Dagur - 10.05.1985, Page 13
10. maí 1985 - DAGUR - 13
Sveltur sitjandi
Á síðustu árum hafa augu manna
opnast fyrir því hve ferðamanna-
iðnaðurinn er gífurlega mikilvæg-
ur hverju byggðarlagi. ísland er
vaxandi ferðamannaland og
ferðamálafrömuðir hafa spáð
mikilli aukningu á ferðamanna-
straumi ti! landsins á allra næstu
árum. Bæjarfélög eru misjafn-
lega í stakk búin til að taka á
móti þessari aukningu en það er
ljóst að samkeppnin hefur harðn-
að mikið. Erlendir ferðamenn
þýða gjaldeyri - fjármagn til at-
vinnulífsins og þjónustugreina.
Ekki er óvarlegt að áætla að tekj-
ur af ferðamannaþjónustu færi
mestu ferðamannabæjunum hér
á landi svipað og nokkur meðal
fyrirtæki.
Eitt sinn settu menn samasem-
merki á milli ferðamannaþjón-
ustu og Akureyrar. Akureyri var
í fararbroddi en eins og á svo
mörgum öðrum sviðum virðist
bærinn vera að glutra forystunni
niður. Akureyri er svo sem enn í
þjóðbraut, veðursældin er hin
sama og nálægðin við Mývatn en
önnur bæjarfélög hafa saxað á
forskotið með öflugri kynningar-
starfsemi og áróðri. Eitt sinn
þótti íslendingum sjálfsagt að
bregða sér á skíði til Akureyrar.
Hlíðarfjall var paradís íslenskra
skíðamanna en eins og allir vita
heyra þessir tímar sögunni til.
Önnur bæjarfélög hafa bætt sína
aðstöðu á meðan Akureyringar
karpa um lyftugjöld og skíða-
hótelið sáluga grotnar niður.
Þetta er ástandið í hnotskurn -
sveltur sitjandi kráka en fljúg-
andi fær.
Ástandið í hótelmálum á Ak-
húka
ureyri er auðvitað löngu lands-
frægt og „frægðin“ hefur spurst
til útlanda. Beri svo við á þessari
þotuöld að þota lendi á Akureyr-
arflugvelli með útlendinga „af
einhverjum óskiljanlegum ástæð-
um“ mega hinir sömu búast við
því að þurfa að sofa í farartækinu
sjálfu eða milli spilakassanna á
flugvellinum. Að vísu er loksins
farið að rofa eitthvað til en betur
má ef duga skal. í Reykjavík
byggja bændur viðbót við Hótel
Sögu sem nemur meiru en öllu
hótelrými á Akureyri en þessi
viðbót dugar þó engan veginn til.
Öll hótel eru yfirfull í höfuðborg-
inni en fáir nenna að leggja leið
sína til Akureyrar til að liggja í
tjaldi. Slíku nennir fólk ekki
nema á náströndum.
„Nývirki“
Nýlega var sýnd í sjónvarpi mynd
um skíðabæ í Sviss. Þar var helj-
armikil rennibraut aðalaðdrátt-
araflið. Ferðamenn koma
hvaðanæva úr heiminum og
gapa á þetta furðuverk eins og
naut á nývirki. Rennibrautin hef-
ur vafalaust kostað skildinginn en
hún er fyrir löngu búin að færa
bæjarfélaginu milljónir á milljón-
ir ofan í hreinan hagnað. Hvernig
væri nú að bæjarstjórn Akureyr-
ar eða framsýnir menn með aura-
ráð hefðu forgöngu um að útvega
Akureyri einhvers konar „ný-
virki“ sem laðað gæti að ferða-
menn. Slíkt þyrfti auðvitað ekki
að vera „rússíbani" frá Skíða-
stöðum og niður í bæ en eitthvað
ætti að vera hægt að gera. Hvern-
ig væri t.d. að styðja rækilega við
bakið á þeim mönnum sem ætla
að halda hér hundadagahátíð í
sumar? Hátíð þessari er ætlað að
koma í stað karnivalsins sem fór
af stað í fyrra. Nú má vel vera að
• Loftmynd af Ráðhústorgi. Eins og sjá má er gráupplagt að „loka“ torginu með góðri byggingu.
það hummi í einhverjum enda
var karnivalið hálfgert fíaskó.
Veður voru válynd en það sem
verra var, bæjarbúar gengu ekki
af heilum hug til leiks. Flestir
mættu, ekki til að sýna sig heldur
til að sjá aðra. Helst til að sjá
nágrannana „gera sig að fíflum".
Slíkur útnesjahugsunarháttur
gengur ekki á karnivali. Samt
sem áður gerðu aðilar eins og
forráðamenn Sjallans sig seka um
slíkan aulahátt. Þar var karnival-
klæddu fólki úthýst þrátt fyrir að
rækilega væri auglýst að veitinga-
yhús bæjarins yrðu opin í anda
karnivalsins.
í fyrra brást skipulagningin en
nú eru skipuleggjendur á einu
máli um að láta ekki þau mistök
endurtaka sig. En það er sama
hvað allri skipulagningu líður. Ef
bæjarbúar og bæjarstjórn taka
ekki heilshugar þátt í hundadaga-
hátíð í sumar þá lognast hún út
af og óhætt er að kveðja fjölda
ferðamanna í síðasta sinn um
leið.
