Dagur - 30.05.1984, Blaðsíða 4

Dagur - 30.05.1984, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - 30. maí 1984 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI SÍMI:. 24222 ÁSKRIFT KR. 150 Á MÁNUÐI - LAUSASÖLUVERÐ 22 KR. RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: HERMANN SVEINBJÖRNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: GÍSLI SIGURGEIRSSON BLAÐAMENN: EIRÍKUR ST. EIRI'KSSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI: 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Erfiðleikar í skipasmíðaiðnaði Sjaldan eða aldrei hefur útlitið verið eins svart hjá skipasmíðaiðnaði landsmanna og nú. Á Alþingi fyrir nokkru svaraði iðnaðarráð- herra fyrirspurn þingmanna um það hver verkefnastaða skipasmíðastöðvanna væri um þessar mundir, en næg verkefni hafa verið til þessa, samkvæmt svörum iðnaðarráðherra. í svörum ráðherra kom fram, þegar litið er á þau í heild, að engin hinna fjórtán skipa- smíðastöðva sem könnunin náði til hefur full- nægjandi verkefni út þetta ár. Lengst ná verkefnin fram á haustið og margar smærri stöðvarnar eru verkefnalausar um þessar mundir. T.d. ríkir algjör óvissa um framhald nýsmíða hjá Slippstöðinni á Akureyri þegar smíði raðsmíðabátanna tveggja lýkur á þessu ári, en útlit er fyrir að stöðin hafi næg verkefni fram í nóvember. Hjá Stálvík í Garðabæ eru fyrirliggjandi um tveggja og hálfs mánaðar verkefni við að ljúka nýsmíði og eins og hálfs mánaðar vinna er við viðhald. Hjá Þorgeiri og Ellert á Akranesi hefur lítið verið unnið við nýsmíðaverkefnið þar undanfarið, en áætluð tveggja og hálfs mánaðar vinna við raðsmíða- skipið þar og um mánaðarvinna við viðhalds- verkefni. Hjá öðrum, smærri skipasmíða- stöðvum er ástandið yfirleitt verra en þetta. Þetta hlýtur að vera stjórnvöldum mikið áhyggjuefni, ekki síður en þeim sem starfa í þessari grein íslensks atvinnulífs. Nú þegar hugmyndin er að hefja sókn í atvinnumálum landsmanna og byggja þar mest á iðnaðar- uppbyggingu er skipasmíðaiðnaðurinn á von- arvöl. Þar hefur skapast mikil sérhæfð þekking, sem horfur eru nú á að fari forgörð- um að miklu leyti. Þetta er reyndar ekki að- eins áhyggjuefni þeirra sem reka skipasmíða- stöðvarnar sjálfar, því fjölmörg önnur fyrir- tæki s.s. vélsmiðjur og rafiðnaðarfyrirtæki tengjast þessari grein. Starfsemi Slippstöðvarinnar, stærstu skipa- smíðastöðvarinnar á landinu, vegur mjög þungt í atvinnulífi Akureyringa, enda hafa þessar bágu framtíðarhorfur valdið miklum ugg meðal heimamanna. Það verður með einhverjum hætti að sjá til þess að þessi atvinnugrein, sem saman- stendur af fjölmörgum iðngreinum, haldi velli. Það yrði dýrara fyrir þjóðfélagið að týna niður allri þeirri verkkunnáttu og þekkingu sem til er orðin og þurfa síðan að leita til ann- arra þjóða með viðhald og endurnýjun skipa- stólsins. „Konungur öskuhauganna“ á Akureyri: „Þetta er andskoti leiðinleg vinna“ Það fer ekki á milli máia hver það er sem ræður ríkjum á öskuhaugum Akureyrar á Glerárdal. Þar æðir um á fullri ferð maður nokkur þéttvaxinn og kominn á efri ár, en snerp- an er í lagi og munnurinn á réttum stað ef svo ber undir. „Blessaður vertu, ég væri ekki hérna ef ég hefði ekki mölvað á mér löppina, það var ágætt að staðsetja mig hérna þegar það gerðist. Þetta er andskoti leiðin- leg vinna, blessaður vertu. Þetta er þó skömminni til skárra á sumrin en á veturna í kuldanum sem er oft mikill,“ sagði „kon- ungur öskuhauganna" er við ræddum við hann. Við spurðum að nafni og það stóð ekki á því: „Ég heiti Elías Ólafsson en annars heiti ég Eli Olsen með réttu því ég er Færey- ingur. En þessi heimskulegu lög ykkar urðu til þess að ég varð að skipta um nafn þegar ég varð ríkisborgari. Þetta er heimsku- legt því ambögur eins og Schram og svoleiðis eru látnar viðgang- ast.