Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1994, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1994, Blaðsíða 32
44 MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 1994 oo Björn Sveinsson. Um hreint of- beldi að ræða „Einstaklingurinn í viðskiptum getur enga björg sér veitt. Þarna er um hreint ofbeldi að ræöa. Ég fékk bréf- frá mínum banka að eftir ákveðinn tíma gæti ég ekki framselt ávísun út á peninga sem ég á í viðkomandi banka nema að sýna debetkort. Síðan sýnir þessi aukni kostnaður glórulausa starfsemi bankanna í skjóli ein- okunar,“ segir Björn Grétar Sveinsson í DV. Skilningsvana dómari „Dómarinn var ótrúlega skiln- ingsvana á hvað knattspyrna er og ég skil ekki svona vinnubrögð. Nú spyr ég, eru það samantekin ráð hjá dómurum að dæma eftir öðrum reglum gagnvart okk- Skúrir um vestanvert landið í dag verður suðvestan og vestan kaldi en vestan og norðvestan gola eða kaldi í nótt. Skúrir verða um Veðrið í dag vestanvert landið og einnig á annesj- um norðanlands í nótt. Annars stað- ar verður úrkomulaust og sums stað- ar bjartviðri. Hiti 5 til 14 stig. Á höf; uðborgarsvæðinu er suðvestan kaldi og skúrir. í nótt verður vestan og norðvestan gola eða kaldi og úr- komulítið. Hiti 5 til 10 stig. Sólarlag í Reykjavík: 23.57. Sólarupprás á morgun: 2.59 Síðdegisflóð í Reykjavík 21.10. Árdegisflóð á morgun: 9.34. Heitnild: Almanak Háskólans. Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri skýjað 9 Galtarviti skúr 6 Keílavíkurílugvöllur skúr 5 Kirkjubæjarklaustur léttskýjað 6 Raufarhöfn skýjað 7 Reykjavík úrkoma 5 Vestmannaeyjar skúr 6 Bergen súld 9 Helsinki léttskýjað 13 Kaupmannahöfn skýjaö 14 Ósló skýjað 13 Stokkhólmur léttskýjað 15 Þórshöfn rigning 9 Amsterdam léttskýjað 12 Barcelona léttskýjað 14 Berlin skýjað 12 Feneyjar rigning 15 Frankfurt skýjaö 14 Glasgow léttskýjað 6 Hamborg alskýjað 13 London mistur 12 Lúxemborg léttskýjað 13 Madríd heiöskírt 11 Malaga skýjað 19 Mallorca léttskýjað 13 Nuuk skýjað i París skýjað 13 Vín skýjað 14 Ummæli url..“ segir Guðjón Þórðarson, þjálfari KR-inga, í Morgunblað- inu. Kannski veiðir hún sjálf „Ég er búin aö fá boð og ætla að vera viðstödd en það kemur í ljós hvort ég veiði sjálf. Það verður að vera einhver spenna í þessu," segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri í DV. Fyrst uppskrift, svo bökum við „Viö þurfum fyrst að ákveða upp- skriftina, svo að baka þetta og svo getum við borið fram réttinn," segir Drífa Sigfúsdóttir, bæjar- fulltrúi og oddviti framsóknar í Suðumesjabæ. Fyrirlestur um flnnska myndlist í kvöld kl. 20.30 heldur Bengt von Bonsdorff, forstjóri Amos Anderson listasafnsins i Helsing- fors, fyrirlestur með litskyggnum í fundarsal Norræna hússins. I fyrirlestrinum veröur einkum fjallaö um nútímalist og lista- menn af yngri kynslóðinni en einnig litið til eldri kynslóðarinn- Fundir ar, meðal annars sagt frá mynd- höggvaranum Wainö Aaltonen, Fyrirlesturinn er haldinn á . sænsku, allir eru velkomnir og enginn aðgangseyrir er. Lyfjaávani og aukaverkanir í dag kl. 14.00 verður fundur um lyfjaávana og aukaverkanir lyfta í kjölfar venjulegra skammta af verkialyftum og róandi lyftum. Verður fundurinn í Háskólabíói og hefst hann kl. 14.00. Allir eru velkomnir. Sagtvar Hann er þannig maður, að óhætt er að treysta honum. Rétt Gætum tungunnar væri: Hann er maður sem óhætt er að treysta. (þanníg er atviksorð en ekki lýsingarorð.) „Ég held að það blundi í ílestum íslendingum að langa til að koma fram í kvikmyndum. Ástæðurnar eru vafalaust margar. Sumir álíta þetta kannski íyrsta þrepið á leið- inni til stærri hluta en ég tel þó að forvitni hafl ansi mikiö með þetta að gera. Fólk er áhugasamt þegar Maður