Dagur - 30.05.1984, Side 2
2 - DAGUR - 30. maí 1984
Hefurðu smakkað
Viking-bjórinn
sem Sana
framleiðir til
útflutnings?
Unnur Karlsdóttir:
Nei, það hef ég ekki gert, en
ég hefði alls ekkert á móti því.
Sigmar Methúsalenisson:
Nei, en það væri gaman að
bragða á þessu.
Baldvin Þorláksson:
Nei, ekki rekur mig minni til
að hafa smakkað hann.
Stefán Gunnlaugsson:
Já. Annars er ég lítill bjór-
maður, en þessi bjór er ekki
síðri en margar erlendar teg-
undir.
Ketili Helgason:
Ég neyti ekki áfengis.
- Vertíðin er rétt að
fara í gang hjá okkur.
Þetta er annars búið
að vera ágætt í vetur.
Alltaf talsvert að gera
og t.d. voru 12 her-
bergi af 21 í leigu í
nótt, sagði Sigurður
Jóhannsson, hótel-
stjóri á Hótel Blöndu-
ósi er við ræddum við
hann fyrir skemmstu.
Hótel Blönduós byggir á gömlum
merg. Hótelið var lengi í þjóð-
braut og gestagangur mikill en í
þá daga var hótelið aðeins opið á
sumrin. Nýir eigendur tóku svo
við hótelinu fyrir nokkrum árum
og þá var sú ákvörðun tekin að
hótelið yrði opið allt árið.
- Okkur þótti það siðferðilega
rangt að reka hótelið aðeins yfir
sumarmánuðina. Meðal eigend-
anna eru fyrirtæki eins og Sölu-
félag A.-Húnavatnssýslu, Pólar-
prjón, sýslan og Arnarflug og
því eðlilegt að reyna að halda
opnu allt árið, segir Sigurður
hótelstjóri.
Að sögn Sigurðar hefur þetta
Sigurður Jóhannsson, hótelstjóri.
Bessi Þorsteinsson sem er Gaflari
eins og ég, er viðurkenndur lista-
kokkur.
- Hvað rekur Hafnfirðing eins
og þig hingað?
- Peningar, skýtur Bessi nú
inn í samtalið en hann er nú kom-
inn á vettvang eftir að hafa kokk-
að ofan í heilan vegavinnuflokk
og aðra kostgangara.
- Nei, það eru ekki peningarn-
ir. Ég er búinn að vera hér í átta
ár og kom fyrst hingað til þess að
hvíla mig. Ég var sjómaður og
ætlaði í upphafi aðeins að vera
hér í eitt ár en það hefur sem sagt
tognað úr því.
- Hvað sækja ferðamenn og
aðrir hingað til Blönduóss?
- Ég held að númer eitt sé að
hér eru margar bestu og jafn-
framt dýrustu laxveiðiár landsins.
Hingað koma menn úr öllum
heimshornum og þeir sem ekki
gista í veiðihúsum þeir koma
hingað. Mér er sérstaklega minn-
isstæður einn náungi frá Puerto
Rico sem hér dvaldi. Hann var
við veiðar í einni ánni og lengi vel
gekk hvorki né rak. En undir lok-
in krækti hann í einn lax og ég
hef aldrei á ævinni séð ánægðari
gest. Það bókstaflega ljómaði af
hönum þegar hann og laxinn
héldu til síns heima. Auk lax-
veiðiánna er svo margt annaó hcr
sem dregur að. Fólk á leið hér
um þjóðveginn og stoppar og
flestir þeirra leita hingað í mat
„Siðferðilega rangt að
hafa ekki opið allt árið“
— Rætt við Sigurð Jóhannsson, hótelstjóra á Blönduósi
líka gefist vel og gestagangur síst
minni en í gamla daga þegar
þjóðvegurinn lá við hlið hótels-
ins.
- Því er ekki að neita að rekst-
urinn er hálf þungur yfir svört-
ustu vetrarmánuðina en það er
vel hægt að reka þetta á heilsárs-
grundvelli, segir Sigurður og
fræðir okkur á því að á veturna
séu það aðallega sölumenn og
viðgerðamenn sem séu við-
skiptavinir en á sumrin eru út-
lendingar fjölmennir.
- Það er mikið að gera hér á
sumrin og þá er hótelið alltaf full-
bókað og við útvegum meirá að
segja gistingu úti í bæ. Það eru
ferðahóparnir sem eru okkar
bestu viðskiptavinir - útlendingar
í skipulögðum hópferðum og
þegar mest er að gera þá grípum
við til húsnæðis sem við eigum út
í bæ. Þetta húsnæði er m.a. nýtt
af sláturhúsfólki á vetrum en allt
í allt komum við 60 til 70 manns
fyrir þar í gistingu.
- Hvað með heimamenn.
Koma þeir hingað í mat?
- Það er lítið um það og fólk
kemur hingað alls ekki að tilefn-
islausu. Það er þá vegna árshá-
tíða eða einkasamkvæma. Fólk
er íhaldssamt í þessum efnum
a.m.k. hefur það enga ástæðu til
þess að kvarta yfir matnum.
eða gistingu, segir Sigurður Jó-
hannsson, hótelstjóri.
Og það er alveg óhætt að mæla
með Hótel Blönduósi við ferða-
fólk. Herbergin eru þægileg og
maturinn góður og vel útilátinn.
Þá má og nefna að staðurinn hef-
ur leyfi til vínveitinga og eins er
möguleiki fyrir þá sem vilja fá sér
snúning, að dansa í salnum þar
sem reglulega eru uppákomur af
einhverju tagi. - ESE.
Þakkir fyrir
góða þjónustu
í áratugi höfum við sem á Ytri-
Brekkunni búum, notið þægi-
legra viðskipta við verslunina í
Hlíðargötu 11. Þessa er vert að
þakka og minnast.
Verslunarstjórarnir og starfs-
fólk allt hefur sýnt sanna háttvísi
og góðvild. Því söknum við fólks-
ins og þeirra þæginda sem þessi
þjónusta hefur veitt en okkur ber
að skilja að með breyttum þjóð-
félagsháttum breytast líka versl-
unarviðskipti.
Þökk sé ykkur öllum sem hafið
starfað í Hlíðargötu 11 svo mörg
liðin ár. Góðar óskir fylgja
ykkur. Heill sé með Kaupfélagi
Eyfirðinga hér eftir sem hingað
til.
Laufey Sigurðardóttir
frá Torfufelli.