Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1994, Blaðsíða 6
6
FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1994
Viðskipti
Hlutabr. Eimskips
Hráolía
Jenið lækkar
Karfaverö hjá Reiknistofu fisk-
markaöa fór í 53 krónur kílóið í
gær sem er nokkru hærra en
undanfama daga.
Hlutabréf Eimskips lækkuöu í
verði eftir hvítasunnuhelgina.
Gengi hréfanna hefur verið 4,36
síðan á miðvikudag sem er 3%
lægra en fyrir helgi.
Hráohutunnan hefur hægt og
bítandi verið að lækka í verði.
Um miðjan dag í gær seldist tunn-
an á 16,28 dollara í London.
Á einni viku hefur jenið lækkað
um tæpt 1%. Sölugengi jensins
var 0,6783 krónur í gærmorgun.
Nikkei hlutabréfavísitalan í
Tokyo lækkaði nokkuð í gær eftir
að hafa veriö á uppleið síðustu
daga. Nikkei var í 20495 stigum í
gær.
Arðsemi eiginflár banka og sparisjóða 1993:
Mun betri hjá
sparisjóðunum
Arðsemi stærstu sparisjóða var
mun betri en hjá bönkunum á síð-
asta ári. Þannig var arðsemi eiginflár
Sparisjóðs vélstjóra jákvæð um 15%
á meðan arðsemin var neikvæð um
12% hjá íslandsbanka.
Tap bankanna var 560 milljónir en
sparisjóðirnir högnuðust um 400
miUjónir. Þetta kemur fram í saman-
tekt Vísbendingar og samanburðinn
má sjá nánar á meðfylgjandi grafi.
Arðsemi eiginfjár hjá hönkunum
var neikvæð um 4% en jákvæð hjá
sparisjóðunum um 9%. í Vísbend-
ingu er bent á að samkvæmt lögum
frá því í júlí í fyrra er sparisjóðum
gert að skila hærri arðsemi en bönk-
um þar sem stofnfjáreigendur spari-
sjóða eru komnir í stað ábyrgðar-
manna áður.
Að mati Vísbendingar hefur
gleymst að taka tillit til eins atriðis
þegar þessi lög voru sett. „Staðreynd-
in er nefnilega sú að þeir sem ákveða
að gerast stofnfjáraðilar í sparisjóði
njóta ekki þeirrar skattaívilnunar
15%'
10'
Bankar og stærstu sparisjóðir
- arðsemi eiginfjár
sem íjárfestar í hlutafélögum fá skila hærri arðsemi til eigenda sinna
vegna kaupa á hlutabréfum. Af þess- en hlutafélagabönkum," segir í Vís-
um sökum má færa rök fyrir því að bendingu.
sparisjóðum sé á vissan hátt gert að
Nýtt samkeppnisráö kom saman á dögunum til að skera úr um mál sem hafa verið til umfjöllunar I Samkeppnis-
stofnun. Fjöldamörg mál biðu nýs ráðs en það hafði verið óstarfhæft um hríð eftir að þrir aðilar voru úrskurðað-
ir vanhæfir til setu í ráðinu. Á myndinni eru, frá vinstri: Ólafur Björnsson, héraðsdómslögmaður á Selfossi, Skarp-
héðinn Þórisson, hæstaréttarlögmaður í Reykjavík, Atli Freyr Guðmundsson, skrifstofustjóri í viðskiptaráðuneyt-
inu, Karítas Pálsdóttir, fiskverkakona á ísafirði, og Brynjólfur Sigurðsson prófessor sem er formaður samkeppnis-
ráðs. Ólafur, Skarphéðinn og Karitas eru ný í ráðinu. DV-mynd BG
Þýska markið ekki hærra í hálft ár
Sölugengi þýska marksins gagn-
vart íslensku krónunni hefur ekki
verið hærra síðan í október á síðasta
ári eða í ríflega hálft ár. Sölugengiö
var skráð á 43,01 krónu í gærmorgun
en var 43,03 krónur um miðjan okt-
óher sl.
Miðað við stöðu mála fyrir viku er
gengi dollars og punds örhtlu lægra.
Gengi jensins í gærmorgun var tæpu
1% lægra en í síðustu viku. Sviss-
neski og franski frankinn og pesetinn
seljast á eilítið hærra verði en fyrir
viku.
