Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1994, Qupperneq 24
36
MÁNUDAGUR 4. JÚLÍ 1994
Hlýjast í innsveitum
Enginn Suðumesja-
bærtil ennþá
„Það er enginn Suðurnesjabær
til ennþá og hefur aldrei verið.
Sameiningin var samþykkt en
það er eftir að velja hinu nýja
sveitarfélagi nafn og það hefur
ekki verið timasett hvenær sú
umferð fer fram,“ segir Ellert
Eiríksson í DV.
Della að skuldir séu vísi-
tölunni að kenna
„Fólk heldur að vísitalan valdi
því að það skuldi svo mikið. Það
er della. Óverðtryggð lán hafa til
dæmis verið dýrari en verð-
Ummæli
tryggð. Á tímum verðbólgunnar
var lánskjaravísitalan mjög
æskilegt tæki í lánaviðskiptum.
Núna er hún óþörf en skaðlaus,"
segir Snjólfur Ólafsson í DV.
Er þjóðsöngurinn sálmur
„Þjóðsöngur Islendinga er ekki
baráttusöngur eða hetjuljóð fyrir
alþýðu manna að taka saman
höndum og skipast í sveit. Þjóð-
söngurinn er lofsöngur um al-
mættið og eðli málsins sam-
kvæmt á hann heima innan um
aðra sálma við guðsþjónustur í
kirkjum landsins," skrifar Ásgeir
Hannes Eiriksson í Tímann.
Hann heiti Arnold, punktur
og basta
„Eg er búin að fara í gegnum
bréfaskriftirnar við nefndina og
niðurstaðan er að þetta er tómt
rugl sem ég er hætt að taka mark
á. Drengurinn heitir Amold,
punktur og basta,“ segir Aðal-
heiður Darúelsdóttir í DV.
Samanburðar-
rannsóknir á
máltöku bama
Dr. Dan I. Slobin prófessor
heldur opinberan fyrirlestur í
boði heimspekideildar Háskóla
íslands og fleiri í dag kl. 17.15 í
stofu M-201 í Kennaraháskóla ís-
lands. Fyrirlesturinn nefnist
Language acquisition in cross
Fundir
linguistic perspective og verður
fluttur á ensku.
Dr. Slobin er heimsfrægur fyrir
rannsóknir sínar á máltöku
barna og tengslum hennar við
eðli hugsunar, menningu og tjá-
skipti barna. þess má geta að í
bókinni Mái og máltaka sem kom
út hér á landi 1979 er meirihluti
efiiis eftir haxrn. Fyrirlesturinn
er ölium opinn.
Sagtvar:
Hagnaður varð af sölu hand-
sápanna.
Gætmn tungmmar
Rétt væri:... af sölu handsápn-
anna.
Betur færi þó: Handsápurnar
voru seidar með hagnaði.
í dag er suðaustan gola eða kaldi og
dáhtil súld eða rigning með köflum
á Austur- og Suðausturlandi en ann-
Veðrið í dag
ars fremur hæg norðaustlæg eða
breytileg átt og skýjað með köflum
en þokubakkar við ströndina í nótt.
Hiti 10-20 stig í dag, hlýjast í innsveit-
um norðan- og vestanlands en 6-12
stig í nótt. Á höfuðborgarsvæðinu er
fremur hæg norðaustlæg eða breyti-
leg átt, skýjað með köflum og mist-
ur. Hiti verður á bihnu 10-18 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 23.48.
Sólarupprás á morgun: 3.18.
Síðdegisflóð í Reykjavík 16.24.
Árdegisflóð á morgun: 5.27.
Heimild: Almanak Hóskólans.
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri skýjað 12
Egilsstaöir alskýjað 11
Galtarviti alskýjað 9
Kefla víkurflugvöllur skýjað 12
Raufarhöfn skýjað 10
Reykjavík þokumóða 12
Vestmarmaeyjar mistur 11
Bergen léttskýjað 13
Helsinki léttskýjað 15
Kaupmannahöfn léttskýjað 14
Ósló léttskýjað 15
Stokkhólmur léttskýjað 14
Þórshöfn súld 9
Amsterdam þokumóða 16
Berlín léttskýjað 20
Chicago skýjað 24
Feneyjar þokumóða 24
Frankfurt heiðskirt 23
Glasgow rigning 14
Hamborg léttskýjað 22
London skýjað 21
LosAngeles léttskýjað 21
Lúxemborg heiðskirt 25
Madríd léttskýjað 23
Malaga léttskýjað 23
MaUorca léttskýjað 23
Montreal léttskýjað 22
New York alskýjaö 27
Nuuk rigning 4
Orlando skúr 23
París léttskýjað 26
Róm heiðskírt 24
Valencia léttskýjað 26
Vín heiðskírt 18
Rögnvaldur Skíði Friðbjömsson baejarstjóri á Dalvík:
„Þetta starf leggst þannig í mig
að það sé erfitt en jafnframt spenn-
andi og það er vissulega ögrandi
að fá aö takast á við það. Annars
bar þetta allt mjög brátt að og ég
hafði ekki hugsað mér að starfa á
þessum vettvangi," segir Rögn-
valdur Skiði Friðbjömsson, nýráð-
Maöur dagsins
inn bæjarstjóri á Dalvík.
Rögnvaldur Skíði er fæddur í
Svarfaðardal árið 1949 og alinn þar
upp. Hann segist reyndar eiga
sama afmæhsdag og nýráðinn bæj-
arstjóri á Akureyri, báðir erufáedd-
ir 27. apríl. Eftir barnaskólapróf í
heimabyggð og gagnfræðapróf á
Ólafsfirðí lá leíð hans í Samvinnu-
skólann að Bifröst.
