Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1994, Page 2
2
III
FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1994
Fréttir
Bjami P. Magnússon genginn í Sjálfstæðisflokkinn:
HaraldurBriem:
Fjölmenni var í bliðviðrinu við kosningamiðstöð sjálfstæðismanna f Mjódd i gær en þrír frambjóðendur Sjálfstæö-
ismanna, Þorbergur Aðalsteinsson, sem hér sést, Gunnar Jóhann Birgisson og Helga Jóhannsdóttir, dreiföu þar
bæklingum á milli þess sem þau spjölluðu við vegfarendur og fræddu þá um stefnumál D-listans. Ýmislegt var
á döfinni i Mjódd i gær og var boðið upp á pylsur og ýmis skemmtilegheit. DV-mynd ÞÖK
Þúsundir Reykvíkinga fjölmenntu á útihátið Reykjavíkurlistans á Ingólfstorgi síðdegis f gær. Frambjóðendur og
stuðningsmenn R-listans stóðu fyrir tónlist og ýmsum uppákomum á torginu, meðal annars spilaði hljómsveitin
Nýdönsk nokkur lög, Flosi Ólafsson flutti ávarp og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóraefni Reykjavíkurlist-
ans, flutti stutt ávarp. DV-mynd BG
Stuttar fréttir
Ekiðáflugvél
Ekið var á útlenda flugvél sem
lenti á Reykjavíkurflugvelli í
fyrrakvöld. Vélinni var lagt á
stæði og var ekið á hana ein-
hverntímann um nóttina. Elds-
neytistankur á vængenda vélar-
innar skemmdist og ók sá á brott
sem skemmdunum olli.
Miklirfjárhagseríiðleikar
Bókaútgáfan í landinu er að
hrynja eins og spilaborg. RÚV
hefur þetta eftir formanni ís-
ienskra bókaútgefenda. Mörgfor-
lög glíma við fjárhagserfiðleika.
Tónteikar i miðbænutn
Samband ungra sjálfstæðis-
manna stendur fyrir tónleikum í
miðbæ Reykjavíkur í dag. I kvöld
verða síðan stórtónleikar á Ing-
ólfstorgi.
ÚtskrffthjáMR
Menntaskólinn í Reykjavík út-
skriiaði I gær 204 stúdenta. Þar
með lauk 148. starfsári skólans.
t-ræoanKi stomaour
Lýöveldismerkið frá 1944 hefur
verið endurgert og verðúr selt viö
kjörstaði á morgun. Samkvæmt
RÚV verður því fé sem safhast
varið til að stofna fræbanka.
Nótulausviðskipti
Ríkisskattstjóri segir kvittanir
nauðsynlegar vegna útskriftar-
og þjónustugjaida. Samkvæmt
Morgunblaöinu stunda bankam-
ir nú nótulaus viðskipti.
Bændurivanda
Skerðing framleiösluréttar í
sauöfjárrækt verður vfða orðin
30 til 33% í haust. Samkvæmt
Tímanum treysta margir bændur
sér ekki til að hætta búskap þar
sem þeir hafi að engri annarri
vinnu að hverfa.
Áhugi á uppbyggingu
íslenskir aðalverktakar hafa
áhuga á markvissri uppbyggingu
Bláa Iónsins. Aðalverktakar eiga
20% í íslenska heilsufélaginu sem
rekur starfsemina í lóninu.
Misjafnt gengi í prófum
Reykvískir unglingar náðu
bestum árangri á samræmdum
prófum í vor. Einkunnir þeirra
voru í öllum fógum yfir lands-
meöaltali. Næstir eru unglingar
i Reykjaneskjördætni og á Aust-
Sörðum. Árangurinn var hins
vegar lakastur á Vestfjöröum.
Fer í prófkjör fyrir
næstu þingkosningar
- fékk ekkert loforð um stuðning fyrir flokkaskiptm, segir Bjami
Bjami P. Magnússon, fyrrum
borgarfufitrúi Alþýðuflokksins en
núverandi sveitarstjóri Reykhóla-
hrepps, er genginn úr Alþýðuflokkn-
um og í Sjálfstæðisflokkinn. Hann
sagði í samtali við DV að hann ætl-
aði að taka þátt í pólitísku starfi inn-
an Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörö-
um. Hann sagðist vera ákveðinn í aö
fara í prófkjör hjá Sjálfstæðisflokkn-
um fyrir næstu alþingiskosningar.
„Ástæðan fyrir því að ég dreg mig
ekki í hlé nú þegar ég hef gengið úr
Alþýðuflokknum er sú að ég er og
vil vera stjómmálalega virkur. Eg
er ekki sú manngerð sem vill vera
til hlés. Þess vegna er það að ég geng
í Sjálfstæðisflokkinn. Það mun svo
bara koma í ljós hvað félagar mínir
þar vilja fela mér af trúnaðarstöðum
fyrir flokkinn," sagði Bjami.
