Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1994, Side 12
12
LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1994
Erlend bóksjá
Metsölukiljur
Bretland
Skátdsögur:
1. Jitly Cooper:
The Man Who Made Hus-
bands Jeatous.
2. John le Carré:
The Night Manager.
3. Thomas Keneally:
Schindler's Ust.
4. Jack Higgins:
Thunder Point.
5. Jeffrey Archer:
Honour among Thieves.
6. Vikram Seth:
A Suitable Boy.
7. Jackie Cottins:
American Star.
8. James Clavell:
Gal-Jin.
9. P.D. James:
The Children of Men.
10. Catherine Cookson:
The Year of the Virgins.
Rit almertns eðlis:
1. J. McCarthy & J. Morrell:
Some Other Rainbow.
2. Jung Chang:
Wild Swans.
4. Alan Clark:
Diaries.
3. Blake Morríson:
And When Did You Last See
Your Father?
5. Brian Keenan:
An Evil Cradling.
6. William Dalrymple:
City of Djinns-
7. Margaret Forster:
Daphne du Maurier.
8. IMick Hornby:
Fever Pitch.
9. Gordon West:
Jogging round Majorca.
10. Ros Asquith:
I Was a Teenage Worrier.
(Byggt á The Sunday Times)
Danmörk
Skáldsögur:
1. Peter Hoeg:
Froken Smillas
fornemmelse for sne.
2. Kirsten Thorup:
Den yderste graense.
3. Jorn Ríel:
Satans til Higgenbottom.
4. Donna Tartt:
Den hemmelige historie.
5. Amy Tan:
Kokkengudens hustru.
6. Dan Turéll:
Vrangede billeder.
7. John Grisham:
Pelikan Notatet.
(Byggt á Politiken Sendag)
Lokabók um
Hari Seldon
Isaac Asimov var einn af risunum
í heimi svonefndra vísindaskáld-
sagna á þessari öld. Hann var ekki
aðeins með aiburðum afkastamikill
rithöfundur heldur líka frumlegur
og hugmyndaríkur sögumaður.
Asimov, sem lést fyrir skömmu,
fæddist í Rússlandi en fluttist ungur
vestur um haf og varð bandarískur
ríkisborgari átta ára að aldri. Hann
hóf snemma að skrifa annars vegar
fræðirit fyrir almenning og hins veg-
ar vísindasmásögur og skáldsögur.
Ýmsar af bestu sögum hans voru
skrifaðar á fimmta og sjötta áratug
aldarinnar.
Af skáldsögum Asimovs eru tveir
söguflokkar merkastir og langvin-
sælastir. Annars vegar eru það vél-
mennasögurnar svonefndu, en í
þeim fór Asimov ótroðnar slóðir.
Hins vegar sagnaröðin um „sálar-
sagnfræðinginn" Hari Seldon og til-
raunir hans til að stýra þróun sög-
unnar í þúsund ár.
Skipulögð en
dulin handleiösla
Fyrsta sagan í þessari röð birtist
árið 1951 og hét einfaldlega „Found-
ation" - en við það nafn er öll sagna-
röðin kennd. Tvær sögur komu
skjótt á eftir: „Foundation and Emp-
ire“ árið 1952 og „Second Foundati-
on“ ári síðar, 1953.
í þessum verkum lýsir Asimov erf-
iðum tímum í langri sögu vetrar-
brautarinnar og tilraunum fræði-
mannsins Hari Seldons til að stytta
sem verða má það tímabil stjórnleys-
Umsjón
Elías Snæland Jónsson
is og ómenningar sem augljóslega
virðist framundan. Leið hans að
þessu marki er svokölluð „sálarsagn-
fræði“ sem hann felur tveimur hóp-
um vísindamanna til varðveislu um
ókomnar aldir. Annar hópurinn
byggir starf sitt á raunvísindum.
Hinn þróast í gjörólíka átt - leggur
áherslu á afl hugarorkunnar til að
hafa áhrif á gang mála. Sá hópur
starfar með mikilli leynd og veitir
mannkyninu dulda handleiðslu á
erfiðum tímum.
Þráðurinn
tekinn upp að nýju
Þegar þriðja „Foundation-sagan“
hafði birst árið 1953 lagði Asimov
þetta forvitnilega viðfangsefni til
hliðar um áratuga skeið og sinnti
öðrum ritstörfum.
Nærri þrjátíu árum síðar tók hann
svo upp þráðinn að nýju og skrifaði
nýjar sögur um Hari Seldon, verk
hans og arftaka. Fyrst kom „Found-
ation’s Edge“ árið 1982, „Foundation
and Earth“ árið 1986 og „Prelude to
Foundation" árið 1988.
