Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1994, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1994, Page 16
16 LAUGARDAGUR 11. JUNÍ 1994 Meiming_______________________ Kammersveit Reykjavíknr: Tíminn og vatnið Kammersveit Reykjavíkur hélt tónleika í Langholts- kirkju í gærkvöldi. Á efnisskránni var eitt verk, Tíminn og vatniö eftir Atla Heimi Sveinsson, við ljóö Steins Steinarrs. Stjómandi var Paul Zukofsky og ein- söngvarar Marta G. Haildórsdóttir, sópran, Sverrir Guöjónsson, kontratenór og Bergþór Pálsson, baríton. Þá tók þátt i flutningnum blandaður kór auk kammer- sveitarinnar. Tímanum og vatninu er sennilega best aö lýsa sem röð fjölmargra stuttra verka sem skiptast í tvo flokka. Annars vegar eru þættir þar sem texti er fluttur og einkennast oftast af vefrænum áherslum. Hins vegar em millispil sem byggjast oft á einfoldum laglínum. Þaö sem heldur öúu saman er annars vegar texti Steins og hins vegar hljómheimur sá sem val hljóðfær- anna og söngvaramir mynda. Þá var áberandi í verk- inu að púls var sleginn og hefur þaö ef til vill átt að tákna gang tímans. Styrkur verksins er fyrst og fremst mikil fjölbreytni og htadýrö og sýnir höfundur mikla fæmi og þekkingu í meðferð hljóðfæra og söngradda. Margir fallegir staðir em í verkinu. Má nefna sem dæmi sönginn um tímann og vatnið, sólarsönginn og sálminn í lokin. Kórmillispihð á undan fjórða ljóði hljómaði mjög vel og sama má segja um milhspihð fyrir tvö píanó á undan ljóði 11, sem var eins og tölvu- stýrður barpíanistí væri að störfum. Fleiri staði mætti tína til en rúmiö leyfir það ekki. Flutningur var mjög vandaður og virtist ekkert ómak hafa verið sparað til þess að hann mætti takast vel. Zukofsky stjómaði af nákvæmni og tónelskri Tónlist Finnur Torfi Stefánsson næmni. Margir hljóðfæraleikaramir áttu gott framlag í einleiksköflum, sem mikið var af. Emsöngvaramir höfðu erfitt hlutverk að fyha og skiluðu því af aðdáun- arverðri fimi. Þessir tóiúeikar era eina umtalsverða framlag Listahátíðar í Reykjavík til íslenskrar tónhsar að þessu sinni og verða þeir að teljast mikhl sigur fyrir tónskáldið Kammersveitina og aöra aðstandend- ur. Langholtskirkja var fullsetin og undirtektir áheyr- enda frábærlega góðar og ekki minni en þegar frægir útlendir einleikarar koma hingað th að leika. Hafi ein- hvem tíma verið unnt að segja að íslensk tónhst ættí ekki upp á pahborðið hjá áheyrendum er sá tími hðinn. PHILIPS Peimsmeistarakeppnin í knattspymu er sannkölluð gjjf sjónvarpsveisla. Keppnin hefst 17. júní n.k. og þá munu r milljónir manna um allan heim setjast fyrir framan '•'paiónvarpstækin. PHILIPS býður sjónvarpstæki með bestu fáanlegu myndgæðum og steríóhljómi. PHILIPS hefur Verið brautryðjandi á þessu sviði um árabil og er viðurkennt sem slíkt um allan heim. M 94 bjóða I tílefif af HM 94 bjoða Heimilistæki tvær gerðir af PHILIPS sjónvarpstækjum 25"og 28' 'á sérstöku heimsmeistaratilboði. 25 8 fl Réttverð 104.000 kr. stgr. 28 89.900 kr. stgr. Heimilistæki hf PHILIPS WorldCupUSm SÆTUNI 8 SÍMI 69 15 OO Umboðsmenn um land allt. Skák Gata Kamsky kom á óvart með því að leggja Vladimir Kramnik að velli í áskorendakeppni PCA sem fram fer í New York. Áskorendakeppni PCA-samtakanna: Kamsky fórnar drottningunni Áskorendaeinvígi atvinnumanna- sambands Kasparovs og Shorts hóf- ust í New York sl. þriðjudag. Þar ghma átta stórmeistarar: Gatá Kam- sky (Bandaríkjunum) tefhr við Vladimir Kramnik (Rússlandi); Oleg Romanishin (Úkraínu) teflir við Viswanathan Anand (Indlandi); Nig- el Short (Englandi) mætir Boris Gulko (Bandaríkjunum) og Segej Tivjakov (Rússlandi) teflir við Mich- ael Adams (Englandi). í fyrstu umferð dró þegar th tíð- inda. Tveimur skákum lauk með jafntefli en Adams tókst að vinna Tivjakov eftir langt og strangt enda- tafl. Mesta athygli vaktí þó að Kam- sky lagði Kramnik með glæshegri drottningarfóm. Intel-tölvufyrirtækið fjármagnar keppnina, sem og aðra viðburði PC A-samtakanna. Keppnin er haldin í Tramp Tower í New York sem er að verða háborg skáklistarinnar og fer vel á því, sjötíu árum eftir New York-mótið fræga þar sem Lasker, Capablanca og Aljekín röðuðu sér í þrjú efstu sætin. Síðar í mánuðinum verður svo stórmót í atskák haldið í New York á vegum Intel og PCA, með sama sniði og mótið í Moskvu á dögunum. En FIDE - alþjóðaskáksambandið - ætlar ekki aö láta PCA-samtökin vaða yfir sig. Önnur umferð áskor- endaeinvígja FIDE er fyrirhuguð í Sanghi Nagar í Indlandi í síðari hluta júlímánaðar. Þar munu tefla nokkrir þeir sömu og í áskorendaeinvígjum PCA: Kamsky mætir Anand, Kram- nik teflir við Gelfand og Timman við Salov. Þeir þrír sem verða hlutskarp- astir munu síðan ásamt Karpov tefla um heimsmeistaratitihnn. Kamsky, Anand og Kramnik era áskorendur í hvoram tveggja sam- takanna - FIDE og PCA. Svo gæti því farið að einhver þeirra yrði tvöfaldur heimsmeistari! Margir telja Kramnik þeirra líkleg- astan th afreka. Mörgum kom því á óvart að hann skyldi tapa fyrir Kam- sky í fyrstu umferð PCA-einvígjanna í New York. Kramnik getur enn bætt ráð sitt en vissulega er svo glæshegur sigur Kamskys gott veganestí. Hvítt: Gata Kamsky Svart: Vladimir Kramnik Slavnesk vöm. 1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rc3 Rffi 4. Rf3 e6 5. Bg5 dxc4 Þetta afbrigði er gjaman kennt við Mikhah Botvinnik, fyrrverandi heimsmeistara. Flækjumar eru gríð- arlegar en afbrigðið hefur verið þrautkannað. „Teorían“ nær langt fram í miðtaflið. 6. e4 b5 7. e5 h6 8. Bh4 g5 9. Rxg5 hxg5 10. Bxg5 Rbd7 11. exf6 Bb7 12. g3 c5 13. d5 Db6 - Sírov vann Kamsky laglega á HM- landshða í Luzem í fyrra með 13. - Bh6 14. Bxh6 Hxh6 15. Dd2 Df6 16. 0-0-0 Kf8!? o.s.frv. 14. Bg2 0-0-0 15. 0-0 b4 16. Ra4 Db517. a3 Re5 Umsjón Jón L. Árnason Aðrir kostir eru 17. - Rb8 og 17. - exd5!? 18. axb4 cxb4 19. Hel d4 20. Dxd4! Bxg2 21. Kxg2 Dxg5 22. Dxc4 + Kb8 með flóknu tafh - van Wely - Piket, Wijk aan Zee 1994. 18. axb4 cxb4 19. Dd4 Rc6 8 7 6 5 4 3 2 1 20. dxc6! Hxd4 21. cxb7 + Kc7 22. Be3 í skiptum fyrir drottninguna hefur hvítur fengið tvo létta menn og afar hættulegan frelsingja niöri á b7. Ef hrókurinn víkur nú undan fehur peðið á a7 og hvítur á ógnandi stöðu. Kramnik kýs að bhðka goðin. Það hefði hann einnig getað reynt með 22. - Hd5!? 22. - e5?! 23. Rc3! E.t.v. tók Kramnik þennan sterka leik ekki með í reikninginn. 23. - bxc3 24. bxc3 Bc5 25. cxd4 Bxd4 26. Hfbl! Dc5 27. Ha6 Hb8? Betra er 27. - Bxe3. 28. Bcl! Svartreitabiskupinn skerst nú í leikinn með alvarlegum afleiðingum. 28. - c3 29. Ba3 Dc4 30. Bd6+ Kd7 31. Bc6+! Ke6 32. Bb5 Nú þarf ekki að spyija að leikslok- um. 32. - Bxf2+ 33. Kxf2 Dd4+ 34. Kfl De4 35. Hel Dhl+ 36. Kf2 Dxh2+ 37. Kf3 Hxb7 38. Bxe5+ Hb6 39. Bc4+ Kd7 Eða 39. - Kf5 40. g4+ og drottning- in fehur. 40. Hxa7+ Kc8 41. Hc7+ - Og Kramnik gafst upp. ál 1 X ii Á * A A W & A ® A A W A A aáfi ABCDEFGH IÁTTU EKKI 0F MIKINN HRADA /í\ VALDA ÞÉR SKAÐA!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.