Dagur - 30.05.1984, Page 23

Dagur - 30.05.1984, Page 23
Sýningu Elíasar lýkur um helgina Málverkasýning Elíasar B. Halldórssonar í sýningar- salnum að Glerárgötu 34 sem opnuð var um síðustu helgi hefur verið vel sótt og nokkur hluti myndanna sem Elías sýnir hefur selst. Sýningin er opin virka daga kl. 20-22 en aðra daga kl. 14—20. Sýningunni lýkur nk. sunnudag. Öldrunardagur kirkj- unnar í Akureyrarkirkju Um nokkurra ára skeið hefur uppstigningardagur verið há- tíðlegur haldinn sem öldrunar- dagur kirkjunnar. Tilgangur- inn er sá að vekja athygli á málefnum aldraðra, hvetja þá til þátttöku í helgihaldi kirkj- unnar og minna á að kirkjan hefur sérstöku hlutverki að gegna við að létta ellimóðum sporin og hjálpa fólki á skeið- skiptum fullorðins- og elliára til að vera í stakk búið til að mæta komandi dögum. Af þessu tilefni verður sér- stök hátíðarguðsþjónusta í Akureyrarkirkju uppstigning- ardag, 31. maí nk. og hefst hún kl. 13.30. Við þá athöfn prédikar séra Trausti Péturs- son, fv. prófastur á Djúpa- vogi. Allir eru velkomnir til þessarar guðsþjónustu en sér- staklega er vænst þátttöku hinna eldri borgara. Eftir guðsþjónustuna verður öllum ellilífeyrisþegum boðið til kaffidrykkju í kapellunni sem bræðrafélag og kvenfélag kirkjunnar munu annast ásamt sóknarnefnd. Þeir sem óska eftir akstri til guðsþjónustunn- ar geta hringt í síma 22468 milli kl. 11 og 12 á uppstign- ingardag, en félagar úr Kiwan- isklúbbnum Kaldbak munu annast aksturinn. Sóknarprestar. Sjómannadagurinn er á sunnudag Sjómannadagurinn er á sunnudaginn og verður dagskrá hans með hefð- bundnum hætti á Akureyri. Um morguninn verða sjó- mannamessur í Akureyrar- kirkju, þar sem sr. Birgir Snæbjörnsson messar, og í Lögmannshlíðarkirkju, þar sem sr. Pálmi Matthíasson messar. Kl. 13.30 hefst dagskrá við sundlaugina, þar sem keppt verður í sundi, reiptogi og fleiri greinum, en kl. 16.00 hefst kappróður við höfnina. Um kvöldið verður síðan stig- inn dans í Sjallanum. Óli G. sýnir á Ddvík og Blönduósi Óli G. Jóhannsson verður með grafíksýningu í Ráð- húsinu á Dalvík á morgun, uppstigningardag og stend- ur hún frá kl. 15-22. Sýn- ingin stendui aðeins þenn- an eina dag á Dalvík, en á laugardag og sunnudag sýn- ir Oli á hótelinu á Blöndu- ósi og verður sýningin opin frá 15-22 báða dagana. Að undanförnu hefur Óli verið með sýningar á Akureyri, Sauðárkróki, Ólafsfirði og Húsavík, sem allar hafa gengið mjög vel. Óli sýnir grafíkmyndir sem fjalla um dýr, börn og athafnalíf við sjávarsíðuna. Margt um að vera í Sjallanum Nemendur Dansskóla Sig- urðar Hákonarsonar verða með tvær sýningar á sam- kvæmisdönsum í Sjallanum um helgina. Verður sú fyrri á föstudagskvöld og hin síð- ari daginn eftir. Á laugardag verður tískusýning frá versluninni Flónni og er ekki að efa að þar verður ýmislegt fróð- legt á boðstólum. Hljómsveit Ingimars Eydál leikur fyrir dansi bæði á föstudags- og laugar- dagskvöld og Ingimar mun leika létta tónlist fyrir matargesti. Á sunnudag taka hinir sívinsælu Gautar við, og leika á miklum sjómannadagsdansleik í Sjallanum. íþrótdr um helgina Þór og Breiðablik leika í 1. deild íslandsmótsins í knattspyrnu og verður leikurinn á Þórsvelli kl. 14 á laugardag. Verður fróð- legt að sjá hvort Þórsarar ná að rífa sig upp og sigra eftir tvo slæma ósigra í síð- ustu leikjum sínum. Hitt Akureyrarliðið í 1. deild, KA, heldur til Reykjavíkur og mætir Val á sunnudagskvöld og gæti þar orðið um hörkuleik að ræða. í 2. deild er heil umferð á dagskrá. Á