Dagur - 20.12.1979, Síða 12

Dagur - 20.12.1979, Síða 12
Pálmi í Blaðavagninum — Hvenœr er mesti uppgangstími stúkunnar hér á Akureyri, á þessu 40 ára tímahili, sem þú ert búinn að vera í henni? Að undanskildu starfi ung- lingsstúkunnar Akurliljan, þá held ég að blómaskeið fullorð- insstúkunnar sé í kringum 1962-63, en þessi starfsemi hefur alltaf gengið í öldum sem ómögulegt er að sjá fyrir eða skilja. — En þú hefur haft afskipti af fé- lagsmálum víðar, eitthvað varstu I verkalýðsbaráttunni, eða hvað? Já, þar lenti ég í mestu átökum sem ég heft lent í um mína æfi. Fyrstu kynni mín af verkalýðs- baráttu eru þau, að ég er áhorf- andi að Nóvuslagnum í mars 1933, þá tæplega 15 ára, þar sem verkafólk og menn bæjarfógetans börðust á bryggjunni út af því að verkfallsverðir voru að koma í veg fyrir affermingu á tunnuefni úr skipinu Nóvu. Þessi atburður hafði þau áhrif á mig að ég verð aldrei samur maður. Þau áhrif eru þess eðlis að þau hafa ekki yfirgefið mig enn þann dag í dag. En ég er einn af stofnendum Iðju félags verksmiðjufólks á Ak- ureyri og var í fyrstu í varastjórn félagsins. Það er stofnað 1936 og fyrsta verkfallið, sem það félag lenti í, var 1. nóvember 1937, og það verkfall stóð í einn mánuð. Á meðan á því stóð fór ég aldrei heim úr verkalýðshúsinu og lenti í margháttuðum slagsmálum og gauragangi þennan tíma, því verkafólk á þessum árum var ekki eins samhuga og það er nú. Þá stóðu aldrei færri en 20 manns á verkfallsvakt og oft allt upp í 60 manns. Víða voru reynd verk- fallsbrot og oft kom það fyrir að allir tiltækir þustu út í þá bíla sem voru undir okkar stjórn, rútubíla sem einkabíla, og það var farið á staðinn og hann umkringdur. — Það er Ijóst af þessum orðum þinum að verkalýðsbarátta er allt öðru vísi nú, en hún var áður. Já, í síðasta verkfalli sem ég stóð í, þá get ég sagt þér það að ég þekkti ekkert af gömlu barátt- unni. Ekkert! En þeirri baráttu gleyma þeir aldrei sem í henni stóðu. — Hvenœr hefur svo Blaðavagn- inn göngu sína? Ég byrja bæði í götusópinu hjá Akureyrarbæ, og Blaðavagninum 1963. Blaðavagninn kom á Torgið fyrst 7. apríl, og þá í litlum hand- vagni, en síðar um haustið kemur sá vagn sem nú er þar. Á þessum tíma er búið að kvikna tvisvar í honum, og einu sinni sprakk hann í loft upp. — Þú slappst naumlega i það skiptið. Jú, og það var vegna heilsu- brests míns að það gerðist. Ég gat ekki kveikt á gastæki, sem er í vagninum, öðruvísi en að standa utan við vagninn, og það gerði ég í þetta skiptið. Þegar sprengingín varð þá þeyttist ég langleiðina suður af Torginu, og taska sem stóð í dyragættinni fór alveg suð- ur á götu. Þakið af vagninum þeyttist svo hátt í loft upp, að það sást yfir húsin við Brekkugötu, og bolurinn á vagninum sprakk þannig út að hann var eins og olíutunna í laginu. J — Við þökkum Pálma kœrlega fyrir skemmtilegt spjall. hj. Verðlauna- samkeppni SJÓMANNABLAÐIÐ Víkingur hefur ákveðið að efna til sam- keppni um sögur er fjalli um sjómannalíf, sjárvarútveg eða tengsl manns og_ sjávar. Greidd verða tvenn verðlaun: fyrir bestu frumsömdu söguna kr. 200 þúsund, og fyrir bestu lýsingu á sannsögu- legum atburði kr. 200 þúsund. Handrit, eigi lengri en sem nemur 20 vélrituðum síðum A4, berist Sjómannablaðinu Víkingi, Borgar- túni 18, 105 Reykjavík fyrir 1. mars 1980, merkt: Samkeppni, svo og dulnefni. Rétt nafn höfundar fylgi í lokuðu umslagi. Dónnefnd skipa: Guðlaugur Arason, Ási í Bæ og Guðbrandur Gíslason. Sjómannablaðið Víking- ur áskilur sé birtingarrétt, gegn höfundarlaunum, á öllu efni sem berst til keppni. Niðurstöður dóm- nefndar verða kynntar í aprílblaði Sjómannablaðsins Víkings á næsta ári. aBSSBBSSaSBaSEaBBBBBSBHSaSHBHaHBSHslBlsKsiaialHHSSHHlsKsllilSBIsKslSSBSHlsiaBaaS LOKAÐ vegna vörukönnunar Vegna vörukönnunar verða sölubúðir Kaupfélags Eyfirðinga á Ak- ureyri lokaðar eftir áramótin sem hér segir: SSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSI Matvörubúðirnar Vöruhús KEA neðri hæð og Véladeild Byggingavörudeild og Vöruhús KEA efri hæð ásamt Járn- og glervörudeild s s s B S S S H H S S S S S H S B S S B H S H B H H S S S s H H H B S B S B S H S H S S H S 'SBSSlsHHHHSHHHHSHHSHHHSHHSHHBSBHHSSS Miðvikudaginn 2. jan. til kl. 3 e.h. Miðvikudaginn 2. janúar og fimmtudaginn 3. janúar. Miðvikudaginn 2. janúar, fimmtudaginn 3. janúar og föstudaginn 4. janúar. Lokunartími útibúanna við Eyjafjörð verður að venju auglýstur í við- komandi útibúum. Kaupfélag Eyfirðinga HEIÐREKUR GUÐMUNDSSON Jólaminning Þegar berast glæstar gjafir góðra vina heim til þín, viltu sjá til samanburðar sextíu ára jólin mín? Mamma bar á borðið heima beztu föng, sem voru til, lagði svo í lófa mína lítið kerti og barnaspil. Enginn mátti, Guð minn góður, grípa í spil á jólanótt. Áður en kertið út var brunnið að mér læddist svefninn hljótt. Meðan draumadísin góða drenginn bar um fjöll og höf, geymdi hann í læstum lófa lengi þráða jólagjöf. Hún var smá, en hefur ornað hjarta mínu í sextíu ár. — Þó er mörg úr gildi gengin gjöf, sem metin var til fjár. Orðs erþér vant í frægustu orðabók lest þú og lest og leitar að túlkun og svörum. Nú hefurðu flett henni blað fyrir blað. Og bráðum er sjónin á förum. Þig langar að senda í ljóðstöfum þökk til lífsins og ástvina þinna. En yfir þá hugsun, sem heillar þig mest, er hvergi neitt orð að finna. 12.DAGUR

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.