Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1994, Blaðsíða 18
34
FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1994
íþróttir
Handknattleikur:
Drazen Podunavac, Serbinn i liði FH-inga, skilur Þórsarann Lárus Orra Sigurðsson eftir í leiknum í Kaplakrika
gærkvöldi.
„Þetta var auðvit-
að algjört gris“
- Jón Erling tryggði FH1-0 sigur á Þór á síðustu sekúndu
Víðir Sigurðsson skrifar:
Það er engum leik lokið fyrr en
flautað er af. Þetta gamla spakmæli
sannaðist enn og aftur í gærkvöldi
þegar Jón Erling Ragnarsson skoraði
sigurmark FH-inga gegn Þór, 1-0, í
Kaplakrikanum þegar örfáar sek-
úndur liíðu af tilþrifalitlum leik.
Bæði lið léku langt undir getu og
0-0 virtist við hæfi en undir lokin
sóttu FH-ingar talsvert og virtust
ósáttari við eitt stig en norðanmenn.
Jón Erling, sá reyndi markaskorari
sem ekki er pláss fyrir í byijunarliði
FH-inga, var réttur maður á réttum
stað á örlagastundu en hann hafði
aðeins verið inni á í 11 mínútur.
„Þetta var auðvitað algjört grís.
Varla tíu sekúndur eftir, ég fékk bolt-
ann bara og reyndi að snúa mér og
skjóta, og það tókst. Þetta var búið
að vera mjög dapurt og það má segja
um þennan leik að hann hefði getað
farið hvernig sem var. Það þarf
svona lukku ef hð ætla sér aö vera
fyrir ofan miðju. Þetta er ekkert
ósvipað og byijunin í fyrra hjá okkur
og sígandi lukka er alltaf best,“ sagði
Jón Erling við DV eftir leikinn.
„Það er hræðilegt að tapa svona,
þegar þrjár mínútur eru komnar
fram yfir tímann, en leikurinn er
ekki búinn fyrr en flautað er af. Auð-
vitað er þetta sárt, þeir voru ekki
búnir að skapa sér nein færi í seinni
hálfleik en við hefðum getað skorað
þegar Páll var einn gegn Stefáni.
Mörkin koma, ég hef ekki áhuggjur
af því og það eru 16 leikir eftir. Það
var mjög gott að fá Guðmund Bene-
diktsson, hann á eftir að slípast en
er feikilega góður og breytir taktin-
um í liðinu," sagði Sigurður Lárus-
son, þjálfari Þórsara.
FH-ingar voru meira með boltann
í leiknum, héldu honum betur en
Þórsaramir og spiluðu áþekkt og í
fyrra en broddinn vantaði. Ath Ein-
arsson og Þórhahur Víkingsson
fengu fjögur ágæt færi á fyrstu 19
mínútunum en eftir það var marki
Þórs htið ógnað. Hjá t>ór var gaman
að sjá til Guðmundar Benediktsson-
ar í fyrri hálfleiknum, Ólafur H.
Kristjánsson réð ekki við hann og
var heppinn að sleppa hálfleikinn
spjaldlaus. Páh Gíslason og Bjami
Sveinbjömsson fengu bestu færi
Þórsara en Stefán Amarson sá við
þeim í bæði skiptin með góðri mark-
vörslu.
Vorleikur
í Portúgal
- Ísland-Portúgal 24-24
„Þetta var alls ekki hörkuleikur og
í raun dæmigerður vorleikur. Hann
var ekki einu sinni spennandi en þó
sáust inn á milli hjá strákunum
ágætir kaflar," sagði Einar Þorvarð-
arson, aðstoðarlandshðsþjálfari í
handknattleik, en hann stýrði ís-
lenska hðinu í gærkvöldi í vináttu-
leik gegn Portúgölum í Portúgal.
Lokatölur urðu 24-24 eftir að ís-
lenska hðið hafði leitt allan leikinn
með tveggja til þriggja marka mun.
