Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1994, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1994, Síða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1994 Aðalfundur Þjónustumiðstöðvar bókasafna verður haldinn á Laugavegi 163, Reykjavík, mánu- dagirin 16. maí 1994 kl. 16.00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur mál. Stjórnin Rýmingarsala Rýmum fyrir nýjum vörum afsláttur af fatnaði, skóm og snyrtivörum Opið mánud.-föstud. frá 12.00-18.00 ,ÖST^ < l<l POSTVAL o- * O Be,V Skútuvogi 1 sími: 68 44 22 Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar Síðumúla 39 - 108 Reykjavík - Sími 678500. Sýningar og vorhátíð í félags- miðstöðvum aldraðra á vegum Reykjavíkurborgar Félags- og tómstundastarf 25 ára ( auglýsingum í síðustu viku misrituðust sýningardagar í Bólstaðarhlíð 43. Sýningin verður í lok maí, dagana 28., 29. og 30. maí, frá kl. 14.00-17.00. Allir velkomnir. Geymið auglýsinguna. Öldrunarþjónustudeild Félagsmálastofnunar Reykjavikurborgar Skólastjóri Brunamálaskóla Stjórn Brunamálastofnunar ríkisins auglýsir eftir skólastjóra Brunamálaskólans sem í ráði er að setja á stofn samkvæmt reglugerð um menntun, réttindi og skyldur slökkviliðs- manna sem gefin var út af félagsmálaráðherra 14. apríl 1994. Leitað er að einstaklingi sem hefur: • víðtæka menntun á sviði brunamála, helst verkfræð- ingi/tæknifræðingi með sérnám í brunafræðum, • þekkingu og starfsreynslu á sviði brunamála, • reynslu af kennslu og þjálfun slökkviliðsmanna, • skipulagshæfileika, • reynslu og þekkingu í mannlegum samskiptum. Samkvæmt reglugerð skal skólanefnd leita eftir því við sveitarfélög að þeir sem ráðnir eru til skólans fái launa- laust leyfi í allt að 4 árum í senn á grundvelli sérstaks sam- komulags ef við á. Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfsmanna. Umsóknum skal skilað til stjórnar Brunamálastofnunar fyr- ir 24. maí nk. Stjórn Brunamálastofnunar ríkisins Laugavegi 59, 101 Reykjavík, sími 25350 Utlönd Fárviðri gekk yfir Bangladess í gær: Yfir hundrað manns létust - tala látinna á eftir að hækka, að sögn yfirvalda Meira en hundraö manns létust í fárviðri sem gekk yfir suðaustur- hluta Bangladess í gærkvöldi og búist er við að tala látinna eigi eftir að hækka enn meir. Miklar rigningar fylgdu fárviðrinu og vindhraðinn mældist 200 km/klst. Meirihluti þeirra sem létust og slösuöust var flóttamenn frá Burma sem bjuggu í flóttamannabúðum nærri Cox Bazar og Teknaf en þær eru báðar staðsettar nærri sjónum. „Við vorum að fá nýjustu tölur um mannslát og talan á án efa eftir aö fara yfir hundrað," sagði embættis- maður sem var á staönum. Fárviðrið byijaði aö heria á strand- lengjuna og eyjamar við Bengalflóa í gærmorgun og yfirvöld gerðu við- eigandi ráðstafanir áður en fárviðriö gekk yfir Bangladess. Um 350 þúsund manns voru flutt á brott frá heimil- um sínum og á öruggari stað og þús- undir annarra fluttu á eigin spýtur. Saint Martin og Kutubdia eyjamar á Bengalflóa vom þeir staðir sem verst urðu úti í fárviðrinu. Þá er tal- iö að um 90% híbýla í Teknaf hafi skemmst eða gereyðilagst. Versta fárviðrið sem gengið hefur yfir Bangladess var árið 1991 en þá létust 138 þúsund manns sem vora nærri strandlengjunni og íbúar þeirra þúsunda eyja sem era á Beng- alflóa. Hjálparmenn og hjúkrunarfólk hefur verið önnum kafið síöan fár- viðrið gekk yfir og vitni segja ástand- ið mjög slæmt og eyðileggingamar gífurlegar. Her Banglasdess sendi skip hlaðið hjálpargögnum til Saint Martin eyjarixmar og hjálpargögn hafa einnig verið send til þeirra staða sem verst urðu úti. Reuter íslenska feguröardrottningin Svala Björk Arnardóttir sést hér á meöal nokkurra keppenda sem taka þátt í al- heimsfegurðarkeppninni í ár. Stúlkurnar eru staddar á Davao ströndinni á Filippseyjum. Símamynd Reuter Endurminningar Jeltsíns Rússlandsforseta: Segist vera kvalinn og einmana maður Endurminningar Borísar Jeltsíns Rússlandsforseta, sem nýlega komu út, hefur vakið mikla athygli en bók- in þykir sýna mann sem þjáist af þunglyndi og óöryggi og mann sem er jafnharður við undirmenn sína og sjálfan sig. Bókin, sem nefhist The View from the Kreml, er annað bindi endur- minninga Jeltsíns og hún þykir jafn opinská og fyrri bókin, sem kom út fyrir fjórum árum, en þá var nýbúið aö kjósa Jeltsín sem þingforseta. Ólíkt flestum endurminningum stjómmálamanna, sem gefa allt að því fullkomna og trausta mynd af þeim, þá viðurkennir Jeltsín veik- leika sína og segir að hann hafi ekki alltaf tekið réttu ákvarðanimar. Hann afhjúpar sjálfan sig fyrir les- endum og segist m.a. vera auðsærður og einmana. Forsetinn segist hafa þjást af þung- lyndi, svefnleysi og höfuðverkjum á nætumar og aö hann hafi grátið og oftsinnis hafi örvænting gripið hann. Þá segist hann oft á tíðum vera Boris Jeltsín lýsir veikleikum sinum I bókinni og segist m.a. ekki alltaf hata tekið réttu ákvarðanimar. Símamynd Reuter kvalinn af ráðaleysi og að hann geri stundum fljótfæmisleg mistök sem hann sjái síðan eftir. í því sambandi nefnir hann val sitt á Alexander Rútskoj sem varaforseta árið 1991. Hann segist ekki hafa vitað hveijum hann ætti að bjóða með sér í barátt- una og hafi því ákveðið að velja Rútskoj sem honum þótti glæsilegur foringi sem myndi hæfa vel í kosn- ingabaráttu sína. „Okkur Rútskoj kom einfaldlega ekki saman seinna meir,“ segir Jelts- ín. Hann viðurkennir að hann hafi gert svipuð mistök með Ruslan Kasb- úlatov, sem ásamt Rútskjov leiddi októberuppreisnina sem varð næst- um til þess að Jelstín missti embætt- ið. „Fyrrum stórveldi mun ekki líða undir lok eins og ekkert sé. Það eru fleiri hörmungar sem eiga eftir að kom yfir,“ varar Jeltsín við. Jeltsín verður fyrsti leiðtogi lands- ins sem geftir upp embætti sitt af fijálsum og fusum vilja en stjómar- tíð hans lýkur 1996. Hann segist vilja hverfa frá embætti með þvi að gefa fordæmi um venjulegt, reglubundið og siðað brotthvarf. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.