Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1994, Qupperneq 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1994
Fréttir
18 ára piltur sem var ofurölvi á ferö í Önundarfirði síðastliðið sumar:
Dæmdur fyrir að kveikja
í tveimur sumarbústöðum
Héraðsdómur Vestfjarða dæmdi í
gær 18 ára pilt í 6 mánaða skilorðs-
bundið fangelsi fyrir að hafa lagt eld
aö tveimur nýstandsettum sumarbú-
stöðum í Önundarfirði aðfaranótt 26.
júní á síðasta ári. Pilturinn var
dæmdur fyrir að hafa lagt eld að
öðrum bústaðnum með ásetningi en
af gáleysi í hinu tilfelhnu. Skaðabóta-
kröfum upp á samtals á áttundu
milljón króna var vísað frá dómi þar
sem þær þóttu allt of háar og órök-
studdar auk þess sem miö var tekið
af ungum aldri og efnahag piltsins.
Árla morguns umræddan dag urðu
Höfðum
ekki und-
anað
þrífa
klósettin
- engin salemi á Ingólfstorgi
„Fólk kom hlaupandi hingað í
spreng og á síðasta snúning,"
sagði Örn Amarson, veitinga-
maður á Kabarett, eftir útifund-
inn á Ingólfstorgi 1. maí í samtali
við DV. „Maður getur varla vísaö
fólki í neyð frá en þetta er bara
aukavinna fyrir okkur því að fólk
kom hingaö í hundraöatali og það
var verið aö skipta um bleiur og
allt mögulegt.“
Öm spurðist fyrir um þessi mál
á fundi með fulltrúum borgarráðs
í júní síðastliönum og hefur ekki
enn fengiö nein skýr svör hvað
þetta varöar. „Það er út í hött að
arkitekt mannvirkis af þessari
stærð skuli ekki gera ráð fyrir
mannlegum þáttum. Næsta al-
menningssalemi er við Banka-
stræti. Hvert húsasund í næsta
nágrenni Ingótfstorgs er illa þeíj-
andi því aö fólk hefur ekki annaö
aö leitasagði Öm að lokum og
vonar að borgaryfirvöld geri eitt-
hvað í málinu því að 17. júni
bankar upp á innan skamms með
(jölmennum skemmtunum á Ing-
ólfstorgi.
- skaðabótakröfum
upp á rúmar 7 mllljómr vísað frá dómi
menn varir við að eldur logaði í sum-
arhúsunum að Görðum og Kaldeyri
við Önundarfjörð. Slökkvilið frá
Flateyri og ísafirði fóru á staðinn.
Húsin voru bæði alelda og ekki tókst
að bjarga neinum verðmætum. Um
klukkan sjö um morguninn ók lög-
reglumaður fram á piltinn í um 3,5
kílómetra fjarlægð frá Kaldeyri.
Hann var áberandi ölvaður, skólaus,
blóðugur, blautur og með sviðið hár.
Síðar sama dag viðurkenndi piltur-
inn hjá lögreglu að hafa komið að
Görðum, farið þar inn í reykkofa og
kveikt 1 spreki í plastfotu. Þaöan
hefði hann gengið að sumarhúsinu,
brotið rúðu og skriðið inn en síöan
lagt eld að gluggatjöldum og sófa í
einu herbergjanna. Gólfið var hulið
reyk er hann yfirgaf húsið. Pilturinn
skýrði jafnframt frá því að hann
hefði komið að Kaldeyri. Þar hefði
hann sest við borð þar sem hann
hafði kveikt á olíulampa. Þama
kvaðst hann hafa rekið olnbogann í
lampann þannig að hann féll í gólfið
og eldur gaus upp. Pilturinn sagðist
ekki hafa tahö sig hafa ráðið við eld-
inn og ákveðið að koma sér á brott.
Pilturinn kvaðst fyrst og fremst
hafa verið að leita skjóls í húsunum.
Hann hafði orðið viðskila við félaga
sína á dansleik á Flateyri fyrr um
kvöldið. Hann sagði þaö ekki hafa
verið ásetning sinn að kveikja í hús-
unum tveimur heldur hefði hann
verið að leita þar skjóls. Hins vegar
hefði hann gaman af að fikta með
eld, sérstaklega þegar hann væri
undir áhrifum áfengis. í vottorði frá
Unglingaheimili ríkisins kemur fram
að pilturinn hafi veriö lagður í ein-
elti í skóla og ætti við að stríða ýmis
persónuleg vandamál.
Dómurinn taldi sannað aö piltur-
Það þykir boða komu vorsins þegar malbikunarmenn fara að huga að götum borgarinnar. Þessir tveir voru
vinnu sína á Snorrabraut.
