Dagur - 10.05.1985, Síða 17
10. maí 1985- DAGUR- 17
Heimsfrœgur píanó-
leikari í heimsókn
Píanóleikarinn Dag Achatz
kemur til Akureyrar, en hann
er mikill aufúsugestur í tón-
leikasölum heimsborganna.
Dag Achatz leikur á tón-
leikum í sal Tónlistarskólans
á Akureyri þriðjudaginn 14.
maí kl. 20.30.
Kuldá
Akureyri
Sigtryggur fyrrverandi tromm-
ari Þeysara, núverandi „Kukl-
ari“ og Björk Guðmundsdóttir
úr Tappa tíkarrassi halda tón-
leika að Möðruvöllum, raun-
vísindahúsi MA, á mánudags-
kvöldið. Fjörið byrjar kl.
21.00 og það kostar 150 kr.
inn.
Það heyrir til stórtíðinda er
slíkir tónlistarmenn heim-
sækja bæinn, en Dag Achatz
kemur til landsins á vegum
Tónlistarfélagsins í Reykjavík
og Tónverks sf.
Tónlistargagnrýnendur
blaða og tímarita á borð við
New York Times, Gramo-
phone, The Times Harmonie
og víðar, hafa verðið ósparir
á lofsyrðin, þegar hljóðfæra-
leik Dag Achatz hefur borið á
góma, og samkvæmt þeirra
skrifum hafa tónleikar hans
þótt meiriháttar listaviðburður
á þeirra bæ.
Dag Achatz hefur heimsótt
20 lönd á tónleikaferðum sín-
um og eru borgir eins og New
York, London, París, Vín,
Berlín og Moskva meðal tón-
leikastaða.
Túlkun hans á hljómsveitar-
verkum, sem hann hefur um-
ritað fyrir píanó þykir ganga
göldrum næst, meðal slíkra
verka eru sinfónískir dansar úr
West Side Story eftir Bern-
stein, Hnetubrjóturinn eftir
Tchaikovsky og Eldfuglinn
eftir Stravinsky. Bernstein
hreifst svo af túlkun Dag
Achatz að hann fékk hann til
að umrita fleiri af eigin verk-
um og flytja þau inn á hljóm-
plötu.
Hann hefur unnið til fjöl-
margra verðlauna í alþjóð-
legum tónlistarsamkeppnum
eins og í Rudolf Ganz keppn-
inni í Lausanne og keppni bæ-
eríska útvarpsins í Munchen.
Sœnsk vísnasöng-
kona á Akureyri
Um þessar mundir dvelur hér
á landi sænska vísnasöngkon-
an Thérése Juel. Thérése er
búsett í Stokkhólmi, þar sem
hún starfar við sænska útvarp-
ið, en hún hefur þó jafnframt
verið um langt skeið framar-
lega í flokki vísnasöngkvenna
þar í landi. Út hafa komið
nokkrar breiðskífur með söng
hennar, og nú nýlega ein slík,
þar sem hún syngur lög við
Lúðrasveiiarheimsókn frá Noregi
Það
er ekki á hverjum degi
sem við fáum stórar lúðra-
sveitir í heimsókn til Akureyr-
ar. En nú mun Akureyringum
gefast tækifæri að hlýða á tón-
list 30 manna stórrar lúðra-
sveitar. Er það lúðrasveit frá
Musteri Hjálpræðishersins í
Osló, Templet Hornorkester.
Þessi lúðrasveit er talin vera
ein sú besta sem við höfum á
Norðurlöndum, og mun eng-
inn svikinn af að koma og
hlusta á hana.
Templet Hornorkester á sér
langa sögu, því hún hefur leik-
ið fólki til blessunar og ánægju
frá árinu 1888. Þó gömul sé
eru flestir meðlimir hennar í
dag ungir hermenn, og má þar
á meðal nefna hinn unga og
efnilega hljómsveitarstjóra
hennar, Yngve Slettholm.
Hann er auk þess að vera
lúðrasveitarstjóri, duglegt tón-
skáld og forseti í „Foreningen
Ny Musikk“.
Það er unun að hlýða á tón-
listarflutning þessarar lúðra-
sveitar. En meðlimir hennar
leika ekki eingöngu á blásturs-
hljóðfæri. í hópnum er ung
stúlka sem er mjög efnilegur
konsertpíanisti og einnig
margt duglegt söngfólk. Því
munum við einnig á tónleikun-
um geta hlýtt á einsöng,
þrísöng, fjórsöng og æskulýðs-
kór, svo eitthvað sé nefnt.
