Dagur - 10.05.1985, Side 9
10. maí 1985 - DAGUR - 9
[ : ■■
i-i-
, -'f ' i
.
■
:
Benedikt Guðmundsson.
,/£á‘ ég verði
ekki að sleppa
golfinu í sumar
- Benedikt Guðmundsson formaður Þórs á línunni
- Benedikt Guðmundsson?
- Já það er hann.
- Þú ert nýlega tekinn við
formennsku í íþróttafélaginu
Þór á Akureyri, ekki satt?
- Jú ég tók við formennsk-
unni á aðalfundi í febrúar.
- Og hvernig er?
- Þessi spurning er erfið.
Þetta er ekkert létt og er alveg
nýr heimur fyrir mann.
- Á hvaða hátt?
- Ég hef starfað í handknatt-
leiksdeild og handknattleiksráði
og þess háttar, en þetta er bara
allt annar handleggur. Við erum
að tala um stórt félag eins og
Þór er, og mér finnst hvíla mikil
ábyrgð á mér sem formanni. Öll
stjórnin sem tók við á aðalfundi
í febrúar er skipuð nýjum
mönnum og við vissum í sann-
leika sagt varla að hverju við
gengum. Mestur okkar tími
hingað til hefur farið í að koma
okkur inn í hin ýmsu mál. Við
reynum að feta okkur áfram á
eigin vegum að nokkru leyti,
þótt allir séu tilbúnir til að
leiðbeina okkur, og þetta er allt
að koma.
- Hver voru svo helstu verk-
efnin sem blöstu við þegar nýja
stjórnin komst til valda?
- Mál númer eitt hjá Þór er
stórátak í vallarmálunum. Við
stefnum að því að girða allt okk-
ar svæði í sumar og þekja það
svæði sem við eigum fyrir norð-
an malarvöllinn út að Skarðs-
hlíðinni. Við eigum þarna tvo
hektara lands sem við viljum
fara að koma í notkun eins fljótt
og hægt er. Þetta verða dýrar
framkvæmdir.
- Og árið 1985 mun vera
merkisár í sögu Þórs.
- Já, félagið verður 70 ára 6.
júní og við ætlum að leggja
metnað okkar í að fagna afmæl-
isárinu á ýmsan hátt. Við ætlum
að gefa út afmælisblað og á af-
mælisdaginn stefnum við að því
að vera með einhverja skemmti-
lega tilbreytingu. Annars verður
sumarið auðvitað afmælissumar
og allar okkar uppákomur verða
afmælisuppákomur. I haust
stefnum við svo að því að halda
veglegt afmælishóf í tilefni þess-
ara merku tímamóta.
- Hvað eru margir félagar í
Þór?
- Þeir eru á annað þúsund.
Það eru margir sem hafa dottið
út af félagaskrá vegna flutninga
t.d. en eru áfram félagar, sumir
æfa hér og taka þátt í starfi á
ýmsan hátt án þess að komast
nokkru sinni á skrá þannig að
það er erfitt að segja nákvæm-
lega til um þetta, en við erum
eitthvað á annað þúsundið Þórs-
arar.
- Það er dýrt að reka íþrótta-
félag, hver er velta íþróttafé-
lagsins Þórs?
- Aðalstjórn félagsins veltir
ekki miklum peningum en deild-
irnar og þá aðallega knatt-
spyrnudeildin eru með veltu
sem skiptir milljónum. Þeir pen-
ingar sem aðalstjórn hefur til
umráða eru peningar sem koma
frá íþróttasjóði til framkvæmda
og framlag bæjarins. í ár höfum
við 220 þúsund til framkvæmda
frá íþróttasjóði, 375 þúsund frá
bæjarfélaginu og af þeirri upp-
hæð fara 250 þúsund í fram-
kvæmdir og 125 í reksturinn.
- Og þess sem á vantar er afl-
að með hinni „hefðbundnu"
betliaðferð?
- Já það fer mestur tími
þeirra sem eru í forsvari í
íþróttahreyfingunni í það að
afla peninga á einn eða annan
hátt og það gengur á ýmsu. Það
fer mikið eftir því hvernig
ástandið er í þjóðfélaginu, ef illa
árar finnum við í íþróttahreyf-
ingunni það strax.
- Nú ert þú „gamall jaxl" úr
handboltanum og knattspyrn-
unni sem er búinn að leggja
keppnisskóna upp á hillu. Er
hægt að finna tíma fyrir eitthvað
annað en að stunda vinnu og
gegna formennsku í Þór?
- Það verður eitthvað lítið
sem hægt verður að gera meira.
Ég hef aðeins komið við upp á
golfvelli undanfarin ár þótt ég
hafi ekki unnið nein stórafrek
þar, en ætli ég verði ekki
sleppa golfinu í sumar, ég held
það því miður.
- Jæja Benedikt, ég þakka
þér fyrir spjallið og vertu bless-
aður.
- Takk sömuleiðis. gk-.
U
landaöir sjaváréttu í skt
nvristuðubrauc .
siljad lambalæn \
is siktum túmat. \ \
g ænmeti 1 \ \
kt im kartöflum. | \
ir wnnukckur. \Kr. 680,
nep
m/djúp
\ steikt
ílfylltar
Hljomsfeit
riifidansí til
T)
lautan leikur '
amtidiskáteki.
/ Laugafrdagurlll. tnaí \
|Opnað/kl. 18,00. prfá sæti laijs í mat.
1 Töfraflauran skemmtir!
Tískusýning frá versluninni Sif.
kjallarinn
Fostudagur 10. mai
Dúett Snorra
og Matta
leikur létt lög.
Simnudagur og manudagur
Dúettinn sem sló svo rækilega í gegn um síðustu helgi,
Andri Bachmann.
LETTIH
Firmakeppni
Hestamannafélagsins Léttis
verður haldin laugardaginn 11. maí á hringvelli
félagsins í Breiðholti ki. 2 e.h.
Knapar mæti kl. 13.30 stundvíslega.
Nefndin.