Dagur - 10.05.1985, Qupperneq 20
I Smiðju um helgina:
Nýir réttir á matseðli helgarinnar.
Verður álver staðsett í Arnarneshreppi?
„Sæki það af hörfoT
Sverrir Hermannsson iðnaðar-
ráðherra sagði á fundi með
sjálfstæðismönnum á Akureyri
um helgina að hann myndi
sækja það af hörku að bygging
álvers á Dysnesi í Arnarnes-
hreppi yrði að veruleika. Var
þessum orðum ráðherrans að
- segir iðnaðarráðherra - hreppsnefndin jákvæð
sögn fagnað með lófataki.
I blaði „Áhugamanna um
framfarir við Eyjafjörð" sem út
kemur í dag er m.a. viðtal við
Magnús Stefánsson bónda í
Fagraskógi og hreppstjóra í Arn-
arneshreppi. Magnús segir í við-
talinu að hans álit sé að menn þar
í hreppnum séu ekki eins harðir
í afstöðu sinni gegn fyrirhuguðu
álveri þar og verið hefur. Þá segir
hann að hreppsnefndin hafi ekki
fjallað mikið um þetta mál, en
hann telur að hreppsnefndin sé
jákvæð gagnvart því að álver
verði sett niður þar í hreppnum.
Um dreifingarspá norska fyrir-
tækisins sem birt hefur verið segir
Magnús: „Þessi dreifingarspá
sem nú er komin er ekki
marktæk, mér er sagt að í henni
sé miðað við verksmiðju sem er
orðin úrelt í dag og það verður
aldrei meiri mengun en þeir gera
ráð fyrir í þessari spá sinni.“
Magnús segist eiga von á því
að búskapur verði áfram stund-
aður í Arnarneshreppi um ókom-
in ár þótt álver verði sett þar
niður. „Það kemur mikið fjár-
magn hér inn og að því leyti yrði
um mikla byltingu að ræða. Þetta
fjármagn yrði bæði í formi að-
stöðugjalda og hafnargjalda og á
fleiri sviðum."
í lok viðtalsins segir Magnús
að hreppsnefnd Arnarneshrepps
hafi verið höfð með í ráðum hjá
samstarfsnefnd um þetta mál,
það hafi verið auðsótt mál eftir
að hreppsnefndin hafi farið fram
á það. gk-.
Nýr
skyndi
bita-
staður
á Akureyri
Fyrirtækið Hrímnir hefur sótt
um leyfi til kjötvinnslu í húsi
Bflaleigunnar Geysis við
Hvannavelli.
Að sögn Kjartans Bragasonar
eiganda bílaleigunnar, er áform-
að að í suðurenda hússins verði
komið á fót „skyndibitastað" og
verða eigendur Hrímnis þeir
Guðmundur Kr. Guðmundsson
og Jakob Haraldsson eigendur
þess staðar ásamt Kjartani.
Kjartan sagði í viðtali yið Dag
að þessi skyndibitastaður yrði
opnaður í sumar. „Við teljum að
það sé full þörf á stað sem
þessum, og hér verður um að
ræða stað þar sem fólk kemur
inn, fær fljóta afgreiðslu og tekur
matinn með sér heim.“ gk-.
Akure
vilja s
lyringar
tofnanir
Islenskir dagar hófust formlega í Hagkaup í gær. Ýmislegt var til hátíðabrigða, t.d. tískusýningar og ræðuhöld.
Einnig var kappinn Jón Páll mættur og bauð í sjómann og reiptog. Mynd: KGA
Hótel Húsavík:
Leigt Samvinnu-
ferðum og Flugleiðum
Samvinnuferðir og Flugleiðir
hafa, ákveðið að taka Hótel
Húsavík á leigu. Frumsamn-
ingur hefur verið gerður um
þetta efni og gildir hann til 30.
september 1986.
Stjórn Samvinnuferða fjallaði
um þetta mál á stjórnarfundi í
gær en stjórn Flugleiða mun taka
það fyrir alveg á næstunni. Sam-
kvæmt samningnum er leiguhluti
Samvinnuferða 70% en Flugleið-
ir verða með 30% hlut. Fyrirtæk-
in borga eigendunum ákveðið
hlutfall af veltu og ef tap verður,
bera fyrirtækin það. Húsavíkur-
bær sem er stærsti eigandinn að
hótelinu fær því arð af þessari
eign sinni í fyrsta skipti.
- Okkur fannst það synd að
jafn gott hótel skyldi ekki ganga
betur og við vildum því reyna að
bæta þar úr, sagði Helgi Jóhann-
esson framkvæmdastjóri Sam-
vinnuferða í samtali við Dag.
Að sögn Helga verða gerðar
einhverjar skipulagsbreytingar á
rekstri hótelsins en starfsfólk
verður hið sama og verið hefur.
- ESE
Bæjarráð Akureyrar hefur ný-
lega ítrekað áskorun sína til
stjórnvalda um að fyrirhuguðu
hlutafélagi sem ætlað er að
örva nýsköpun í atvinnulífí
verði valinn staður á Akureyri.
Bæjarráð hefur ennfremur lagt
til við bæjarstjórn Akureyrar
að reynt verði að fá fyrirhug-
aða líftæknistofnun til bæjar-
ins.
í áskorun bæjarráðs til for-
manna þingflokkanna og þing-
manna Norðurlandskjördæmis
eystra er þess getið að ef fyrir-
huguðu þróunarfélagi yrði valinn
staður á Akureyri, myndi það
vera jákvæð aðgerð á sviði at-
vinnumála.
Norræn líftæknistofnun hefur
verið til umræðu í Norðurlanda-
ráði og þar hefur verið lagt til að
slík stofnun verði sett upp á ís-
landi. Leggur bæjarráð til að
bæjarstjórn Akureyrar lýsi yfir
stuðningi við þessa tillögu og því
verði beint til ríkisstjórnar að
stofnuninni verði valinn staður á
Akureyri. - ESE
Samtökunum
vex fiskur
um hrygg
26 félagsdeildlr hafa nú verið
stofnaðar innan Samtaka um
jafnrétti á milli landshiuta en
samtök þessi voru stofnuð á
Akureyri í fyrra.
Að sögn Árna Steinars Jó-
hannssonar sem sæti á í undir-
búningsnefnd vegna fyrirhugaðs
landsfundar eru félagsmenn nú
orðnir fjölmargir og viðtökur
víðast hvar góðar. - ESE
í dag er vaxandi sunn-
anátt, fer að rigna aust-
an til á Norðurlandi og
síðdegis einnig vestan
til. Vind lægir í nótt en
búast má við suðlægri
átt og einhverri rigningu
á morgun. Á sunnudag
verður hæg vestanátt og
þurrt víðast hvar á
Norðurlandi.
Sumarfatnaður
á alla fjölskylduna í meira úrvali
en nokkru sinni fyrr.
Verð og gæðin í sérflokki.
Póstsendum.
.ÆVrsm fWisnprö)