Dagur - 10.05.1985, Side 10
10- DAGUR- 10. maí 1985
Það hafði verið saumaklúbbur hjá henni kvöldið áður. Hún var að gangafrá spariboll-
unum og skeiðunum. Tókfram kaffibrúsa, hellti „alvöru“-mjólk úr fötuyfir í könnu,
tíndi svo til snúða og sagði að á þessu heimili œttu allir að vera eins og heima hjá sér.
Hún er Valgerður Schiöth á Rifkelsstöðum í Öngulsstaðahreppi í Eyjafirði. Það var
þriðjudagsmorgunn og ákaflega fallegt veður.
hendurnar vinnufúsar á lofti ef
eitthvað stendur til, t.d. bygging-
ar og annað slíkt.“
- Enginn hrepparígur?
„Nei, ég hef ekki orðið vör við
hann, þvert á móti er mikill sam-
einingarhugur í fólki. Það hefur
undanfarið verið mikið til um-
ræðu að sameina hreppana þrjá
hér í Firðinum og ég tel að það
sé það sem koma skal. Við þurf-
um bara tíma. Nú eru það ekki
lengur samgöngurnar sem standa
í veginum, heldur félagslega hlið-
in sem er þrándur í götu samein-
ingarinnar. Það er ómögulegt að
koma á sameiningu ef fólkið er á
móti henni, það verða allir að
vera sammála um hana. Það er
besta leiðin að vekja upp þann
draug sem hrepparígurinn er að
sameina hreppana án vilja
fólksins."
Að hitta mann
Valgerður hefur lokið við að
ganga frá eftir saumaklúbbinn og
þar sem við sitjum við eldhús-
borðið að Rifkelsstöðum þótti
mér tími til kominn að spyrja um
ætt og uppruna.
„Ég er fædd hérna hinum meg-
in við ána,“ segir hún og bendir
út um eldhúsgluggann. „Á Hóls-
húsum og þar er ég uppalin. Fer-
illinn? Ég fór í Menntaskólann á
Akureyri og veturinn eftir stúd-
entspróf fór ég í Húsmæðraskól-
ann að Laugalandi með það fyrir
augum að fara seinna í Hús-
mæðrakennaraskólann. En fyrst
ég var á annað borð komin yfir
ána, þá fannst mér eins gott að
halda mig þar og hef verið hérna
megin síðan. Ég veit svo sem
ekki hvort ég hefði verið ánægð-
ari þó ég hefði haldið áfram í
skóla eins og til stóð, líklega
ekki. Það er nú einu sinni svona,
þegar maður hittir mann, þá vilja
áformin breytast.
Við byrjuðum að búa hér á
Rifkelsstöðum árið 1971, ég og
maðurinn minn, Gunnar Jónas-
son, en hann er héðan. Þá var
strax hafist handa við að byggja,
fyrst yfir heyið og kýrnar og síð-
ast yfir fjölskylduna. Það er siður
að byggja alltaf síðast yfir kon-
una og börnin. Það verður líka
sjálfsagt að vera svoleiðis, ef
menn ætla að byggja lífsafkomu
sína á skepnunum.
í upphafi bjuggum við félags-
búi með tengdaforeldrum
mínum, Jónasi Halldórssyni og
Þóru Kristjánsdóttur, þau eru
nú orðin öldruð og slitin en samt
með allan hugann við búskapinn
og það segi ég satt að þau hafa
reynst okkur betri en enginn og
það hefur alla tíð verið góð sam-
vinna milli okkar.
Ellin
Mér finnst það mjög mikil upp-
lifun að kynnast þessari kynslóð
og mér finnst óskaplega gott að
krakkarnir mínir alist upp með
fólki af þessari kynslóð. Það eru
allt önnur viðhorf hjá öldruðu
fólki, þetta er fólk sem unnið hef-
ur alla ævina baki brotnu og það
sér hlutina í allt öðru ljósi.
Það er fólki geysimikils virði
að geta verið heima, að það fái
að vera í sínu umhverfi þar sem
það hefur lifað sín bestu ár og ég
veit að ef tengdaforeldrar mínir
t.d. færu á elliheimili þá væru þau
með allan hugann hér í sveitinni.
Hér er líf þeirra og starf og þess
vegna er það svo mikilsvert að
þau fái að vera í þessu umhverfi.
Einnig er það okkur mikils virði
að hafa þau hér svo það er beggja
hagur.
Mér finnst að það ætti að
virkja fólk sem á elliheimilum
býr meira. Það væri hægt að
koma á sambandi milli unglinga
og þeirra sem búa á elliheimili,
það fólk gæti miðlað svo mikilli
lífsreynslu sem ég held að ungl-
ingar hafi gott af að kynnast. Það
eru margir mjög einmana á elli-
heimilum, eiga kannski enga
nána aðstandendur og fáir sem
koma í heimsókn, þess vegna
held ég að það hljóti að vera af
hinu góða ef hægt væri að koma
þessum samskiptum á.
Þegar fólk hættir að hafa eitt-
hvað til að hugsa um og annast
þá sljóvgast það svo fljótt, þetta
gerist oft þegar fólk flytur inn á
elliheimili. Mér líst vel á þá
stefnu að byggja smáíbúðir fyrir
aldraða þar sem þeir geta haft
sitt eigið dót og geta hellt upp á
kaffi handa gestum sínum en far-
ið í mat í sameiginlegu mötu-
neyti.
