Dagur - 20.03.1986, Síða 1
Fermingargjafir f mjög mikiu úrvaii.
Steinhringar -
gullfestar og armbönd
Fermingarrammar.
Ódýrir silfurhringar og skartgripaskrín.
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉtUR
AKUREYRI
Yfirlýsing frá SÍS vegna ummæla Tryggva Stefánssonar, stjórnarformanns KSÞ:
Stuðningur Sambandsins
til KSÞ nemur 52 m.kr.
- Hvað er stuðningur ef það er ekki stuðningur, segir í yfirlýsingunni
„Kaupfélag Svalbarðseyrar
hefur beðið um greiðslustöðv-
un, en félagið hefur átt í
rekstrarerfiðleikuin undanfar-
ið. Fram hefur komið í viðtöl-
um við stjórnarformann félags-
ins að Samband íslenskra sam-
vinnufélaga hafi ekki staðið
sem skyldi að baki félaginu í
fjárhagsörðugleikum þess.
Vegna félagsmanna á svæðinu
og annarra samvinnumanna,
telur Sambandið rétt að það
komi fram hver stuðningur
þess hefur verið á árinu við
KSÞ.
Skuldir félagsins við SÍS voru í
upphafi árs 1985 3,8 milljónir og í
lok þess 27,2 milljónir króna,
jukust þannig um 23 milljónir á
árinu auk þess sem Sambandið er
í ábyrgð fyrir afurðalánum
félagsins að upphæð 18,5 milljón-
ir króna auk vaxta. Til viðbótar
afsalaði Sambandið sér veðrétti
sínum á kjötbirgðum félagsins að
upphæð 6,7 milljónir króna, til
þess að hægt væri að taka svo-<
nefnd staðgreiðslulán og greiða
bændum fullt verð.
Helsta ástæða þess að skuld
félagsins við Sambandið jókst á
árinu var, að félagið greiddi ekki
niður afurðalán af kindakjöti,
sem Sambandið var í ábyrgð
fyrir, og lentu greiðslur á Sam-
bandinu. Félagið greiddi ekki
vöruúttektir sínar og það var
ekki fyrr en í lok sl. árs sem Sam-
bandið átöðvaði afhendingar á
vörum, nema gegn staðgreiðslu.
Til þess að félagið gæti slátrað sl.
Drangey SK1:
Breytingar erlendis
fyrir 130 m.kr.
„Við höfum ákveðið að fara út
í breytingar á Drangey og þar á
meðal að setja í skipið tæki til
heilfrystingar um borð,“ sagði
Bjarki Tryggvason hjá
Útgerðarfélagi Skagfírðinga.
En fyrirhugaðar eru miklar
breytingar á skipinu.
Leikhússtjóri L.A.:
Engin
ákvörðun
en rætt við
tvo aðila
„Það var ákveðið að ræða við
aðila sem eiga tvær af þessum
fímm umsóknum um leikhús-
stjórastöðuna,“ sagði Theodór
Júlíusson hjá Leikfélagi Akur-
eyrar.
Eins og fram hefur komið bár-
ust 5 umsóknir um stöðu leikhús-
stjóra. Leikhúsráð ræddi þessar
umsóknir á fundi sínum í gær og
varð sammála um að ræða við
aðila sem eiga tvær umsóknanna.
Nafnleyndar var krafist í 4
umsóknum og er einn aðili úr
þeim hópi sem rætt verður við.
Hin umsóknin sem til greina
kemur er frá Hlín Agnarsdóttur
og Hafliða Arngrímssyni, en þau
eru bæði leikhúsfræðingar að
mennt. Theodór sagði að rætt
yrði við þessa aðila mjög fljótt og
lögð áhersla á að fá botn í málið
fyrir páska. gej-
Sá heilfrystibúnaður sem áætl-
að er að setja í Drangey er aðal-
lega hugsaður fyrir rækju, karfa
og grálúðu. Ekki fást íán til
verksins og þarf Útgerðarfélagið
að fjármagna það að öllu leyti.
Áætlaður kostnaður er um 12
milljónir króna. Útgerðarfélag
Skagfirðinga sendi lánsumsókn
til Fiskveiðasjóðs í desember
1984 og fékk svar frá sjóðnum
fyrir nokkrum dögum á þá leið að
ekki væri lánað til slíkra verka.
Hins vegar væri hverjum heimilt
að setja heilfrystibúnað í skip sitt
á eigin kostnað.
Fleira á að gera við Drangey
en setja í hana frystibúnaðinn, því
lengja á skipið um 6,6 metra,
skipta um vél og spilbúnað.
Verkið var boðið út og gögn send
til nokkurra skipasmíðastöðva
þar á meðal einnar íslenskrar
skipasmíðastöðvar, það var
Slippstöðin á Akureyri. Forráða-
menn þar treystu sér ekki til þess
að taka að sér verkið þar sem
mikið var að gera við Kanada-
togarana og fleira á þeim tíma
sem áætlaður var til verksins. Það
var þýsk skipasmíðastöð sem tók
að sér verkið og fer Drangey til
Pýskalands 22. apríl n.k. og á að
vera tilbúin um mánaðamót júní
og júlí.
Áætlaður kostnaður við verkið
er um 130 milljónir króna. Fisk-
veiðasjóður samþykkti að lána
65% út á verkið, að frátöldum
frystibúnaðinum.
