Dagur - 30.05.1984, Page 3
Deilurnar um sparkvöllinn sunnan Eiðsvallagötu:
30. maí 1984 - DAGUR - 3
„Hef lofað
að gjalda
líku líkt“
- segir Albert Karlsson
- Þar sem það sem Guðrún
Sigurðardóttir segir um deil-
urnar vegna leiksvæðisins milli
Eiðsvallagötu og Gránufélags-
götu, er ekki að öllu leyti sann-
leikanum samkvæmt vil ég
taka það skýrt fram að ég hef
aldrei hótað að berja krakk-
ana. Móðir mín hefur heldur
ekki sigað mér eitt eða neitt og
það eina sem ég hef raunveru-
lega gert er að lofa því að
gjalda líku likt ef þessir grisl-
ingar gerðu alvöru úr þeirri
hótun sinni að meiða köttinn
eða berja móður mína.
Þetta sagði Albert Karlsson
sem býr að Eiðsvallagötu 28
ásamt móður sinni og ömmu.
Eins og fram kom í Degi sl. mánu-
dag hefur fjölskyldan um margra
ára skeið átt í útistöðum við
krakka sem hafa leikið sér í
knattspyrnu á umræddu leik-
svæði.
- Sú fullyrðing Guðrúnar að
krakkarnir hagi sér kurteislega er
heldur ekki á rökum reist. Ef
þetta er kurteisa hliðin á þeim
þá vil ég ekki sjá hina, sagði Al-
bert en að hans sögn þá hafa
móðir hans og amma mátt þola
alls kyns klámyrði og annan mið-
ur fallegan munnsöfnuð frá
krökkunum.
- Ég geri mér fullkomlega
grein fyrir því að þetta mál er
ekki auðleyst en bæjaryfirvöld
verða þó að láta það til sín taka.
Það er ekki hægt að ætlast til þess
að við líðum rúðubrot, drullu-
kökukast, brotin tré og eyðilagða
kartöflugarða í framtíðinni, fyrir
utan stöðugan hávaða frá því
snemma á morgnana langt fram
á nætur, sagði Albert Karlsson.
- ESE
„Vilji til að
leysa þetta mál“
— segir bæjarverkfræðingur
sem á sæti f leikvallanefnd
- Þaö er ekki gott við þessu að
gera en svæðið er á skipulagi
sem opið leiksvæði og auðvit-
að er ónæði af því sem slíku,
sagði Stefán Stefánsson,
bæjarverkfræðingur er blaða-
maður Dags ræddi við hann
um deilurnar sem risið hafa
vegna sparkvallarins.
Að sögn Stefáns hefur dregist
að koma þessu leiksvæði í viðun-
andi horf og það mál ekki inni á
áætlun þessa árs.
- Það er best að leysa mál sem
þessi eins fljótt og auðið er og
það má vel vera að það sé hægt
að flytja sparkvöllinn t.d. á opna
svæðið fyrir austan Hjalteyrar-
götu. Ég geri ráð fyrir því að það
mál verði skoðað af leikvalla-
nefnd en það hefur aldrei komið
til tals að mér vitandi að leggja
þennan völl niður. En það er
kannski. lausn að flytja hann,
sagði Stefán Stefánsson
Það var Árni Steinar Jóhanns-
son, garðyrkjustjóri sem benti á
svæðið við Hjalteyrargötu sem
hugsanlega lausn á málinu en
samkvæmt upp.ýsingum hans var
sáð í svæðið í fyrra og það því
mjög viðkvæmt. Bæði garðyrkju-
stjóri og bæjarverkfræðingur
voru sammála um að svæðið við
Hjalteyrargötu myndi fljótlega
breytast í s/að ef álagið væri mik-
ið en spurningin er bara sú hvort
það sé ekki betra fyrir krakkana
að leika knattspyrnu þar en í for-
arvilpunni sunnan Eiðsvallagötu
og því leiðirida andrúmslofti sem
ríkt hefur rriilli deiluaðila. -ESE
Húsmæður athugið
TILBOD HEFST
föstudaginn 1. júní
Svínakjöt kílóverð:
Ný læri ............ 153 kr.
Kótelettur ......... 253 kr.
Hamborgarhryggir .. 260 kr.
Reyktir kambar
úrbeinaðir........ 240 kr.
Bayonesskinka .... 240 kr.
Svínahakk......... 120 kr.
Kálfakjöt:
Kálfasnitzel ....... 250 kr.
Kálfahakk .......... 130 kr.
Kálfalæri .......... 130 kr.
Kálfalundir.......... 250 kr.
Hrossakjöt:
Hrossabuff ......... 160 kr.
Hrossagúllash ...... 140 kr.
Saltað hrossakjöt .... 55 kr.
Brytjaðir
hrossasperðlar ...... 90 kr.
Sláturhús Benny Jensen
Lóni • Sími 21541.
Svæðið sem deilurnar standa um. - í baksýn er Eiðsvallagata 28.
Mynd: ESE
VönihúsKSA.
í nýjum bunm?
■ ■i
■ ■il
Opnum
á föstudag
1e / /
. juni
endurbættar
og glæsilegar
deUdir
á fyrstu hæð
Yöruhúss
j| Þar eru:
HljómdeUd.
Sportvörur.
LeUdöng.
Ritföng.
Og SkódeUd
(á sínum stað)
■■ni
Herradeildin er flutt
á efiri hæð.
Líttu inn,
við komum
á óvart
SlMI
(96) 21400
■ Ml