Og nú hefur sjöunda sagan séð
dagsins ljós að Asimov látnum -
„Forward the Foundation."
Þessi síðasta „Foundation-saga“
fjallar ítarlega um ævi og störf Hari
Seldon sem var nánast goðsagnaper-
sóna í fyrstu bókunum. Hér reynir
Asimov að skýra betur daglegt líf
hans og tilurð „sálarsagnfræðinnar"
margnefndu.
Þessi síðasta skáldsaga Asimovs er
á margan hátt forvitnileg fyrir þá
sem á annað borð hafa kynnt sér
fyrri verk hans. Hins vegar munu
margir sakna þess hversu lítið fer
fyrir ferskri hugkvæmni eða frum-
legum hugmyndum í sögunni. Og sá
Hari Seldon sem hér birtist er reynd-
ar ekki nema að litlu leyti í samræmi
við þær hugmyndir sem kviknað
hafa við lestur fyrri bókanna.
FORWARD THE FOUNDATION.
Höfundur: Isaac Asimov.
Bantam Books, 1994.
Metsölukiljur
Bandaríkin
Skáldsögur:
1. Mary Higgins Clark:
l'll Ðe Seeing You.
2. Patricia D. Cornwell:
Cruel & Unusual.
3. Dean Koonl/
The Funhouse.
4. Johanna Lindsey:
Surrender My Love.
5. John Grisham:
The Client.
6. Sue Grafton:
,,J" Is for Judgement.
7. Susan Isaacs:
After All These Years.
8. James Clavell:
Gai-Jín.
9. Sandra Brown:
Where there's Smoke.
10. Barbara Kingsolver:
Pígs in Heaven.
11. Belva Plain:
Whispers.
12. Thomas Keneally:
Schindler's List.
13. Catherine Marshall:
Christy.
14. Robert Ludlum:
The Scorpio lllusion.
15. William Diehl:
Primal Fear.
Rit almenns eðlis:
1. Thomas Moore:
Care of the Soul.
2. Bailey White:
Mama Makesup Her Mind.
3. M. Scott Peck:
The Road Less Travelled.
4. Joan W. Anderson:
Where Angels Walk.
5. Maya Angelou:
I KnowwhytheCaged Bird
Sings.
6. Susanna Kaysen:
Girl, Interrupted.
7. Cornel West:
Race Matters.
8. Robert D. Kaplan:
Balkan Ghosts.
9. Deborah Laake:
Secret Ceremontes.
10. Benjamin Hoff:
The Tao of Pooh.
11. Gail Sheehy:
The Silent Passage.
12. Peter Mayle:
A Year in Provence.
13. Deborah Tannen:
You Just Don't Understand.
14. Peter D. Kramer:
Listening to Prozac.
15. Bernie S. Siegel:
Love, Medicine, and
Miracles.
(Byggt á New York Times Book Review)
Vísindi
Eitt af furðuverkum læknisfræðinnar skoðað:
Fékk jámstöng í and-
litið og út um kúpuna
Hauskúpan er úr Phineas Gage og má glögglega sjá gatið á henni þar sem
járnstöngin fór í gegn.
Þyrlaeinsog
kleinuhringur
Bandarísku Sikorsky flugvéla-
verksmiðjumar em um þessar
mundir að gera tilraunir með litla
ómannaða þyrlu sem er í laginu
eins og kieinuhringur. Þyrian er
ekki nema um tveir metrar i
þvermál og vegur rétt rúm
hundrað kíló.
Sem stendur er henni stjómað
með radíósendíngum af jörðu
niðri en vonast er til að hægt
verði að sleppa af henni takinu
og notfæra sér GPS staðsetning-
arkerfið. Þá verða upplýsingar
um áfangastað vélarinnar slegn-
ar inn í tölvukerfi hennar og stað-
setningarkerfið sér um afgang-
iim.
Ný pláneta
við Plútó
Stjamvísindamenn hafa upp-
götvaö litla plánetu í útjaðri sól-
kerfisins okkar, í annað sinn á
tveimur árum. Þessi nýja pláneta
heitir því skemmtílega nafni 1993
FW. Hún er aðeins um tvö hundr-
uð kílómetrar í þvermál, svipað
og dæmigert smástirni, og er 39
til 48 sinnum lengra frá sólinni
en jörðin.
Pláneta þessi er í námunda við
Plútó og þykir tilvist hennar
benda til þess að þar um slóðir
séu ef til vill mílljónir smárra
pláneta.
