Dagur - 20.12.1979, Blaðsíða 34
Pantið borð tímanlega.
Síminn er 22200
Samkvæmisklæðnaður.
Aðfangadagskvöld jóla 1912
Gleð þig, særða sál,
lífsins þrautum þyngd.
Flutt er munamál.
Inn er helgi hringd.
Minnstu komu Krists,
hér er skuggaskil.
Fagna komu Krists,
flýt þér tíða til.
Guð er eilíf ást,
engu hjarta er hætt.
Ríkir eilíf ást,
sérhvert böl skal bætt.
Lofið guð, sem gaf,
þakkið hjálp og hlíf.
Tæmt er húmsins haf,
allt er ljós og líf.
Kirkjan ómar öll,
býður hjálp og hlíf.
Þessi klukknaköll
boða ljós og líf.
Heyrið málmsins mál.
Lofið guð, sem gaf.
Og mín sjúka sál
verður hljóma haf.
Ekkert kyrrt né kalt,
öllum frelsi fætt.
Kristur elskar allt,
sem er hrjáð og hrætt.
. .. Ég er smærri en smár,
leita þjáður þín.
Lífsins herra hár,
græddu meinin mín.
Flutt er orðsins orð,
þagna hamarshögg.
Yfir stormsins storð
fellur drottins dögg.
Lægir vonzku vind,
slekkur beizkju bál.
Teygar lífsins lind
mannsins særða sál.
Kveikt er ljós við ljós,
burt er sortans svið.
Angar rós við rós,
opnast himins hlið.
Niður stjörnum stráð,
engill fram hjá fer.
Drottins nægð og náð
boðin alþjóð er.
— Ég er ungur enn,
ég er þreyttur þó.
Kveikt er bál, ég brenn,
gef mér frið og fró.
Vann mér tízkan tjón,
rauf hinn æðsta eið.
Glapti sálarsjón,
bar mig langt af leið.
Hvílík fingraför.
Allt með spotti spillt.
Tungan eiturör.
Ég fór vega villt.
Innra brennur bál,
lífsins dagur dvin.
Ég er syndug sál.
Herra, minnstu mín.
Stefán frá Hvítadal.
Sendi öllum vinum og kunningum bestu jóla- og nýárskveðjur og
þakka Norðlendingum samstarfið á árinu sem er að líða.
Stefán Valgeirsson, alþingismaður
og fjölskylda
KAUPFÉLAG HÚNVETNINGA
BLÖNDUÓSI og SKAGASTRÖND
SÖLUFÉLAG AUSTUR-HCNVETNINGA
,Vv
'JL
III illlil
unimiiiB
OSKUM OLLUM VIÐSKIPTAVINUM OKKAR
GLEÐILEGRA JÓLA OG GÓÐS OG IARS/ELS
NÝÁRS OG ÞÖKKUM VIÐSKIPTIN Á ÁRIN U
SEM ER AÐ LIÐA
34. DAGUR