Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1994, Síða 10
10
MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 1994
Utlönd
Kapparnir úr Rolling Stones eru langt frá því að vera hættir því þeir tilkynntu nýlega að þeir ætluðu að hefja
hljómleikaför um heiminn. Fyrstu tónleikarnir verða haldnir i Washington 1. ágúst. Símamynd Reuter
Hollenska stjómin tapaði þriðjungi þingmanna sinna:
Hollendingar vilja aðra
sljóm og aðra stef nu
Samsteypustjórn Kristilegra
demókrata og Verkamannaflokksins
í Hollandi tapaöi einum þriöja sæta
sinna á þingi landsins í kosningun-
um í gær. Ekki er þó talið útilokaö
aö flokkunum takist aö fara áfram
með völdin með fulltingi þriðja
flokksins, sennilega hins vinstrisinn-
aöa D66.
Samkvæmt bráðabirgðaniðurstöð-
um fékk Verkamannaflokkurinn
flesta þingmenn, eða 37, en kristileg-
ur fengu 34 þingsæti. Flokkana vant-
ar því fimm sæti upp á hreinan
meirihluta í neðri deild þingsins þar
sem sitja 150 menn. Endanleg úrslit
verða kunn einhvem tíma í dag en
ekki var talið líklegt aö þau yrðu
önnur.
Hinn íhaldssami flokkur frjáls-
lyndra og D66 unnu mikið á. Frjáls-
lyndir fengu 31 mann kjörinn en D66
24. Þá juku öfgamenn til hægri fylgi
sitt og tveir flokkar eftirlaunaþega
fengu samtals sjö þingsæti.
„Þessi ríkisstjórn fékk ótrúlega út-
reið hjá kjósendum," sagði Frits Bol-
kenstein, leiðtogi fijálslyndra. „Hin
pólitísku skilaboö eru skýr: Hollend-
ingar vilja aöra stjóm, aðra stefnu."
í kosningunum 1989 fengu kristi-
legir 54 sæti, Verkamannaflokkurinn
49, frjálslyndir 22 og D66 12 sæti.
Ýmsar skýringar eru á lofti um
fylgishrun Kristilegra demókrata,
svo sem ótti almennings við atvinnu-
leysi, óánægja manna með pólitíska
kerfið. Þá er talið að sú ákvörðun
Ruud Lubbers forsætisráðherra um
bjóða sig ekki fram eigi þar einnig
hlut aö máli. Lubbers ætlar sér að
keppa um stöðu forseta fram-
kvæmdastjómar Evrópusambands-
ins sem Jacques Delors gegnir nú.
Reuter
Frændþjóðir
vilja styrkja
samstarfíð
Marita Pet-
ersen, lögmað-
ur Færeyja, er
nýkomin heim
úr opinberri
heimsókn til
Grænlands þar
sem einhugur
var um að
styrkja samstarfið milli frænd-
þjóðanna tveggja.
Petersen reyndi að afla verk-
efna fyrir færeyskan byggingar-
iðnað sem hún telur búa yflr
reynslu sem geti komiö Græn-
lendingum til góða. Ekki fékk
hún þó nein loforð þar um.
Áformaö er að byggja sjö ftug-
brautir á Grænlandi á þessum
áratug en Grænlendingar vilja að
innlend fyrirtæki sjái um gerð
þeirra að svo miklu leyti sem það
er hægt.
Blýlausa bensín-
IðofanáíEvr-
ópusambandinu
Notkun blýlauss bensíns innan
Evrópusambandsins hefuraukist
svo að undanfórnu aö notkun
þess er nú í fyrsta skipti orðin
meiri en notkun gamaldags blý-
bensíns.
Samkvæmt upplýsingum frá
hagstofu ESB voru 53,3 prósent
alls bensíns, sem notað var innan
ESB í fyrra, blýlaust bensín. Árið
1992 var hlutfall þess 47,1 prósent
og 1991 40,7 prósent.
Fyrir átta árum nam notkun
blýlauss bensíns aðeins einu pró-
senti af heildarbensínbrennslu
sambandsrikjanna.
Þjóðverjar eru grænastir ailra,
með 88,7 prósent blýlaust á
heimamarkaöi.
Górillugarði lok-
aðvegnaátak-
annaíRúanda
Stjórnvöld í Úganda hafa lokað
íjallaþjóðgarðinum Mgahinga
þar sem fágætar fjallagórillur
hafast viö og var þaö gert af ótta
viö að styrjaldarátökin í ná-
grannaríkinu Rúanda stofnuðu
lifi ferðamanna í voða.
„Við erum búnir að loka Mga-
hinga þjóðgaröinum fyrir ferða-
mönnum vegna þeirra eigin ör-
yggis. Líkurnar á því að bardag-
amir berist inn í garðinn eru
mjög miklar," sagði embættis-
maður þjóðgarða Uganda.
Lokun garðsins kemur sér afar
illa fyrir Úganda sem rukkar
feröamenn um sjö þúsund króna
gjald fyrir að fylgjast með górill-
unum í þokuslæðum Qallaskóg-
anna.
Dómarivísarfrá
kæruáhendur
Nicholson
Niðurstöður nýrra rannsókna:
Mikil aukning
á húðkrabba
- læknar vara fólk við óhóflegum sólböðum
Myndirafber-
brjósta prins-
essutilsölu
Spænsk
fréttastofa býð-
ur nú til sölu
myndir aí' Dí-
önu prinsessu
sem teknar
yoru af henni
þegar hún lá
berbrjóstaí sól-
baði á Malaga á Spáni í síðustu
viku. Það voru tveir spænskir
Ijósmyndarar sem bókuðu sig inn
á sama hótel og prinsessan og
þeim tókst að ná af henni um 30
myndum þar sem hún lá I sól-
baði. Evrópsk fréttastofa hefur
boðist til að borga um hundrað
milljónir fyrir eir.karétt á birt-
ingu myndanna.
