Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1994, Blaðsíða 20
20
LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1994
Kvikmyndir
Verður Flintstones vinsæl-
asta fjölskylda sumarsins?
Kvlkmyndahetjur sumarsins. John Goodman í hlutverki Fred Flintstone og Arnold Schwarzenegger í hlutverki
harðjaxlsins Harry Tasker í True Lies.
Nú fer í hönd sá tími sem stóru
kvikmyndafyrirtækin í Hollywood
setja á markaðinn þær kvikmyndir
sem mest hefur verið lagt í og eiga
oftar en ekki að bjarga fjárhagnum.
Eins og dæmin sanna getur þetta
: brugðist.
í fyrra rambaði Columbia á barmi
gjaldþrots eftir að í ljós kom að
stórtap var á The Last Action Hero
en Universal aftur á mótí mokaði inn
peningum á Jurassic Park. Þeir pen-
ingar hafa að hluta til farið í að gera
rándýra kvikmynd um hina víö-
frægu Flintstones fjölskyldu. Kvik-
myndin sem einfaldlega heitír The
Flintstones er sú kvikmynd sem
Universal bindur mestar vonir við
og hefur ekkert verið sparað í auglýs-
ingum og markaðssetningu og er
greinilegt að þeir hjá Universal gera
sér vonir um annað ævintýri, en
myndin er frumsýnd um þessa helgi.
„The Flintstones er ætlað að
skemmta öllum, alveg sama hver
aldurinn er,“ segir leikstjóri mynd-
arinnar Brian Levant. Og greinilegt
er á markaðssetningu og auglýsing-
um að Universal er að höfða tíl sjón-
varpsáhorfenfda, fá þá í bíó sem
vanalega sitja fyrir framan sjónvarp-
ið. Með það í huga er rétt skipað í
aðalhlutverkið, en Fred Flintstone
er leikinn af John Goodman, sem
leikið hefur eiginmann Roseanne í
samnefndum sjónvarpsþáttum sem
hafa verið efstir á vinsældalista í
nokkur ár. Þá er einnig gert mikið
úr þvi að Elizabeth Taylor leikur í
fyrsta skipti hlutverk í fjórtán ár.
Og ekki er verið að fara í felur með
það að Steven Spileberg er einn fram-
leiðenda myndarinnar. Liður í þess-
ari herferð er endursýningar á sjón-
varpsseríunni í bandarísku sjón-
varpi. Má með sanni segja að Óll
brögð séu notuð til að koma því inn
hjá bandarískum almenningi aö The
Flintstones sé kvikmynd sem enginn
má missa af.
Flestir sem vit hafa á segja að þessi
herferð Universal eigi eftír að heppn-
ast en benda samt á kvikmyndina
Popeye, sem gerð var fyrir fimmtán
árum eftir þekktri teiknimyndaser-
íu, með þekktum sjónvarpsleikara,
Robin Williams. Þá var heldur ekk-
ert til sparað í auglýsingum. í dag
er Popeye í hópi þeirra kvikmynda
sem geysilegt tap hefur orðið á þó
þeir hjá Paramount hafi unnið það
aðeins upp á myndbandamarkaðin-
um.
En hvað skyldu talsmenn annarra
kvikmyndafyrirtækj a í Hollywood
segja um möguleika þeirra gegn The
Flintstones: „Við erum ekki hræddir
við The Flintstones," segir talsmaður
Paramount, en aðalmyndin hjá þeim
er Berverly Hills Cop III og hefur
Parmount ákveðið að frumsýna hana
tveimur dögum áður en The Flints-
tones verður frumsýnd.
Annars er það mikill línudans á
þessum árstíma að koma stórmynd
að á réttum tíma og stundum skerast
þær línur og stórmyndirnar eyði-
leggja hvor fyrir annarri, þannig slys
verður alltaf þegar alhr vilja frum-
sýna á sama tíma.
Á hverju ári gera blaðamenn hjá
bandarísku tímaritinu Premier sér
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
til dundurs að spá um vinsældir
sumarmyndanna og hjá þeim er The
Flintstones spáð fjórða sætinu á eftír
kvikmynd þeirra James Camerons
og Arnolds Schwarzeneggers, True
Lies, sem skipar fyrsta sætið í
spánni, nýjustu teiknimyndinni frá
Walt Disney, The Lion King, sem
skipar annað sætið og Maverick með
Mel Gibson, sem er í þriðja sætinu.
Næstu myndir þar á eftir eru I Love
Trouble, með Juliu Roberts og Nick
Nolte í aöalhlutverkum, Renaissance
Man, með Dnny DeVito, leikstýrð af
Penny Marshall, City Shckers III,
Clear and Present Danger, þriðja
myndin um njósnarann Jack Ryan,
með Harrison Ford í aðalhlutverki,
Wyatt Earp með Kevin Costner í að-
alhlutverki og í tíunda sætinu er The
Mask, en í þeirri mynd leikur nýj-
asta stjarnan Jim Carrey (Ace Vent-
ura) aðalhlutverkið. Þess ber þó að
geta að ekki hafa þeir verið neitt sér-
lega sannspáir hjá Premier, spáðu tíl
dæmis The Last Actíon Hero öðru
sætinu í fyrra.
