Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1994, Síða 12
12
MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ1994
Spumingin
Ertu búinn að fá vinnu
í sumar?
Guðný Tryggvavdóttir: Nei, ég ætla
til Egilsstaða og vera hjá ömmu.
Hugrún Helgadóttir: Ekki ennþá.
Kristrún Freysdóttir: Nei.
Brimrún Björgúlfsdóttir: Nei, ég fer
út í sumar.
Óskar Logason: Nei, ég er ekki búinn
að fá vinnu en ég ætla að sækja um
í unglingavinnunni.
Þröstur Svanbergsson: Ég ætla að
sækja um í unglingavinnunni.
Lesendur
Tveir sjónvarpsþættir tæma götumar:
Sönglagakeppnin
og áramótaskaupið
Sigurvegarar í síðustu söngvakeppni í Dyflinni. - Veðbankar og pólitík rugla
menn í ríminu. Símamynd Reuter
Halldór Sigurðsson skrifar:
Það er ekki oft sem Ríkissjónvarpið
nær að draga næstum alla þjóðina
fram fyrir skjáinn. Það skeður þó
tvisvar á ári og er þó Sjónvarpiö svo
sem ekki ofarlega í huga landsmanna
af þeim sökum, heldur efnið sem
boðið er upp á. Eins og vera ber. -
Annars vegar er um að ræða söng-
lagakeppni evrópskra sjónvarps-
stöðva og svo náttúrlega áramóta-
skaupið.
Það merkilega við báða þessa sjón-
varpsþætti er það að landsmenn
segja fyrirfram að þeir búist svo sem
ekki við miklu í þessum þáttum. En
einhvem veginn er það svo að þetta
er í þau fáu skipti sem göturnar,
a.m.k. hér í Reykjavík, bókstaflega
tæmast er þessir þættir hefjast. Og
geri ég ráð fyrir að svo sé víðar um
landið. ÁTVR lyftir sölutölum í hæð-
ir sakir vinsælda söngvakeppninnar
því sjónvarpsáhorfendur, margir
hverjir, vilja ekki sitja edrú undir
óhamingjunni sem yflr þá kann að
dynja verði lag íslendinga neðar en
t.d. í 16. sæti og heldur þykir ekki
gott að fagna sigurlaginu vímulaus
ef þannig myndi nú verkast.
Og nú er söngvakeppninni lokið og
íslendingar urðu í góðu meðallagi.
En það er eins og oft áður að nú þarf
að kenna einhverjum um að ekki fór
betur. En er sanngjamt að skella
skuldinni á breska og írska veð-
banka? Bretar eru aldir upp við veð-
mál um hvaðeina og mest til gam-
ans. Við íslendingar treystum hins
vegar á happdrætti og lottó og viljum
því láta þau ganga eftir. En það er
bara ekki eðli happdrætta - nema
fyrir einn af þúsundi og ekki það.
Hitt er svo annað mál, og þar er
ég sammála Sigríði söngkonu, að
keppni þessi er fyrir löngu orðin her-
fang mangara og mafíósa sem spila
á keppnina og kaupa atkvæði og selja
sér til framdráttar. Og pólitík leikur
þarna stórt hlutverk að sjálfsöðu.
Smugan t.d. og krafan um veiðar í
Barentshafi. - Eða hvers vegna gáfu
Norðmenn ekki frændum sínum í
norðurhöfum eitt einasta atkvæði?
Barist um prímadonnuhlutverkin
Kristján Sigurðsson skrifar:
Það hefur nú komiö á daginn að
það var óskynsamlega með tíma sinn
fariö aö vera að gera sér vonir varð-
andi hinn nýja lista vinstri manna í
Reykjavík. Þrátt fyrir fógur orð um
einingu og samstöðu er nú ljóst að
R-listaflokkarnir hafa ekki komið sér
saman um annað en að agnúast út í
sjálfstæðisfólk í Reykjavík.
Sigrún Magnúsdóttir og Ingibjörg
Sólrún Gíslasóttir hafa báðar til-
kynnt að þær verði „pólitískir verk-
stjórar“ hins nýja lista og er þá kom-
ið annað Alþýðubandalag en veriö
hefur ef fulltrúar þess telja sig eiga
að taka. við fyrirmælum frá öðrum
flokkum. Kvennalistakonur hreykja
sér af því að hafa hertekiö hina
minnihlutaflokkana og að stefna
Kvennalistans sé alls ráðandi á þeim
fáu stöðum í málefnasamningi R-
listaflokkanna, þar sem á annað borð
eitthvað kemur fram. - Benda þær
og réttilega á að R-listinn kynni sig
sem lista kvenfrelsis.
Það er alkunna að illa fer þegar
tvær prímadonnur ætla að verða
aðalstjörnur einnar leiksýningar.
Menn geta velt því fyrir sér hvort
björgulegt verði þegar þær eru orðn-
ar fjórar; Sigrún Magnúsdóttir, Guð-
rún Ögmundsdóttir, Ingibjörg Sólr-
ún Gísladóttir og Guðrún Agústs-
dóttir.
Það er því ljóst að meirihluti R-
listans yröi fljóít óstarfhæfur og þótt
það yrði ýmsum þeim, er dreymir
um sameiningu íslenskra sósíalsta,
hollur skóli að horfa upp á hann
molna niður er hætt við að Reykvík-
ingum reyndust skólagjöldin orðin
ansi há.
Gangstéttahreinsun er vandaverk:
Þyrlað upp ryki við Fellsmúla
Sópað við Fellsmúlann. - Ekki nútímaleg vinnubrögð.
