Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1994, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1994, Side 28
44 FÖSTUDAGUR 27. MAl 1994 Víðast léttskýjað Pétur H. Blöndai. Viðerum fjárhirðar „Viö, hvert um sig, erum einnig fjárhirðar. Féð er mismikið, sum- ir reka mikið féð en aðrir minna. Við gætum fjárins, rekum það í góða haga (góða vexti) forðum þvi frá ógöngum (slæmri fjárfest- ingu) og björgum því frá ræning- um,“ segir Pétur H. Blöndal, doktor í stærðfærði, í grein í Mogganum í fyrradag. Ummæli Peningar í vörslu vandalausra „Æ fleiri peningar eru losaðir úr umsjá eigenda sinna með laga- boði og settir í vörslu vanda- lausra. Þetta eru alls konar sjóðir í vörslu hins opinbera, hjá at- vinnulífinu, verkalýðshreyfing- unni, stórum bönkum ‘og alþjóð- legum stofnunum," segir Pétur í sömu grein og bankaráðsmaður- inn í íslandsbanka bætir við: „Ríkissjóður. Embættismenn og ráðherrar flytja til og ráðskast með stóran hluta af afrakstri þjóðarinnar, setja féð í Kröflur og Blöndur, jarðgöng og flug- stöðvar, búa til Atvinnuleysis- tryggingasjóð, sértækar ráðstaf- anir og guð má vita hvað. Sauð- unum væri betur borgið sjálfala." Á flótta undan ræningjum „Verst er hirt um það fé, sem smalað er til útlanda í alþjóðlega sjóði og samtök. Það reikar um gróðurvana eyðimerkur á eirðar- lausum flótta undan ræningjum. „Hirðamir" stinga mörgu lamb- inu í eigin vasa og eigandinn er víðs fjarri," segir Pétur í fyrr- nefndri grein en henni lýkur með þessum orðum: „Góðu hirðarnir ■ finnast, sé þess gætt að eigandinn geti og muni bta til með eign sinni og að hirðirinn beri ábyrgð gagn- vart eigandanum." Nauðganir fyrir allra fótum „Það er alls konar ofbeldi í gangi. Það hafa til dæmis verið framdar nauðgamr í miðbænum eiginlega fyrir allra fótum. Ég kann engar einhlítar skýringar á þessu. Hins vegar held ég að þetta „opna“ ofbeldi, sem framið er fyr- ir allra augum, sé merki um mjög mikla vanlíðan hjá þeim sem fremur það,“ sagði Guðrún Jóns- dóttir, félagsráðgjafi og starfs- kona hjá Stígamótum, í viðtah viö DV í gær. Lokafundur ITC Melkorku Lokafundur ITC Melkorku verður haldinn í kvöld, föstudag- Fundir inn 27. mal Fundurinn hefst kl. 20 en fundarstaöurinn er „Hjá Kim“. Stef fundarins er: Nýir siðir fylgja nýjum herrum. Hæg vestlæg eða norðvestlæg átt, gola eða kaldi verður víðast hvar á landinu í dag, sums staðar smáskúr- Veðrið í dag ir, einkum síðdegis en annars víðast léttskýjað. Hiti víða 8—11 stig í dag en kaldara i nótt. Á höfuðborgar- svæðinu verður hæg breytileg eða vestlæg átt, skýjað með köflum eða léttskýjað. Hiti 8-10 stig í dag en 4-6 stig í nótt. Sólarlag í Reykjavík: 23.15. Sólarupprás á morgun: 3.34. Síðdegisflóð í Reykjavík 20.13. Árdegisflóð á morgun: 8.37. Heimild: Almanak Háskólans. Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri skýjað 9 Egilsstaðir skýjað 5 Galtarviti súld 7 Kefla víkurflugvöUur úrkoma 8 Kirkjubæjarklaustur léttskýjað 7 Raufarhöfn skýjað 7 Reykjavík skýjað 7 Vestmannaeyjar léttskýjað 7 Bergen léttskýjað 7 Helsinki léttskýjað 8 Kaupmannahöfn rigning 9 Ósló léttskýjað 9 Stokkhólmur léttskýjað 8 Þórshöfn skýjað 7 Amsterdam skýjað 9 Barcelona skýjað 17 Berlín skýjað 10 Chicago heiðskírt 3 Feneyjar hálfskýjað 17 Frankfurt rigning 12 Glasgow skýjað 5 Hamborg skýjað 9 London léttskýjað 8 LosAngeles heiðskirt 15 Lúxemborg alskýjað 9 Madríd léttskýjað 11 Malaga léttskýjað 17 MaUorca skýjað 20 New York skýjað 19 Nuuk skýjað 7 Orlando heiðskírt 21 París skýjað 9 Róm þokumóöa 19 Valencía skýjað 19 Vín rigning 15 Washington alskýjaö 19 Winnipeg heiðskírt 12 Veðrið kl. 6 i morgun Kjartan Kristjánsson, gleraugnasaii og hlaupari: Suðumesjamara þoní „Suðumesjamaraþonið kom þannig til að ég hef sjálfur verið að taka þátt í almenningshlaupum á höfuðtiorgarsvæöinu. Mér fannst frekar leiðinlegt til þess að vita að hér á Suðumesjum