Bónus á Akureyri hættir ekki á næstunni:
Ferðamennirnir munu
leita okkur uppi í sumar
- segir Jóhannes Jónssón sem er óhress með móttökur Akureyringa
„Ef ég tel að okkar fjármunum og
orku sé betur varið annars staðar
-þá munum við flytja okkur með
hvort tveggja. Að sinni Uggur þó ekki
nein ákvöðun fyrir í þessu máli,“
segir Jóhannes Jónsson, eigandi
Bónuss, en miklar sögusagnir eru
um að hann hyggist flytja verslun
sína frá Akureyri.
Ljóst er að í hinni „blóðugu" sam-
keppni við NETTÓ-verslun KEA hef-
ur KEA sigrað, þ.e. þar er mun meiri
verslun þótt Bónus státi af betri út-
komu í verðkönnunum. „Viö erum
ekkert kaupfélag sem getur haldið
áfram þótt ekki komi tekjur eins og
sjá má víða um land. Þetta hefur
ekki verið neitt spennandi á Akur-
eyri, okkur hefur ekki verið tekið þar
eins og við eigum skihð og ef svo er
þá er engin ástæða til að halda áfram.
Við erum þó ekki búnir að taka
neina ákvörðun í þessu máli. Nú fer
sumarið í hönd og mikið af ferða-
mönnum kemur til Akureyrar. Þeir
munu versla við okkur enda eigum
við tugþúsundir viðskiptavina hér á
höfuðborgarsvæðinu sem munu leita
okkur uppi fyrir norðan. Það er því
ekkert að skella á aö við séum aö
hætta á Akureyri,“ segir Jóhannes.
Margir óttast það að leggi Bónus
niöur starfsemi á Akureyri muni
verðlag í KEA-NETTÓ hækka strax
í kjölfarið en vöruverð þar lækkaði
um 11,5% að jafnaði eftir að Bónus
opnaði. Vilhjálmur Ingi Ámason,
formaður Neytendasamtaka Akur-
eyrar og nágrennis, segist óttast það
mjög að þessi verðlækkun gangi til
baka loki Bónus verslun sinni fyrir
norðan.
inn heföi lagt eld að sumarhúsinu
að Görðum með ásetningi en hann
heföi með aðgæsluleysi orðið þess
valdandi að húsið að Kaldeyri varð
eldi að bráð ásamt öllu innbúi. Brot
ákærða þóttu stórfelld og ollu veru-
legu fjóni. Á hinn bóginn var litið til
ungs aldurs og að ósannað væri að
hann heföi farið inn í húsin í þeim
tilgangi að valda eldsvoða. Refsingin
þykir hæfileg 6 mánaöa fangelsi og
ber að skilorðsbinda hana í 3 ár.
Stuttar fréttir
Birgir Isleifur
formaöur bankastjórnar
Birgir ísleifur Gunnarsson
verður formaður bankastjómar
Seðlabankans. Þetta var ákveöið
á fundi bankasfjóranna í gær.
H val veiðar verði hafnar
Þingnefnd, sem sjávarútvegs-
ráöherra skipaði, hefur komist
að þeirri niðurstöðu að eðlilegt
sé aö hefja hvalveiðar á ný.
Nefndin leggst gegn því að ísland
leiti að svo komnu máli eftir inn-
göngu i Alþjóða hvalveiðiráðiö.
Fyrirtekmhagnast
í spám um gengi fyrirtækja á
hlutabréfamarkaði í ár er gert
ráð fyrir 2,5 milljarða króna
hagnaði. Sjónvarpið greindi frá
þessu.
Likkistunaglar f yrir böm
Svokallaðar tyggjó-sígarettur
eru seldar bömum í verslunum
Hagkaups. Morgunblaðið hefur
efdr inhkaupastjóra fyrirtækis-
ins aö um sé að ræða mistök og
aö varan verði strax tekin úr
sölu.
Hjálpartið til útfanda
Rauða krossi íslands hefur bor-
ist beiðni um að senda 13 menn
til hjálparstarfa í Tansaníu og
Bangladess.
Reyklaus bwgarstjóri
Ámi Sigfusson borgarstjóri
hefur ákveðið að bjóða gestum
borgarinnar ekki upp á tóbak.
Morgimblaðið skýrði frá þessu.
Fleiríferðamenn
Fyrstu fjóra mánuði ársins hef-
ur erlendum ferðamönnum hér á
landi fjölgað um 21%. Á nýliðn-
um vetri fjölgaði ferðamönnum
um 10 þúsund miðað við veturinn
á undan.
Tíðvélsleðaslys
Það sem af er árinu hafa jafn
margir látist í vélsleöaslysum og
í allri annarri umferð hér á landi.
Þyrla Landhelgisgæslunnar hef-
ur fariö 11 sinnum í sjúkraflug
vegna þessa, að sögn Stöðvar tvö.
Misræmiígjaldtöku
Umboösmaöur Alþingis telur
aö endurskoða verði gjaldtöku
vegna lögreglukostnaðar af
skemmtunum. Að sögn Morgun-
glaðsins er misræmi í gjaldtöku
milli lögsagnarumdæma enda
tryggi lagaframkvæmd ekki sam-
ræmingu.