Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1994, Side 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1994
Utlönd
Nelson Mandela skorar á samlanda sína:
Brettum upp ermar
og förum að vinna
Nelson Mandela tekur sporið ettir að de Klerk forseti lýsti Afríska þjóðarráðið sigurvegara kosninganna i Suður-
Afríku. Símamynd Reuter
Tugþúsundir blökkumanna brettu
upp ermarnar og streymdu til vinnu
í morgvrn eftir næturlangan gleöskap
til að fagna sigri Nelsons Mandela
og Afríska þjóðarráðsins í fyrstu
kosningum allra kynþátta í Suður-
Afríku.
F.W. de Klerk, síðasti hvíti forseti
landsins, batt enda á 46 ára kynþátta-
aðskilnaöarstefnu Þjóðarflokks síns
þegar hann lýsti yfir sigri Mandela í
hjartnæmri ræðu í gærkvöldi.
„Loksins erum við frjáls," hrópaði
Mandela og það var eins og við
manninn mælt, tapparnir flugu úr
kampavínsflöskunum í fínu boðun-
um og kveikt var í bálköstum í íbúö-
arhverfum blökkumanna.
Búið er að telja um helming at-
kvæða í kosningunum sem fóru fram
í síðustu viku og var Afríska þjóðar-
ráðið búið að fá 62,5 prósent atkvæða
en Þjóðarflokkurinn 23,1 prósent.
Inkathahreyflng Zúlúmanna var í
þriðja sæti með 7,1 prósent og Frels-
isfylking íhaldssamra hvítra manna
var í fjórða sæti með 2,9 prósent.
Flokkar þurfa að fá fimm prósent
greiddra atkvæða til að tryggja sér
setu í þjóðareiningarstjórn landsins
sem fer með völd næstu flmm árin.
„Það er kominn tími til að græöa
Vegna breytinga á lögum
gömul sár, tími til að byggja upp
nýja Suður-Afríku. Viö brettum upp
ermarnar til að glíma við vandann
sem blasir við landi okkar,“ sagði
Mandela og tók létt dansspor þrátt
fyrir aö læknir hans heföi skipað
honum að hvíla sig og ná úr sér kvef-
pest.
Reuter
Mikill fjöldi barna er meðal þeirra
250 þúsund flóttamanna sem flúið
hafa til Tansaniu. Símamynd Reuter
Rúanda:
Bandaríkin
reyna að
koma á friði
Bandaríkin hafa sent tvo sendifull-
trúa til Rúanda til að reyna að koma
á viöræðum á milli uppreisnar-
manna og stjórnarinnar sem bundið
gætu enda á það blóðuga stríð sem
geisað hefur í landinu sl. ijórar vikur.
Bandaríkin hafa einnig gefið loforð
um að leggja einn milljarð til neyðar-
aðstoöar sem Sameinuðu þjóðirnar
standa að til aðstoðar flóttafólki frá
Rúanda. Fjöldi flóttamannanna er
gífurlegur og um 250 þúsund þeirra
eru t.d. sagðir hafa komið til Norð-
vestur-Tansaníu.
Sérstakt hjálparlið Bandaríkjanna
í Tansaníu hefur einnig verið sent til
landamæra Rúanda og Tansaníu þar
sem það mun meta aðstæður og
koma með tillögur að lausnum að
vandanum. Reuter
Stuttarfréttir dv
Buthetezi varar við
Mangosuthu Buthelezi, leiðtogi
Zúlúmanna, sagði hættulegt ef Af-
ríska þjóðarráðið fengi of mikil völd.
DeKlerkvillveramed
F.W. de Klerk, fráfarandi for-
seti Suður-Afríku, vill vera með
i þjóöareiningarstjórninni.
CHntonogKínverjinn
Clinton
Bandaríkjafor-
seti hitti að-
stoðarforsætis-
ráðherra Kina í
gær og sagði
honum að kín-
versk stjórn-
völd yrðu að
bæta mannréttindamálin ef þau
vildu nánari tengsl.
ReyntíBosníu
SÞ reyna að koma í veg fyrir
að norðurhluti Bosníu verði
næsta átakasvæði.
Fluttirábrott
Nærri 100 starfsmenn voru
fluttir af oliuborpalli í Norðursjó
eftir gassprengingar.
Sumatra skelfur
Jai’ðskjálfti, sem mældist 5,6 á
Richter, skók Vestur-Súmötru í
Indónesiu í morgun.
Bræðravig i Liberíu
Innbyrðis mannvíg eru í
ULIMO hreyfingunni í Líberíu.
Blaðamenn drepnir
Að minnsta kosti 63 blaðamenn
voru vegnir við skyldustörf i
fyrra og 124 voru handteknir fyr-
ir að tjá skoðanir sínar.