Útgerðarfélag Skagfirðinga ger-
ir einnig út togarana Hegranes og
Skapta. Hegranesinu var breytt í
Slippstöðinni 1983 og sagði
Bjarki að skipið hefði reynst
mjög vel eftir þær breytingar og
aflað ágætlega. gej-
haust, féllst Sambandið á að
ábyrgjast afurðalán vegna haust-
slátrunar 1985, þrátt fyrir gífur-
leg vanskil á eldri afurðalánum.
Pað var eini kostur félagsins að fá
afurðalán og geta þannig slátrað.
Sambandið greiddi laun starfs-
manna í sláturhúsi félagsins í
sláturtíð, greiddi m.a. 2 milljónir
til áburðarverksmiðju og svo
mætti lengi telja.
Ef það er mat stjórnarmanna í
KSP að það sé ekki stuðningur
við félagið að greiða 27 milljónir
króna úr sameiginlegum sjóðum
Samvinnuhreyfingarinnar til þess
að styðja við bakið á félaginu í
fjárhagserfiðleikum þess, auk
þess að taka á sig ábyrgð að upp-
hæð 25,2 milljónir, eða samtals
52,2 milljónir króna, þá er vand-
séð hvað kalla má stuðning.
Það er von Sambandsins að
félagsmenn í KSP skilji að það er
ekki hægt að leysa allan fjárhags-
vanda Kaupfélagsins með sjóð-
um Sambandsins. Sambandið
hefur ávallt stutt við bakið á
kaupfélögunum og félagsmönn-
um þeirra eins og kostur hefur
verið hverju sinni. En allt hefur
sín takmörk.“
Hér réttir Gunnar Þórsson, skrifstofustióri í POB, Arna Steinari fyrstu
eintökin af ný.ia tímaritinu. Mynd: KGA
Útvörður
- Nýtt tfmarit flytur boðskap
Samtaka um jafnrétti milli landshluta
í gær kom út fyrsta tölublað
nýs tímarits sem gefíð er út á
Akureyri og hefur því verið
gefið nafnið Utvörður.
Reyndar var ekki búið að
fínna þetta nafn þegar blaðið
fór í prentun og heitir fyrsta
tölublaðið því Samtökin.
Útgefandi tímaritsins er Sam-
tök um jafnrétti milli landshluta
og er því ætlað að vera nokkurs
konar málgagn Samtakanna, að
sögn Árna Steinars Jóhannsson-
ar sem er formaður ritstjórnar.
Tímaritið er gefið út í 30 þús-
und eintökum og er það stærra
upplag en vitað er til að prentað ;
hafi verið af tímariti á íslandi til ;
þessa. Útverði verður dreift til
allra félagsmanna Samtakanna
og auk þess verður það selt í
lausasölu hjá deildum samtak-
anna um allt land og á blaðsölu-
stöðum.
Að sögn ritstjórnarmanna er
uppistaðan í efni fyrsta tölu-
blaðsins umfjöllun og greining á
rót þess vanda í íslensku þjóð-
skipulagi sem Samtökin telja að
sé fyrir hendi og berjast fyrir
lagfæringum á. í næsta tölublaði
verður fjallað um það hvernig
vandinn skuli leystur. -yk.
Valur Arnþórsson:
„Undrandi á
ummælum
Tiyggva"
Viðtal við Tryggva Stefánsson
stjórnarformann Kaupfélags
Svalbarðseyrar í sjónvarpinu á
mánudagskvöld vakti mikla
athygli manna. Þar deildi hann
á Samband íslenskra sam-
vinnufélaga fyrir það að SÍS
hefði ekki stutt við bakið á
KSÞ í erfíðleikum þess. Hann
sagði að það væri greinilega
langt á miUi bænda í Þingeyjar-
sýslu og Sambandsins.
Dagur snéri sér til Vals Arn-
þórssonar kaupfélagsstjóra KEA
og stjórnarformanns Sambands-
ins og innti hann álits á þessum
ummælum Tryggva.
„Ég hygg að Sambandið muni
koma fram athugasemdum vegna
þessa í ríkisfjölmiðlunum. Sjálf-
ur vil ég ekki ræða á þessu stigi
efni þessa viðtals við Tryggva
Stefánsson. Ég get þó sagt það að
ég varð ákaflega undrandi á að
hlýða á hans mál.“ gg
Kæra Aðalsteins Jónssonar:
Beðið eftir
úrskurði
ríkissaksóknara
Svo sem Dagur hefur skýrt frá
fór Aðalsteinn Jónsson bóndi
'\ Víðivöllum í Fnjóskadal
iram á það við ríkissaksóknara
að gerð verði opinber rann-
sókn á málefnum Kaupfélags
Svalbarðseyrar.
Þeirri beiðni var hafnað eins og
hún var lögð fyrir en ríkissak-
sóknari fól bæjarfógetanum á
Húsavík að taka skýrslu af
stjórnarmönnum í KSÞ og senda
til ríkissaksóknara. Mun ætlunin
að marka stefnuna um áfram-
haldandi rannsókn á innihaldi
þessara skýrslna.
Að sögn bæjarfógetans á
Húsavík er þessari skýrslutöku
lokið. „Skýrslurnar eru unr það
bil að fara frá okkur. Við eigum
bara eftir að setja þær í póst."
Það mun því skýrast á næstu
dögum hvort framkvæmd verður
opinber rannsókn á rekstri KSÞ.
ellegar hvort málið er „dautt".
BB.
9BHK