Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1994, Síða 10
10
FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 1994
Utlönd
Bandaríska iyrírtækið Gossard hælir sér af þvi að framleiða undirföt
fyrir stjörnur á borð við Sharon Stone, Gennu Davis og Naomi Camp-
bell. Framleiðslan var sýnd á Ritz í New York f gær. Símamynd Reuter
Lorena Bobbitt heldur áfram aö lýsa kynffi þeirra hjóna:
Oft nálægt því
að kyrkja mig
- sagði Lorena grátandi í réttinum en eiginmaðurinn þrætir
„Ég elskaði þennan mann en hann
fór illa með mig, sneri upp á hand-
leggina á mér og reyndi að kyrkja
mig. Þá þráði hann helst að hafa
samfarir í endaþarminn og tókst það
stundum," sagði Lorena Bobbitt
grátandi í réttarsalnum í Manassas
í Virginíu í gær.
Hlé verður á yfirheyslum í dag eft-
ir þriggja daga törn sem gengið hefur
nærri Lorenu. John Wayne, maður
hennar, þrætir og segir að frásagnir
Lorenu af samlífl þeirra séu lygi og
óhróður.
Lorena hefur þó fengið vitni sem
styður mál hennar. Það er nágranni
sem segist oft hafa orðið vitni að
hamagangi í íbúð Bobbitt-hjónanna
og að sér hafi stundum heyrst sem
þau hefðu samfarir með miklum
hávaða. Mikið hefði til dæmis gengið
á 23. júní síðasta sumar en þá skar
Lorena sýnir dómaranum hvernig
maöur hennar reyndi að kyrkja
hana. Símamynd Reuter
Lorena tippið af manni sínum eins
og frægt er orðið.
Lorena lék eftir kverkatök manns
síns á sér og sagðist eitt sinn hafa
verðið nærri köfnuð. Hún sagðist
einu sinni hafa farið á slysadeild
vegna þess að John sneri svo óþyrmi-
lega upp á handlegginn á henni að
hún taldi hann brotinn. Þá sagði hún
læknum að hún hefði dottið.
Lorena segir að maður hennar hafi
einu sinni ekið á hana en hann segir
að það séu ósannindi. Bandaríska
þjóðin getur fylgst með framburði
Lorenu í beinum sjóijvarpsútsend-
ingum og hefur annað efni í sjón-
varpi ekki vakið meiri athygli um
langan tíma.
Vörn Lorenu byggist á að hún hafi
ráðist gegn manni sínum í ofsabræði
eftir að hann nauðgaði henni drukk-
innþann23.júní. Reuter
Ódýrasti japanski bíllinn á markaðnum er
SUZUKI SWIFT
á verði frá kr. 798.ooo,
Suzuki Swift býður upp á lægri rekstrarkostnað því hann er sparneytnasti bíllinn
á markaðnum. Bensíneyðslan er frá 4,0 1 á 100 km. Hann er einnig léttur, sem
þýðir lægri þungaskatt. Síðast en ekki síst er endursöluverðið sérstaklega hátt.
Við bjóðum hagstæð lánakjör. Dæmi: Suzuki Swift GA, verð kr. 798.000. Útborgun (eða gamli bíllinn)
kr. 250.000, meðalafborgun af láni kr. 18.375 í 36 mánuði.
Handhafar bifreiðastyrks
Tryggingastofnunar ríkisins!
ViÓ sjáum um pappírsvinnuna fyrir ykkur og gerum úthlutunina
aÖ peningum STRAjC-
$ SUZUKI
SUZUKI BÍLAR HF
SKEIFUNNI 17 SÍMI 68 51 00
SUZUKI SWIFT - ódýr, sparneytinn og
aldrei betri
Margrét Þórhildur og nýi grafhund-
urinn.
Þórhildur
situr uppi með
frekjuhund
Danir hafa af því áhyggjur að nýi
hundurinn hennar Margrétar Þór-
hildar drottningar er frekjuhundur
og fer að sögn ekki vel með húsmuni
í Amalíuborg. Hinrik prins gaf henni
rakkann í jólagjöf í sárabætur fyrir
margfrægan grafhund sem strauk
frá honum á skógargöngu í haust.
Nýi hundurinn er af sama kyni en
afbrigðið er annað. Sá nýi er snögg-
hærður en hinn var loðinn og lubba-
legur. Hundasérfræöingar í Dan-
mörku telja valið miður vel heppnað
og segja að hundar þessir, sem eru
mjög hrygglangir, bili oft í baki. Fáir
velji nú orðið svona langhunda sem
gæludýr. Margrét Þórhildur er hins
vegar alsæl með nýja hundinn.