Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1994, Page 2
2
MÁNUDAGUR 4. JÚLl 1994
Fréttir
Reglur Evrópusambandsins um vinnutíma mæta andstöðu:
Fjandsamlegt og
framandi skrifræði
- segir Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ
íslensk stjómvöld og vinnuveit-
endur hafa lagst gegn þvi aö sá hluti
félagsmálapakka EES-samningsins
sem lýtur aö reglum Evrópusam-
bandsins um vinnutíma og vinnu
ungmenna taki gildi hér á landi.
Vegna þessa koma tveir fulltrúar
framkvæmdastjómar ESB hingað til
lands í dag til viöræöna viö stjórn-
völd og fulltrúa vinnumarkaðarins.
ASÍ hefur lagt hart að stjórnvöld-
um að fuligilda félagsmálapakkann
sem meðal annars kveður á um jafn-
réttismál, vinnutíma, öryggis- og að-
búnaöarmál og fleira. Þrátt fyrir að
önnur EFTA-ríki hafi hug á að pakk-
inn verði gerður að hluta EES-
samningsins hafa íslensk stjórnvöld
lagst gegn því vegna sérstöðu ís-
lensks vinnumarkaðar.
Að sögn Þórarins V. Þórarinsson-
ar, framkvæmdastjóra VSÍ, er eðh-
legt að þau EFTA-ríki, sem hyggi á
inngöngu í ESB um áramótin, vilji
taka upp reglur sambandsins um
vinnutíma. Það sé hins vegar and-
stætt hagsmunum íslendinga sem
ekki em á leið í ESB. Vegna sérstöðu
atvinnulífsins muni það einfaldlega
skerða samkeppnishæfni íslenskra
fyrirtækja að innleiða þessar reglur
hér á landi.
Þórarni finnst eðliiegra að semja
um vinnutíma beint við ASÍ í stað
þess að innleiða flóknar reglur ESB
sem síðan þurfi að semja sig frá.
Hann segir reglur ESB um vinnu-
tíma í raun ganga gegn hagsmunum
launþega auk þess sem þær kalli á
gífurlegt skrifræði sem væri íslend-
ingum í senn bæði framandi og íjand-
samlegt.
„Við eigum ekki aö kalla yfir okkur
reglugerðir Evrópusambandsins
þegar við þurfum þess ekki. Þær
myndu gera þriðja hvern mann hér
á landi að brotamanni áður en árið
væri liðið. Þetta kann að vera metn-
aðarmál fyrir forystumenn verka-
lýðshreyfingarinnar en er ekki hags-
munamál launþega. Reglumar tor-
velda þeim að nýta sér sveigjanleika
í vinnumagni til tekjuauka."
Stuttar fréttir
Færri nýskráningar
Á fyrstu 5 mánuöum ársins
voru samtals 2.566 nýskráningar
á bifreiðum. Á öllu siðasta ári
voru nýskráningar 6.457 og árið
1998 voru þær 23.459.
Fækkar i fuglahópum
Veruleg fækkun hefur orðið í
stofnstærð nokkurra fuglateg-
unda hér á landi, t.d. óðinshana,
steindepils, dílaskarfs, flórgoða
og svartbaks, Hins vegar hefur
heiðagæsum og stormmávum
fjölgað. Mbl. greindi frá þessu.
Hafnfirðingaríruslid
Tilraun með aö vinna jarðveg
úr lífrænum úrgangi hefst siðla
sumars. Samkvæmt RÚV verður
þess farið á leit við hluta Hafn-
firöinga að þeir flokki rusl sitt.
Skattpeningar notaðir
Framlag ríkissjóðs til vegamála
í ár nemur rúmum 25 þúsund
krónumá mann. Löggæslukostn-
aður er 6.700 krónur á mann.
Magurfiskurisjó
Sigurður Finnbogason á
ísafirði ætlar aö hefja tilraun meö
eldi á steinbit. Ætlunin er aö
safna mögrum steinbít íyrri hluta
sumars, ala hann upp fram yfir
jól og siátra honum ábesta tíma.
RÚV greindi fiá þessu.
Ákvörðunar að vænta
Ákveðið veröur innan viku
hvort Reykjavíkurborg ræðst i
byggingu fjölnota iþróttahúss
sem tæki 7 til 8 þúsund manns í
sæti. Bylgjan skýrði frá þessu.
Ljósflötur á sölubanni
Utanríkisráðherra telur já-
kvætt að sölubann á rússafisk sé
ekki aö frumkvæði rússneskra
stjórnvalda. Að sögn RÚV verður
ákveðið á næstu dögum hvort af
óformiegum viðræðum verði við
Rússa um Smuguveiðar.
Fjölmenni í
Þórsmörk
Um 2000 manns voru saman
komin í Þórsmörk um helgina.
Að sögn lögreglunnar á Hvol-
svelli var lítið um ölvun enda
mest um fiölskyldufólk að ræöa.
Ron Bower við hlið þyrlu sinnar sem er af Bell-gerð.
DV-mynd ÞÖK
Flýgur þyrlu einn umhverfis hnöttinn
- minilenti í Reykjavík í gær
Bandaríski þyrluflugmaðurinn
Ron Bower milhlenti í gær á Reykja-
víkurflugvelli á leið sinni umhverfis
hnöttinn.