Umsjón
Guðlaugur Bergmundsson
Þann 13. september 1848 lenti mað-
ur nokkur að nafni Phineas P. Gage
í slysi sem átti eftir að halda nafni
hans á lofti sem furðufyrirbæris inn-
an læknisfræðinnar. Þann dag var
hann að vinna við járnbrautalagn-
ingu á Nýja-Englandi í Bandaríkjun-
um. Þá gerðist það að járnstöng, sem
notuð var til aö þjappa púður, þeytt-
ist í andlit honum eftir sprengingu,
í gegnum hauskúpuna og hátt upp í
loftið.
„Gage rotaðist í augnablik en fékk
fulla meðvitund strax á eftir. Hann
gat talað og jafnvel gengið með að-
stoð manna sinna. Járnið lenti marga
metra í burtu,“ segir í grein sem
nokkrir vísindamenn, þau Hanna og
Antonio Damasio, Thomas
Grabowski og Randall Frank, við
taugalækningadeild háskólans í
Iowa skrifuðu í nýjasta hefti tíma-
ritsins Science.
Gage náði sér líkamlega, greind
hans var óskert og hann hafði fullt
vald á hreyfmgum sínum og máli.
Hann var þó ekki samur maður og
áður eftir slysið. Læknir Gages, John
Harlow, tók fljótlega eftir því að
djúpstæðar breytingar höfðu orðið á
persónuleika hans. Gage, sem var 25
ára þegar hann lenti í slysinu, hafði
veriö ábyrgðarfuUur, skarpur og vel
liöinn í alla staði og hinn nýtasti
þjóðfélagsþegn. En nú sýndi hann
allt í einu ekki neina ábyrgðartilfinn-
ingu og bar ekki virðingu fyrir nein-
um.
Tuttugu árum eftir slysið velti
Harlow því fyrir sér í grein í lækna-
blaði að persónuleikabreytingamar
hefðu orðið vegna meintra skemmda
á fremsta hluta heilans. Læknirinn
setti fram þá kenningu að sá heila-
hluti hefði eingöngu það hlutverk að
skipuleggja og framkvæma félags-
lega viðeigandi og skynsamlega
hegðun.
Vísindamennirnir í Iowa einsettu
sér að kanna þá kenningu með því
að setja slysið á svið með aðstoð nú-
tímatækni og reyna þannig að
ákvarða hvar meiðsli Gages hefðu
verið. Þá mældu þeir höfuðkúpuna
af Gage og járnstöngina, sem eru
varðveittar við Harvard háskóla.
„Áhugi okkar kviknaði út frá þeirri
hugmynd að Gage væri dæmigerður
fyrir ákveðna gerð vitsmunalegra og
hegðunartruflana sem orsakast af
skemmdum á hluta framheilans,"
segir í greininni.
Niðurstöður vísindamannanna eru
þær að meiðslin hafi ekki orðið á
svokölluðu Broca-svæði heilans sem
stjórnar tungumálinu, skilningi og
tjáningu. Þá slapp svæðið sem stjórn-
ar hreyfmgum einnig.
Meiðslin virðast hins vegar vera
hliðstæð þeim sem nú er vitað að
skerða skynsamlega ákvarðanatöku
og tilfmningalíf.
Unglinga-
bólur á
símahlið
Gelgjubólur eru venjulega
tengdar aukinni hormónastarf-
semi í unglingum en læknir
nokkur í Bandaríkjunum fékk
þrjú fremur óvenjuleg fórn-
arlömb bólnanna.
{ fyrsta lagi var um fullorðið
fólk að rasða og í öðru lagi voru
bólurnar bara öðrum megin á
andlitinu, nánar tiltekið á neðri
hluta kinnarinnar, ýmist hægra
eða vinstra megin.
Læknirinn var þó ekki lengi aö
sjá hvaða sjúkdómur var þarna á
ferðinni, nefnilega símafés. Það
kom jú í ljós að sjúklingamir
töluðu mikið í síma í vinnunni
og héldu tólinu þeim megin sem
bólurnar mynduðust.
Mælt er með því að menn
hreinsi símtólið hjá sér einu sinni
á dag með spritti til að drepa allar
bakteríur og koma í veg fyrir
bólumyndun.
Feimin böm
með ofnæmi
Bandarískir sálíræðingar kom-
ust að því fyrir algera tilviljun
að dularfullt samband er rnilli
feimni í börnum og ofnæmis. Sál-
fræðingarnir voru að rannsaka
hvort feimni væri mismikil eftir
aðstæðum hverju sinni eða hvort
hún væri stöðug.
Feimnin reyndist alltaf söm við
sig en sálfræðingarnir sáu einnig
að heymæði og exem voru tvisvar
sinnura algengari l\já feimnum
börnum en ófeimnum.