Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1994, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1994, Qupperneq 11
MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 1994 11 Fréttir Hæstiréttur klofnar í tryggingarmáli vegna báts sem sökk: Eigandinn fær 19 milKónir Hæstiréttur hefur dæmt Báta- ábyrgðarfélag Vestmannaeyja til að greiða útgerðaraðila mb. Nönnu VE- 294 tryggingarfé eftir að báturinn fórst 7, mars 1989. Málsatvik eru þau að í desember 1988 tókust samningar milli eiganda bátsins og Bátaábyrgðarfélagsins um kaup á vátryggingum á mb. Nönnu. Bátaábyrgðarfélagið óskaði eftir endurtryggingu á hagsmunatrygg- ingu nokkurra báta við Trygginga- miðstöðina en mb. Nanna var ekki þar á meðal. í hinum áfrýjaða dómi er lýst fundi aðila 16. janúar 1989 þar sem rætt var um tryggingar bátsins, og ágreiningi þeirra um niðurstöðu samræðna. Telur framkvæmdastjóri Báta- ábyrgðarfélagsins niöurstöðuna hafa orðið þá að útgerðaraðih mb. Nönnu hafi ekki óskað að hafa hagsmuna- tryggingu áfram vegna þess hve önn- ur trygging væri orðin há. Útgerðaraðilinn er á öðru máli um efni fundarins 16. janúar. Telur hann þá hafa rætt um hvort sleppa skyldi hagsmunatryggingu, en fram- kvæmdastjóri Bátaábyrgðarfélags- ins talið það óráölegt í augnablikinu. í skýrslu framkvæmdastjóra Báta- ábyrgðarfélagsins er því haldið fram að vátryggingarskírteini mb. Nönnu hafi verið gefið út um miðjan febrúar 1989. Það hafi verið sent útgerðarað- ilanum, eftir að endurtryggingar- samningur hafði verið gerður við Tryggingamiðstöðina. Skírteinið er ódagsett og óundirritað og fullyrðir útgerðaraðilinn að hann hafi ekki fengið það í hendur fyrr en töluvert eftir að bátmánn fórst 7. mars 1989. Gegn eindregnum mótmælum hans þótt ósannað að skírteinið hefði borist honum í hendur fyrr. Var Bátaábyrgðarfélaginu því gert að greiða útgerðaraðilanum tæpar 19 milijónir króna með dráttarvöxtum og málskostnað í héraði. Tveir dómarar skiluðu sératkvæði og töldu að hagsmunatrygging hefði ekki verið í gildi og fyrir lægi yfir- lýstur vilji útgerðaraðilans að hafa ekki slíka tryggingu. Haganesvík: Anægðir grásleppukarlar Öm Þóraimsson, DV, Fljótum: Grásleppukarlar sem gera út frá Haganesvík tóku upp netin í lok maí. 4 trillur voru gerðar út og fengu þær 130 tunnur af hrognum. Vertíðin nú var þokkaleg að mati útgerðar- manna og mun skárri en í fyrra en þá var veiðin líka með lakasta móti. Veiðamar stóðu í tvo mánuði og var nokkuð jafnt kropp mestallan tímann þar til í lokin að botninn datt úr veiðinni. Þar sem verð á hrognun- um er nú með hæsta móti, - 58 þús- und krónur brúttó fyrir tunnuna - auk þess sem mjög lítið netatjón varð á vertíðinni eru grásleppukarlamir nokkuð ánægðir með sinn hlut í ár. Ragnar Steingrímsson, útgerðar- maðurfrá Stóra-Holti. DV-myndÖrn Akranes: Met í hjónavígslum Siguröur Svenissan, DV, Akranesi: Allt bendir til þess að í sumar verði slegin öll met í hjónavígslum á Akra- nesi. Að sögn séra Björns Jónssonar, sóknarprests á Akranesi, em þegar bókaðar 20 vígslur á næstu vikum og margar eiga eflaust eftir að bæt- ast við fyrir haustið. Þetta er mun meira en á síðustu árum. „Giftingar eru í tísku um þessar mundir og þær eru góð tíska,“ sagði séra Bjöm í samtali við DV. „Lengi vel framan af mínum prestsskap vora þrír dagar allsráðandi í hjóna- vígslum; - annar dagur jóla, gamlárs- dagur og laugardagurinn fyrir páska. Eitt árið fyrir margt löngu gaf ég saman 7 eða 8 brúðhjón þann dag. Hér í eina tíð var algengt að fólk léti gifta sig í kyrrþey. I dag er oftast gert mikið úr þessari athöfn með til- heyrandi aðdraganda eins og því sem kallað hefur verið steggja- eða gæsa- partí,“ sagði séra Björn. SOLIGNUM olíuviðarvörn að þínu sumarskapi! Soiignum Architectural fæst nú í 14 litum - einn þeirra er örugglega að þínu sumarskapi. Einnig bjóðum við Solignum grunnefni og gróðurhúsaefni. Fæst í flestum mólningarvörubúðum. CqSKAGFJÖRÐ ii '/ 'j ; J i’J 5 J\ J V Ji 'J D i J i D Kristjón Ó. Skogfjörð hf. Umboðs- og heildverslun Ný íslensk útgáfa : m F i i a i ÍISIíllSlílSlS?. Pálsi Htssirsssi IrTiMTHiTnTI Já takk Frábær íslensk safnplata sem inniheldur lög með Siggu Beinteins og N1+, Mannakornum, Sniglabandinu, Borgardætrum og fjórtán öðrum landsþekktum flytjendum. Safnplata sumarsins. Megas - Drög að upprisu Megas ásamt fremstu hljóðfæraleikurum landsins lagði drög að upprisu á eftirminnilegum hljómleikum í Hamrahlíð. Diskur með úrvali frá þessum hljómleikum hefur nú risið upp og mun stíga niður í hljómplötuverslanir og gefa mönnum kost á að kaupa sig. Í5LAND5KLU5CKUR ftHmíMt O* THt NOKTM Islandsklukkur í tilefni af 50 ára afmæli íslenska lýðveldisins senda tónlistarmennirnir Magnús Þór og Rafn Jónsson frá sér þessa vönduðu útgáfu með íslenskum þjóðlögum, rímum og lögum sem þjóðin hefur tekið ástfóstri við í gegnum tíðina. X Tómas Einarsson - Landsýn Bergþór Pálsson, Björgvin Halldórsson, Einar Örn, Guðmundur Andri, KK, Ragnhildur Gísladóttir o.fl. syngja ný lög eftir Tómas R. Góður skáldskapur, skemmtileg tónlist, gjöf til íslands. Hörður Torfason — Þel Ferilplata Harðar Torfasonar. Platan inniheldur öll þekktustu lög Harðar sem ekki hafa verið fáanleg um árabil. Sinfóníuhljómsveit íslands - Klami: Karelian Rhapsody o.fl. Ný og spennandi útgáfa með Sinfóníuhljómsveit íslands í útgáfuflokki Chandos á norrænni tónlist. Útgáfur SÍ hafa verið rómaðar víða um heim. Sönghópurinn Rjúkandi Ný útgáfa í tilefni af sjómannadeginum. Tilgangur sönghópsins er að lyfta andanum yfir amstur hversdagslífsins, gefa söngáhuganum tækifæri og skemmta sér og öðrum. Petta er heimabökuð Ólafsvíkurplata fyrir alla landsmenn. JAPISS Brautarholti 2 • Kringlunni Sími: 625200

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.