Tölur á gröfunum hér að neðan eru
sölugengi gjaldmiðlanna frá því í
gærmorgun í skráningu Seðlabank-
ans.
lOmilljónirí
hönnunarstöð
Iðnaðarráðuneytið og Samtök
iðnaðarins hafa ákveðið að setja
á laggirnar svokallaöa hönnun-
arstöð tii reynslu næstu tvö árin.
Meðal verkefna stöðvarinnar er
að veita ráðgjöf vegna hönnunar
og þróunar á nýjum jafnt sem
eldri framleiðsluvörum, standa
fyrir námstefnum og fyrirlestr-
um, annast framkvæmd ýTnissa
verkefna og standa fyrir umhúða-
samkeppni.
Nefnd á vegmn iðnaðarráðu-
ueytisins hefur undirbúið þessa
hönnunarstöö síðustu tvö árin.
Stöðinni er ætlað að auka sam-
keppnishæfi innlends húsgagna-
iðnaöar. Hömmnarstöðin er að
erlendri fyrirmynd og eftir tvö
ár verður starfið metið og tekin
ákvörðun um framhaldið. Kostn-
aöur við stöðina er áætlaður um
10 milljónir króna. Samtök iðnað-
arins greiða 60% af kostnaðinum
og stjórnvöld 40%.
VÍBgefurútfjár-
málabók
Verðhréfaraarkaöur íslands-
banka, VÍB, hefur gefið út bók
um fj ármálamarkaðinn sem
nefnist Verðbréf og áhætta. Bókin
er sú fyrsta sinnar tegtmdar sem
gefin hefur verið út á íslensku og
fjallar um það hvemig best sé að
ávaxta peninga.
Bókin er ekki aðeins fyrir sér-
fræðinga heldur einstaklinga
sem vilja taka skynsaraar
ákvarðanir við ávöxtun peninga,
eins og segir í fréttatilkynningu
frá VÍB. Einnig er bókin hugsuð
sem kennslugagn i viðskipta-
fræðum við framlraldsskóla og
háskóla.
Stærstukaupfé-
lögintapastórt
Samkvæmt úttekt Viðskipta-
biaðsins töpuðu eilefu stærstu
kaupfélög landsins alls 615 millj-
ónmn króna á síðasta ári. Þar af
er tap Kaupfélags Eyfirðinga upp
á 250 miHjónir.
Tap þessara kaupfélaga nam
um 2,6% af heildarveltu og arð-
semi eiginfjár var neikvæð um
11% sé miðað við heildarafkomu
í hlutfalli við heildar eigiðfé. Eina
kaupfélagið sem sýndi jákvæða
arðsemi á síðasta ári var Kaupfé-
lag Suðurnesja sem var það eina
sem skilaði hagnaði af þessum
ellefu félögum. Kaupfélag Skag-
firðinga var reyndar rekiö með
hagnaði þegar ekki var telúð tillit
til taps dótturfyrirtækja en eins
og Viðskiptablaðið bendir á þá
getur samanburður einstakra
kaupfélaga verið varasamur sök-
um ólíks rekstrar.
Útboðígegnum
tölvukerfi
Ríkiskaup og Skýrsluvélar rik-
isins og Reykjavikurborgar,
Skýrr, kynntu á miðvikudag Út-
boða sem er nýr íslenskur upp-
lýsingabanki um úfboð á tölyu-
tæku formi. Með Útboða býðst
yfirht yfir öll þau útboð sem eru
í gangi hérlendis, auk yfirlits yfir
útboð sem hafa verið opnuð og
eru á samningsstigi. Jafnframt
verða fyrir hendi upplýsingar um
fyrri útboð og samningsaðila.
Það er varlega áætlað að á is-
landi fari að minnsta kosti fram
700 útboð á ári og að þessi kaup-
vangur velti um 7 til 10 milljörð-
um króna. Útboöi mun veita ís-
lenskum fyrirtækjum góð tæki-
færi til að fylgjast með útboðum
sem fara fram á EES-svæðinu.
Steiht er aö beintengingu viö
upplýsingabanka í Lúxemborg.
Skýrr mun annast rekstur Út-
boða í samstarfi viö Rikiskaup.
Eftir þrjú ár verður starfsemin
endurskoðuð.