Bower hyggst slá tólf ára gamalt
met Ross Perot jr., sonar hins þekkta
auökýfings og forsetaframbjóðanda
Ross Perot, með því að fljúga um-
hverfis jörðina á 28 á dögum.
Bower hóf feröina í Bandaríkjun-
um en síðan lá leið hans til Græn-
lands. Ferðin frá Grænlandi til ís-
lands er sú lengsta sem hann þarf
að fljúga yfir opnu hafi.
Að sögn Bower hefur ferðin gengið
vel hingað til og ekkert alvarlegt
komið upp á.
„Ég er aðeins íjórum klukkutímum
á eftir áætlun en annars er ég mjög
ánægöur með það að vera kominn til
íslands því veðrið á Grænlandi var
slæmt og það leit lengi vel út fyrir
að ég mundi tefjast þar,“ sagði Bow-
er.
Næst mun ferð hans hggja til Fær-
eyja og þaðan yfir á meginland Evr-
ópu þar sem Bower mun heimsækja
íjölmargar höfuðborgir.
Talsverð ölvun á Höskuldarvöllum
Hátíðin fór rólega fram þrátt fyrir talsverða ölvun. DV-mynd Ægir Már
Um helgina var haldin úti-
hátíð á Höskuldarvöllum. Á
fostudagskvöldið var talið
að um 1200 manns væru á
svæðinu en eitthvaö fjölgaöi
á laugardeginum.
Ströng öryggisgæsla var á
staðnum og að sögn lögregl-
unnar á Keflavíkurflugvelli,
sem hafði ásamt öðrum
umsjón með löggæslu, var
talsvert mikil ölvun og fólk
mikið með landa undir
höndum.
Á fóstudaginn var ung
stúlka flutt meðvitundar-
laus á slysadeild eftir fíkni-
efnaneyslu. Þrátt fyrir þetta
fór hátíðin rólega fram og
lítið var um önnur óhöpp.
Sigurjón meö svipað slökkvitæki
og hann notaði á eldinn.
Snarráður
slökkviliðs-
maður
Sigmjón Valmundarson
slökkviliðsmaður sýndi snarræöi
á laugardaginn þegar eldur
braust út á geðdeild Landspítal-
ans.
Sigurjón var að sækja unnustu
sína, sem er hjúkrunarkona á
geðdeiidinni, þegar eldvarnakerf-
ið fór í gang.
„Ég hljóp ásamt tveimur gæslu-
mönnum niður á næstu hæð með
tvö slökkvitæki og byrjuöum við
strax að leita að eldL Við runnum
fljótt á lyktina því reykur var
ekki sýnilegur frammi á gangi.
Inni í herbergi var hins vegar
mikill reykur sem náði niður á
mitti og því erfitt að athaina sig
nema skríðandi á hnjánum en við
fórum tveir inn og náöum að
slökkva eldinn,“ sagði Sigurjón.
Um var að ræða eld i glugga-
tjöldum sem vistmaður á geð-
deildinni haíði kveikt. Skemmdir
eru ekki taldar miklar.
Akureyri:
Mannfjöldinn
tilfyrirmyndar
„Þrátt fyrir geysilegan mann-
fjölda fór aJlt vel fram og var
reyndar til fyrirmyndar," segir
varðstjóri hjá lögreglunni á Ak-
ureyri um ástandið í miðbænum
þar um heigina.
MikiU fjöldi feröamanna var i
bænum og voru „pollar“ af Polla-
móti Þórs áberandi í þeim fjölda.
Eftir dansleiki voru mjög margir
í miðbænum í 12-15 stiga hita
fram á morgun og höguðu sér
flestir vei. Þó voru kærðar tvær
líkamsárásir en í þeim tilfellum
mun frekar hafa veriö um að
ræöa venjuleg slagsmál.
Hestamaður var fluttur á slysa-
deild eftir að hestur hans haföi
hlaupið í veg fyrir bifreiö i Hörg-
árdal. Þá voru tveir teknir fyrir
ölvunarakstur og 12 ökumenn
sektaöir vegna þess að þeir óku
yfir leyfilegum hámarkshraða og
sá sem hraðast ók var á 135 km
hraða.
Hin helgu vé
hlautverðlaun
í Portúgal
Kvikmpd Hrafns Gunnlaugs-
sonar, Hin helgu vé, hlaut þrenn
verðlaun á tíundu alþjóðlegu
kvikmyndahátíöinni í Tróiu í
Portúgal um helghia. Myndin
hlaut kaþólsk verðlaun og verð-
laun sem besta myndin. Þá fengu
leikaramir Tinna Finnbogadóttir
og Steinþór Matthiasson verö-
laun fyrir besta leíkinn.
Þetta er í þriöja sinn sem íslensk
mynd fer á kvikmyndahátíðina i
Tróiu. Friðrik Þór Friðriksson
reið á vaðiö með Böm náttúrunn-
ar árið 1992 og Ásdís Thoroddsen
fór með Inguló á hátíðina í fyrra.
í bæði skiptin hlutu myndimar
sömu verðlaun og kvikmynd
Hrafns fékk um helgina.