Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1994, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1994, Blaðsíða 15
FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1994 15 Vinnusvæði við gatna- og vegagerð: Fækkum slysum -merkjumbetur Mikiö er rætt um óhöpp og slys í umferðinni. Þorsteinn Pálsson dómsmálaráðherra hefur sett fram það markmið að umferðaróhöpp- um fækki um fjórðung á næstu árum. Vinna þarf skipulega að fækkun óhappa til þess að ná þessu markmiði. Ymislegt hefur þokast í rétta átt. Nýframkvæmdir og viðhald Nú fer í hönd sá tími sem viðhald og nýfrcunkvæmdir gatna og vega standa sem hæst. Lengi hefur mér þótt sem merkingar framkvæmda- aðila hér á landi væru alisendis ófullnægjandi, reyndar svo að mik- il hætta stafar af. Við sem störfum við tjónamál hjá vátryggingarfé- lögunum teljum að oft megi rekja óhöpp til lélegra og/eða takmark- aðra merkinga eða viðvarana. Sé KjaUaiiim Pétur Már Jónsson deildarstjóri „Hér í Reykjavík þekkjum við tilvik þar sem vinnuvélar eru að verki jafnvel án nokkurra merkinga, akreinum er lok- að án nokkurs aðdraganda... “ Utið til nágranna okkar annars staðar á Norðurlöndunum verður að segjast að þessi mál eru tekin allt öðrum og betri tökum þar. Þar er ekki liðið annað en slíkir kaflar séu vandlega merktir. Ekki verður séð að síður sé þörfgóðra aðvarana hér á landi þar sem aðstæður eru iðulega erfiðar. Ákvæði um merkingar Séu umferðarlög skoðuð stendur í 86. gr. þeirra: „Þar sem vegavinna fer fram eða vegi er raskað af öðr- um ástæðum, þannig að hætta stafi af, er þeim, sem stjómar verki, skylt aö sjá um, að staðurinn verði merktur á fuilnægjandi hátt.“ í reglugerð um umferðarmerki og notkun þeirra er í örstuttu máli fjallað um merki sem kallast A17 og ber að nota þegar nauðsynlegt þykir að benda á stað þar sem unn- ið er að framkvæmdum á vegi. Ófullnægjandi merkingar Flestöll þekkjum við dæmi um engar, litlar og lélegar merkingar framkvæmdaaðila hér á landi sem oftast eru látnar átölulausar af lög- reglu og verkbeiðendum sem oftast eru sveitarfélög eða Vegagerð ríkis- Greinarhöfundur telur nauðsyn á skýrari og afdráttarlausari ákvæðum um viðvörunarmerki þar sem staðið er að gatna- og vegagerðarfram- kvæmdum. ins. Ennfremur eru merkingar ekki síður ófufinægjandi þegar þessir aðilar standa sjálfir að fram- kvæmdunum. Hér í Reykjavík þekkjum við tilvik þar sem vinnu- vélar eru að verki jafnvel án nokk- urra merkinga, akreinum er lokað án nokkurs aðdraganda, menn að verki úti á vegi eða götu án merk- inga og þannig mætti lengi telja. Þetta á einnig við um framkvæmd- ir og viðhald úti á landi. Skýrari ákvæði í reglugerð Hér verðum við að gera stóra bragarbót á hið allra fyrsta. Látum ekki framkvæmdatímabil það sem nú er hafið líða án þess. Ég vil hvetja alla aðila til þess að taka höndum saman og koma þessum málum í gott horf nú þegar. Þar má enginn vera undanskilinn; verktakar, sveitarfélög, Vegagerð ríkisins og allur almenningur. Ég vil hvetja fólk til þess að láta í sér heyra um þessi mál ef það verður vart við ófullnægjandi merkingar. Hafið samband við viðkomandi sveitarfélag, vegagerðina, verktak- ana eða við lögreglu og berið fram kvartanir og ábendingar. Til þess að unnt sé að framfylgja góðum og vönduðum merkingum eftir er nauðsynlegt að setja skýr- ari og afdráttarlausari ákvæði í reglugerð um viðvörunarmerki þar sem staðið er að framkvæmdum í gatna- og vegagerð. Ég vil skora á dómsmálaráðherra að beita sér fyrir að slík ákvæði verði sett hið fyrsta. Pétur Már Jónsson Meooc 1 ámóti Bæjarábyrð til fiskkaupa Skylda allra að reyna að skapa atvinnu Mín rök fyr- ir ágæti þess að fá bæjar- ábyrgð á lán tii fiskkaupa af Rússum eru að sjálf- sögöu þau að hér er ríkj- SigurðurT.Sig* andi atvinnu- urösson, formaður leysi. Það er Verkamannafélags- skylda allra insHlifar að gera það sem þeir geta til aö skapa atvinnu sé þess einhver kostur. Þessi fiskkaup eru bara einn þáttur til þess. Þama er um góðan fisk að ræða sem okkur býðst til kaups í stór minnkandi og raunar stöðugt minnkandi ftskgengd hjá okkur sjálfum. All- ir vita líka aö í því máli eru horf- urnar allt annaö en góðar. Rússa- fiskurinn er nú seidur á viðráð- anlegu verði. Þess vegna eigum við aö taka eins mikið magn og við þurfum til daglegs reksturs fiskvinnslustöðvanna. Viö eigum lika að kaupa fisk af Rússum til að nota síðsumars og í byrjun hausts vegna þess að þaö er göm- ul saga og ný hjá okkur aö þá