Dagur - 21.12.1978, Blaðsíða 9
Fyrr á þessu ári varð Kvennasam-
band Akureyrar aldarfjórðungs
gamalt. Það telst e. t. v. ekki ýkja
hár aldur, en á þessum árum hefur
sambandið unnið mikið starf þótt
það hafi ekki alltaf farið hátt. Hin
merka kona Halldóra Bjarna-
dóttir var á sínum tíma aðal-
hvatamaðurinn að stofnun sam-
bandsins, en að því standa fjögur
kvenfélög á Akureyri. Þau voru
hins vegar þrjú þegar sambandið
var stofnað. Fyrsti formaður þess
var Elísabet Einarsdóttir, en nú-
verandi formaður er Júdit Sveins-
dóttir. Markmið félagsins er í
meginatriðum áþekktng á fyrstu
árum þess þ. e. að vera samnefnari
kvenfélaganna á Akureyri, fá þau
til að vinna saman og koma á
námskeiðum fyrir konurnar. Auk
þess má nefna að á vegum sam-
bandsins starfa tvær nefndir,
orlofsnefnd húsmæðra og mæðra-
styrksnefnd, en hin siðari er í
endurmótun sem stendur.
• « •
„Halldóra Bjarnadóttir var búin
að kynna störf Kvennasambands
íslands og Kvennasambands
Norðurlands og hún taldi að það
yrði konum á Akureyri til heilla
ef stofnað yrði kvennasamband
hér í bæ. Þá störfuðu þrjú kven-
félög í bænum, Framtíðin, Hlíf og
Kvenfélag Einingar", sagði Júdit
Sveinsdóttir formaður K. S. A. í
samtali við Dag. „Nú eru þau
hins vegar fjögur, Kvenfélagið
Baldursbrá hefur bæst í hópinn.
Þegar sambandið var stofnað var
mikill hörgull á félögum sem
konur gátu tekið þátt í og þeim
þótti oft á tíðum að þær væru ekki
færar um að starfa í félagsskap. Á
vegum Kvennasambandsins voru
námskeið haldin, og sýningar á
verkum kvennanna. Þessum
þætti hefur verið fram haldið og
t. d. má nefna að við héldum
postulínsnámskeið fyrir nokkrum
árum. Eftir það var keyptur
brennsluofn sem nú er í Iðnskól-
KONUR
VTNARI
— segir Júdit Sveins-
dóttir formaður
Kvennasambands
Akureyrar
Samhand nnrðlenskra kvenna þingaði á Hrafnagili árið 1973 i tilefni af 60 ára
afniæli S. N. K. Mvnd: Friðrik Vestmann.
Júdit Sveinsdóttir.
Stjórn Kvennasambandsins var
hins vegar á öðru máli og nú er
verið að endurskipuleggja nefnd-
ina. Það er Ijóst að mæðrastyrks-
nefnd mun starfa á öðrum
grundvelli en hér áður fyrr. enda
t. d. mikið til búið að útrýma fá-
tækt í þeirri mynd sem þekktist
fyrir nokkrum áratugum. Nefnd-
in mun starfa í nánu samráði við
Félagsmálastofnun Akureyrar-
bæjar, en mæðrastyrksnefnd sá
áður um heimilishjálpina sem
stofnunin hefur tekið upp á sína
arma.
„Orlofsnefnd húsmæðra er mikið
yngri en mæðrastyrksnefndin.
Löggjöf um húsmæðraorlofið var
ekki sett fyrr en 1960. Markmið
nefndarinnar er að útvega hús-
mæðrum, orlof í viku til tiu daga.
Eldri konurnar hafa verið á ýms-
um stöðum, tvö síðustu árin í
Hrafnagilsskóla ásamt konum úr
Reykjavík og hefur þeim líkað
dvölin ákaflega vel. Það var erf-
iðara að leysa vandamál ungu
kvennanna, því þær áttu ekki gott
með að fara frá börnunum. Það
mál var leyst á þann hátt að
Kvennasambandið eignaðist hús
á Illugastöðum ásamt deild í
Ólafsfirði. Orlofsnefndin á Akur-
eyri er sú eina á landinu sem á sitt
eigið hús. Ég vil taka það skýrt
fram að orlofið er ekki bundið við
konur innan kvenfélaganna. Eina
skilyrðið er að konan hafi veitt
heimili forstöðu.
