Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1994, Side 4
4
Fréttir
MÁNUDAGUR 4. JÚLÍ 1994
Sigurður G. Guðjónsson, nýr stjómarformaður Stöðvar 2:
Vona að friður verði um
stef numörkun félagsins
Páll Magnússon, fráfarandi útvarpsstjóri, tók nú sæti í stjórn Stöðvar 2.
Hér ræða þeir saman Páll og Johann J. Ólafsson stjórnarmaður i félaginu.
„í mínum huga geta aldrei verið
átök þó menn kaupi hlutabréf og það
hefur aldrei verið ágreiningur innan
stjórnarinnar varðandi stefnumál.
Ég vona að friður haldist um stefnu-
mörkun félagsins. Við höldum áfram
að byggja upp gott fyrirtæki og verð-
ugan keppinaut fyrir ríkið. Engin
grundvallarbreyting verður á rekstr-
inum þó að óhjákvæmilegt sé að allur
rekstur sé í skoðun á hverjum tíma
og alltaf þurfi að vera að skoða dag-
skrána. Það þarf að halda í gott fólk
og félagið hefur fjárhagslega burði
til að vera með góða dagskrá," segir
Sigurður G. Guðjónsson, nýr stjóm-
arformaður íslenska útvarpsfélags-
ins hf.
Nýr meirihluti tók við á hluthafa-
fundi íslenska útvarpsfélagsins hf. á
laugardaginn. Á stjórnarfundi strax
eftir hluthafafundinn skipti nýja
stjórnin með sér verkum og var Sig-
urður G. Guðjónsson lögmaður kjör-
inn formaður og Símon Gunnarsson,
fulltrúi Sigmjóns Sighvatssonar í
Hollywood, var kjörinn varaformað-
ur. Nýir í stjórn eru Einar Hálfdánar-
son lögfræðingur, Eggert Skúlason,
fulltrúi starfsmanna, og Páll Magnús-
Jafet S. Ólafsson, nýráðinn útvarps-
stjóri hjá íslenska útvarpsfélaginu.
son, fv. útvarpsstjóri. Aðrir í stjórn
em Jóhann J. Ólafsson, fv. stjómar-
formaður, og Jón Ólafsson í Skífunni.
„Eg er að hugsa minn gang og sé
til hvað ég geri. Ég hætti formlega á
laugardaginn og er farinn frá félag-
inu sem starfsmaður en tók að mér
tímabundið að setjast í stjóm. Ég
gerði það bara sem persónulegan
greiða við nokkra hluthafa sem era
þarna inni og veit ekkert hvað það
verður lengi. Það fer eftir því hvern-
ig hlutirnir arta sig og hvað nýr
meirihluti ætlar að gera. Það verður
stjórnarfundur í hádeginu í dag og
þá skýrast línurnar kannski," segir
Páll Magnússon, fyrrverandi út-
varpsstjóri.
Jafet S. Ólafsson viðskiptafræðing-
ur hefur verið ráðinn útvarpsstjóri
hjá íslenska útvarpsfélaginu í stað
Páls Magnússonar og tekur hann til
starfa 1. ágúst. Bjarni Kristjánsson
fiármálastjóri gegnir störfum út-
varpsstjóra þangað til.
Fallbyssuskotfund-
ust í Hlíðarfjalli
Utanríkisráðherra Danmerkur:
Islendingar velkomnir í
Evrópusambandið
- heitir fullum stuðningi dönsku ríkisstj ómarinnar við aðildarumsókn
Niels Helveg Petersen, utanríkis-
ráðherra Danmerkur, lýsti því yfir í
opnugrein í Berlingske tidende í gær
að Danir muni leggja sig fram um
að aðstoða íslendinga á alla vegu
ákveði þeir að sækja um inngöngu í
Evrópusambandið. Niels Helveg
bendir á að meirihluti íslensku þjóð-
arinnar vilji að ísland sæki um aðild
samkvæmt skoðanakönnunum og
segir í því sambandi að íslendingar
séu velkomnir í ESB.
Niels vitnar til samtala sem hann
átti við Davíð Oddsson og Jón Bald-
vin Hannibalsson þegar hann var
fyrir skömmu á íslandi í tilefni af 50
ára lýðveldisafmælinu. Fram kemur
að báðir íslensku ráðherramir hafi
látið í ljós áhyggjur yfir framtíð ís-
lands utan Evrópusambandsins eftir
inngöngu annarra Norðurlanda.
í niðurlagi greinarinnar segir Niels
Helveg að þegar íslendingar muni
sækja um aðild að ESB muni danska
ríkisstjómin miðla þeim af reynslu
sinni í Evrópusamstarfmu undanf-
arna tvo áratugi. Hann segir íslend-
inga ekki þurfa að óttast að á þeim
verði troðið í sambandi við fiskveið-
arnar. Það sé ekki stíll Evrópusam-
bandsins.
Maður sem var á gangi í Hlíðar-
fjalli við Akureyri á fóstudagskvöld-
ið gekk þar fram á fallbyssuskot í
Hrafnsstaðaskál sem er í nokkurri
íjarlægð frá skíðasvæðinu.
Sprengjusérfræðingur frá Land-
helgisgæslunni fór á vettvang með
dínamít á laugardagsmorgun og
sprengdi fallbyssuskotið. Þá komu í
ljós tvö önnur skot og voru þau einn-
ig sprengd með hjálp 5 kg af dína-
míti. Varð af þessu hár hvellur sem
bergmálaði í fjöllunum.
