Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1994, Síða 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
3.000 krónur.
Ritstjóm - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 63 2700
Veðriö á morgun:
Víðast
kaldi
Vestlæg átt, víðast kaldi. Skúrir
um landið norðan- og vestanvert
en léttskýjað austan til. Hiti verð-
ur á bilinu 6-11 stig, hlýjast í inn-
sveitum austanlands.
Veðrið í dag er á bls. 44
LOKI
Égferað halda
að mittatkvæði
ráði barasta útslitum!
Stöð 2:
Sigurjón
líklegasti
kaupandinn
Samkvæmt heimildum DV eru
sterkar likur á þvi að Sigurjón Sig-
hvatsson, kvikmyndaframleiðandi í
Hollywood, hafi verið stóri kaupand-
inn í hlutabréfum Stöðvar 2. Búið er
að kaupa hlutabréf fyrir 120 milljónir
króna og talið að Sigurjón eigi
stærstan hluta af því. Sé þetta rétt
er Sigurjón orðinn langstærsti hlut-
hafinn í íslenska útvarpsfélaginu
með um 16% hiut. Næstur kemur
Jón Ólafsson og félagar með 13%
hlut. Sömu heimildir DV herma að
hlutabréfakaupunum sé ekki lokið
og verði jafnvel meira keypt í dag eða
eftir helgi.
Ekki hefur tekist að hafa uppi á
Sigurjóni Sighvatssyni sem er í stíf-
um fúndahöldum í Kanada fyrir fyr-
irtæki sitt, Propaganda fúms. Ekki
er ljóst hvort um er að ræða Sigurjón
sjáífan eða hvort hann er með er-
lenda aðila með sér í kaupunum.
Eins og DV skýrði frá í gær voru
erlendir aðilar taldir líklegir þá sem
kaupendur en sökum þess hve kaup-
in hafa verið stór og að íslenska út-
varpsfélagið er á opna tilboðsmark-
aönum þá þyrfti íslenskan „lepp“ svo
kaupin væru lögleg.
Þeir forráðamenn íslenska út-
varpsfélagsins og stærstu hluthafar
sem DV ræddi við í gærkvöld og í
morgun vildu ekki kannast við að
Sigurjón væri fkaupandinn og sögð-
ust ekki enn vita hver hann væri.
Jóhannavill Guð-
mundÁrnasem
varaformann
Eins og skýrt var frá í DV í gær
undirbýr Jóhanna Sigurðardóttir fé-
lagsmálaráðherra nú framboð sitt til
formennsku í Alþýðuflokknum á
flokksþinginu í júní.
DV hefur heimildir fyrir því að
Jóhanna vilji fá Guðmund Árna Stef-
ánsson, heilbrigðis- og tryggingaráð-
herra, með sér sem varaformann.
Þetta hefur verið nefnt við Guðmund
Áma en hann hvorki svarað af né á
enn sem komið er.
Gallup-könnun
í skoðanakönnun sem ÍM-Gallup
gerði í vikunnni fyrir Ríkisútvarpið
nýtur R-listinn 51,6 prósenta fylgis
og D-listinn 48,4 prósenta fylgis með-
al kjósenda í Reykjavík. Úrtak ÍM-
Gallups var 1200 manns, tilviljunar-
úrtak úr þjóðskrá, en nettósvörun
var rúmlega 70 prósent.
NSK
KÚLULEGUR
Vouisen
Suóurlandsbraut 10. S. 680499.
Ingibjörg Sólrún:
Hvert atkvæði
skiptir máli
„Þetta er bara ein könnunin enn
sem staðfestir það að þetta er allt
saman mjög tæpt og getur í rauninni
““farið á hvorn veginn sem er þannig
að hvert einasta atkvæði skiptir máh
í þessum kosningum. Það mun ekki
skýrast fyrr en að leikslokum hvem-
ig landið liggur,“ sagði Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, borgarstjóraefni
Reykjavíkurlistans, í morgun um
niðurstöður skoðanakönnunar DV
sem birtist í blaðinu í dag.
Ámi Sigfusson:
Hvetjum f ólk
til að kjósa
„Staðan er mjög jöfn. Okkur hefur
'tekist að fara úr 37 prósentum í jafna
stöðu og það er augljóst að hvert at-
kvæði skiptir sköpum. Við munum
að sjálfsögðu hvetja stuðningsmenn
Sjálfstæðisflokksins, D-listans, til að
mæta á kjörstað og leggjum mikla
áherslu á að enginn okkar stuðnings-
manna sitji heima,“ segir Ámi Sig-
fússon, borgarstjóraefni Sjálfstæðis-
flokksins, um niðurstöður skoðana-
könnunar DV.
