Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1994, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1994, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 1994 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELiAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaöaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00 FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN N0MER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og piötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1400 kr. m/vsk. Verð I lausasölu virka daga 140 kr. m/vsk. - Helgarblað 180 kr. m/vsk. Sumarfreisting Hugsanlegt er, aö á síðari hluta þessa árs muni hefj- ast hin margumtalaða kreppa, sem íslendingar voru að búa sig undir allt árið í fyrra, en kom ekki. Viðbúnaður þjóðarinnar mun koma að gagni, þegar þar að kemur, enda þarf þá að taka óvenjulega erfiðar ákvarðanir. Sjávarafli jókst í fyrra og verðmæti aflans hélzt nokk- um veginn óbreytt. Minnkunin kemur fyrst fram, þegar nokkuð er hðið á þetta ár. Ef sjómannaverkfalhð leysist og veiðar heijast að nýju, munu aflabrögð verða sæmileg fram efdr vetri, meðan kvótinn er ekki enn búinn. Þegar kvótinn fyllist, munu stjómvöld lenda í þung- bærum þrýstingi af hálfu sjávarútvegs og sjávarsíðu. Heimtað verður, að vikið verði frá áður settum aflatak- mörkunum og leyft verði að fara töluvert fram úr því, sem Hafrannsóknastofnun hefur tahð vera hættumörk. Krafan verður studd rökum um, að mikil veiði spilh klaki og nýhðun fiskistofna htt eða ekki. Þau rök hafa lengi verið uppi á borði, en ekki haft hljómgrunn margra annarra en sumra þeirra, sem hafa hagsmuna að gæta. Fræðimenn í fiskifræði era sárafáir á þeirri línu. Reynsla þjóða heims hefur áratugum saman verið sú, að ofveiði leiði til hrans fiskistofna. Sú kenning, að ein- hverjar aðrar aðstæður séu hér við land um þessar mundir, er ákaflega ótrúleg og raunar stórhættuleg, af því að hún felur í sér, að ekki verði aftur snúið. Hjáfræðinni um sambandsleysi sóknar og nýliðunar mun aukast fylgi af tveimur hhðarástæðum. Annars vegar munu fréttir af góðum afla á afmörkuðum sviðum kynda undir tilfinningu fyrir því, að meiri fiskur sé í sjónum en Hafrannsóknastofnunin vilji vera láta. Hins vegar munu vaxandi óvinsældir kvótakerfisins leiða til þess, að erfiðara verður að verja það. Eðlilegur arftaki kvótakerfisins er auðlindaskattur, en hann má ekki nefna í viðurvist hagsmunaaðila í sjávarútvegi. í þess stað verður heimtað leyfi til meiri sóknar. í vor verður i mesta lagi eitt ár til næstu alþingiskosn- inga. Freistandi verður fyrir stjómvöld að reyna að friða sjávarútveginn og sjávarsíðuna með eftirgjöfum í kvótan- um og fresta því um leið, að yfir ríði hin margumtalaða kreppa, sem þjóðin hefur verið að búa sig undir. Með frestun kreppunnar er hægt að breyta fremur htilh kreppu fyrir kosningar í afar mikla kreppu eftir kosningar. Sú leið getur hentað stjómvöldum, ef kjósend- ur sjá almennt ekki gegnum hana. Verður það þá ekki í fyrsta skipti, sem menn faha fyrir freistingu. Með kenningunni um minni og meiri kreppu fyrir og eftir kosningar er auðvitað gert ráð fyrir, að ofveiði á síðari hluta þessa árs og fyrri hluta