„Það var greinilegt að margir leik-
menn í okkar hði vora þreyttir eftir
erfitt íslandsmót en engu að síður
var þetta þokkalegur leikur. Við
leggjum ekkert ofurkapp á þessa
leiki og æfum tvisvar á dag. Þó em
strákamir staðráðnir í að koma tap-
lausir frá þessum þremur viðureign-
um gegn Portúgölunum. Portúgal
hefur tekið nokkrum framfömm í
handboltanum og hð þeirra er greini-
lega á réttri leið,“ sagði Einar enn-
fremur.
Sigurður Sveinsson og Dagur Sig-
urðsson léku ekki með í gærkvöldi
vegna smávægilegra meiðsla. Guð-
mundur Hrafnkelsson stóð í mark-
inu allan leikinn og varði 12 skot.
Hinir tveir markverðimir standa í
markinu í komandi leikjum og fær
hver markvörður því einn hehan
leik.
Mörk íslands: Patrekur Jóhannes-
son 7, Ólafur Stefánsson 5, Bjarki
Sigurðsson 4, Jón Kristjánsson 3,
Júlíus Jónasson 2, Valdimar Gríms-
son 1, Róbert Sighvatsson 1 og Gunn-
ar Beinteinsson 1.
Indiana átli
ekki möguleika
- Knicks vann öðru slnni, 89-78, í nótt
New York Knicks átti ekki í nein-
um erfiðleikum með Indiana Pac-
ers í öðmm leik hðanna í úrshtum
austurstrandar í bandaríska körfu-
boltanum í nótt. Knicks sigraði í
leiknum, 89-78, og hefur þvi unnið
fyrstu tvo leikina á heimavelh sín-
um en næstu tveir leikirnir verða
í Indiana.
Leikurinn var í nokkuð góðu
jafnvægi fram í þriðja leikhluta en
þá skildi leiðir og var það ekki síst
fyrir frábæran leik Patricks Ew-
ings. Kappinn lét sig ekki muna um
að skora 32 stig og taka 13 fráköst
og áttu leikmenn Indiana lengst af
í erfiðleikum með Ewing. í hálfleik
var staðan jöfn, 4(M0.
Reggie Miher skoraði mest fyrir
Indiana, eða ahs 23 stig og Rik
Smits skoraði 22 stig.
„Við urðum að fara til Indiana
með tvo sigra í farteskinu og það
gekk eftir. Við vorum ákveðnari í
þessum leik en núna eigum fyrir
höndum tvo leiki í Indiana. Ef við
leikum þar að sama krafti eigum
að við að klára dæmiö,“ sagði Pat
Riley eftir leikinn við Indiana í
nótt.
Larry Brown, þjálfari Indiana,
var að vonum ekki eins kátur og
Riley. Hann sagði Knicks-hðið hafa
verið mun ákveðnara og ljóst væri
að sínir menn yrðu að mæta til
leikjanna í Indiana með breyttu
hugarfari.
Ewing treður boltanum i körfuna gegn Indiana Pacers í nótt.
Símamynd Reuter
FH-Þór
(0-0) 1-0
1-0 Jón Erling Ragnarsson (90.). Hahsteinn Amarson tók homspymu,
boltinn barst út fyrir vítateig Þórs, Ólafur Kristjánsson skaut, boltinn fór í
vamarmann og til Jóns sem sneri sér og skoraði.
Lið FH: Stefán Amarson - Petr Mrazek, Auðun Helgason, Ólafur H. Kristj-
ánsson - Drazen Podunavac, Hallsteinn Amarson, Þorsteinn Hahdórsson,
Þórhahur Víkingsson (Jón Erling Ragnarsson 79.), Þorsteinn Jónsson (Lúð-
vík Amarson 79.) - Hörður Magnússon, AtU Einarsson.
