Dagur - 10.05.1985, Page 3
10. maí 1985- DAGUR-3
Leiðrétting
Pau slæmu mistök áttu sér stað í
blaðinu sl. miðvikudag að með
grein í miðopnu blaðsins þar sem
fjallað var um skólaslit í Sam-
vinnuskólanum að Bifröst 1. maí
birtist fyrirsögn um Samvinnudag
á Blönduósi.
Er beðist velvirðingar á þess-
um mistökum en hér að ofan seg-
ir frá Samvinnudeginum á
Blönduósi.
Aðalfundur KÞ:
Búvörudeildin
starfi
sjálfstætt
Á aðalfundi KÞ sem haldinn
var á Húsavík í síðustu viku
voru að venju samþykktar
margar tillögur. Meðal annars
var þar samþykkt tillaga sem
lýtur að Búvörudeild Sam-
bandsins.
í tillögunni sem samþykkt var
samhljóða, er þeirri áskorun
beint til aðalfundar Sambands
ísl. samvinnufélaga, hvort ekki
sé tímabært að endurskoða
skipulagsmál bænda innan sam-
vinnuhreyfingarinnar. Fundurinn
telur að Búvörudeild Sambands-
ins eigi að starfa sjálfstæðar, fá
sjálfstæðan fjárhag og sérstjórn.
Leggur fundurinn til að á aðal-
fundi Búvörudeildar verði sem
flestir fulltrúar kjörnir úr hópi
framleiðenda og meirihluti
stjórnar úr þeirra hópi. Jafnframt
verði kveðið á um að enginn
stjórnarmaður skuli sitja lengur
en tvö kjörtímabil í senn.
Samvinnudagur var haldinn á
Blönduósi laugardaginn 20.
aprfl. Þetta var m.a. alhliða
kynning á framleiðslu- og sölu-
vörum samvinnufyrirtækj-
anna, líkt og verið hefur á fyrri
samvinnudögum sem haldnir
hafa verið á Akureyri og Pat-
reksfirði. Á Blönduósi var
samvinnudagurinn þó haldinn
sem fyrsti liðurinn í Húna-
vöku, sem Ungmennasamband
Austur-Húnvetninga heldur.
Einnig voru nokkur iðnfyrir-
tæki í héraðinu meðal þátttak-
enda, sem ekki eru tengd sam-
vinnurekstrinum.
Guðmundur Logi Lárusson
starfsmaður LÍS sagði að sam-
vinnudagurinn hefði verið hald-
inn í félagsheimilinu á Blönduósi
og að samtals hefðu 17 fyrirtæki
kynnt þar framleiðslu sína. Með-
al annars voru þar kynntar
mjólkurvörur frá Mjólkursamlag-
inu á Blönduósi, Mjólkursamlagi
KEA og Mjólkursamsölunni í
Reykjavík. Osta- og smjörsalan
kynnti þarna einar tíu tegundir af
ostum og Grænmetisverslun
landbúnaðarins kynnti uppskrift-
ir og dreifði upplýsingaefni.
Kjötvörur voru frá kjötvinnslu
Sölufélags A.-Húnvetninga og
Afurðasölu Sambandsins, og
Sambandsverksmiðjurnar á Ak-
ureyri kynntu sumarfatnað og
skó með ACT-vörumerkinu.
Margt fleira var kynnt þarna frá
deildum og samstarfsfyrirtækjum
Sambandsins, og einnig sýndi
húsgagnaiðja Kf. Rangæinga á
Hvolsvelli stofuhúsgögn og
opið frá
laugard.
Ath
10-18
10-12
/— Hafnari
og a
Nýkomid - Nýkomn
Vandaður og glæsilegur
sumarfatnaður
frá sænska fyrirtækinu
Lindbeiss
Sumarpils í stærðunum 36 til 50
Sólkjólar og sætar blússur
í fallegu sumarlitunum
Velklædd erkonan ánægð!
uifi
erólun ^telnunnat
Greiðslukort
Visa Eurocard
Hafnarstræti 98 • Akureyri • Sími (96) 22214
sjúkrastóla. Nokkur heimafyrir-
tæki kynntu einnig framleiðslu
sína, m.a. brauðgerðin Krútt á
Blönduósi, Rækjuvinnslan á
Skagaströnd og Særún á Blöndu-
ósi.
Skemmtiatriði voru nokkur á
samvinnudaginn, og einnig var
tískusýning þar sem hópur starfs-
fólks úr Sambandsverksmiðjun-
um á Akureyri sýndi föt. Aðsókn
var gífurlega mikil, því að sam-
tals er talið að nær 2000 manns
hafi komið þarna, og greinilega
margir aðkomnir, því að íbúar á
Blönduósi eru aðeins um 1200.
Um kvöldið hélt svo Kf. Hún-
vetninga hóf í félagsheimilinu þar
sem var kvöldmatur, skemmti-
atriði og dans á eftir.
Gestir fylgjast með störfum matreiðslumanns af áhuga.
Norðlendingar
eru þekktar
um allt land fyrir gæði
Við erum alltaf að markaðssetja nýjar vörur.
Það sem við kynnum nú:
Rauðvínslegin læri og
jurtakrydduð læri
Umboðsmaður fyrir Norðurland er Heildverslun Valgarðs
Stefánssonar hf. Akureyri.
Sláturfélag Suðurlands
Skúlagötu 20
Reykjavík.
Samvinnudagur
á Blönduósi