Dagur - 10.05.1985, Síða 15
10. maí 1985 - DAGUR - 15
Árbók Bóndans
komin út
Árbók Bóndans 1984 er komin
út fyrír nokkru, en bókín er
gefin út af útgáfufélaginu
Fjölni hf. sem eins konar fylgi-
rit tímaritsins Bóndans, sem
nú hefur verið gefið út í á
þriðja ár. Árbók Bóndans 1984
átti að koma út síðla árs 1984
eins og nafnið bendir til, en
verkfall bókagerðarmanna og
opinberra starfsmanna og aðr-
ar óviðráðanlegar ástæður ollu
nokkurri töf á útkomu hennar.
Framvegis er hins vegar ætlun-
in að bókin komi út að hausti
ár hvert, og kemur Árbók
Bóndans 1985 út nú í haust eða
snemma vetrar.
í Árbók Bóndans verður lögð
áhersla á að birta lengri ritgerðir
og greinar, ritaðar af sérfræðing-
um og sérfróðum mönnum á
hverju sviði, um hin fjölbreyti-
legustu málefni landbúnaðarins.
Ritgerðirnar eru þá flestar það
langar og yfirgripsmiklar að erfitt
er að koma þeim fyrir í venjuleg-
um tímaritum. Efni fyrstu Ár-
bókarinnar er mjög yfirgripsmik-
ið, og er þar að finna eftirtaldar
greinar: Laxeldi og laxarækt eftir
Árna ísaksson. í greininni er t.d.
fjallað um umhverfisforsendur,
seiðaeldi, hafbeit, silungs- og
álaeldi, úthafsveiðar, markaðs-
mál og nýtingarstjórnun. Mjalta-
vinna í básafjósum eftir Grétar
Einarsson og Ólaf Jóhannesson.
í þessari grein er m.a. rakin í
stuttu máli saga og þróun mjalta-
véla á íslandi, fjallað um mjólk-
urgæði og vinnuumhverfi, vinnu-
þörf, hlutdeild mjaltavinnu við
kúahirðingu o.m.fl. Loðdýra-
ræktun eftir Grétar Guðbergs-
son. í greininni fjallar Grétar um
mink og minkafóður, um nokkr-
ar tegundir eldisminka, kanínur,
hús og búr fyrir kanínur og fleira.
Útflutningur landbúnaðarvara
eftir Harald Einarsson. Hér er
fyrst og fremst ritað um hrossa-
útflutning, jafnt kjöts sem lifandi
hrossa, fjallað er um verðmynd-
un við útflutning, birt er skrá yfir
útflutta stóðhesta o.fl. Naut-
griparækt eftir Jón Viðar Jón-
mundsson. Hér er ritað um þró-
un nautgriparæktar og íslenska
kúastofninn, mjólkurmyndun,
fóðurþarfir og átgetu mjólkur-
kúa, fóður og fóður eftir árstím-
um, kynbætur, frjósemi o.fl. Um
orsakir, afleiðingar og með-
höndlun júgurbólgu eftir Ólaf
Oddgeirsson. Hér er t.d. ritað
um sýkla sem valda júgurbólgu,
um hvernig júgurbólga finnist,
um meðhöndlun hennar, lyf og
fleira. Ástand íslenskrar svína-
ræktar eftir Pétur Sigtryggsson.
Hér er birt mjög athyglisverð og
ýtarleg skýrsla um ástand svína-
ræktar hér á landi og leiðir til úr-
bóta og framfara. Hrossarækt
sem aukabúgrein eftir Sigurð
Haraldsson, Kirkjubæ. Hér ritar
hinn kunni hrossaræktarfrömuð-
ur um nokkur þau atriði, sem
hollt er að hafa í huga, vilji menn
fara út í hrossarækt sem auka-
búgrein á búum sínum.
Árbók Bóndans 1984 er um 150
blaðsíður að stærð. Ritstjóri
bókarinnar er Grétar Guðbergs-
son, starfsmaður við Rannsókna-
stofnun landbúnaðarins á
Keldnaholti. Bókinni hefur nú
verið dreift til bænda víðs végar
um land. Bændur fengu bókina á
sértilboðsverði, 100 krónum
ódýrari en verð hennar er í bóka-
verslunum.
Útgefandi Árbókarinnar er
sem fyrr segir Fjölnir hf. útgáfu-
félag Bóndans. Bóndinn hefur
nú komið út í á þriðja ár, og er
honum dreift endurgjaldslaust til
allra skráðra bænda á landinu,
sem samkvæmt skrá Búnaðarfé-
lags íslands eru 4519 talsins. Pá
fæst Bóndinn einnig í bókaversl-
unum um allt land og er seldur í
áskrift til stofnana, fyrirtækja og
einstaklinga víða um land, sem
láta landbúnað til sín taka með
einum eða öðrum hætti.