næsta árs muni skaða fiskistofnana til langs tíma, enda er það í samræmi við þann meginstraum fiskifræðinnar, sem viðurkenndur er. Hingað til hefur kreppan fyrst og fremst verið í hugum fólks og forráðafólks fyrirtækja. Fólk hefur dregið úr væntingum sínum. Fyrirtæki hafa fækkað starfshði. Ein- dregnast hefur þetta komið í ljós í stórminnkuðum vöra- innflutningi og góðum jöfnuði í viðskiptum við útlönd. Viðbúnaðurinn gegn kreppunni er því kominn í frem- ur gott horf. Engin vandræði era fyrirsjáanleg í vetur, enda er líklegt, að senn linni verkfalh á fiskiskipaflotan- um. Þess vegna era til sæmilegar forsendur fyrir því, að stjómvöld standist þrýsting og freistingu sumarsins. Þetta mun þó standa svo tæpt, að ósigur í borgarstjóm- arkosningum gæti hæglega tekið Sjálfstæðisflokkinn á taugum og látið hann faha fyrir freistingunm. Jónas Krisljánsson „Hagræðingu í rekstri krókaveiöibáta má ná með sömu aðferðum og öll önnur ftskiskip hafa frelsi til i afla- markskerfinu." - Frá höfninni í Grindavík. Sjálfsákvörð- unarréttur í aflamarkskerfi hafa útgerðar- menn fullt valfrelsi um hvemig og hvenær innan fiskveiöiársins þeir nýta veiðiheimildir. Þeir mega flytja milli tegunda og skiptast á veiðiheimildum, selja þær til skamms tíma (leigja) gegn greiðslu eða afla (tonn móti tonni), ellegar selja endanlega - og eins mega þeir taka á leigu eða kaupa. Þeir mega m.a.s. geyma til næsta árs. Með frelsi til að eiga viðskipti með veiðiheimildir er útgerðar- mönnum gert fært að hagræða. Safna veiðiheimildum saman á skip svo veiðamar verði hagkvæm- ari, selja veiöiheimildir af skipi sem er orðiö úrelt eða hentar til annarra veiöa en þeirra sem lög um fiskveiðistjóm taka til. Frjáls framsalsréttur, þ.e. frelsi til að versla með veiðiheimildir, er sagt vera grundvallaratriði lag- anna um fiskveiðistjórn. Með lög- unum er mikilvægasta atvinnuvegi þjóðarbúsins gert að lúta heildar- stjóm um aðgang aö sameiginlegri auðlind en með frjálsum framsals- rétti er sjálfsákvörðunarréttur fyr- irtækja virtur innan þess ramma sem lögin setja. í krafti sjálfsá- kvörðunarréttar, með eigin ákvörðunum útgerðarmanna í leit að aukinni hagkvæmni í rekstri fyrirtækja sinna, muni lögin leiöa til hagræðingar í sjávarútvegi. Réttur krókaveiðimanna í banndagakerfinu, sem í frum- varpinu er ætlað krókaveiðibátum, er ekkert valfrelsi. Ekki um hvem- ig eða hvenær veiðiheimildir verði nýttar, ekki til að eiga viðskipti með þær né til að geyma. Útgerðar- menn krókabáta mega ekki hag- ræða, heldur ákveður ráðherra upp á dag hvenær þeir mega róa og hvenær ekki. Þeim verður mein- að að njóta grundvallarréttar í at- vinnustarfsemi - réttarins til aö leita að aukinni hagkvæmni í rekstri. KjaUaiinn Árni Ragnar Árnason alþingismaður Sjálfstæðis- flokksins fyrir Reykjanes- kjördæmi Úr þessu verður Alþingi að bæta við umfjöllun um frumvarpið. Annars verður smábátaútgerð lögð í rúst og gjöreyðilögð afkoma allra þeirra fjölskyldna sem af henni hafa lifibrauð. Eyðilagður verður mikilvægur þáttur í hráefnismiöl- un fiskmarkaða og hráefnisöílun fiskvinnslufyrirtækja, einkum þeirra sem byggjast fyrst og fremst á ferskleika og miklum gæðum hráefnis og afurða. Þau hafa fengið