Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1994, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1994
11
Ný plata er væntanleg frá Björk á
næsta ári. Hún verður orkumeiri en
sú fyrri, að sögn söngkonunnar.
maður fer upp á svið á maður að
vera maður sjálfur. Ef maöur er eitt-
hvað að „performera" þá getur mað-
ur alveg eins farið að vinna í fiski.“
Ekkertvit
í málaferlunum
- Koma margir með lög til þín og
biðja þig að syngja?
„Það er náttúrlega voðalega mikið
af því. Það er fólk úr öllum áttum sem
kemur til mín. Það eru fatahönnuðir,
kvikmyndagerðarmenn, fólk sem er
að stofna matreiðslustaði, fólk sem
er að byija með útvarpsþætti, fólk
sem framleiðir mat eða bara hvað
sem er. Mér finnst mjög gaman að
þessu en ég geri mjög lítið að þvi að
taka þessum tilboðum. Ég hef ákveð-
iö að einbeita mér aö einhveiju einu
og gera þaö vel í stað þess að vera
að dreifa athyglinni.“
- Hvernig standa málin í sambandi
við títtnefndan Lovejoy sem sagði þig
hafa stolið af sér lögum á sínum
tíma?
„Hann er löngu búinn að tapa mál-
inu enda ekkert vit í því sem hann
var að segja. Þetta á bara eftir að
velkjast um í dómsölum Bretlands í
nokkur ár. Þetta er allt tilkomið af
lögum sem eru í gangi hér í landi því
ef þú átt engan pening þá borga yfir-
völd alla þá lagaaðstoð sem þú þarft.
Þetta eru ágæt lög og virka örugglega
í 90 prósent tilvika, en svo koma
dæmi eins og þetta sem grafa undan
lögunum. Maöur verður bara að taka
því.“
Það er fleira
til en fiskur
- HvaðalífsspekifylgirsíðanBjörk
Guðmundsdóttir?
„Æth það sé ekki bara gamla Syk-
urmolaspekin Life’s too Good.“
- Hvernig finnst þér að íslendingar
ættu að halda upp á 50 ára lýðveldis-
afmæhö?
„Mér finnst að þeir ættu að líta til
baka og endurskoða atvinnulífið. Það
er fleira til en fiskur. Svo held ég að
mikið myndi breytast ef flugfargjöld
myndu lækka um 50 prósent. Við
þurfum að hætta að einangra okkur
svona.“
- HvererdraumastaðaneftirlOár?
„Ef ég verð enn í þeirri frábæru
aðstöðu að geta samið og gefið út
mína eigin tónlist verð ég mjög
ánægð."
Með þessum orðum kveðjum við
Björk Guðmundsdóttur og óskum
henni góðrar ferðar hingað heim.
Það verða eflaust margir fleiri en ég
sem hlakka til að sjá hana í Laugar-
dalshölhnni.
-GBG
Sannkallað fólksbílaverð!
Stadalbúnaður í
Daihatsu Feroza
94
Vökvastýrí
Læst afturdríf
Dríflokur
Veltistýrí
Stafræn klukka
Hallamælir
Voltmælir
Bensínlok
opnanlegt innanfrá
Hiti í afturrúðu
Þurrka á afturrúðu
Litað gler
Veltibogi
Aftursætisbak fellanlegt
og skipt
o. m. fl.
Reynsluakstur!
Bíll á staðnum til reynsluaksturs
50% afsláttur af
lúxuspakka fyrir þð
sem panta ffyrir 31.
maí '94. Innifalið i
þeim pakka er:
Rafknúnar rúður
Rafknúnir speglar
Samlæsing
Þriggja þrepa demparar
Sportsæti með plussáklæði
Sjálfvirkar driflokur
Tvílit yfirbygging
Áður: 50.000 kr.
ALLTAÐ 1 Nú: Ll.Ut
60 ^Notaðir^ bíiar
MÁN teknir
LÁN 1 uppí nýja J
FAXAFENI8 • SIMI 91- 68 58 70