Holland:
Gleymdi að
senda utankjör-
staðaratkvæð-
in til íslands
Eypór Eðvaxösson, DV, HoUandi:
Margir garðeigendur velja sér sumarblóm til að prýða garða sína um þessar mundir. Olafía og Ester eru um-
kringdar ilmandi blómahafi og reyna að finna sér eitthvað við hæfi í garðana sina. DV-mynd GVA
Svo getur farið að atkvæðaseðlar
þeirra íslendinga sem greiddu utan-
kjörstaðaratkvæði í Amsterdam í
Hollandi 16. maí sl. í sveitarstjórnar-
kosningunum nái ekki í tæka tíð til
íslands.
Lögum samkvæmt ber hverjum
manni sem kýs erlendis að sjá um
að atkvæði hans komist heim. Ræðis-
maður íslands í Amsterdam, sem sá
um utankjörstaðaratkvæðagreiðsl-
una, lofaði hins vegar að sjá til þess
að senda atkvæðin til íslands eins
og alltaf áður. Hann hefði átt að
senda þau til sendiráðsins í London
sem síðan hefði séð um að koma þeim
heim.
Nú hefur komið í ljós að ræðismað-
urinn hefur gleymt að senda at-
kvæðaseðlana. Það verður hins veg-
ar gert í dag og því óvíst að öll at-
kvæðin komist í tæka tlð vegna þess
að auðvitað dreifast þau á kjörstaði
um allt land.
Tveir ávítaðir
m oinn rekinn
l# j vil Hi E ■ vbiII ■■ ■
Tryggíngastofhun ríkisins hefur
ávítað tvo tannlækna, sem eru
samningsbundnir stofnuninni,
harkalega og rekið einn tannlækni
úr viðskiptum víð stofnunina. Að-
gerðirnar eru til komnar eftir að
upp komst að þeir misnotuðu að-
stöðu sína og sendu inn óvenjuháa
reikninga fyrir tannviðgerðir á
börnum, öryrkjum og lífeyrisþeg-
um sem fá endurgreiddar tannvið-
gerðir samkvæmt lögum.
Samkvæmt upplýsingum DV er
Tryggingastofnun með fleiri tann-
lækna, sem grunaðir eru um að
liafa misnotaö gjaldskrá stofnunar-
innar, í athugun en einblínt er á
þá setn fengiö hafa háar endur-
greiðslur frá stofnuninni. Sam-
kvæmt sömu heimildum er um
verulegar Qárhæðir að ræöa og
kanna sérfræðingar nú reiknings-
gerð tannlækna og til athugunar
er hvort ástæða sé tii að höfða mál
gegn þeim tannlæknum sem brotið
: hafa samninginn. Á seinasta ári
námu greiðslur Tryggingastofnun-
ar ríkisins til tannlækna rúmlega
677 milljónum króna en tæplega
mOljarði árið áöur.
Samráðsnefnd Tannlæknafélags-
ins og tannlækna átti samvinnu um
aðgerðir gegn tannlæknunum
þremur sem um getur en rannsókn
á viðskiptum fleiri tannlækna er
ekki i samvinnu við félagið, segir
Jón Ásgeir Eyjólfsson, formaður
Tannlæknafélagsins.
Heimildir DV segja það „með
ólikindum" á hvaða hátt gjaldskrá-
in hafi verið misnotuð af sumum
aðilum. Eftir því sem DV kemst
næst eru grunsemdir um að ein-
staka tannlæknar hafl gert við
tennur foreldra og svo skrifað
reikninginn á nafn barnanna.
Einnig eru grunsemdir um
„oftækningar" á tönnum, það er að
einliverjir tamúæknar hafi gert við
tennur f bömum semekkiþörfnuð-
ust viðgerðar.
Samkvæmt samningi Trygginga-
stofnunar og tamúækna greiðir
Tryggingastofnun 75 prósent af
taimviðgerðum grmmskólabarna
að 15 ára aldri og 50 prósent af
tannviðgerðum 16 ára unglinga. Þá
eru greidd 75 prosent af tannvið-
gerðum öryrkja og lifeyrisþega,
sem njóta óskertrar tekjutrygging-
ar, og 50 prósent af tannviðgerðum
lífeyrisþega sem njóta skertrar
tekjutryggingar.
Jón Ásgeir segir að þeir tann-
læknar sem áminntir voru hafi
borið við að reikningseyöublöð sem
skilað er tú Tryggingastofnunar
hafi verið ófullkomin og gætt hafi
nússkilnings við útfyllingu þeirra.
Frjálst,óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1994.