best verð fyrir íslenskar sjávaraf- urðir - og keypt fisk við fijálsu markaðsverði. Fiskmarkaðir verða kæfðir og frjáls verömyndun á botnfiskafla þar með að engu gerð. Framseljanlegur sóknarkvóti Hagræðingu í rekstri krókaveiði- báta má ná með sömu aöferðum og öll önnur fiskiskip hafa frelsi til í aflamarkskerfinu. Með samfelldri sókn sem er betri nýting sóknar- heimilda en sú dreifmg sem frum- varpið segir til um. Þaö er unnt með frjálsum framsalsrétti - frelsi til að eiga viðskipti með sóknar- heimildir eins og nú er með afla- heimildir. Einungis þannig getur stjómkerfi krókaveiða leitt til auk- inna tekjumöguleika krókabát- anna sem geta þá stundað einhverj- ar veiðar utan kvóta án þess að glata réttindum innan kerfisins. Réttmætt er að þeir sem í raun hafa stundað önnur störf en haft krókaveiðar sem hlutastarf, jafn- vel tómstundastarf, fái ekki fullan sóknarrétt. Sanngjamt væri að veita hverjum krókaveiöibát sókn- arkvóta í samræmi við meðaltal sóknarreynslu t.d. undanfarin þijú ár eða tvö bestu af þremur síð- ifStu. Verði þeim hins vegar bannaðar veiðar á tilteknum tímabilum, svo sem desember-janúar, umfram alla aðra í sjávarútvegi þá er ekki nema sanngjamt að þá njóti at- vinnuleysisbóta allir sem starfa við útgerð þeirra. Hvort sem þeir heita hásetar eða útgerðarmenn - enginn þeirra hefur að neinu öðra að hverfa. Árni Ragnar Árnason „Útgerðarmenn krókabáta mega ekki hagræða, heldur ákveður ráðherra upp á dag hvenær þeir mega róa og hvenær ekki. Þeim verður meinað að njóta grundvallarréttar 1 atvinnustarf- semi... “ Skoðanir aimarra Lífrænt land í markaðssókn? „Dæmi úr fréttum um nýja markaössókn og nýj- ar hugmyndir í íslenskri búvöruframleiðslu með aukinni samkeppni: Markaðssetning íslenskra mat- væla á mörkuðum lífrænna og vistvænna matvara um heim allan... Skyldu þessar hugmyndir hafa fæðst ef EES-samningurinn hefði verið felldur og landbúnaðarkerfiö haldið áfram að vera lokað, vemdað, niðurgreitt og spillt? Svari nú hver eftir bestu samvisku." Úrforystugrein Alþbl. 11. janúar. Sjómenn taki þátt í útgerðarkostnaði „Á meðan sjómenn era á aílahlut hlýtur þaö að vera rökrétt og Uggja beint við að þeir taki þátt í auknum útgerðarkostnaöi, sbr. m.a. olíuhlutdeildina sem skerti hlut sjómanna þegar olíukreppan var hér um árið. Auk þess er ekki óeðlilegt að sjómenn taki þátt í auknum útgerðarkostnaði, þeir gera það hvort eð er með því að vera á aflahlut, spumingin er að- eins hver þátttakan á að vera.“ Valbjörn Steingrímsson fyrrv. sjómaður og framkvstj. og bæjarfulltr. í Mbl. 11. jan. Gæðakerf i í ff iskaf urðum „Á tímum aflasamdráttar og lækkandi verðs fyr- ir sjávarafurðir er mikilvægt að allir sem starfa við sjávarútveg standi saman um að tryggja gæði afurð- anna þannig að þær uppfylli ýtrustu kröfur kaup- enda og neytenda hveiju sinni... En það er til lítils að framleiöa góöa vöru ef enginn vill kaupa hana. Þess vegna ber okkur að taka jafnan fullt tillit til óska kaupenda hvort heldur þær óskir snúast um gæði hráefnisins, gerð afurðarinnar eða hvemig að framleiðslunni er staðið." Stefán Friðriksson í leiöara Sjávarmála, fréttabréfs Fiskistofu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.