Sunnudagskaffi
F.H.U.E. veröur haldiö í Lóni Hrísalundi 12. maí kl.
15.00.
Fjölbreytt dagskrá
Állir velkomnir
Kaffinefnd.
Fjölskyldunámskeið
í almennri mannrækt, einkum miðað við aðstand-
endur alkoholista, verður haldið á Akureyri helg-
ina 17.-19. maí nk. (föstudag kl. 20.30-23.00,
laugardag og sunnudag kl. 9.00-18.00).
Þátttaka tilkynnist í síma 25880.
Fjölskyldunámskeiðið á Akureyri.
^ ' > y » ; ^ ^ ■ '
--;-------..—...— ....
Gæsluvellir
Sumarrekstur hefst 15. maí nk. Vellirnir verða
opnir frá-kl. 9-12 f.h. og 2-5 e.h.
Frá sama tíma breytist gjaldtaka á gæsluvöllum.
Miðar í lausasölu hækka úr 10 kr. í 15 kr. og í
kortum úr 8 kr. í 12 kr.
Leikvallanefnd.
Utboð
Kaupfélag Svalbarðseyrar óskar eftir tilboð-
um í flutning á vörum fyrirtækisins leiðina
Svalbarðseyri-Reykjavík-Svalbarðseyri.
Áætlað magn er um 1.000 tonn á ári af kæli- og
frystivörum til Reykjavíkur. Frá Reykjavík er áætl-
aður flutningur 500 tonn á ári af almennri vöru.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu kaupfélags-
ins, þar sem allar nánari upplýsingar eru veittar.
Tilboðum verði skilað fyrir kl. 14, 22. maí nk. til
skrifstofu Kaupfélags Svalbarðseyrar.
Kaupfélag Svalbarðseyrar áskilur sér rétt til að
taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var I 1„ 27. og 33. tbl. Lögbirtingablaðsins 1985
á fasteigninni Öldugötu 12, Dalvik, þingl. eign Harðar Gígja,
fer fram eftir kröfu Ólafs B. Árnasonar hdl. á eigninni sjálfri
miðvikudaginn 15. maí 1985 kl. 14.30.
Bæjarfógetinn á Dalvfk.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 1., 27. og 33. tbl. Lögbirtingablaðsins 1985
á fasteigninni Böggvistöðum, Dalvík, þingl. eign Þorsteins
Aðalsteinssonar, fer fram eftir kröfu Gunnar Sólnes hrl. á eign-
inni sjálfri miðvikudaginn 15. maí 1985 kl. 15.00.
Bæjarfógetinn á Dalvík.
/ORÐDflGSTNSl
sími mm®\
-qmiH lllHnHrJÍIyJlBSHrlrll
Fjölskyldutilbod
Sunnudaginn 12. maí 1985
Hádegis- og kvöidverður
Blómkálssúpa með snittubrauði
Hamborgarlæri með rauðvinssósu
eða
Ofnsteiktir kjúklingar með rjómasveppasósu
Vanilluís með perum og súkkulaðisósu
kr. 350,-
Hálft gjald fyrir börn 6-12 ára,
yngri börn fá frían mat í fylgd með fullorðnum.
Súlnaberg opið alla daga
frá kl. 08.00-20.00.
★ & ★
Hótei KEA
Við bjóðum fjölbreyttar veitingar í veitingasal
sem er opinn alla daga fyrir hádegis- og kvöldverð
* ir *
Dansleikur
laugardagskvöldið 11. maí 1985
Hljómsveit Steingríms Stefánssonar leikur
fyrir dansi frá kl. 22.00-02.00.
Kristján Guðmundsson leikur létt lög fyrir matargesti
frá kl. 19.00.
Borðapantanir í síma 22200.
Verið velkomin.
Fóstrur - Fóstrur
Leikskólann Árholt vantar forstöðumann frá
1. ágúst nk. í fulla stöðu.
Leikskólinn er 2ja deilda meö samtals 67 börn.
Skriflegar umsóknir um menntun og fyrri störf
sendist Félagsmálastofnun Akureyrar, Strand-
götu 19 b.
Allar nánari upplýsingar veittar alla virka daga
milli 10 og 12 í síma 96-25880.
Dagvistarfulltrúi.
Laus staða
Rafveita Akureyrar óskar að ráöa rafmagns-
tæknifræðing eöa rafmagnsiönfræöing í stöðu
forstöðumanns tæknideildar. Laun samkvæmt
samningum Akureyrarbæjar og STAK.
Umsóknir ásamt greinargerö um menntun og fyrri
störf skulu hafa borist skrifstofu rafveitunnar eigi
síöar en 24. maí nk.
Nánari upplýsingar veitir rafveitustjóri.
Rafveita Akureyrar.