væri ekki boðið upp á nein hlaup fyrir almenning og þvi datt mér í hug að reyna aö bæta úr því á þessu svæði," segir Kjartan Kristjánsson, gleraugna- Maður dagsins sali og hlaupari, sem í sumar ætlar að standa fyrir þvi nýmæli að koma á maraþonhlaupi á Suöumesjum. „Ég hleyp 10-15 kflómetra í hverju hádegi og hef komist aö því að á Suðurnesjum eru margar ein- staklega góðar hlaupaleiöir. Það er ekki síst gott að hlaupa við sjávar- Kjartan Kristjánsson. síðuna og flnna hreina loftið,“ segir Kjartan en hann hefur fengið nokkra aðra „gamla" hlaupagikki til liös við sig vegna framkvæmdar hlaupsins. Þeir eru ennfremur í samstarfi við Ungmennafélag Keflavíkur en tímaverðir munu koma úr Reykjavík. Hlaupið verður 3. júlí og verður lagt af staö frá Gleraugnaverslun Keflavíkur í Hafnargötu. Þátttakendur geta valið um þrjár vegalengdir, 3,5, 10 eða 25 km. Kjartan segir erfitt að gera sér grein fyrir fjölda þátttakenda en bætir við að þeir muni stefna að því að fá allt að þúsund manns tíl að hlaupa. Kjartan er annar eigenda Gler- augnaverslunar Keflavíkur sem er annar aðalstyrktaraðli hlaupsins ásamt Sparisjóði Keflavíkur. -ÆMK Myndgátan Lausn gátu nr. 927: Réttir úr kútnum Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði. Fram og ÍA í Laugar- dalnum Einn leikur fer fram í Trópí- deildinni í knattspyrnu í kvöld. Fram og ÍA mætast á aðalleik- vanginum í Laugardal og hefst viðureignin kl. 20. í 2. deild eru þrír leikir. KA og Víkingur leika fyrir norðan, HK og Þróttur R. í Kópavogi og IR og Grindavík í Breiðholtinu. Þá eru fimm leikir í 3. deild og tveir í 4. deild. Skák Judit Polgar náöi glæsilegum árangri á alþjóðlegu móti í Madríd fyrir skemmstu. Hún hlaut 7 v. af níu mögulegum og haíði tryggt sér sigurinn er einni tunferð var ólokið. Þetta var sterkt mót, af 16. styrk- leikaflokki FIDE. Ivan Sokolov hreppti 2. sætið með 5,5 v., Kamsky, Sírov og II- lescas fengu 5 v., Salov og Tivjakov 4,5, Magem 3,5, Bareev og San Segundo fengu 2,5 v. Þessi staða er úr skák Judittar, sem haföi hvítt og átti leik, og Tivjakovs: 37. Bxc4 bxc4 38. De5+ Kg8 39. Be3! Hótar 40. Bh6. 39. - 0S 40. Df4 Kf8 Annars kæmi 41. Dh6 með máti. 41. Hxh7 Ke8 42. Dh6 og svartur gafst upp. Jón L. Árnason Bridge Norski bridgespilarinn Stein S. Aker hóf á síðasta ári að gefa út skemmtilegt bridgetimarit sem kallast European Bridge (Europæisk bridge á norsku). Rit- ið kemur út nokkrum sinnum á ári og samanstendur af greinum margra höf- unda, þar eru nöfn margra af frægustu spilurum heims. Einn þeirra er Pakistan- inn Zia Mahmood. Hann segir frá spili í nýjasta tölublaðinu þar sem vinur hans og félagi, Omar Sharif, fór illa með hann í bridgekeppni. Sagnir enduðu í óheppi- legum samningi, þremur gröndum þegar 4 hjörtu hefðu verið mun betri samning- ur. Suður gjafari og enginn á hættu: ♦ 843 V G6 ♦ D108753 + Á6 Suður Vestur Norður Austur Zia Chemla Granov. Sharif 1+ Pass 1? Pass 1 G Pass 3* Pass 3 G p/h Frakkinn Paul Chemla fann mjög gott útspil, tígulníuna út í upphafi, Sharif setti drottninguna og Zia átti slaginn á kóng. Hann spilaði nú hjarta á kóng og spilaði síðan lágu laufi úr blindum. Sharif fór strax upp með ás og spilaði tígultíunni. Zia lagðist undir feld og reyndi að gera sér grein fyrir tígulstöðunni. Hvort hatði Chemla spilað út frá Á9x eða var Omar Sharif með ÁD10x(x) í tígli? Zia átti erfitt með að komast að niðurstöðu hvort var Uklegra en hélt aö líkumar væru með því síöamefnda. Hann setti því gosann á tíu Sharifs og vömin tók næstu 5 slagi og spiUð fór 3 niður. Zia minntist orða einhvers í lok spilsins sem sagði um Sha- rif að hann hefði ýmislegt fleira til að bera en útUtið, enda er leikarinn frægi talinn með slyngari spUurum. ísak Örn Sigurösson * Á765 V 98 ♦ Á92 + 10943 * G92 V KD1( ♦ 4 + KG8 N V A S ♦ KDK V Á732 ♦ KG6 + D72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.