Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1994, Side 8
MÁNUDAGUR 4. JtJLÍ 1994
Útlönd
Hægrisinnaðir gyöingar í Jerúsalem með ólæti:
Arafat frestar Jeríkó
för vegna mótmæla
Yasser Arafat, leiðtogi Palestínu-
manna, hefur frestað fór sinni til
Jeríkó á Vesturbakkanum til morg-
uns til þess að hægt sé að auka örygg-
isgæslu í kjölfar gífurlegra mótmæla
hægrisinnaðra gyðinga í Jerúsalem
gegn friðarsamningi ísraels og Pal-
estínumanna. Arafat er í heimsókn
á heimastjómarsvæðum Palestínu-
manna eftir 27 ára útlegð.
„Viö erum að skipuleggja heim-
sóknina til Jeríkó í samvinnu við
ísraelsmenn og Egypta,“ sagði yfir-
maður í öryggissveitum Palestínu-
manna í Gaza þar sem ísraelskir ara-
bar og Palestínumenn af Vestur-
bakkanum tóku þátt í hátiðahöldun-
um vegna komu Arafats með borg-
arbúum í gærkvöldi.
Palestínskir fánar og myndir af
Arafat voru hvarvegna í Jeríkó og
borði á svölum sem byggðar voru
sérstaklega fyrir ræðu hans bauð
hann velkominn.
Arafat stóð í ströngu á Gazasvæð-
inu í gær og lét engan bilbug á sér
finna þótt hann væri orðinn raddlaus
eftir tveggja daga ræðuhöld.
Hægrisinnaðir gyðingar mótmæltu
Arafat og og hvöttu til þess að hann
yrði drepinn og handtók lögreglan
65 manns eftir átök fyrir utan skrif-
stofu Yitzhaks Rabins forsætisráð-
herra.
Rabin veittist að mótmælendunum
og lýsti því yfir að friðarviðleitninni
yrði haldið áfram.
„Það er til fólk í ísrael sem vill frið.
Við stöndum meö því og þaö stendur
meðokkur,“sagðiArafat. Reuter
Ruðningskappinn O. J. Simpson:
Hníf ur fannst ná-
lægt morðstaðnum
Rannsókn stendur nú yfir á hugs-
anlegu morðvopni sem notað var
við morðiö á Nicole Brown, fyrrum
eiginkonu ruðningskappans O.J.
Simpsons og vini hennar Ron Gold-
man. Á sunnudaginn fann kona
stóran eldhúshníf með blóðblettum
nærri heimili Simpsons.
Fyrr hafði komið fram að vitni
höfðu séð O.J. Simpson kaupa eld-
húshníf sex vikum fyrir morðið.
Stærð hnífsins sem fannst (38 cm
hnífsblað) kemur heim og saman
við lýsingu á hnífnum sem keyptur
var en lýsingin þykir að öðru leyti
ekki eiga við hnffinn. Margir sér-
fræðingar eru efins um að hnífur-
inn tengist málinu á nokkurn hátt.
Búist er við niðurstöðum úr rann-
sókninni á næstu dögum.
Lögreglan í Los Angeles hefur
verið harðlega gagnrýnd fyrir að
hafa ekki sjálf orðið vör við hnífinn
Ruðningskappinn O.J. Simpson.
við leit sem fram fór að loknu at-
vikinu. Lögreglan hefur í fram-
haldinu girt af stórt svæði í ná-
grenni morðstaðarins ef ske kynni
að fleiri gögn fyndust sem kunna
aðtengjastmálinu. Reuter
Yasser Arafat sendir fyrirmönnum fingurkoss við opnun ávaxtasafaverk-
smiðju á Gazasvæðinu. Símamynd Reuter
W
Attu samleið með
frjálshyggjunni
eða viltu vernda
samhjálp og velferð?
- félagshyggjublaðið. Sími 631-600
Stuttarfréttir
SkotiðáFrakka
Uppreisnarmenn í Rúanda
skutu franska hermenn sem voru
að bjarga munaðarleysingjum.
Óttast er að Frakkar kunni að
skipta sér af bardögunum í Rú-
anda eftir skotárásina en emb-
ættismenn reyndu að gera lítið
úr henni.
Beigar senda iækna
Belgar hafa frestað að senda
hjúkrunariið til Rúanda eftir
skotárásina á Frakka.
Mitteirand hjá Mandela
Francois Mit-
terrand Frakk-
landsforseti er
kominn í opin-
bera heimsókn
til Suður-Afr-
íku, ; fyrstur
leiötoga tii að
heimsækja
landiö eftir að hvíti mmnihlutinn
lét af völdum.
Hörmungar í Jemen
Varað hefur verið við að fólk
kunni að deyja úr þorsta í Aden,
höfuðborg Suður-Jemens.
Reyntaðsannfæra
Sáttasemjarar ætla að reyna að
sannfæra deiluaðila í Bosníu um
að fallast á friöartillögu.
Kínverjartilbúnir
Kínverski utanríkisráðherrann
segir land sitt reiðubúiö að ræða
mannréttindamál við Bandaríkin.
Banvænumferð
Fjórtán manns létust í einu
umferðarslysi í Texas í gær og
alls fórust 37 þann dag.
Tutu i Líberíu
Desmond
Tutu, erkibisk-
up í Suður-
Afriku,erkom-
inn til Líberíu
þar sem hann
ætiar að reyna
að koma á sátt-
um stríðandi
fylkinga sem margir hafa reynt á
undan.
SkotiðiAþenu
Skotið var á tyrkneskan stjórn-
arerindreka í Aþenu í morgun og
hann drepinn.
Misheppnað valdarán
Stjórn Kambódíu sagði að hún
hefði komið 1 veg fyrir valda-
ránstilraun um helgina.
Hitabylgja
Undanfarna daga hefur hita-
bylgja með háu rakástigi riðið
yfir Ítalíu og hitinn farið upp í
37 gráöur.
Jóhannes
Páll páfi end-
uríók í gær að
börn ættu eín-
ungis að fæðast
innan hjóna-
bands tveggja
gagnkyn-
hneigðra ein-
staklinga en daginn áður höfðu
hommar og lesbíur m.a. krafist
réttar til ættleiðinga.
Harðlinumaður skotinn
Lögreglan í Egyptalandi skaut
herskáan múslíma til bana í suð-
urhluta landsins.
Lýðræðislegar kosningar
Fyrstu lýðræðislegu kosningarn-
ar í Gíneu-Bissau fóru fram í gær.
Sprengjuárás
Sprengjum var varpaö aö
menningarmiöstöð Tyrkja í Ham-
borg í gær í kjölfar morðs á kúrd-
iskum unglingi i borginni. Reutcr