“ - Hvenær komstu til íslands og hvers vegna? „Það veit enginn sína ævina fyrr en öll er, vinur minn. Hvers vegna kom ég? Hvers vegna átti ég ekki að koma, ha? Ég kom hingað 1942 og hef lengst af verið á togurum. Annars fór ég í sveit fyrst í Fagraskóg og þar hitti ég kerlinguna. Hún hafði verið vinnukona þar en það var víst ákveðið af æðri máttarvöldum að við ættum að hittast. Já, þetta var eitthvað sem átti að gerast með kerlinguna, blessaður vertu.“ - Hverju kastar fólk hér á haugana, öðru en sorpi og slíku? „Eg veit ekki hvort ég á nokk- uð að vera að segja þér það. Það er ýmislegt jú eins og sófar og svoleiðis." - Og þú stjórnar öllu og passar að menn setji þetta á fyrirfram ákveðna staði. „Já, ég geri það, annars er það bæjarverkfræðingur sem ákveður þetta allt saman, ég læt bara losa hér eins og hann segir til um.“ Það var ekki að sjá á Elíasi að honum leiddist mikið í vinnunni þótt hann segi að hún sé leiðin- leg. Hann geislaði af ánægju og lífsgleði og við spurðum hann að lokum hvort sumarið væri ekki örugglega komið. „Jú, það er á hreinu enda er ég að fara í sumarfrí um mánaða- mótin. Ætli maður reyni ekki að komast heim og kíkja á gömlu heimahagana áður en maður fer fyrir hornið. Heyrðu! Þessar heimskulegu reglur. Bróðir minn ætlaði að senda mér skerpukjöt í jólagjöf og hann fékk það bara endursent heim aftur frá íslandi, það má ekki senda eitt læri eða svoleiðis, þetta er alveg bandvitlaust allt saman,“ sagði Elías og nú var hann rokinn. gk-. Fækkun sjúkrarúma á F.S.A. sumarið 1984 Svo sem flestum mun kunnugt verður samdráttur í starfi á sjúkrahúsinu í sumar. Það hefir verið kynnt í blöðum og útvarpi. Umfjöllunin um þessa ákvörð- un hefir borið keim af andstöðu gegn henni og má slíkt teljast eðlilegt. Enginn vill skerta heil- brigðisþjónustu, þegar litið er í eigin barm. Því er ástæða til að skýra betur orsakir, tilhögun og tilgang þess að samdráttur þessi var ákveðinn. 1. Sjúkrahúsinu hefir verið gert að spara í rekstri. Fjárveiting- ar í launalið voru lækkaðar um 2,5%, en í öðrum rekstri um 5%. 2. Hjúkrunarfræðingar sem komnir eru yfir 10 ára starfs- aldur eiga um 6 vikna sumar- leyfi. Fjöldi hjúkrunarfræð- inga við störf á sjúkrahúsinu er nú 90 alls. Sumarleyfin eru að vísu mismunandi löng, en ógerlegt er að fá þau skörð fyllt því hæfa starfsliði sem þarf til að sinna að fullu verk- um þeirra sem fríin eiga. 3. Víða í sjúkrahússbyggingunni sem tekin var í notkun árið 1953, er orðin bráð nauðsyn á að viðhald komi til. Til þess þarf að hafa svigrúm, svo best er að sjúklingar og hjúkrun- arlið sé ekki í næsta nágrenni meðan að viðgerð fer fram. Til þess að mæta þessum þríþætta vanda hafa læknar, hjúkrunar- fræðingar og stjórn sjúkrahússins samþykkt að rúmum verði fækk- að yfir sumarið, frá 1. júní til 1. september, um svo sem nemur 17% af heildartölu legurúma á sjúkrahúsinu. Fyrri hluta sumars verða til- flutningar á rúmum af'Lyflækn- ingadeild inn á aðrar deildir, og á meðan sú deild er lokuð tekur starfsliðið sitt sumarleyfi. Auð deildin verður þá lagfærð meðan tækifærið gefst til þess. Um miðj- an júlí þegar Lyflækningadeild er aftur komin í starf, verður sami háttur hafður á með Handlækn- ingadeild, hvað snertir flutning rúma og frí starfsliðsins. Sumarleyfi þess hóps lýkur í byrjun september. Þá er aftur ætlað að sjúkrahúsið gegni þjón- ustu við þann sjúklingafjölda, sem það er skráð fyrir, 150 manns. Þessi fækkun sjúkrarúma gerir það að verkum, á meðan hún varir, að allar legudeildir sjúkra- hússins verða að þrengja að sinni sérgrein, en tekið verður á móti bráðum sjúkdómsinnlögnum í öllum sérgreinum, sem hér eru stundaðar. Vonandi fá sjúklingar þá læknishjálp og hjúkrun sem þeir eru í þörf fyrir meðan sjúkrahúsdvöl þeirra varir. Ragnheiður Árnadóttir hjúkrunarforstjóri.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.