laugardag leika ÍBÍ - Völsungur á fsa- firði, KS og Skallagrímur leikj á Siglufirði, ÍBV og FH í Hafnarfirði og Ein- herji og Njarðvík á Vopna- firði. Allir leikirnir hefjast kl. 14. Á sunnudag er svo síðasti leikur umferðarinn- ar, Víðir og Tindastóll leika í Garðinum kl. 20. Eitt golfmót verður á Akureyri. Það er „upstill- ing“ fyrir Olíubikarinn og hefst keppni á Jaðarsvelli kl. 10 f.h. Firmakeppni Léttis: Nýlega fór fram hin árlega firma- keppni Léttis og var hún haldin að þessu sinni á hringvelli félags- ins í Breiðholti. Þátttaka var mjög góð, 100 fyrirtæki voru skráð til leiks og var keppt í ung- lingaflokki og fullorðinsflokki. Keppni var jöfn og tvísýn, enda voru þarna mættir flestir bestu gæðingar bæjarbúa. Úrslit urðu þessi í flokki full- orðinna: Guðbjörg Ragnarsdóttir á Þorra frá Höskuldsstöðum. 1. Efnagerðin Flóra. Keppandi Birgir Árnason á Aron Aldísar Björnsdóttur. 2. Brauðgerð Kr. Jónssonar. Keppandi Ragnar Ingólfsson á Feng Sigurðar Snæbjörns- sonar. 3. Dreki hf. Keppandi Örn Grant á Örvari Gunnbjörns Arnljótssonar. Úrslit í unglingaflokki: 1. Véladeild KEA. Keppandi Guðbjörg Ragnars- dóttir á Þorra Sigurðar Snæ- björnssonar. 2. Ásprent. Keppandi Sonja Grant á Fróða Arnar Grant. 3. Hlíðasport. Keppandi Margrét Stefáns- dóttir á Pontíusi Stefáns Bjarnasonar. Þá voru einnig veitt knapa- verðlaun í báðum flokkum. í unglingaflokki hlaut þau Eið- ur Matthíasson sem keppti fyrir Strengjasteypuna hf. og í flokki fullorðinna hlaut þau Aldís Björnsdóttir sem keppti fyrir Iðnaðardeild SÍS. Hestamannafélagið Léttir þakkar bæði fyrirtækjum og knöpum fyrir þátttökuna. „Varist vímu haldið heilsu“ „Þessi slagorðakeppni var framlag JC Súlna til landsverk- efnis JC-hreyfingarinnar á ís- landi 1983-84 en það bar yfir- skriftina „Andóf gegn eitur- efnum“. Við efndum til keppni meðal barna og unglinga 15.- 9. bekk í grunnskólum Ak- ureyrar,“ sagði Sigurður Ólafs- son formaður „Byggðarlags- nefndar 11“ í JC Súlum er rætt var við hann eftir verðlaunaaf- hendingu sem fram fór í Odd- eyrarskólanum 17. maí sl. Þessi keppni fór þannig fram að nemendur sömdu slagorð og skiluðu þeim í nokkurs konar kjörkassa hver í sínum skóla. Dómnefnd skipuð fulltrúum frá kennurum, nemendum og JC Súlum valdi síðan 10 bestu slag- orðin í hverjum skóla og höfund- ar þeirra fengu afhent viðurkenn- ingarskjöl. 25 slagorð héldu síðan áfram í úrslitakeppnina, 5 þau bestu úr hverjum skóla. Úr þeim var síð- an valið besta slagorðið: „Varist vímu, haldið heilsu“ en höfundur þess er Melkorka T. Ólafsdóttir, Reynivöllum 4, nemandi í Odd- eyrarskólanum. Hún hlaut að launum áletraðan skjöld auk viðurkenningarskj alsins. Sigurður var spurður um þátt- töku í keppninni og svaraði hann því til að hún hefði að vísu verið svolítið misjöfn eftir skólum, en heilt yfir hefði hún verið nokkuð góð. Greinilegt hefði verið að þetta hefði verið tekið alvarlega af þátttakendum og áttu dómarar í miklum erfiðleikum við dóm- arastörfin, því slagorðin voru hvert öðru betra og eins bárust margar myndir sem sýndu andúð á eiturefnum. Hvað á svo að gera við verð- launaslagorðið? „Það verður sett á límmiða sem síðan verður dreift til allra grunnskólanemenda á Akureyri í haust. Einnig er ætlunin að hafa þennan límmiða til sölu ef ein- hver félagasamtök utan Akureyr- ar hefðu áhuga á að dreifa hon- um í sinni heimabyggð,“ sagði Sig- urður Ólafsson að lokum. ÁM. Börnin úr Oddeyrarskólanum með viðurkenningarnar sínar.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.