Því er haldið fram innan Alþýðu-
flokksins að Bjami P. hafi fengið lof-
orð frá áhrifamönnum í Sjálfstæðis-
flokknum um stuðning í prófkjöri á
Vestfjörðum fyrir næstu þingkosn-
ingar ef hann skipti um flokk og lýsti
yflr stuðningi við D-listann í Reykja-
vík fyrir borgarstjómarkosningam-
ar. Talið er víst aö Matthías Bjama-
son hætti þingmennsku að loknu
þessu kjörtímabili og aö styðja eigi
Bjama í það sæti.
„Þetta er ekki rétt. Ég geng í Sjálf-
stæðisflokkinn alveg óskflyrt Það
em engin loforð um stuöning við eitt
eða neitt. Ég held að sjálfstæðismenn
hér fyrir vestan hafi ekki vitað um
það þegar ég gerði það upp við mig
að ég ætti ekki lengur samleið með
Alþýðuflokknum. Ég fann það á síð-
asta flokksstjómarfundi að mér leið
afar illa. Ég fann að ég gat ekki verið
í takt við Alþýöuflokkinn og því var
það hvorki honum né mér tíl góðs
að ég væri áfram í flokknum. Ég fann
það líka að þau mál sem ég hef verið
að berjast fyrir í Alþýðuflokknum,
en ekki átt þar hljómgrunn, ættu
hann frekast í Sjálfstæðisflokknum.
Því ákvað ég að ganga í Sjálfstæðis-
flokkinn og ræddi það við félaga
mína hér á Reykhólum. Við aðra hef
ég ekki rætt um þetta mál,“ sagði
Bjami P. Magnússon.
farsóttné
drepsótt
„Undanfarinn áratug hafa kom-
ið fram skýrslur xnn að sýkingum
af völdum streptococcus-bakteríu
hafi kannske fjölgað en við höfum
ekki séð þaö með neinum örugg-
um hætti þó að þessi tvö dauðs-
fóll hafi orðið hér á undanfömum
mánuöum. Við stöndum ekki
frammi fyrir neinni alvarlegri
farsótt eöa drepsótt héma af völd-
um þessarar bakteríu þó aö menn
hafi verið að velta fyrir sér hvort
bakterían geti verið að fá verri
eiginleika en hún hefur haft áö-
ur,“ segir Haraldur Briem smit-
sjúkdómalæknir um fréttir síð-
ustu daga um dauðsfóll af völdum
streptococcus-bakteríunnar.
„Á siðustu öld olli þessi bakter-
ía bamsfararsóttum og fólk fékk
skarlatssótt og slæma fylgLkvifla
eftir hálsbólgur. Þessi eiginleiki
bakteríunnar hvarf smám saman
og hún varð tfltölulega meinlitil.
Bakterían hefur þó alltaf ööm
hvom valdið sýkingu í húð og
þegar bakterían kemst milli
vöðvalaga og húðarinnar getur
hún breiðst hratt út.og valdið
svæsnum sýkingum. Stundum
hefur það haft alvarlegar afleið-
ingar í for með sér,“ segir Harald-
ur.
Veikindi af völdum streptococc-
us-bakteríu hafa í för með sér
særindi i hálsi og háan hita, upp-
köst, hroll og jafnvei roða í húð
og er fólki með þessi einkenni
ráðlagt að leita til læknis.
JónSteinar:
Kjósendur i
eigaekki
réttáleynd
umhvort
þeirkjósa
„Þetta er tómur misskilningur
vegna þess að menn eiga auövitað
ekki rétt á neinni leynd um það
hvort þeir kjósa eða ekki. Ef þeir
ættu rétt á leynd um þaö væri
ekki hægt að fylgjast með því á
kjörskrá hverjir kjósa. Þegar sagt
er að kosningar skuli vera leyni-
legar er auövitað átt við að menn
eigi rétt á leynd um það hvað I
þeir kjósa, ekki hvort þeir kjósa,“
segir Jón Steinar Gunnlaugsson,
formaöur yfirkjörstjómar í I
Reykjavik um bréf sem Oddur 1
Benediktsson, prófessor í tölvun-
arfræði við Háskóla íslánds, í
sendi tölvuneftid. í bréfinu var '
óskað eftir svörum við því hvort
tölvunefhd hafi heimilað um-
boösmönnum framboðslistanna
að skrá persónuupplýsingar á
kjörskrá og fara með þær upplýs-
ingar af kjörstað eða með hvaöa
heimfld það sé gert.
Töl vunefhd komst að þeirri nið-
urstöðu í gær aö umboðsmönn-
um framboðslistanna væri þetta
heimflt, en taldi hins vegar að það
væri litt samræmanlegt grund-
vallarsjónarmiðum laga um
einkalífsvemd.
Stykkishólmur:
Vettvangurmeð
bókstafinnH
í nýlegri umfjöllun DV um
kosningabaráttuna í Stykkis-
hólmi er ffamboðslisti Vettvangs
I
I
i
sagður hafa haft bókstafinn S í
kosningunum voriö 1990. Hiö
rétta er aö ffamboðslistinn haföi
sama bókstaf og nú, bókstafinn H.