Dagur - 30.05.1984, Síða 16

Dagur - 30.05.1984, Síða 16
\t - HUrOAQ - £881 'mm Æ 16 - DAGUR - 30. maí 1984 Spjall við Pálma Halldórsson frá Löngumýri í Skagafirði „Ég vil ekkert álblendi í Eyja- fjörðinn s - Heyrðu mig. Eg skaut rjúpur með honum afa þfnuin frosta- veturinn mikla 1918. Hann hef- ur verið um fermingu þá og ég man að hann var með riffil en ekki haglabyssu. Það var nú nieira skytteríið. Allt fullt af rjúpu heima við bæi. „Ég skil ekkert í honum Páli að vera að senda þig á mig.“ „Það er ekkert nema snjór og vitleysa í Glerárhverfi.“ Það er víst satt að heimurinn er lítill og það er margt skrýtið í henni veröld. Ég sat við ritvélina á fimmtudagsmorgni og var að skrifa um Pólarprjón á Blönduósi er síminn hringdi og maður að nafni Páll Rist spurði hvort við hefðum ekki áhuga á skemmti- legu myndefni. Rúmlega átt- ræður nábúi hans væri að slá garðinn sinn upp á gamla móðinn með orfi og ljá og það væri tilval- ið að smella mynd af gamla manninum. Ég þakkaði fyrir og tíu mínútum síðar var ég kominn upp á Bjarkarstíg og heilsaði upp á hinn aldna heiðursmann, Pálma Halldórsson. Að gömlurn og góð- um sið heilsaði ég með handa- bandi. - Margblessaður, sagði Pálmi og brýndi ljáinn. - Ertu kominn? Pað er nú meiri vitleysan í hon- um Páli að segja ykkur frá mér. Ef ég væri ekki orðinn svona gamall þá hefði ég hlaupið og fal- ið mig, sagði Pálmi og tók þétt í höndina á mér. - Ég heiti nú annars Pálmi Halldórsson, líklega þekktur sem húsasmiður hér á Akureyri. Húsasmiður en ekki byggingar- meistari eins og þeir titla sig margir í símaskránni sem ekkert hafa smíðað. En blessaður vertu ekki að skrifa það. Skrifaðu sem minnst, sagði Pálmi og brosti.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.