Með lúðrasveitinni kemur
aðalritari Hjálpræðishersins
yfir Noregi, Færeyjum og fs-
landi, ofurstilautinant Einar
Madsen ásamt konu sinni,
Bergljótu. Hann er næstæðsti
yfirmaður Hjálpræðishersins
og kemur nú í fyrsta sinn hing-
að til lands. Við munum fá að
hlýða á mál þeirra hjóna á
samkomunum.
Söng- og hljómleikasam-
komur verða haldnar í Akur-
eyrarkirkju þriðjudaginn 14.
maí kl. 21.00 og miðvikudag-
inn 15. maí kl. 20.30. Einnig
mun lúðrasveitin halda útitón-
leika í Miðbænum kl. 16.00 á
miðvikudag.
Æskulýðskór Hjálpræðis-
hersins á Akureyri mun einn-
ig syngja á samkomunum.
Samkomustjóri og túlkur
verður kapteinn Daníel Ósk-
arsson.
Uppstigningardag heldur
Subaru-
og
Nissan-
sýning
Bílasýning verður hjá Bif-
reiðaverkstæði Sigurðar Valdi-
marssonar á Akureyri um
helgina. Stendur sýningin yfir
laugardag og sunnudag, kl.
14.00-17.00 báða daeana.
Á sýningunni verða sýndar
Subaru og Nissan bifreiðar og
sölu- og fjármálastjórar frá
Ingvari Helgasyni verða á
staðnum til skrafs og ráða-
gerða.
lúðrasveitin suður til Reykja-
víkur, þar sem hún mun leika
fram yfir helgi á samkomum
sem verða haldnar í tilefni af
90 ára afmæli Hjálpræðishers-
ins á Islandi.
Vonandi nota sem flestir
tækifærið að hlvða á bessa tón-
leika. Aðgangur er ókeypis en
fórn verður tekin.
ljóð Martins Koch. Thérése er
íslenskum vísnavinum að góðu
kunn, en kynni hennar og
þeirra hófust fyrir nokkrum
árum, þegar hún kom hingað
á vegum sænska útvarpsins, til
að vinna að þætti um störf
vísnavina hérlendis.
Nánast tynr tilviljun komust
vísnavinir að því að útvarps-
konan leyndi á sér og við nán-
ari eftirgrennslan kom í ljós að
henni var fleira til lista lagt, en
beina hljóðnemanum að söng-
vinnum fslendingum, svo
dæminu var snúið við og ári
seinna kom Thérése aftur
hingað og þá sem „vísnasöng-
konan Thérése Juel". Þá hélt
hún stórgóða tónleika í Nor-
ræna húsinu og víðar við feiki-
góðar undirtektir.
Nú er hún komin aftur, og
fyrir tilstuðlan Norræna húss-
ins og vísnavina mun hún
heimsækja Norðurland dagana
8.-12. maí. Það er Norræna
húsið sem greiðir fararkostnað
Thérése og Bergþóru Árna-
dóttur, sem verður með í för-
inni, fyrir hönd vísnavina, og
munu þær stöllur að líkindum
stilla sína strengi saman og að-
stoða hvor aðra eftir þörfurn!
Tónleikarnir sem eru á veg-
um Norræna félagsins á Akur-
eyri verða í Amtsbókasafninu
sunnudaginn 12. maí kl. 16.
íþrótír
um
helgina
Fremur rólegt verður á
íþróttasviðinu á Akureyri um
helgina, og má segja að um sé
að ræða lognið á undan storm-
inum en knattspyrnuvertíðin
hefst í næstu viku.
Badmintonmenn verða þó
á ferðinni í íþróttahöllinni, en
þar fer fram Akureyrarmót í
fullorðinsflokki. Keppnin
hefst kl. 12 á laugardag.
Fimleikaráð Akureyrar
gengst fyrir Akureyrarmótinu
fyrir stúlkur og verður það í
Glerárskóla. Hefst keppnin kl.
16.30 í dag og verður síðan
fram haldið kl. 13.30 á
morgun.
Sem fyrr sagði hefst íslands-
mótið í knattspyrnu eftir helg-
ina. Fyrsti leikurinn í 1. deild
á Akureyri á þessu keppnis-
tímabili verður á þriðjudags-
kvöld á Þórsvelli en þá taka
Þórsarar á móti íslandsmeist-
urum Skagamanna. Keppnin í
2. deild hefst síðan nk.
fimmtudag og verður þá leikin
heil umferð. Við segjum nánar
frá þessu í blaðinu á mánudag.