Framhald af
Fantasíu
Einhver stórkostlegasta teikni-
mynd sem gerð hefur verið er
Fantasía sem Walt Disney gerði
1940. Eins og flestum er kunnugt
skiptist Fantasía í átta hluta og
fengu teiknarar Disneys það
verkefni aö myndskreyta við
klassísk tónlistarverk. Afrakst-
urinn var snilldarverk sem enn
þann dag í dag er sýnt í kvik-
myndahúsum. Eftir langan vmd-
irbúning er loks komið að því að
gera Fantasía 2 og mun hún
sldptast í sex hluta og er Sinfón-
íushljómsveit Chicago borgar að
hljóðrita tónlistina um þessar
mundir. Siðan taka teiknararnir
við og aö sjálfsögðu koma þekktar
teiknimyndapersónur fram í
myndinni. Talað er um að mynd-
in verði tilbúin th sýningar 1998.
Robinfær aðvera
með í Batman3
Nú er verið að undirbúa þriðju
kvikmyndina um Batman og að
sjálfsögðu fer Michael Keaton
með hlutverk Batmans. I fyrri
Batman-myndunum hefur vant-
að eina persónu sem alltaf er með
Batman í teiknimyndasögunum,
Robin. Nú á að bæta um betur
og fær Robin aö vera með í Bat-
man 3. í fyrstu vhdu framleiöend-
urnir ráða óþekktan leikara í
hlutverkið en erfiðlega hefur
gengiö að fnma rétta manninn og
hefur nú Chris O’Donnell, sem
síðast sást í Skvttunum, veriö;
boðið að leika Robin,
YerðurWater
World dýrasta
mynd allra tíma?
Núerí undirbúningi framtíðar-
kvikmyndin W ater World og mun
Kevín Costner fara með aðalhlut-
verkiö, nokkurs konar Mad Max
karakter sem á í höggi viö þorp-
ara sem búa á plánetu þar sem
ekkert fast land er, öll plánetan
er huhn vatni. Áætlaður kostnað-
ur við myndina er 110 milljón
dollarar en kunnugir segja að
kostnaðurhm eigi eftir að verða
mun meiri og þeir sömu segja aö
Water World verði dýrasta kvik-
mynd sem gerö hefur verið. Ke-
vin Costner er einnig einn fram-
leiðenda myndariimar en leik-
stjóri er Kevin Reynolds sem leik-
stýrði Costner í Robin Hood:
Prince of Thives.
Tarantino og
Stone sameina
krafta sína
Natural Bom Killers kvikmynd
sem frumsýnd veröur í sumar.
Er hún sameiginlegt verkefni
hinna þekktu kvikmyndagerðar-
manna, Quentins Tarantino og
Olivers Stone. Natural Bom Kill-
ers er talin; ofbeldisfuh í meira
lagi. Fjallar hún um Mickey og
Mallorj' og blóði drifna slóð
þeirra. Aðalhlutverkin leika Ro-
bert Downey jr., Woody Harrel-
son og Juhette Lewis.
Riddarar
hringborðsins
Enn eina ferðina á að fara að
gera kvikmynd um Arthur kon-
ung og riddara hringborðsins.
Myndin á að heita First Knight
og er ekki af ódýrari gerðinni,
áætiuriin hljóðar upp á 60 mhljón
dollara. I fyrstu var gert ráð fyrir
að Wihiam Baldwin myndi leika
riddarann hugprúða Lanceiot, en
ráöamenn hjá Columbia fannst
þaö ekki nógu sterkur leikur og
vildu þekktari leikara. Nti cr
kominn á blað hjá þeim Richard
Gere sem mun loika riddarann
og Sean Connery sem leikur Art-
hur konung.
Þessir kollóttu steinar hlaut silfurverðlaun
Teiknað í sandinn. Ur Þessir kollóttu steinar.
Nýverið hlaut heimhdarmyndin
Þessir kohóttu steinar, sem hefur
undirtitihnn andlitsmyndir Sigur-
jóns Ólafssonar, silfurverðlaun í
flokki fræðslumynda á alþjóðlegri
kvikmyndahátíð í Bandaríkjunum
(US Intemational Fhm and Video
Festival). Hátíð þessi er sú stærsta
sinnar tegundar í heiminum. Veitt
em verðlaun 1 32 flokkum sjón-
varpsmynda, heimhda-, fræðslu- og
hvers kyns fag- og iðnaðarmynda.
Á síðastliðnu ári hlaut Verstöðin
ísland eftir Erlend Sveinsson
þriðju verðlaun í sínum flokki. Er
það eina íslenska kvikmyndin sem
hafði fengið verðlaun á þessari
kvikmyndahátíð áður. Að þessu
sinni kepptu um það bh 1500 mynd-
ir frá 29 löndum um verðlaun í 32
flokkum. Verðlaunaafhendingin
fer fram í Chicago 1. og 2. júní og
mun þá stjómandi myndarinnar
Ólafur Rögnvaldsson taka á móti
verðlaununum.
Þessir kollóttu steinar er 17 mín-
útna löng mynd sem fjallar um
portretmyndagerð Sigurjóns Ólafs-
sonar. Myndin byggist að hluta til
á viðtah Erhngs Jónssonar við Sig-
urjón. í myndinni er áhorfandan-
um veitt innsýn í huga hstamanns-
ins með því aö skoða einstök verk
hans og hugmyndir um gerð por-
tretmynda. Fjallar er um afstöðu
hans th hstarinnar, um form, ana-
tómíu, áferð, efnismeðferð, ljós,
skugga, hti og hreyfingu. Einnig
em myndir af hstamanninum sjálf-
um við störf sín.
Handritíð gerðu Auður Ólafsdótt-
ir, Birgitta Spur, Ólafur Rögnvalds-
son og Sólveig Georgsdóttir en
myndin er gerð fyrir Listasafn Sig-
uijóns.