Fallbyssuskotin voru um 30 cm
löng, um 8 cm í þvermál og vógu um
7-8 kg hvert. Talið er að á hernáms-
áranum hafi þarna veriö æfmga-
svæði hermanna.
r _
I dag mælir Dagfari__________________
Fundurinn sem brást
Hluthafafundurinn í íslenska út-
varpsfélaginu, sem haldinn var á
laugardaginn, olh verulegum von-
brigðum. Fundurinn fór svo hljóð-
lega fram að á honum tók enginn
til máls nema hlnn ráðherraskipaði
fundarstjóri. Hluthafar þögðu
þunnu hljóði en lufsuðust þó til að
kjósa nýja stjórn í samræmi við
nýjan meirihluta. Svo var fundur-
inn búinn enda til lítils aö halda
áfram fundi þar sem enginn vill
tala nema fundarstjórinn. En það
er kannski fundarstjóranum að
kenna að svona fór. Hann hafnaði
nefnilega beiðni um að fundurinn
fjallaði um sölu á hlutabréfum Sýn-
ar og milljóna kveðjugjafir til Páls
Magnússonar í formi jeppabíls og
peninga. Svo era vinstrimenn að
halda því fram að frjálshyggjan
hafi tekið völdin hérlendis. En sér
er nú hver frjálshyggjan þegar full-
trúi viðskiptaráðherra ræður því
um hvað einkaframtaksmenn tala
á fundi í þeirra eigin fyrirtæki!
Tíðindaleysi hluthafafundarins
var mikið reiðarslag. Menn höfðu
vonast til að þar næði innbyrðis
barátta hluthafanna hámarki.
Talsmenn hluthafafylkinga vora
búnir að standa sig svo vel að menn
voru meö talsverðar væntingar.
Fulltrúar meirihluta og minnihluta
höíðu skipst á þungum skotum.
Gagnkvæmar ásakanir um svik og
undirferli, óheiðarleika og skítlegt
eðli höfðu vakið þórðargleði hjá
mörgum. Þá varð það ekki til að
draga úr spennunni þegar fréttir
bárast af því að til handalögmála
hefði komið á stjórnarfundi. Menn
töluðu um að þetta væri eins og
atriði úr Dallasþáttunum og kætt-
ust innilega við fréttir af því að
menn væra farnir að hóta hver
öðram dómstólum og jafnvel tugt-
húsi. Þetta var ekki síður spenn-
andi en heimsmeistarakeppnin í
fótbolta. Svo lekur þessi langþráði
hluthafafundur saman eins og
vindlaus blaðra í stað þess að leys-
ast upp í blóðug slagsmál eins og
vonir stóðu til. Það er ekki hægt
að treysta einum né neinum leng-
im.
Stærsti hluthafinn, og sá sem
kollvarpaði þeim meirihluta sem
var, Sigurjón Sighvatsson, sótti
ekki hluthafafundinn. Enda er
maðurinn víst upptekinn við að
framleiða hasarmyndir í Holly-
wood og veitir ekki af því Stöð 2
leggur ekki síður mikið upp úr
magni en gæðum þegar bíómyndir
era annars vegar. Annar stærsti
hluthafinn, Jóhann Óli Guðmunds-
son, sem nú tilheyrir minnihlutan-
um, kom ekki heldur á fundinn.
Hann sendi hins vegar frá sér bréf-
kom og lýsti því yfir að með nýjum
meirihluta færi reksturinn beina
leið norður og niöur. í leiðinni af-
henti hann starfsmannafélagi út-
varpsfélagsins umboð til aö fara
með sinn hlut í félaginu. Starfs-
menn bitu á agnið og era hinir
montnustu. Kusu fréttamann í
stjórn og halda að þeir geti ein-
hveiju ráðið um reksturinn. En
þetta var ákaflega kærkomið fyrir
fréttastofu Stöðvar 2. Þar voru
menn logandi hræddir sem fyrr við
að fjalla um deilur hluthafanna því
enginn veit hvenær meirihluti þar
verður að minnihluta og öfugt. En
nú gat fréttastofan leyst málið með
því að slá því upp sem aðalefni
fundarins að starfsmenn ættu full-
trúa í stjórn. Myndir af fundinum
sýndu Pál Magnússon sitja einan
úti í horni og nú hafði fréttastofan
ekkert við hann að tala. Ekki einu
sinni um starfslokasamninginn.
Nýja stjómin hefur ráðið mann
úr íslandsbanka sem sjónvarps-
stjóra. Það fer vel á því. Verslunar-
bankinn stofnaði og rak Stöð 2 á
sínum tíma, allt þar til fé bankans
var uppurið á sama tíma og verið
var að stofna íslandsbanka með
þátttöku Verslunarbankans. Á síð-
asta augnabliki tókst Verslunar-
bankanum að selja Stöð 2 svo
bankasameiningin næði fram að
ganga. Síðan hefur tekist að reka
Stöðina með umtalsverðu tapi og
deilum hluthafa ekki hnnt. Ástand-
ið hefur verið svipað í íslands-
banka og því rétt að fá mann þaðan
til að stýra Stöðinni.
Dagfari.