Dagur - 10.05.1985, Qupperneq 8
8-DAGUR-10. maí 1985
iiÍSIiiiftÍÍ!
__.v* '* *. A
"»......................
Garðlönd
Þeir aðilar sem hafa haft garðlönd á leigu, og vilja
halda þeim áfram, eru beðnir að greiða leigugjald
fyrir 17. maí nk. Ef endurnýjun hefur ekki átt sér
stað fyrir 17. maí, verða garðarnir taldir lausir til
ráðstöfunar.
Leigugjaldið fyrir 1985 er ákveðið 450 kr.
pr./100m2. Greiðsla leigunnar fer fram á bæjar-
skrifstofunni, en þeir sem vilja leigja garðland í
fyrsta sinn, eða vilja breytingar frá fyrra ári, eru
beðnir um að koma á skrifstofu Garðyrkjunnar í
Gróðarstöðinni. Garðyrkjustjóri.
AKUREYRARBÆR
Skólagarðar Akureyrar
Innritun 10, 11 og 12 ára barna er hafin. Innritun
fer fram á Vinnumiðlunarskrifstofunni í síma
24169.
Síðasti innritunardagur er 22. maí nk.
Garðyrkjustjóri.
Skólagarða r-Sta rfs vel I i r
Skólagarðar Akureyrar óska að ráða flokksstjóra
til leiðbeiningarstarfa í sumar. Æskilegt er að um-
sækjandi hafi reynslu af ræktunarstörfum og
verkstjórn.
Nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Garð-
yrkjudeildar í síma 25601 frá kl. 9-12 daglega.
Skriflegar umsóknir sendist til Akureyrarbæjar,
Garðyrkjudeildar, P.O. Box 881, 602 Akureyri.
Umsóknarfrestur er til 17. maí nk.
Garðyrkjustjóri.
Vinnuskóli Akureyrar
Skráning 13,14 og 15 ára unglinga sem óska eftir
vinnu í sumar er hafin. Skráningin fer fram á
Vinnumiðlunarskrifstofunni í síma 24169.
öllum umsækjendum er skylt að gefa upp nafn-
númer sitt, svo og nafn og nafnnúmer framfær-
anda.
Síðasti skráningardagur er 22. maí nk.
Garðyrkjustjóri.
Vinnuskóli Akureyrar
Starf forstöðumanns við Vinnuskóla Akureyrar er
laust til umsóknar. Æskilegt er að umsækjandi
hafi reynslu í verkstjórn, og menntun á garðyrkju-
sviði.
Vinnuskóli Akureyrar óskar einnig að ráða flokks-
stjóra til starfa í sumar. Reynsla í verkstjórn æski-
leg.
Nánari upplýsingar gefur skrifstofa Garðyrkju-
deildar í síma 25601 frá kl. 9-12 daglega.
Skriflegar umsóknir sendist til Akureyrarbæjar,
Garðyrkjudeildar, P.O. Box 881, 602 Akureyri.
Umsóknarfrestur er til 17. maí nk.
Garðyrkjustjóri.
í Dynheimum
Það er ekki ýkja langt síðan
nokkrir nemendur úr sjö-
unda, áttunda og níunda
bekk Gagnfræðaskóla Sauð-
árkróks komu í heimsókn til
Akureyrar og tróðu upp í
Dynheimum. Unglingarnir
sýndu valda kafla úr söng-
leiknum Gretti eftir Egil
Ólafsson og tókst sýningin
ákaflega vel.
Heimsókn þessi er liður í
auknum samskiptum á milli
nágrannabyggðarlaga á
Norðurlandi, sem komið var
á í tilefni af ári æskunnar.
Unglingar frá Akureyri hafa
farið í svipaða heimsókn til
Dalvíkur fyrr á árinu og í
bígerð eru fleiri slíkar heim-
sóknir unglinga. Um 120
unglingar sáu Gretti í Dyn-
heimum og voru undirtektir
mjög góðar að sögn Stein-
dórs Steindórssonar um-
sjónarmanns Dynheima.
Vildi hann koma á framfæri
þakklæti til Sauðkræking-
anna fyrir konunglega
skemmtun sem og einstak-
lega góða framkomu, en
unglingarnir gistu í Dyn-
heimum og voru alveg til
fyrirmyndar eins og Stein-
dór orðaði það. - mþþ
Vel heppnuð
heimsókn
Myndir: KGA