Ráðhústorg
En það er ekki nóg að halda
bara hundadagahátíð eða karni-
val. Það þarf auk þess að hressa
upp á bæjarbraginn. Það þarf að
rífa verstu kofana við göngu-
götuna og byggja þar almennileg
hús sem ekki eru bænum til
skammar. Það má vera að ein-
hverjir telji það bænum til fram-
dráttar að hafa hér rakarastofu,
að hruni komna við aðalgötu
bæjarins. Húskofa á borð við þá
sem við sjáum í lélegum kúreka-
myndum frá því fyrir stríð. Þeir
sem þannig hugsa ættu að gefa sig
fram á Minjasafninu hið fyrsta.
Hvernig væri nú að taka ærlega
til hendinni á Ráðhústorgi þannig
að torgið geti í framtíðinni staðið
undir nafni? Það sem í fyrsta lagi
þarf að gera er að Akureyrarbær
á að kaupa Nýja bíó og breyta því
í ráð„stefnu“hús þar sem jafn-
framt væri hægt að hafa hljóm-
leikasal. Sýna mætti þar leikrit og
þar þyrfti að vera veitingastaður.
Auðvitað kostar þetta peninga og
það þarf að byggja við eða ofan
á húsið en er það ofverk Akur-
eyringa?
Lengi hefur verið um það rætt
að Kaupfélag Eyfirðinga byggði
stórmarkað á hominu gegnt Nýja
bíói. Nú er lag til að semja við
KEA um að byggja þarna hús
sem lokað gæti torginu norðaust-
an megin. Best væri að þessi
bygging næði allt frá
Landsbankahorni að Nýja bíói
því þegar þetta skjól kaupfélags-
ins væri upp komið væri gráupp-
lagt að ráðast í byltingarfram-
kvæmdir á sjálfu torginu.
Akureyringar hafa hlotið verð-
skuldað lof fyrir göngugötuna og
þá á ég við sjálfa framkvæmdina.
Það dylst hins vegar engum að
göngugatan er til lítils annars
brúkleg en að ganga á henni. Sól-
ar nýtur þar ekki nema skamman
tíma á degi hverjum. Nú ættu
bæjaryfirvöld hins vegar að stíga
skrefið til fulls og breyta Ráð-
hústorgi í göngutorg. Banna þar
bílaumferð, framlengja göngu-
götuna og byggja loks veglegan
gosbrunn. Túnbletturinn sem nú
er á miðju Ráðhústorgi er vita
gagnslaus. Það er helst að drukk-
ið fólk hendi þangað flöskum og
glösum og grasið forðar þá frek-
ari flöskubrotum.
*
Utiveitingar
Á hellulögðu Ráðhústorgi mætti
hafa skemmtilega útiveitinga-
staði. Þar nýtur sólar og ef ein-
hvers staðar á íslandi er hægt
að hafa slíka veitingastaði þá er
það á Ráðhústorgi á Akureyri. í
Noregi þar sem ég þekki örlítið
til er opnun útiveitingastaðanna
hluti af sjálfri sumarkomunni.
„Uterestaurantarnir" eru venju-
lega opnaðir um eða eftir páska
þegar sól er farin að hækka á
lofti. Hér á Akureyri yrði senni-
lega ekki hægt að koma þessu við
með góðu móti fyrr en um miðj-
an júní en opnun útiveitingastað-
anna gæti þá t.d. markað upphaf
hundadagahátíðar eða tengst 17.
júní. Það er ekkert launungarmál
að aðalaðdráttarafl útiveitinga-
staðanna í Osló og annars staðar í
hinum siðmenntaða heimi, er að
stórum hluta til fólgið í bjórnum.
Það kann kannski að koma templ-
urum á óvart en út um allan
heim koma menn saman á veit-
ingastöðum úti og inni og fá sér
eina til tvær bjórkollur saman.
Sumir fá sér meira að segja meira
en það er þeirra mál.
Útiveitingastaðir og skemmti-
legt Ráðhústorg á Akureyri gætu
skapað bæjarfélaginu miklar
tekjur. Það er kominn tími til að
menn láti hendur standa fram úr
ermum og reyni að gera eitthvað
áður en Akureyri verður endan-
lega breytt í sumarbústaðaný-
lendu Reykvíkinga.
Eitt er það sem ég rak mig
áþreifanlega á þegar ég stóð í
því að hengja upp auglýsingar
fyrir Dags-mótið í kraftlyftingum
á dögunum. Það vantar alveg
stað hér í bænum fyrir auglýsingar
af þessu tagi. Fæstir þeirra sem
standa í að auglýsa hitt og þetta
hirða um að fá leyfi til að hengja
auglýsingarnar upp. Fullorðið
fólk og unglingar á dapurlegu
þroskastigi sóða síðan allt út með
því að gera það að leik sínum að
rífa auglýsingarnar niður þannig
að rifrildin lenda út um allar
jarðir. Þarna getur Akureyrar-
bær bætt úr sóðaskapnum með
þvt' að koma upp trévirki sem
hægt væri að hengja þessar aug-
lýsingar á. Það væri t.d. vel við
hæfi að bærinn setti upp 20 til 30
metra langan timburvegg á flöt-
inni fyrir neðan Samkomuhúsið,
þar sem hægt væri að hengja
auglýsingar á. Þá á ég auðvitað
við alvöru auglýsingar eins og
Dagsprent hefur t.d. gert fyrir
félagasamtök. Um auglýsinga-
plássið væri svo hægt aó sækja til
bæjaryfirvalda þannig að auglýs-
ingastarfsemin væri með vitund
og velvilja bæjarins.
Á þessi atriði er hér minnst
vegna þess að það virðist lítil
löngun í bæjarstjórninni og emb-
ættismenn virðast flestir sama
markinu brenndir. Krákan er
komin með rasssæri og nær hung-
urmorða - er ekki kominn tími til
að hún hefji sig til flugs?
Eiríkur St. Eiríksson
blaðamaður.