Lið Þórs: Ólafur Pétursson - Sveinn Pálsson; JúUus Tryggvason, Lárus
Orri Sigurðsson, Öm Viðar Amarson - Ormarr Örlygsson, Birgir Þór Karls-
son, PáU V. Gíslason, Dragan Vitorovic - Bjami Sveinbjömsson, Guðmund-
ur Benediktsson (Hreinn Hringsson 70.)
FH: 14 markskot, 9 hom. Þór: 7 markskot, 7 hom.
Gul spjöld: Þorsteinn H. (FH), Vitorovic (Þór).
Rautt spjald: Ekkert.
Dómari: Gunnar R. Ingvarsson, með ágæt tök á leiknum.
Áhorfendur:
SkUyrði: Sól og bhða, KaplakrikavöUurinn heldur ósléttur.
® Stefán (FH), Mrazek (FH), Auöun (FH), HaUsteinn (FH), Ólafur P.
(Þór), Láms Orri (Þór), Guðmundur (Þór).
Maður leiksins: HaUsteinn Arnarson (FH). Mjög drjúgur á miðjunni hjé
FH, góðar sendingar og alltaf spil í kringum hann.
Cantonaskoraði
Frakkar báru sigurorð af Ástr-
ölum, 1-0, á þriggja landa móti
sem stendur yfir í Japan. Það var
Eric Gantona sem tryggöi Frökk-
um sigurinn þegar hann skoraði
sigurmarkið á 42. mínútu.
Argentínatapaðð
Argentínumenn með Diego
Maradona og Claudio Caniggia
innanborðs töpuðu óvænt fyrir
Ecuador, 1-0, í vináttulandsleík
sem fram fór í Ecuador í fyrri-
nótt. Leikmenn Argentínu vom
slappir og vikuðu þungir og
Maradona náðí sér aldrei á strik.
WilkinstilPalace
Gamla kempan Ray WUkins
gekk í gær til liðs við Crystal
Palace en hann fékk frjálsa sölu
frá QPR. Wilkins, sem er orðinn
38 ára gamah, skrifaði undir eins
árs samning við Palace sem vann
sér sæti í úrvalsdeildinni.
Wilkens þjáffari ársins
Lenny Wilkens, þjálfari Atlanta
Hawks, var í gær útnefndur þjálf-
ari ársins í NBA-deildinni. Wilk-
ins tók við Atlanta fyrir þetta
keppnistímabil og leiddi liðið til
sigurs í raiðriðlinum.
Jackson í öðru sæti
Wilkens hlaut 71 atkvæði af 101
mögulegu en í kjörinu tóku þátt
íþróttafréttamenn í Bandarikjun-
um. Phil Jackson, þjálfari
Chicago, varð annar í kjörinu
með 16 atkvæði og George Karl,
þjálfari Seattle, varð þriðji með 8
atkvæði.
SætursigwDana
Danir unnu sætan sigur á
Svíum í vináttulandsleik í knatt-
spymu í Danmörku í gærkvöldi.
Michael Laudrup skoraði sigur-
markið og eina mark leiksins.
DalyhættirmeðNets
Chuck Daly hætti í gær sem
þjálfari NBA-liðs New Jersey
Nets eftir tvö ár hjá félaginu.
Daly mun snúa sér að lýsingum
leikja fyrir bandaríska sjón-
varpsstöð en hann hefur alla sína
hunds- og kattartíð þjálfað í
NBA-deildinni.
í kvöld
Trópídeildin:
Fram-ÍA....................kl. 20.00
2. deild:
KA-Víkingur............kl. 20.00
HK-ÞrótturR................kl. 20.00
ÍR-Grindavík...............kl. 20.00
3. deild:
Dalvik-Skallagi-imur.kl. 20.00
Haukar-Reynir S......kl. 20.00
Höttur-BÍ..................kl. 20.00
Tindastóh-Völsungur..kl. 20.00
Víðir-Fjölnir..............kl. 20.00