„Ég tel að sé þörf á félagsskap,
þar sem konur einar fá inngöngu.
Hvernig sem á því stendur virðast
blönduð félög ekki geta þróast
eðlilega, karlmennirnir vilja alltaf
vera forsvarsmenn, þrátt fyrir að
nóg sé af góðum konum í við-
komandi félagi. Og mér hefur
fundist í gegnum árin að ef eigi að
hrinda einhverju máli í fram-
kvæmd og vinna að því af dugn-
aði — þá séu konurnar ekki síðri.
Þær eru jafnvel ýtnari — gefast
ekki strax upp.“
Formaður Kvennasambands Ak-
ureyrar er Júdit Sveinsdóttir.
Gjaldkeri: Margrét Kröger. Rit-
ari: Sigrún Lárusdóttir. Varafor-
maður: Svanhildur Þorsteins-
dóttir. Vararitari: Úlfhildur
Ragnarsdóttir. Varagjaldkeri:
Sólveig Axelsdóttir. Meðstjórn-
endur: Marta Jónsdóttir og
Freyja Jónsdóttir.
Formaður Kvenfélagsins
Framtíðin er Ragnheiður
Bjarnadóttii. Formaður Hlífar er
Guðmunda Pétursdóttir. For-
maður Kvennadeildar Einingar
er Unnur Björnsdóttir og for-
maður Baldursbrár er Katrín
Ingvarsdóttir.
Þetta var örstutt blik úr langri
sögu. Við höfum ekki getað gert
annað en að minna á félög, sem
starfa af undraverðri þolinmæði
að settu marki. Við höfum ekki
heldur séð ástæðu til að tíunda
allt það góða slarf sem félögin
hafa unnið á undanförnum ára-
tugum, enda yrði sá listi langur.
Dagur óskar kvenfélagskonunum
allra heilla á ókomnum árum og
óskar þeim gleðilegra jóla.
I kvenfélögunum fjórum sem eiga
aðild að Kvennasambandi Akur-
eyrar eru um 320 félagar.
Meðalaldurinn er nokkuð hár og
Júdit sagði að erfiðlega gengi að
fá ungar stúlkur til þess að ganga í
kvenfélögin. E. t. v. væri ástæðan
sú að nafnið eitt fældi þær frá
þátttöku, en einnig verður að
hafa í huga að fjöldi félaga hefur
aukist að mun á síðustu árum og
ungar stúlkur eru yfirleitt mjög
bundnar við heimilisstörf og
barnagæslu.
„Námskeiðin eru mikilvægur
þáttur í starfi Kvennasambands-
ins, en hvað viðvíkur þeim verk-
efnum sem eru á döfinni má
nefna að kvenfélögin hafa fest
kaup á hjálpartæki við fæðingar.
Þetta tæki er komið til landsins og
verður væntanlega afhent fæð-
ingardeild sjúkrahússins fyrir
áramót. Þetta er fjárfesting upp á
rúmar þrjár milljónir króna og
félögin hafa skuldbundið sig til
að leggja fram 2,2 milljónir.
En þá er rétt að víkja að þein
nefndum sem starfa á vegum
sambandsins. Það er í fyrsta lagi
mæðrastyrksnefnd. Hún leystist
upp í vor þar sem nefndarkon-
urnar töldu að hún hefði ekki
lengur neinu hlutverki að gegna.
IfÍSI
Frá fclagsmálanániskciði á s. I. ári. Sigríður I horiacius annaðist lcið:
nániskciðinu sem fjallaði aðallega um fundarsköp. Sigríður er önnur frá vinstri. Mynd: Friðrik
DAGUR.9