dagsins kvikmyndir eru annars vegar og viil fá að sjá hvemig þetta fer fram," segir Sigurður Þór Helga- son, stjórnarformaður hjá Rauöa dreglinum hf., en fyrirtækið er þjónustumiðstöð fýrir kvikmynda- gerð. Þessa dagana eru Sigurður og félagar hans að leita að statist- um til að leika í þreraur kvikmynd- um, Tár úr steini, Benjamín dúfu og Agnesi, og er óhætt aö segja að töluveröur hamagangur ríki í höf- uðstöðvum þeirra á Vatnsstíg 4 af Siguróur Þór Helgason. þeim sökum. Umræddar k vikmyndir veröa all- ar teknar upp hérlendis í sumar og það eru allar „útgáfur" af fólki sem forráðamenn Rauða dregilsins eru á höttunum eftir. „Við erum að leita að fólki af öllum stærðum og gerðum. Hvort heldur það er stórt eða lítið, ungt eða gamalt og allt þar á milli,“ segir sftórnarfor- maðurinn og bætir við að það sé full þörf á svona fyrirtæki en starf- semin snýst einnig um þaö að markaðssetja ísland erlendis í þeim tilgangi að fá aðila til að gera hér kvikmyndir, auglýsingar eða tón- listarmyndbönd. í þeim efnura gera Sigurður og félagar hans sér ekkert síður vonir um að ná til evrópskra kvikmyndagerðarmanna heldur en þeirra bandarísku. Sigurður hefur sjálfur töluverða reynslu af kvikmyndagerð enda komið talsvert nálægt henni á und- anfórnum árum og m.a. unnið við Stuttan Frakka og Veggfóður auk þess að fást við dagskrárgerð. Hann hefur einnig gert tónlistarmynd- bönd og nú siöast „Lof mér að Iifa“ með SSSól. BarPar slær í gegn Sýning Leikfélags Akureyrar á BarPari hefur notið mikilla vin- sælda á listahátíð. í upphafi voru ráðgerðar ftórar sýningar og seldist upp á þær. Þá var bætt við Leikhús þremur aukasýningum sem seld- ust strax upp og hefur nú verið ákveðið að bæta enn við þremur aukasýningum sem verða í Lind- arbæ, sú fyrsta annað kvöld. Það eru tveir af reyndustu leikurum Leikfélags Akureyrar, þau Sunna Borg og Þráinn Karlsson, sem fara með öll hlutverk leiksins, BarPar var frumsýnt á Akureyri í janúar og hefur gengið þar fyrir fullu húsi allar götur síðan. Sýn- ingin á morgun er sú fimmtug- asta í röðinni. Skák Keppni öldunga gegn úrvalsliði kvenna stendur nú sem hæst í Mónakó. Kvenna- liðið skipa heimsmeistarinn Xie Jun, Judit og Zsuzsa Polgar, Tsíbúrdanidze, Josehani og Arakhamia. Öldungar stiUa upp Smyslov, Spasskí, Larsen, Hort, Ivkov og Portisch. Að loknum fimm um- ferðum hafði kvenfólkiö yfirhöndina með 16,5 v. gegn 13,5 v. öldunga. Þessi staða kom upp í skák Xie Jun, sem hafði hvítt og átti leik, og Bent Larsen: Kínverski heimsmeistarinn fann snotra vinningsleið: 28. Rxc8+ Hfxc8 29. Hd7+ Kf6 30. Bxe6 fxe6 Ef 30. - Kxe6 31. Hld6 mát. 31. g4! og Larsen gafst upp þvi að hann er varnarlaus gegn hótuninni Hld3-f3 mát. Jón L. Árnason íslands- merki og súlnaverk Sigurjóns Ólafssonar Framlag Listasafn Sigurjóns Ólafssonar til Listahátiðar í Reykjavík 1994 er sýningin ís- landsmerki og súlnaverk Sigur- jóns Ölafssonar. Þar er meðal annars ftallaö um tilurö íslands- merkis, minnismerkis um stofh- un lýöveldis á íslandi áriö 1944. Sigurjóni Ólafssyni var falið að vinna þetta mikla verk 1969. Það var tilbúið frá hans hendi ftórum árum síðar og sett upp við Haga- torg 1977. Minnismerkið skipar sérstakan Listahátíö sess i list Siguijóns og er mikil- vægasta verkið meðal súlna- verka hans. Verkið er samsett af fimm súium sem standa í hnapp og mynda hóp, ftölskyldu, samfé- lag. Hver súla hefur ákveðin ein- staklingseinkenni en ber þó svip af hinum. Súlurnar hafa vissa mannlega skírskotun og í þeim má einnig sjá fmngálkn og dreka, en hi_ð síöarnefnda er hreint landnámsminni Sýningunni fylgir vönduð myndskreytt sýn- ingarskrá með íslenskum og enskum texta

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.