JM‘
í Borgar-
/ / •
Kvikmyndaklúbbur Mennta-
skólans á Akureyri sýnir í dag
og á morgun klukkan fimm,
hina ágætu kvikmynd 1984
(Nineteen Eighty-Four), sem
gerð er eftir samnefndri skáld-
sögu George Orwell.
Leikarar í myndinni eru
ekki af verri endanum, og er
þar helsta að nefna John Hurt
og Richard Burton. Söguþráð
myndarinnar er með öllu
óþarft að tíunda, svo vel þekkt
er saga Orwells. Það er því
ekki um annað að ræða en að
drífa sig í Borgarbíó. Miða-
verð er krónur 130.
,J<Crúttmagakvöld“
Nú verða krúttmagar að fara
að undirbúa sig fyrir krútt-
magakvöld, því tvö slfk verða
haldin í Sjallanum dagana 17.
og 18. maí nk. Þetta er þriðja
árið í röð sem slík krúttmaga-
kvöld eru haldin, en þau eru
eingöngu fyrir konur. nokkurs
konar mótleikur við kútmaga-
kvöld karlanna.
Flóamarkaður
Bíla- og búvélasýning verður
haldin við Bílaverkstæði Dal-
víkur á morgun laugardag.
Sýningin hefst kl. 9.00 um
morguninn og stendur til kl.
17.00. Starfsemi bflaverk-
stæðisins verður kynnt ásamt
úrvali af búvélum frá Búnað-
ardeild Sambandsins. Þá gefst
fólki kostur á að reynsluaka
bíl ársins - Opel Kadett. Einn-
ig verður kynning á kaffi frá
Kaffibrennslu Akureyrar,
Holtakexi og gosdrykkjum
frá Sana.
Geðverndarfélag Akureyrar
gengst um helgina fyrir
flóamarkaði og kaffisölu í
Dynheimum. Opið verður
laugardag og sunnudag frá kl.
13-18 báða dagana og um leið
og gestir hressa sig á kaffi og
vöfflum styrkja þeir gott mál-
efni.
Ýmislegt fleira er á döfinni
hjá Geðverndarfélagi Akur-
eyrar. Unnið er að fram-
icvæmdum við húsnæði félags-
ins að Ráðhústorgi 5, 3. hæð,
og er félagið að koma sér þar
fyrir.
Þá verður í næsta mánuði
merkjasala félagsins og vonast
félagsmenn eftir jafn góðum
viðtökum bæjarbúa og á síð-
asta ári. Félagið vill koma á
framfæri þökkum til allra þeirra
sem fært hafa því gjafir og
áheit, lagt fram sjálfboðavinnu
og lagt sig fram um að greiða
götu þess á allan hátt.
Ýmsar óvenjulegar heima-
tilbúnar uppákomur verða á
krúttmagakvöldunum. en
leynigesturinn verður lands-
frægur skemmtikraftur af
sterkara kyninu og verður
hann jafnframt kynnir. Öll
skemmtiatriði eru samin og
flutt af konum á Akureyri og
úr nærsveitum og kennir þar
ýmissa grasa.
Forsala aðgöngumiða verð-
ur í Sjallanum á miðvikudag
og fimmtudag í næstu viku,
frá 18.00-20.00. Ekki verður
tekið við pöntunum í sfma,
nema frá utanbæjarkonum.
Við segjum nánar frá krútt-
magakvöldunum í næstu viku.
Hvað er að gerast?
Uppstigningardagur er nk.
fimmtudag. Vegna þess kemur
Helgar-Dagur ekki út í næstu
viku. Þeir sem þurfa að koma
á framfæri efni í þáttinn
„Hvað er að gerast" fyrir mið-
vikudagsblaðið, eru vinsam-
lega beðnir um að skila efni
fyrir hádegi nk. þriðjudag.
Fyrsta skóflustungan hjá KA
Á morgun kl. 14.00 verður
tekin fyrsta skóflustungan að
vallarhúsi KA á svæði félags-
ins í Lundarhverfi.
Það verða fyrstu stjórnar-
menn KA sem þar verða að
verki, en þeir eru Tómas
Steingrímsson, Helgi Schiöth
og Jón Sigurgeirsson.
Á eftir verður boðið upp á
knattspyrnuleik, og eru það
strákar úr yngstu aldursflokk-
um félagsins sem þar ætla að
leika listir sínar. Þá verður hóf
f félagsmiðstöð KA í kjallara
Lundarskóla í tilefni dagsins
og boðið þar upp á kaffiveit-
ingar.