Það er margfalt meira sem gert
er fyrir gamla fólkið nú til dags
miðað við það sem áður var.
Meðalaldur okkar fer líka hækk-
andi og það eru sífellt fleiri sem
komast í þann hóp. Félag aldr-
aðra er að mér skilst ansi öflugt
og gerir marga góða hluti. Hins
vegar er fjárhagsstaða aldraðra
bágborin og almennt má segja að
bilið á milli hinna ríkui og hinna
fátæku sé stöðugt að breikka.
Það er samt furðulegt hvað sumir
eru duglegir að pota sér áfram,
menn geta keypt sér dýra bíla og
farið í utanferðir svo að stundum
er maður efins þegar verið er að
tala um fátæktina.“
Ekkert líf á mölinni
- Er ekki bindandi að standa í
búskap?
„Þetta er bindandi starf, jú.
Það er það eina sem ég get fundið
þessu starfi til foráttu hversu
bindandi það er. Það eru geysileg
viðbrigði fyrir fólk sem hefur lif-
að og leikið sér að fara út í
búskap. Kostir starfsins eru samt
það miklir og sveitin svo heillandi
að það vegur upp á móti, ég kýs
mér ekki neitt annað starf
fremur. Umhverfið í sveitinni er
mikið manneskjulegra en á möl-
inni, sérstaklega fyrir sunnan. Ég
hef aldrei búið fyrir sunnan og er
bara áhorfandi að því lífi sem þar
er lifað, en mér finnst þetta ekk-
ert líf sem þetta fólk lifir. Ég er
svo mikill sveitamaður í mér að
mér finnst þetta oft á tíðum vera
einhvers konar gervilíf. Það er
svo mikill hraði og stressið á fólk-
inu mikið, það er eins og fólkið
umturnist þegar það kémur út í
umferðina. Það er eins og fólk
hugsi ekki um annað en að kom-
ast á milli staða á sem skemmst-
um tíma. Ég held því fram að
fólk þurfi ekki að flýta sér svona
mikið, það er kannski vegna þess
að ég hef aldrei getað flýtt mér
sjálf. Kemst þó hægt fari, hugsa
ég oft með mér og það hefur
hingað til gengið alveg ljómandi
vel.“
- Ferðu oft suður til Reykja-
víkur?
„Nei, ég fer ekki oft, það er
þá bara þegar ég þarf að sækja
eitthvað þangað. Það er ágætt að
koma til Reykjavíkur, heilsa upp
á ættingjana og fara í búðir, en
það er líka ósköp gott að koma
heim aftur. Veistu, ég held að
þessi blessuð höfuðborg okkar
hafi verið staðsett á kolvitlausum
stað, það rignir lárétt þarna!
Maðurinn minn sagði einu sinni
- Valgerður Schiöth húsfreyja á Rifkelsstöðum
í Ongulsstaðahreppi í Helgar-Dags-viðtali
Sáttir við skaparann
Á meðan Valgerður var að sýsla
með sparibollana trúði hún mér
fyrir því að þegar ég ók í hlaðið
hefði hún haldið að ég væri þarna
komin til að boða henni ein-
hverja trú. Það hefur eflaust ver-
ið „biblíusvipurinn" sem villt hef-
ur um fyrir Valgerði. Ég var að
minnsta kosti að ámálga það við
skaparann að láta nú hana Val-
gerði vera heima við þegar ég
kæmi og svo reyndist. Hvaða þátt
skaparinn hefur svo átt í því skal
ósagt látið.
- Jæja, hélstu ég ætlaði að
frelsa þig? spyr ég.
„Mér bara datt það fyrst í hug,
þegar ég sá ókunnugan Reykja-
víkurbíl koma hingað. Við hérna
í Eyjafirðinum lifum í sátt við
skaparann og þurfum ekkert á
trúboðum að halda. Menn eru
ekki með neinn æsing hér, það
eru rólegheitin sem sitja í fyrir-
rúmi. Ég var að syngja á Dvalar-
heimilinu Hlíð um daginn, með
Samkórnum Þristi, en það er kór-
inn héðan úr sveitinni og þegar
söng var lokið þakkaði Jón frá
Garðsvík fyrir hönd heimilis-
manna. Hann sagði að oft kæmi
fólk á elliheimilið að syngja en
það væri líka oftast að boða ein-
hverja trú í leiðinni, en við hefð-
um verið alveg laus við allt trú-
boð. Hann sagði að Eyfirðingar
væru rólynt og gott fólk og að
það væri áin okkar sem örugglega
ætti sinn þátt í því, þarna rennur
hún lygn áfram endalaust og það
væri ekki annað hægt en að vera
sáttur við skaparann og taka hlut-
unum með jafnaðargeði. Ég held
að það sé heilmikið til í þessu
hjá Jóni.
Eyfirðingar eru miklir sam-
vinnumenn. Samhjálpin er mikil
og það eru allir boðnir og búnir
að rétta hjálparhönd ef eitthvað
kemur upp á. Og þær eru ótal
Valgerður Schiöth er söngkona mikil, fyrir utan að syngja með Samkómum iÞristi, syngur hún
fyrir blómin sín og ekki er annað sjáanlegt en að þeim líki það vel, a.m.k. vora þau
afskaplega „blómleg“. Myndir: mþþ
/
„Eg vil heldur
staifa af alefli
að hví sem eg er
aðgemenað
vasast í ölluí(