinu. sem þau viöruðu hugmyndina, og henni var mjög vel tekiö. Roberta er í A-Iandshði kvenna í svigi og Alessandro í B-landsliðí karla í alpagreinum. Tyson að losna? Það kann að styttast í það að hnefa- leikakappinn Mike Tyson losni úr fangelsi en hann var sem kunnugt er settur bak við lás og slá eftir að hafa verið dæmdur fyrir að nauðga bandarískri fegurðardrottningu á hótelherbergi í Indiana árið 1991. KR-ingar sigruðu tvöfalt á Reykjavíkurmótinu í meistaraflokki því bæði karla- og kvennalið félagsins báru sigur Tyson á að losna úr prísundinni úr býtum. KR vann Val í úrslitum í kvennaflokki og í karlaflokki sigruðu KR-ingar Fram í úrslitaleik á sunnudags- árið 1997 en nú hefur áfrýjunardóm- kvöldið, 6-3. Á myndinni eru Reykjavíkurmeistarar karla 1994. DV-mynd Hson stóh í Indiana heimhað að mál hans KR-ingar tvöfaldir meistarar verði tekið upp og telst það vera nokkur sigur fyrir Tyson í máhnu. Tyson hefur bent á það, máh sínu th stuðnings, að saksóknarinn í máh hans á sínum tíma hafi þekkt um- rædda feguröardrottningu. Tyson hefur áður reynt aö fá mál sitt tekið fyrir að nýju en var neitað rnn þaö í ágúst á síðasta ári. -SK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.