Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1994, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1994
5
Fréttir
Jón Steinar Gunnlaugsson hyggst óska eftir hraðri meðferð í tryggingamatsmálum:
Hæstiréttur mun reyna
að hraða slysamálunum
Líkur eru á aö Hæstiréttur muni
hraða meðferð slysatryggingamála
þegar þau berast þangað tilbúin frá
lögmönnum eftir dómsmeðferð í hér-
aðsdómi. Jón Steinar Gunnlaugsson
hæstaréttarlögmaður sagði í samtali
við DV að áhugi væri fyrir því að
leita eftir samstarfi við lögmenn
tryggingafélaganna um að óska eftir
því við Hæstarétt að nokkrum mál-
um yrði hraðað - þannig verði hægt
að leggja einhverjar línur út frá nið-
urstöðu dómstólsins og þá væntan-
lega komast að samkomulagi í fjöl-
mörgum málum sem eru nú þegar í
meðferö hjá Héraðsdómi Reykjavík-
ur. Þar eru um 140 mál óafgreidd og
er meðalafgreiðslutími hvers máls
um eitt ár. Á þriðja tug dómsmála
hafa þegar verið afgreidd. Ekkert
þeirra er hins vegar beinlínis tiibúið
til meðferðar í Hæstarétti þó svo að
ákveðið hafi verið að áfrýja þeim.
Erla Jónsdóttir hæstaréttarritari
sagði í samtali við DV í gær að engin
formleg beiðni hefði verið lögð fram
ennþá varðandi það að hraða með-
ferð tryggingamálanna. „Sé þess ósk-
að verður reynt að verða við slíku,“
sagði Erla.
Frá því snemma á árinu 1992 hafa
einstaklingar sem hafa lent í slysum
rekið mál á hendur tryggingafélög-
unum - hver fyrir sig. Ástæðan er
að seinni hluta árs 1991 tóku trygg-
ingafélögin öll upp nýjar verklags-
reglur sem kveða á um uppgjör bóta
vegna líkamstjóns og reis mikill
ágreiningur í kjölfarið. Eins og fyrr
Flugliðar Atlanta:
Sluppu frá
Dubai með
áminningu
Flugliðarnir tveir frá Atlanta, sem
voru í farbanni í Dubai vegna með-
ferðar áfengis á almannafæri, sluppu
frá dómara þar í borg í fyrradag án
þess að greiða sekt en fengu áminn-
ingu fyrir vikið. Flugliðarnir fóru til
Jedda í Saudi-Arabíu og hefja fyrri
störf hjá flugfélaginu en um er að
ræða flugfreyju og flugþjón.
Viðurlög viö meðferð áfengis á al-
mannafæri eru ekki eins ströng í
Sameinuðu arabísku furstadæmun-
um eins og í Saudi-Arabíu þar sem
Atlanta er með bækistöðvar sínar.
Algengt er að erlendir ferðamenn eða
starfsmenn í Saudi-Arabíu fari til
furstadæmanna til að skemmta sér.
Starfsmenn Atlanta hafa fengið að
finna fyrir ströngu eftirliti í Saudi-
Arabíu því fyrr í vor handtók þar-
lend trúarlögregla flugmann og flug-
freyju Atlanta sem komu saman út
úr leigubíl og í ljós kom að þau voru
ekki hjón. Kona má ekki vera í fylgd
með karlmanni nema um hjón sé að
ræða. íslensku samstarfsmennirnir
sluppu við fangelsi í þetta skiptið.
SlysiöáFlúðum:
Maðurinn látinn
Maðurinn sem brenndist er hann
féll ofan í heitan pott á Flúðum um
seinustu helgi lést á gjörgæsludeild
Landspítalans í fyrrinótt. Hann var
23 ára og hét Öm Arnarson, frá Öxl I
í Húnavatnssýslu.
Svo virðist sem vatnið í pottinum
hafi verið allt að 70 stiga heitt og
hlaut maðurinn bmnasár á 90 pró-
sent líkamans. Ekki er ljóst hvað olli
því að vatnið, sem venjulega er um
40 stig, var svona heitt.
segir hafa nokkrir dómar gengið í þeirra fallið tjónþolum í vil. Trygg- dómum og áfrýjað til Hæstaréttar. fengið á meðan á löngum mála-
málum sem þessum og hafa flestir ingafélögin hafa ekki unað þeim Tjónþolamir hafa því engar bætur rekstrinum stendur.
KR. 2.495.000
► Staðalbúnaður m.a.: 130 ha. 2.51 vél, fjarstýrðar samlæsingar, rafdrifnar rúður, speglar og loftnet, veltistýri, álfelgur o.fl.
Bestu jeppakaupin!
jeep cherokee jamboree
Hreinir yfirburðir!
190 ha. 4.01 vél fáanleg.
Klassísk vönduð innrétting.
90% þeirra sem keyptu amerískan jeppa
á síðasta ári, völdu Jeep. Það sem af er
þessu ári hefur ekki verið hægt að anna
eftirspurn eftir nýja Cherokee Jamboree
jeppanum, enda verðið hreint ótrúlegt.
Með tilkomu aukasendinga, er þessi
sígildi lúxusjeppi nú til afgreiðslu strax!
w Jeep
NYBYLAVEGUR 2, KÓPAVOGUR, SÍMl 42600