tregðast fiskiríið. Með því að eiga Rússafisk á lager getum við hald- ið uppi atvinnu ffarn á haustið. Ég er vissulega ánægður með bæjarábyrgð fyrir kaupum á 1.000 lestum af Rússafiski. En við hefðum átt að vera stórtækari. Ég heíði viljaö kaupa 2.000 lestir til geymslu. Þó er eitt að varast og það er að vera ekki svo frekir tii kaupanna aö það hækki verðlð á Rússafiskinum. Varðandi bæj- aráby rgð á láni til kaupa á Rússa- fiski þá tel ég enga áhættu í þvi fólgna. II m hulda dóma hagstjórnartækja Það vakti sannarlega furðu mína þegar é heyrði í fréttum frá virtri stofnun að þjóðarbúskapur okkar væri í góðu lagi en svo var eins og fyrir tilviljun bætt við að atvinnu- leysi færi síst minnkandi og talan 7000 nefnd í því tilviki. Nú veit ég að hagfræðilegur mælikvarði á þjóðhagsstærðir er afar framandi okkur venjulegu fólki en ég hélt þó að atvinnuástand væi svo snar þáttur þjóðarbúskap- ar í þess orðs fyllstu merkingu að hann væri síður en svo í góðu lagi með svo geigvænlegt atvinnuleysi innanborðs. Grunur læðist að Getur virkilega verið að hinar villtu og mér liggur viö að segja villimannlegu kenningar ftjáls- hyggjunnar um gæði atvinnuleysis séu famar að gegnsýra hugarfar manna allt upp í hæstu stöður? Sá grunur læðist að við þessar fréttir. Atvinnuleysi sem æskilegt hag- stjómartæki til að halda niðri launakjönun fólks er auðvitað þekkt fyrirbæri úr forðabúri fijáls- hyggjupostula, en ég var að vona að svo fjarstæðukennd fim hefðu ekki heltekið virtustu og bestu embættismenn. En nóg um það. KjaJlariim Helgi Seljan félagsmálafulltrúi ÖBÍ Þjóðarbúskapur birtist í ýmsu myndum og ólíkum, ekki síst þegar illa árar og það er greinilegt nú þar sem innri sem ytri óáran leggjast á eitt og sú innri ekki síður. Hér á bæ verðum við t.d. vör þess mikla atvinnuleysis sem í engu sér fyrir endann á enda sáralítið gert til þess að draga þar úr með raun- hæfum og markvissum aðgerðum svo aftur læðist að sá ljóti grunur aö einhveijum þyki hér um heilla- vænlegt hagstjómartæki aö ræða. Við verðum ekki vör þess að þessi vá bitni miklu harðar á öryrkjum en öðmm enn sem komið er. Hins vegar vitum við af reynslu annarra þjóða að viðvarandi almennt at- vinnuleysi kemur hart við öryrkja fyrr en síðar og því ber okkur að hafa á fulla gát og þann vamað sem frekast er unnt. 560 umsækjendur Á ýmsan hátt annan segir óáran- in í þjóðfélaginu til sín og hvergi þá eins og í húsnæðismálum. Fyrir tveim árum var hjá Húsasjóði Ör- yrkjabandalagsins biðlisti sem nam 360 umsækjendum um hús- næði. Síðan hafa býsna margar íbúðir nýjar verið í notkun teknar, en á haustdögum í fyrra vom um- sækjendur sem biðu 460 og nú síð- ustu vikur hefur svo um þverbak keyrt að nú munu umsækjendur vera um 560 og dag hvem bætist við. - Og allt em þetta umsóknir fólks sem er í miklum vandræðum, allt yfir í hreina neyð. Afar stór hluti þessa fólks er geðfatlaður. Þessi óhugnanlegi biðlisti segir meira um þjóðarbúskapinn heldur en margar lærðar tölur hagspek- inganna. Er ekki kominn tími til að valdsmenn líti til þessara hluta og freisti þess að lagfæra það sem í þeirra valdi stendur? Eða er hús- næðisleysi máski hagstjómartæki sem gott er að hafa í handraða? Helgi Seljan Sveitarfélög- unum er það óheimilt Vai'ðandi ábyrgðir sveitarfélaga á Iánum til kaupa á fiski vil vil ég taka fram að í fyrsta lagi tel ég að sveitar- félögum sé óheimilt að veita slikar v ■ ábyrgöir. Vísa ég í því efhi tíl 89. gr. sveitarstjómarlaga. Þar kem- ur fram meðal annars að ekki megi binda sveitarsjóð við sjálf- skuldarábyrgð á skuldbindingum annarra aðila en stofnana sveit- arfélagsins. Einnig kemur þar fram að sveitarstjóm verði aö fá tryggíngar fyrir einlöldum ábyrgðum sem hún veitir. Aö óbreyttum lögum viröist mér því sem sveitarfélög geti ekki ábyrgst fiskkaup með þeim hætti sem hér umræöir. í öðra lagitelég slíkar ábyrgðir varhugaverðar og geta leitt til pólitískrar spillingar. Hver á að njóta ábyrgöar og hver ekki? Eft- ir hverju veröur farið við ákvarð- anir um veitingu þeirra? Þá tel ég, aö sveitarstjórnir eigi almennt séð ekki aö skipta sér afstarfsemi sem einstaklingar geta vel sinnt. Annað skekkir samkeppnisstöðu atvinnufyrirtækja i eigu einstakl- inga og/eða samtaka þeura. „Atvinniileysi sem æskilegt hagstjórn- artæki til aö halda niöri launakjörum fólks er auövitað þekkt fyrirbæri úr forðabúrifrjálshyggjupostula... “ Hreinn Loftsson lögmaður

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.