Ðíana er sögð vera yflr síg reið
vegna myndanna en hún hefur
oftsinnis sagt að hún sé búin að
fá sig fullsadda á ágengum ljós-
myndurum.
Hafameiri
áhyggjuraf
kjarnorku
Konur hafa meiri áhyggjur af
vandamálum sem stafa af kjarn-
orku en karlmenn samkvæmt
nýrri könnun sem gerð var í Jap-
an, Frakklandi, Þýskalandi og
Bandaríkjunum.
„Konur hugsa meira um kom-
andi kynslóöir, heilsumál, og hin
mannlegu mál,“ sagði Collette
Lewiner, einn af yfirmönnum
fyrirtækis á sviði kjarnorku í
Frakklandi.
Samkvæmt könnuninni sögðu
51% japanskra karlmanna aö
kjarnorka væri mikilvæg orka
fyrir landið miðað við 44%
kvenna. I Frakklandi svöruöu
46% þessu játandi miðað við 61%
karlmanna. Niðurstöðurnar voru
svipaöir í hinum löndunum.
14árastrákur
drapföður kær-
ustuslnnar
Fjórtán ára gamall drengur í
Nagasaki í Japan drap fóður kær-
ustu sinnar með því að stinga
hann til bana eftir að faðirinn
hafði skipað parinu að slíta sam-
bandinu.
„Ég varö bijálaður þegar herra
Nakama sagðist vera andvígur
sambandinu. Ég hélt að við gæt-
um verið saman ef ég myndi
drepa hann,“ sagði drengurinn.
Drengurinn lét ekki nægja að
drepa bara föðurinn heldur stakk
hann einnig eldabuskuna hans.
Ekki fylgir sögunni hvemig
dóttirin tók athæfi kærasta síns
en hún var úti að labba með
hundinn sinn þegar þetta geröist.
Hefurákveðið
aðgiftasigá
næstaári
Leikkonan j
Whoopi Gold-
berg tilkynnti í
bandaríska I
viötaisþættin-
um Larry King
Alive fyrir
skömmu að
hún ætlaði að
gifta sig á næsta ári. Tilvonandi
eiginmaður hennar heitir Lyle
Trachtenberg, og starfar hjá
verkalýðssamtökum.
Goldberg sagði að Trachten-
berg væri venjulegur maður sem
ynni venjulega vinnu frá 9-5 alla
virka daga. „Ég hef aldrei fariö
út með þannig manni. Hann er
traustur og öruggur," sagði Gold-
berg um leið og hún sýndi trúlof-
unarhringinnstolL Reuter
Dómari í Los
Angeles hefur
vísað frá
ákæru fyrir
skemmdarverk
oglíkamsárásá
hendur kvik-
myndaleikar-
anum Jack
Nicholson sem braut framrúðu
bíls nokkurs með golfkylfu í fe-
brúar síðastliðnum.
Frávisun dómarans byggðist á
því að Nicholson og maðurinn
sem átti bílinn hefðu náð sáttum
og þvi væri ekki tiiefni til aö
höfða sakamál á hendur leikar-
anum. Saksóknari í málinu mót-
mælti hástöfum.
Ekki er vitaö hversu háar bæt-
urnarvoru. Reuter
Húðkrabbamein á háu stigi hefur
aukist mjög mikiö á síðustu árum og
af því tilefni hafa húðlæknar og heil-
brigðisyfirvöld í Bandaríkjunum
sameinast í átaki um að hvetja fólk
til að varast að vera mikið í sóhnni
og stunda sólböðin í hófi.
„Húðkrabbamein er algengasta
krabbameinið í heiminum og það er
gífurlegt heilbrigðisvandamál,"
sagði dr. Höward Koh frá læknahá-
skólanum í Boston á ráðstefnu þar
sem átakið var kynnt.
Læknarnir ráðleggja fólki að vera
meö hatta og sólskyggni og nota sól-
aráburð og varast aö vera í sóhnni
þegar hún er hvaö sterkust. Þá segja
þeir að ferðir á sólbaðsstofur og alls
kyns tilbúin sólarbrúnka auki lík-
umar á krabbameini og valdi auk
þess hrukkum.
„Rannsóknir sýna að fólk er minna
Húðkrabbamein hefur aukist gífur-
lega á síðustu árum og er ástæðan
m.a. óhófleg sólböð og alls kyns til-
búin brúnka.
í sólbaði nú á dögum og það gerir sér
grein fyrir hættunni á húðkrabba-
meini,“ sagði dr. Peyton Weary sem
er forseti bandarískrar akademíu um
húðsjúkdómafræði. „Þrátt fyrir það
eru enn margir sem sóla sig reglu-
lega og stunda sólbaðsstofumar af
miklum krafti. Það eru þeir aðilar
sem hafa enn ekki áttað sig á því að
það er ekki neitt sem heitir öruggir
útfjólubláir geislar."
Kannanir sýna að það muni koma
upp milljón eða fleiri ný tilfelh af
húðkrabba í Bandaríkjunum á þessu
ári en það er mun meira en reiknað
hafði verið með. Tahð er að einn af
hveijum sex Ameríkönum eigi eftir
að fá einhveija tegund húðkrabba
einhvern tíma á ævinni og svipaðar
tölur hafa komið frá Ástralíu og öðr-
um löndum.
Reuter