„Eftir að því námi lauk réðst ég
Rögnvaldur Skíði Friðbjörnsson.
til Kaupfélags Eyfirðinga og hef
starfað þar síðan. Ég var skrifstofu-
stjóri hjá fyrirtækinu í 12 ár og síð-
ustu 10 árin hef ég verið útibús-
stjóri KEA hér á Dalvík. Þetta er
orðinn langur tími og ég tel það
hollt, bæði fyrirtækinu og sjálfum
mér, aö ég breyti til. Og fyrst þessi
möguleiki kom upp var tilvaliö að
gera það nú.“
Rögnvaldur Skíði segist hafa
gaman af því í frístundum að
stunda ýmiss konar útiveru. „Ég
geri svolítið aö því að trimma. Þá
gerí ég nokkuð aö þvi aö fara með
byssu og stöng, ég fer á gönguskiöi
á veturna og til skamms tíma var
ég mikið með myndavél framan á
mér. En það sem heillar mig mest
í dag er að komast á hreindýraveið-
ar með góðum félögum. Það er úti-
veran sem er í fyrirrúmi," segir
Rögnvaldur Skíði.
Hann er giftur Guðríði Ólafsdótt-
ur og eiga þau 19 ára dóttur, Lilju
Bergiindi, og 17 ára son, Ólaf Helga.
Iiðunum
fækkar á HM
Nú eru fjórir leikir búnir í sext-
án hða úrslitum á heimsmeist-
arakeppninni í knattspymu í
Bandaríkjunum. í kvöld verða
tveir leikir og fara þeir fram í
íþróttir
Orlando og San Francisco. Bóh-
vía mætir Spáni og Þýskaland
mætir Suður-Kóreu. Báðir leik-
imar hefjast kl. 20.00 og þótt
Þýskaland og Spánn séu sterkari
á pappírnum þá er ómögulegt að
segja tii um hvernig leikirnar
fara, allt getur gerst eins og dæm-
in frá þessari spennandi keppni
sýna. Sjónvarpið mun sýna frá
báðum leikjum strax eftir kvöld-
fréttir þannig að ekkert fari nú
fram hjá áhugasömum knatt-
spymuáhorfendum sem hafa
verið sem límdir við skjáinn und-
anfamar tvær vikur.
Skák
Svíinn Hellers og Daninn Curt Hansen
urðu hlutskarpastir á alþjóðlegu móti í
Málmey í lok síðasta mánaöar. Þeir fengu
7 v. af 9 mögulegum, Epishín, Rússlandi,
og Zoltan Almasi, Ungverjalandi, fengu
6,5, Ulf Andersson, Sviþjóð, fékk 6, Kras-
enkov, Rússlandi, 4 og lestina ráku
Svíamir Hellstein með 2,5, Ahlander og
Brynell með 2 og Sjöberg með 1,5 v.
Ungverjinn Almasi, sem tefldi hér á
alþjóðlega Kópavogsmótinu á dögunum,
átti þessa sígildu fléttu á mótinu gegn
Bryneh- Ungverjinn með svart og á leik:
8
7
6
5
4
3
2
1
21. - Rf3 +! 22. gxf3 Bxf3 23. Rbd2 Bxh2 +!
og hvítur gaf. Ef 24. Rxh2 Dg6 + og mátar.
Jón L. Arnason
# * I
i i i i
i £
i * m £
# £
A & A ■ A A A
S s
abcdefgh
Bridge
Þeir sem eru vanir að spila bridge geta
lesið úr alls konar upplýsingum sem fram
koma við borðið, upplýsingar sem dyljast
oft á tíðum þeim sem óvanari eru. Mesta
kúnstin er sú að lesa úr upplýsingum sem
fram koma af þögn andstæðinganna við
borðið. Hér skal eitt dæmi skoðað. Sagnir
ganga þannig, vestur gjafari og AV á
hættu:
♦ K64
V 742
♦ D1072
+ K72
♦ D1032
V K83
♦ ÁKG84
+ 6
+ IÍ9Ö5
V DG109
♦ 9
* Á7
V Á65
♦ 653
+ ÁG1095
Vestur Norður Austur Suður
14 Pass 1» 2*
2f 3+ p/h
Suður lendir í þremur laufum eftir að
vestur opnar á einum tigli og hækkar
hjartasvar félaga. Vestur tekur í upphafi
tvo hæstu í tígli og spilar þriðja tíglinum.
Sagnhafi setur að sjálfsögðu tíuna, austur
trompar og spilar hjartadrottningu. í
þessari stöðu Uggur ljóst fyrir hvemig
spil andstæðinganna eru, þökk sé upplýs-
ingum sem þeir hafa gefið með sögnum
- og einnig með þögninni. Sagnhafi getur
gengið út frá því að spaðinn sé skiptur
4-4 þjá andstæðingunum, því hvorugur
þeirra sá ástæðu til þess að nefna Utinn
þrátt fyrir tækifæri til þess. Vitað er að
vestur var með 5 tígla og hann hiýtur
einnig að eiga minnst 3 hí örtu fyrir stuðn-
ingi sínum í Utnum. Þannig er ekki pláss
fyrir nema í mesta lagi eitt lauf. Suður
' drepm- þvi á hjartaás, spilar laufl á kóng-
inn og svínar laufgosanum með öryggi.
Spilaleið sem myndi hugsanlega dyljast
óvönum, en er auðfundin fyrir vanan
sphara.
ísak örn Sigurðsson