Saddamskemmir
Saddam
Hussein, for-
seti íraks, hef-
ur verið sakaö-
ur um að ætla
sér að eyöi-
leggja fenja-
svæðinísuður-
hluta landsins
og
valda þar með óbætanlegum
skaða.
Stefnuskrá klár
Þýski jafnaðarmannaflokkur-
iim er klár með stefnuskrána fyr-
ir kosningarnar í haust og ætlar
m.a. að hækka skatta.
Sviímyrturánórída
43 ára gamall Svíi fannst myrt-
ur á Flórída.
Ekkifleiri sendir
Ákveðið hefur verið að senda
ekki fleiri norræna friöargæslu-
liöa til Bosníu.
Leggjatilfé
Bandaríkin og nokkur Evrópu-
lönd ætla að leggja til fé sem not-
að verður til að koma á sjálfs-
stjóm PLO manna á hernumdu
svæðunum.
Hindranirúrvegi
ísrael og PLO
hafa hrundiö
úr vegi öllum
hindrunum til
að koma á
sjálfsstjóm
Palestínu-
manna á her-
numdu svæð-
unum.
Fjöldi sendifulltrúa verður við-
staddur þegar Arafat og Rabin
undirrita friðarsamningana í Ka-
író á morgun.
SOdrepnir
Öryggissveitir í Alsír eru sagð-
ar hafa drepið 30 múslimska ofsa-
trúarmenn sl. tvo daga.
Svariðdregst
ísraelar ætla ekki að svara frið-
artillögum Sýrlendinga fyrr en
eftirumtværvikur. Reutcr.rr
Skil á vörugjaldi
um vörugjald, sem tóku gildi 1. janúar 1994, og þar sem ný
reglugerð tók gildi 1. maísl., vill ríkisskattstjóri minna á skil vörugjalds. Reglurum gjaldstofn
vörugjalds eru óbreyttar, en minnt er á að gjaldstofn af innlendri framleiðslu er heildsöluverð
vara sem eru framleiddar, unnið að eða pakkað hér á landi.
Gjalddagi vörugjalds er nú fimmti dagur þriðja mánaðar eftir lok uppgjörstímabils vegna
sölu eða afhendingar á því tímabili. Gjalddagi vörugjalds fyrir tímabilið janúar-febrúar 1994
er því 5. maí. Vörugjald telst greitt á tilskildum tíma hafi greiðsla sannanlega verið póstlögð
á gjalddaga.
Álag skal nú vera 2% af þeirri upphæð sem vangreidd er, fyrir hvern byrjaðan dag eftir
gjalddaga, þó ekki hærra en 20%. Sé vörugjald ekki greitt innan mánaðar frá gjalddaga
reiknast dráttarvextir af því sem gjaldfallið er.
Gjaldflokkum vörugjalds er fjölgað í sjö. Jafnframt flytjast vörur á milli gjaldflokka auk
þess sem nýjar vörur bætast við og aðrar falla út. í gjaldflokki A (6% vörugjald) er m.a.
kaffi, te, nasl og ísblöndur. í gjaldflokki B (11 % vörugjald) eru m.a. ýmsar byggingavörur og
snyrtivörur. í gjaldflokki C (16% vörugjald) eru m.a. ýmsar plastvörur, rafmagnsvörur og
vörur til vélknúinna ökutækja. í gjaldflokki D (18% vörugjald) er m.a. sælgæti og hráefni til
sælgætisiðnaðar, sætakex og ávaxtasafi ásamt öðrum drykkjarvörum. í gjaldflokki E (20%
vörugjald) eru m.a. ýmis heimilistæki og smávarningur. í gjaldflokki F (25% vörugjáld) eru
vopn o.þ.u.l. igjaldflokki G (30% vörugjald) erm.a. sykur, sjónvarpstæki og hljómflutningstæki.
Útgáfa sölureikninga og uppgjör vörugjalds. Meginreglan er sú að aðilar í
vörugjaldsskyldum rekstri skulu færa á sölureikninga og aðgreina á þeim gjaldskylda sölu
eftir gjaldflokkum, þannig að heildarverð vöru ásamt fjárhæð vörugjalds komi sérstaklega
fram vegna hvers gjaldflokks. Tilteknum aðilum er þó heimilt að tilgreina á sölureikningi að
vara sé með vörugjaldi. Við skil á vörugjaldi í ríkissjóö er gjaldanda heimilt að draga frá
innheimtu gjaldi af sölu það vörugjald sem hann hefur sannanlega greitt við kaup á hráefni
og efnivöru til gjaldskyldrar framleiðslu á viðkomandi uppgjörstímabili. Sé vörugjald af
aðföngum hærra á uppgjörstímabili en innheimt vörugjald af sölu skal mismunurinn greiddur
úr ríkissjóði.
Nánari upplýsingar um vörugjald veita skattstjórar og virðisaukaskattsskrifstofa
ríkisskattstjóra.
RSK .
RÍKISSKATTSTJÓRI