Guðrún Mgnúsdóttir skrifar:
Það er orðinn árviss atburður að
borgin geri út hreinsunarfólk til að
þrífa gangstéttar í borginni eftir vet-
urinn. Sandur hefur safnast fyrir
viða eftir sandburð ofan í hálku sem
plagar gangandi vegfarendur á vet-
uma. Það er því þarft verk að hreinsa
götur og gangstéttar. En þetta er
vandasamt verk og ekki á færi allra
að annast þetta. Nú veit ég ekki
hveijir þeir eru í raun sem annast
verkið, hvort það eru starfsmenn
borgarinnar eða svokallaðir verk-
takar. Er mér næst að halda að þeir
séu úr síöar nefnda hópnum.
Þaö var í síðustu viku að mér varð
starsýnt á mann á véltæki hér viö
Fellsmúlann og var að því er virtist
að hreinsa eina gangstéttina. Þetta
vom ekki nokkur vinnubrögð því
tækið sem notað var til hreinsunar-
innar þyrlaði jafnframt upp ryki í
allar áttir. Ég hef séð annars konar
; tæki vinna þetta verk og tekur það
ryk og sand beint upp í þar til gerða
skúffu og við það hverfur allt ryk
um leið og hreinsað er. - Mér fannst
upplagt að kalla á mann sem ég þekki
til að taka mynd af þessum vinnu-
brögðum og sendi hana hér með til
að sanna mál mitt. - Ég vona að þessi
tækni verði ekki frekar viðhöfð í
borginni við gatna- eða gangstétta-
hreinsun.
í lokin vil ég minnast á enn eitt
atriði þessu viðkomandi. Það er að
senda götusóparabíla ekki til hreins-
unar í íbúöarhverfum um helgar því
þá em allir bílar í stæðum sínum svo
sóparabíllinn kemst ekki að. Hins
vegar er aðkoman öll auðveldari á
virkum dögum. Gangstéttar ættu
hins vegar að vera auðar aðkomu
alla daga.
Stærri nautum
slátrað
Diðrik Jóhannsson skrifar:
í grein í DV hinn 9. april sl.
segir frá því aö slátrað hafi verið
stærsta nautgrip sem komiö hafi
í íslenskt sláturhús. Nautið frá
Þverlæk er þó ekki það stærsta.
- í Borgamesi var 5. júlí 1971
slátraö nautinu Fjölni VllO og vó
failið af honum 455 kg eöa 67 kg
meira. - Á þessum ámm var
slátrað frá Nautastöð Búnaðarfé-
lags íslands á Hvanneyri a.m.k. 7
nautum, sem lögðu sig á 400 kg.
Og í sláturhúsi Einangmnar-
stöðvarinnar í Hrísey var fall 9
nauta meira ennautsins frá Þver-
læk. Ólafur E. Stefánsson, þáver-
andi nautgriparæktarráðunaut-
ur Búnaðarfélags íslands, segir í
4. skýrslu um Nautastöð Búnað-
arfélags íslands að fall Fjölnis sé
það þyngsta hér á landi sem hon-
um er kunnugt um.
Fárastútí
reykingar
Ólafur Sigurjónsson hringdi:
Mikið held ég að margir hafi
verið sammála lienni Guðrúnu
Helgadóttur, alþingismanni og
rithöfundi, þegar hún í sjón-
varpsviötali í Dagsljósi nýlega
viðraði skoðanir sínar gagnvart
þeim sem leggja ofurkapp á reyk-
ingabann og fárast út í alla sem
ekki taka því vel. - Guðrún tók
einfaldlega dæmi úr daglega lif-
inu, dæmi sem aliir skildu. Auð-
vitað er ekki nema sjálfsagt fyrir
þá sem ekki vilja reykja að hætta
því en þeir sömu hafa engan rétt
til að firra aðra þeirri ánægju sem
þeir hafa af að reykja.
Fyrsta'maíf
Hafnarfirði!
Á.K. hringdi:
Lítið þótti mér fara fyrir hátíða-
höldum 1. mai í Firðinum miðað
við það sera við áttum að venjast
hér áður. Sérstaka athygli mína
vakti að eini stjórnmálaílokkur-
inn sem gerði baráttu launþega
einhver skil að þessu sinni var
Sjálfstæðisflokkurinn. Ég leit þar
inn og átti orð við þá um atvinnu-
ástandið og bæjarmálin. - Fyrr
heíði ég átt von á að sjá einhverja
tilburði í þessa veru frá þeim
flokkum sem löngum hafa talið
sig málsvara launþega, en ég varð
ekki var viö nein fundahöld á
vegum þeirra í tilefiii dagsins.
Vonandi veit framtak sjálfstæðis-
manna á markvissara ástand í
atvinnumálum Hafnarfjarðar.
EnnerþeimNix-
onefstíhuga
Gunnar Sigurðsson skrifar:
Ég las bréf frá Sigurði Einars-
syni í DV mánud. 2. mai þar sem
réttilega var bent á hve sumir
fjölmiðlar hafa mikla áráttu til
að ófrægja Nixon heitinn, fyrrv.
forseta. Eg heyröi einmitt i morg-
unútvarpi i morgun (2. maí) að
enn er verið að gera sér mat úr
viðhöfn ameriskra fjölnúðla við
lát forsetans. Þaö var morgun-
pistilshöfundur RÚV vestra sem
talaði frá eigin brjósti, en afar
rangt var það mat hans.
Stjórnlausum-
ferðájöklum
Ásgeir hringdi:
Mér er alls ekki orðið sama að
heyra um tíð slys uppi á jöklum
og hálendi íslands. Varla líður
svo vika að ekki sé eitt eða fleiri
óhöpp í umferð sleða og jeppa
sem þar eru í notkun. - Eg tel
tímabært að láta þetta fólk, sem
þarna ekur sér til skemmtunar,
sæta lögum og reglu rétt eins og
aðra akandi vítt og breitt um
landiö.